Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

8 dómar fundust

Lykilorð: Hópuppsögn

Héraðsdómur Vesturlands birt 25. febrúar 2026

E-234/2025

Njáll Gíslason (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Stefnandi var í föstu ráðningarsambandi við stefnda Hval hf. og sá samningur raskaðist ekki vegna þessa. Ekki talinn hafa eignast sérstaka kröfu á grundvelli þess að hvalvertíð hófst ekki í júní 2023 þar sem hann áttii að gegna stöðu skipstjóra, einkum á grundvelli þess að honum var kunnugt um ákvæði í ráðningarsamningi þess efnis að ef að af hvalvertíð yrði ekki vegna ákvörðunar stjórnvalds þá félli samningurinn niður. Lög um hópuppsagnir voru ekki talin breyta þeirri niðurstöðu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-320/2025

Dagur Ari Kristjánsson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Ráðningarsamningur talinn hafa komist á um vinnu á vertíð í Hvalfirði. Kröfu um laun eins og af vertíðinni hefði orðið hins vegar hafnað og Hvalur hf. sýknaður vegna þess að launþegi átti ekki heldur rétt til launa á uppsagnarfresti. Lög um hópuppsagnir voru ekki talin breyta þeirri niðurstöðu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-319/2025

Birkir Reynisson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Ráðningarsamningur talinn hafa komist á um vinnu á vertíð í Hvalfirði. Kröfu um laun eins og af vertíðinni hefði orðið hins vegar hafnað og Hvalur hf. sýknaður vegna þess að launþegi átti ekki heldur rétt til launa á uppsagnarfresti. Lög um hópuppsagnir voru ekki talin breyta þeirri niðurstöðu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-318/2025

Patrekur Ísak Ólafsson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Stefnandi var í föstu ráðningarsambandi við stefnda Hval hf. og sá samningur raskaðist ekki vegna þessa. Ekki talinn hafa eignast sérstaka kröfu á grundvelli þess að hvalvertíð hófst ekki í júní 2023 þrátt fyrir að ágreiningslaust væri að hann hefði hækkað til muna í launum ef af vertíð hefði orðið. Sú launhækkun hefði þá byggst á auknu vinnuframlagi hans en á grundvelli sama ráðningarsamnings og sömu launakjara. Lög um hópuppsagnir voru ekki talin breyta þeirri niðurstöðu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-233/2025

Úlfur Örn Maríuson (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Ráðningarsamningur talinn hafa komist á um vinnu á vertíð í Hvalfirði. Kröfu um laun eins og af vertíðinni hefði orðið hins vegar hafnað, en samþykkt krafa um laun á uppsagnarfresti.

Héraðsdómur Vesturlands birt 12. febrúar 2026

E-231/2025

Jóhann Úlfar Thoroddsen (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Hval hf (Stefán A. Svensson lögmaður)

Launakrafa gerð á hendur Hval hf. vegna þess að ekki varð úr hvalvertíð sumarið 2023 vegna ákvörðunar stjórnvalda. Ráðningarsamningur talinn hafa komist á um vinnu á vertíð í Hvalfirði. Kröfu um laun eins og af vertíðinni hefði orðið hins vegar hafnað, en samþykkt krafa um laun á uppsagnarfresti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. maí 2025

E-5586/2022

A (Elías Karl Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Stefndi, íslenska ríkið, var sýknað af skaðabótakröfum stefnanda, sem byggði á því að hún hefði orðið fyrir tjóni vegna ólögmætrar uppsagnar þar sem farið hefði verið á svig við áskilnað laga um hópuppsagnir. Var í málinu aflað ráðgefandi álits frá EFTA-dómstólnum í því skyni að varpa ljósi á þá löggjöf sem reyndi á í málinu. Varð niðurstaðan sú að fallist var á það með stefnda að stætt hafi verið á því eins og hér stóð á að telja stjórnarmenn stofnunar með sem starfsmenn hennar og því hafi ekki verið farið á svig við lög um hópuppsögn eins og stefnandi byggði mál sitt á.

Landsréttur birt 3. nóvember 2023

748/2020

Verkfræðingafélag Íslands Stéttarfélag tölvunarfræðinga og Lyfjafræðingafélag Íslands (Halldór Kr. Þorsteinsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

V, S og L höfðuðu mál fyrir hönd félagsmanna sinna á hendur Í og kröfðust viðurkenningar á því að ákvörðun Í um að segja upp samningum tiltekinna starfsmanna hjá stoðeiningum Landspítalans um yfirvinnu á föstum forendum hefði falið í sér hópuppsögn í skilningi laga nr. 63/2000 um hópuppsagnir. Í byggði á því að lög nr. 63/2000 næðu ekki til tilvika þegar ekki væri um ráðningarslit að ræða, eins og horfði við í fyrirliggjandi máli. Undir rekstri málsins fyrir Landsrétti var ákveðið að leita ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins og beina til hans þremur tilgreindum spurningum um hvernig bæri að túlka tilskipun ráðsins 98/59/EB um samræmingu laga aðildarríkjanna um hópuppsagnir, sem var innleidd í íslenskan rétt með lögum nr. 63/2000, þegar vinnuveitandi hygðist segja upp samningum um fasta yfirvinnu. Kvað sá dómstóll upp dóm 19. apríl 2023 í máli nr. E-9/22. Í niðurstöðu Landsréttar var rakið að yfirvinnutímum var fækkað hjá samtals 113 starfsmönnum á stoðdeildum Landspítala, að félagsmönnum V, S og L meðtöldum. Því hefði fjöldatölum 1. mgr. 1. gr. laga nr. 63/2000 verið náð. Þá var það niðurstaða Landsréttar, með hliðsjón af ráðgefandi áliti í dómi EFTA-dómstólsins, að uppsögn á ótímabundnum samningum félagsmanna V, S og L um fastar yfirvinnugreiðslur, sem leiddu til lækkunar heildarlauna og þess að tímabundinn samningur kom í stað ótímabundins samnings, fæli í sér breytingu á meginþætti í ráðningarsamningi starfsmanna sem teldist jafnframt veruleg og því um uppsögn ráðningarsamnings að ræða í skilningi laga nr. 63/2000. Var því fallist á með V, S og L að sú aðgerð Í að segja upp samningum um fasta yfirvinnu hafi falið í sér hópuppsögn. Voru kröfur V, S og L því teknar til greina.