Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 11. nóvember 2009.
Mál nr. E-2605/2009:
Árið 2009, miðvikudaginn 11. nóvember,var á dómþingi Héraðsdóms
Þrotabú Eignarhaldsfélagsins
City Star Airlines ehf.
gegn
GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf.
kveðinn upp svofelldur
DÓMUR:
(Þóra Björg Jónsdóttir hdl)
Lykilorð
Gjaldþrotaskipti. Jafnrétti. Ógilding. Riftun.
Útdráttur
Rift var tiltekinni greiðslus City Star Airlines ehf. til stefnda, GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf. og stefndi dæmdur til að endurgreiða þrotabúi City Star Airlines ehf., fjárhæðina á grundvelli þess að talið var að eigandi stefnda hafi mátt vita að greiðslan var til hagsbóta stefnda á kostnað annarra.
Mál þetta, sem dómtekið var 26. október 2009, er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af þrotabúi Eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf., kt. 000000- 0000, Borgartúni 25, Reykjavík, gegn GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf., kt. 000000-0000, Kristnibraut 81, Reykjavík, með stefnu sem birt var 18. febrúar 2009.
Dómkröfur stefnanda eru að rift verði með dómi greiðslu hins gjaldþrota félags, Eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf., á skuld við stefnda þann 22. apríl 2008 að fjárhæð 1.334.839 kr. Stefnandi krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda 1.334.839 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 22. apríl til greiðsludags. Auk þess er krafist málskostnaðar úr hendi stefnda samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi.
Dómkröfur stefnda eru að stefndi verði sýknaður af öllum kröfum stefnanda. Þá er krafist málskostnaðar samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi.
Stutt yfirlit um atvik að baki máli og ágreiningsefni í því: Með bréfi, sem móttekið var í Héraðsdómi Reykjavíkur hinn 14. maí 2008, var krafist að Eignarhaldsfélagið City Star Airlines ehf. yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Í bréfinu er m.a. greint frá því að félagið geti ekki staðið í fullum skilum við lánadrottna sína og greitt skuldir sínar; félagið sé hætt öllum rekstri og skuldirnar fallnar í gjalddaga; ólíklegt sé að greiðsluörðugleikar muni líða hjá innan skamms tíma. Greint er frá því að samþykkt hefði verið á stjórnarfundi 21. apríl 2008 að gefa bú félagsins upp til gjaldþrotaskipta af framangreindum ástæðum.
Krafan var tekið fyrir á dómþingi 28. sama mánaðar, þar sem Gunnar Þórarinsson, stjórnarformaður félagsins, var mættur og lagði kröfuna í úrskurð. Með úrskurði sama dag var bú félagsins tekið til gjaldþrotaskipta með vísun til tilgreindra eigna og skulda félagsins í bréfinu og framangreindra málsástæðna félagsins að öðru leyti. En í ljósi þess taldi dómarinn að fullnægt væri skilyrðum 64. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. til að verða við kröfu félagsins um að bú þess yrði tekið til gjaldþrotaskipta.
Af hálfu stefnanda er vísað til þess að í beiðni félagsins um gjaldþrotaskipti sé greint frá því að fyrrum stjórn félagsins hefði samþykkt að bæta veðskuldum á allar eignir félagsins áður en hluthafafundur var haldinn 13. mars 2008. Flestar þeirra hefðu snúið að greiðslum til aðila tengdum stjórnarmönnum félagsins. Jafnframt hefðu stjórnendur greitt út alla aðra fjármuni sem fyrir fundust í félaginu til aðila sér tengdum. Um verulegar fjárhæðir hafi verið að ræða þar sem nokkrum kröfuhöfum hafi verið hyglað á kostnað annarra kröfuhafa þrátt fyrir vitneskju manna um að félagið stefndi í þrot.
Þá er af hálfu stefnanda staðhæft að í skýrslutöku af stjórnarformanninum hafi verið lögð fram ýmis gögn sem renni stoðum undir að kröfuhöfum hafi verið mismunað. Þeirra á meðal séu gögn um sölu á flugvélum félagsins, TF-CSA og TF-CSB af gerðinni Dornier, sem sýni að kaupverðinu var skipt á milli tiltekinna kröfuhafa félagsins með óeðlilegum hætti.
Þá segir í stefnu: „Þann 5. febrúar 2008 voru framangreindar flugvélar kyrrsettar að beiðni stefnda, … . Flugvélarnar voru síðan seldar þann 21. apríl 2008. Samkvæmt yfirliti frá Sigurði Snædal Júlíussyni hdl. hjá Logos-lögmannsþjónustu, sem annaðist sölu vélanna, fékk stefnda greiddar kr. 1.334.839 af söluandvirði þeirra vegna kyrrsetningarinnar en jafnframt telur stefnandi að greiðsluna hafi mátt rekja til tengsla hins stefnda félags og stefnanda. Með bréfi fulltrúa skiptastjóra dags. 6. febrúar 2009 til stefnda var greiðslunni sem stefndi fékk á grundvelli hennar rift og þess krafist að stefndi endurgreiddi þrotabúinu þá fjárhæð sem það fékk eigi síðar en 11. febrúar 2009. Engin viðbrögð hafi hins vegar orðið af hálfu stefnda og er því þessi málshöfðun nauðsynleg.“
Af hálfu stefnda er málsatvikum og ágreiningsefni lýst á þann veg að Guðni Þór Guðnason endurskoðandi, stofnandi og eigandi stefnda, GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf., hafi veitt Eignarhaldsfélaginu City Star Airlines ehf. „endurskoðunarþjónustu“ árin 2005-2007. Reikningar stefnda á eignarhaldsfélagið sem voru gefnir út 30. október 2006, 9. október 2007 og 30. nóvember 2007, hefðu ekki verið greiddir þrátt fyrir ítrekuð tilmæli. Forsvarsmenn eignarhaldsfélagsins hefðu sagt Guðna Þór að þeir myndu ekki greiða reikningana vegna þess að þeir hefðu greitt honum nóg í gegnum tíðina.
Þá segir að Guðna Þór hefði borist til eyrna að eignarhaldsfélagið hygðist selja tvær flugvélar sínar. Hann hafi vitað að um var að ræða helstu eignir félagsins og viljað freista þess að fá umrædda reikninga greidda með því að krefjast kyrrsetningar á vélunum og fá þar með tryggingu fyrir greiðslu. Þá yrði skorið úr réttmæti kröfu hans í framhaldi í staðfestingarmáli um kyrrsetninguna. Kyrrsetningargerðin hafi farið fram 5. febrúar 2008 og staðfestingarmál höfðað í kjölfarið. Málið hafi hins vegar verið fellt niður án kostnaðar [5. maí 2008] þar sem eignarhaldsfélagið hafi greitt kröfuna auk lögmannskostnaðar hinn 22. apríl 2008. „Með greiðslu lá því fyrir viðurkenning félagsins á réttmæti krafna stefnda.“
Helstu málsástæður stefnanda og réttarheimildir er hann byggir á: Stefnandi byggir á því að greiðsla Eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf. til stefnda, hinn 22. apríl 2008, brjóti gegn meginreglum um jafnræði kröfuhafa svo sem lög nr. 21/1991 kveða á um, einkum 141. gr. laganna. Greiðslan hafi verið ótilhlýðileg stefnda til hagsbóta á kostnað annarra kröfuhafa. Ótvírætt sé að eignarhaldsfélagið var á þessum tíma ógjaldfært og að forsvarsmanni stefnda var kunnugt um það. Um réttarheimildir vísar stefnandi til 138. og 141. gr. laga nr. 21/1991.
Helstu málsástæður stefnda og réttarheimildir er hann byggir á: Stefndi byggir á því að ákvæði 138. og 141. gr. laga nr. 21/1991 eigi ekki við í þessu máli. Kyrrsetningu hefði verið aflétt áður en dómur gekk í staðfestingarmáli um gerðina. Greiðslan hafi ekki skert greiðslugetu eignarhaldsfélagsins verulega, m.a. í ljósi hlutfalls kröfu stefnda af heildarfjárhæð söluandvirðis flugvélanna. Þá sé ekki sannað að félagið hafi verið ógjaldfært þegar stefndi fékk greiðsluna eða orðið það vegna hennar. Á þeim tíma hafi dótturfélag eignarhaldsfélagsins haft gilt flugrekstrarleyfi. Leyfið hafi verið endurnýjað í febrúar 2009 að teknu tilliti til fjárhagsstöðu félagsins. Um réttarheimildir vísar stefndi til almennra reglna gjaldþrotaréttar og kröfuréttar.
Niðurstaða: Guðni Þór Gunnarsson bar fyrir rétti að hafa verið kjörinn endurskoðandi Eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf. á haustmánuðum 2005 og starfað fyrir hönd félagsins við endurskoðun, ráðgjöf og skattframtöl og annað slíkt. Í maí árið 2007 hafi KPMG verið kjörinn endurskoðandi og tekið við flest öllu, sem hann hefði verið að gera, en hann haldið áfram að vinna fyrir félagið við ráðgjöf og annað slíkt þar til í nóvember 2007.
Lagt var fyrir Guðna Þór dskj. nr. 21, sem eru drög að rekstrarreikningi og efnahagsreikningi fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2007. Guðni Þór kvaðst hafa komið að einstökum þáttum við þessa reikningsgerð við afstemmingar og annað slíkt. Þegar þessi drög að efnahags- og rekstrarreikningi voru gerð hafi eignir félagsins verið um 800.000.000 og skuldir upp á 590.000.000; veltufé hefi verið upp á 400.000.000 á móti 78.000.000. Staðan hafi því verið góð. Þetta hafi hann vitað um efnahag félagsins þegar hann lauk störfum fyrir það.
Þegar hann gaf út umdeilda reikninga í þessu máli, sbr. dskj. 10, 11 og 12, sagði Guðni Þór, að ljóst hefði verið að þetta væri síðasta verk hans fyrir félagið. Þess vegna hefði hann farið sérstaklega vel yfir stöðuna og farið yfir alla tíma, sem hann hefði unnið fyrir félagið, og krafist greiðslu fyrir það.
Guðni Þór sagði að fyrstu viðbrögð forsvarsmanna félagsins við þessum reikningum hefði verið að lofa honum greiðslu. Þegar hann ítrekaði kröfuna hafi Atli Georg Árnason stjórnarformaður sagt honum að reikningarnir yrðu ekki greiddir þar sem fjárhæðin væri of há. Kvaðst Guðni Þór þá hafa leitað til Sigurbjörns Daða Dagbjartssonar, fjármálastjóra félagsins. Sigurbjörn Daði hefði verið sömu skoðunar og stjórnarformaðurinn. Hann hafi þá séð þann kost vænstan að leita sér lögfræðilegrar aðstoðar. Hvorki Atli Georg né Sigurbjörn Daði hefðu borið því við að félagið hefði ekki burði til að greiða reikningana.
Þegar hann krafðist kyrrsetningar á eignum félagsins, kvaðst Guðni Þór ekki hafa haft upplýsingar um að félagið væri jafn illa statt og síðar kom í ljós.
Á aðalfundi félagsins í maí 2007 kvaðst Guðni Þór ekki hafa náð kjöri sem endurskoðandi félagsins.
Guðni Þór kvað Gunnar Þórarinsson, fyrrum stjórnarformann eignarhaldsfélagsins, vera föður sinn. Faðir hans hefði ekki starfað fyrir GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf.
Vísað var til þess að í greinargerð stefnda sé sagt frá því að forsvarsmanni stefnda hefði borist til eyrna að Eignarhaldsfélagið City Star Airlines ehf. hygðist selja tvær flugvélar í eigu þess. Á þeim tíma kvað Guðni Þór flugmálastjórn hafa haft upplýsingar um það og margir aðrir vitað um þetta.
Guðni Þór Gunnarsson endurskoðandi veitti Eignarhaldsfélaginu City Star Airlines ehf. endurskoðunarþjónustu í gegnum GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf. árin 2005 til og með 2007. Vafalaust er því að Guðni Þór hefur víðtæka þekkingu á rekstri eignarhaldsfélagsins og afkomu þessi ár. Gunnar Þórarinsson, faðir Guðna Þórs, átti hlut í eignarhaldsfélaginu frá árinu 2005. Frá þeim tíma var hann í stjórn félagsins og að síðustu stjórnarformaður þess, er hann krafðist gjaldþrotaskipta fyrir hönd félagsins með bréfi, sem móttekið var í héraðsdómi hinn 14. maí 2008. Þegar GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf. fékk umdeilda greiðslu, hinn 22. apríl 2008, mátti Guðni Þór, vegna tengsla sinnar og þekkingar, vita um ógjaldfærni Eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf., en samþykkt hafði verið á stjórnarfundi daginn áður að krefjast gjaldþrotaskipta.
Samkvæmt framangreindu verður fallist á kröfur stefnanda.
Páll Þorsteinsson héraðsdómari kveður upp dóminn.
DÓMSORÐ:
Rift er greiðslu Eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf. á skuld við GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf. þann 22. apríl 2008 að fjárhæð 1.334.839 krónur.
Stefndi, GÞG endurskoðun og ráðgjöf slf., greiði stefnanda, þrotabúi Eignarhaldsfélagsins City Star Airlines ehf., 1.334.839 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá 22. apríl 2008 til greiðsludags.
Stefndi greiði stefnanda 403.069 krónur í málskostnað.
Páll Þorsteinsson