Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Starfsmannaréttur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. maí 2025

E-5586/2022

A (Elías Karl Guðmundsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Stefndi, íslenska ríkið, var sýknað af skaðabótakröfum stefnanda, sem byggði á því að hún hefði orðið fyrir tjóni vegna ólögmætrar uppsagnar þar sem farið hefði verið á svig við áskilnað laga um hópuppsagnir. Var í málinu aflað ráðgefandi álits frá EFTA-dómstólnum í því skyni að varpa ljósi á þá löggjöf sem reyndi á í málinu. Varð niðurstaðan sú að fallist var á það með stefnda að stætt hafi verið á því eins og hér stóð á að telja stjórnarmenn stofnunar með sem starfsmenn hennar og því hafi ekki verið farið á svig við lög um hópuppsögn eins og stefnandi byggði mál sitt á.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. febrúar 2024

E-2497/2023

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Ekki var talið sýnt fram á að forstöðumaður ríkisstofnunar hefði farið út fyrir heimildir sínar þegar hann áminnti og sagði síðan stefnanda upp störfum. Var stefndi því sýknaður af bótakröfum stefnanda.