Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

19 dómar fundust

Lykilorð: Fæðingarorlof

Landsréttur birt 12. febrúar 2026

704/2025

Björn Leví Óskarsson (Halldór Kr. Þorsteinsson lögmaður) gegn Vinnumálastofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður) og íslenska ríkinu (Gunnlaugur Úlfsson lögmaður, 2. prófmál)

B höfðaði mál á hendur V og Í og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála, þar sem staðfest var ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja umsókn B um greiðslur úr sjóðnum. B krafðist þess jafnframt að viðurkennt yrði með dómi að hann ætti rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Byggði B á því að hann hefði sem starfsmaður Eftirlitsstofnunar EFTA átt rétt á fæðingarorlofi á grundvelli samnings sem eftirlitsstofnunin gerði við belgíska ríkið 22. desember 1994. Sá samningur hefði öðlast lagagildi í Belgíu án sérstakrar innleiðingar í landsrétt ríkisins og þar með hefði verið fullnægt áskilnaði 2. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof um að B hafi átt rétt á fæðingarorlofi samkvæmt lögum hlutaðeigandi ríkis. Með dómi Landsréttar var komist að þeirri niðurstöðu að framangreindur samningur veitti B ekki þann rétt sem hann byggði á í málinu heldur byggði réttur hans til fæðingarorlofs á starfsreglum Eftirlitsstofnunar EFTA. Jafnvel þótt fallist yrði á að samningurinn hefði lagagildi þá hefði áfrýjandi ekki sýnt fram á að hann hefði átt „rétt samkvæmt lögum hlutaðeigandi ríkis um fæðingarorlof“ í skilningi 2. mgr. 21. gr. laga nr. 144/2020. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest sú niðurstaða að B ætti ekki rétt til fæðingarorlofs samkvæmt lögum nr. 144/2020. Þá var jafnframt ekki fallist á að reglur stjórnsýsluréttar hafi verið brotnar við meðferð málsins. Var því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að sýkna V og Í af kröfum B.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. janúar 2026

E-5592/2025

Hildur K. Sveinbjarnardóttir og Elís Orri Guðbjartsson (Elías Karl Guðmundsson lögmaður) gegn Arion banka hf (Snorri Stefánsson lögmaður)

Riftun stefnda á ráðningarsamningum stefnenda var talin ólögmæt og var því fallist á kröfur stefnenda um greiðslu launa í uppsagnarfresti ásamt dráttarvöxtum. Ennfremur var fallist á að annar stefnenda ætti rétt á greiðslu mismunar á fullum launum og greiðslum í fæðingarorlofi. Kröfu stefnenda um miskabætur var hins vegar hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. september 2025

E-3268/2025

Björn Leví Óskarsson (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður) gegn Vinnumálastofnun og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Stefnandi höfðaði málið til að fá hnekkt þeirri niðurstöðu stjórnvalda að hann ætti ekki rétt til greiðslu sem hann hafði sótt um úr fæðingarorlofssjóði. Honum hafði verið synjað um greiðslu vegna þess að hann uppfyllti ekki skilyrði laga um þátttöku á innlendum vinnumarkaði í sex mánuði fyrir fæðingardag barns, en stefnandi taldi að taka ætti einnig tillit til starfstímabils hans erlendis. Það starf sem stefnandi gegndi hjá stofnun í öðru EES-ríki á ávinnslutímabili réttinda reyndist ekki hafa veitt honum rétt samkvæmt lögum þess ríkis um fæðingarorlof. Þar sem slíkt er áskilið í skýru og ótvíræðu ákvæði íslenskra laga var ekki fallist á kröfur stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2025

E-6483/2024

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Stefnandi höfðaði málið á hendur íslenska ríkinu til heimtu skaðabóta vegna brota á skuldbindingum þess samkvæmt EES-samningnum. Stefndi, íslenska ríkið, var sýknað af kröfum stefnanda þar sem ekki voru uppfyllt skilyrði skaðabótaskyldu.

Landsréttur birt 3. apríl 2025

41/2024

A (Guðmundur Birgir Ólafsson lögmaður) gegn B ehf (Jón Rúnar Pálsson lögmaður)

A réð sig til starfa hjá B ehf. í apríl 2022. Henni var sagt upp störfum í byrjun júní sama ár. Deildu málsaðilar um hvort B ehf. hefði verið heimilt að segja A upp störfum, en ágreiningslaust var að hún hafði sagt samstarfskonu sinni frá því að hún væri barnshafandi. Í dómi héraðsdóms sem staðfestur var í Landsrétti með vísan til forsendna kom fram að miða yrði við að upplýsingar sem sölufulltrúi verslunar veitti samstarfsmanni sínum, sem gegndi sömu stöðu og því ekki yfirmaður þar, teldist ekki tilkynning til vinnuveitanda í skilningi 1. mgr. 50. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof. Var B ehf. því sýknað af kröfum A.

Hæstiréttur birt 28. febrúar 2024

24/2023

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

A höfðaði mál á hendur Í og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála, þar sem staðfest var niðurstaða fæðingarorlofssjóðs um útreikning greiðslna í fæðingarorlofi til A. Taldi A að úrskurðurinn færi í bága við EES-samninginn. A hafði verið búsett og starfandi í Danmörku á 12 mánaða viðmiðunartímabili sem lauk sex mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Þar sem að A hafði ekki haft neinar tekjur hér á landi á tímabilinu voru henni ákvarðaðar lágmarksgreiðslur samkvæmt þágildandi lögum um fæðingar og foreldraorlof. Undir rekstri málsins í héraði var leitað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins með spurningum um hvort áskilið væri samkvæmt nánar tilgreindum reglum sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu að EES-ríki reikni greiðslur í fæðingarorlofi eftir viðmiðunartekjum út frá heildarlaunum á vinnumarkaði á öllu svæðinu. Jafnframt hvort það bryti í bága við reglur sem þar gilda að einungis væri tekið tillit til heildarlauna á innlendum vinnumarkaði. Í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins sagði að skylda til að koma í veg fyrir að farandlaunþegar yrðu verr settir við það að nýta sér rétt til frjálsrar farar fæli í sér að bætur til þeirra skyldu vera hinar sömu og þær hefðu verið ef launþegi hefði ekki neytt þess réttar. Þar af leiðandi bæri að reikna viðmiðunartekjur launþega, vegna starfstímabils í öðru EES-ríki, út frá áætluðum tekjum launþega í sambærilegri stöðu og með sambærilega starfsreynslu og hæfi og launþegi í því ríki þar sem sótt væri um bæturnar. Hæstiréttur tók fram að þótt að ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins væru ekki bindandi að íslenskum rétti hefðu þau í réttarframkvæmd verið lögð til grundvallar við skýringu á efni EES-reglna. Að baki því væri sú grundvallarregla EES-samningsins að stuðla að samkvæmni í skýringum á EES-reglum og þar með samræmdri framkvæmd EES-samningsins. Þrátt fyrir þetta yrði að fallast á það með héraðsdómi að Fæðingarorlofssjóður hefði ekki getað virt að vettugi skýr og afdráttarlaus fyrirmæli laga nr. 95/2000 við ákvörðun um greiðslu úr sjóðnum til A. Því var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að sýkna Í.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2023

E-3384/2023

Kona hóf störf sem sölufulltrúi í verslun fyrirtækis. Eftir sex vikna starf var henni sagt upp störfum og síðan greidd laun sem námu uppsagnarfresti. Tveimur dögum fyrir uppsögnina hafði hún tjáð öðrum sölufulltrúa að hún væri þunguð. Ósannað var að framkvæmdastjóri fyrirtækisins hefði fengið upplýsingar um að konan væri barnshafandi þegar henni var sagt upp störfum. Þá varð að mati dómsins að miða við það að upplýsingar um þungun sem sölufulltrúi verslunar veitir samstarfsmanni, sem gegnir sömu stöðu og er því ekki yfirmaður þar, teldist ekki tilkynning til vinnuveitanda í skilningi 1. mgr. 50. gr. laga nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof. Ekki var því talið að uppsögnin tengdist þeirri staðreynd að konan var barnshafandi. Var fyrirtækið sýknað af kröfu konunnar um skaðabætur sem næmu launum í tiltekinn tíma, sem m.a. svaraði til fæðingarorlofs.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. mars 2023

E-582/2021

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður)

Stefnandi sem hafði verið í framhaldsnámi í Danmörku og fullu starfi þar, var barnshafandi þegar hún fluttist til Íslands og hóf störf þar. Við ákvörðun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði var einungis miðað við heildarlaun sem hún fékk greidd á innlendum vinnumarkaði, og krafðist stefnandi ógildingar á ákvörðuninni og úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála. Leitað var ráðgefandi álits EFTA dómstólsins sem taldi að miða ætti fjárhæð bóta sem hefði aflað tekna í öðru EES-ríki á því tímabili sem miðað sé við samkvæmt landslögum, við tekjur launþega með sambærilega starfsreynslu og hæfi og sem gegni sviðuðu starfi í því EES-ríki þar sem sótt er um bætur. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. laga nr. 2/1993 um að skýra skuli lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn var ekki talið að ákvæði gæti leitt til þess að litið yrði framhjá skýrum orðum íslenskra laga. Var kröfu stefnanda því hafnað.

Landsréttur birt 13. maí 2022

11/2021

Nordic Luxury ehf (Magnús Guðlaugsson lögmaður) gegn Sintija Divra (Guðmundur Birgir Ólafsson lögmaður)

S var ráðin til starfa hjá N ehf. 8. apríl 2019 án þess að gerður væri við hana skriflegur ráðningarsamningur. Henni var sagt upp 27. júní 2019. Fyrir uppsögnina hafði S upplýst stjórnarformann N ehf. um að hún væri þunguð. Deildu málsaðilar um það hvort N ehf. hefði með uppsögninni brotið gegn 30. gr. þágildandi laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof. Í dómi Landsréttar kom fram að uppfyllt hefðu verið skilyrði þess ákvæðis um tilkynningu þungunar til vinnuveitanda. Enginn rökstuðningur hefði fylgt uppsögn S og því hefði hún farið gegn 30. gr. laga nr. 95/2000 sem varðaði skaðabótaskyldu samkvæmt 31. gr. sömu laga. Var N ehf. dæmt til að greiða S bætur vegna ólögmætrar uppsagnar sem námu launum fram að fæðingu barns auk bóta sem námu þriggja mánaða launum í uppsagnarfresti.

Hæstiréttur birt 20. september 2018

853/2017

Myllusetur ehf (Anton Björn Markússon lögmaður) gegn Ástu Andrésdóttur (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður)

Á var ráðin til starfa hjá M ehf. í fullt starf 1. september 2015 en lét af störfum í nóvember sama ár er hún varð óvinnufær vegna veikinda á meðgöngu. Krafði Á M ehf. um greiðslu fjárhæðar er nam launum í þrjá mánuði auk orlofs. Deildu aðilar um það hvort samkomulag hefði orðið með þeim um að ráðningarsambandi þeirra hefði verið slitið í nóvember 2015. Hæstiréttur taldi að í tilkynningu um fæðingarorlof sem undirrituð var í desember 2015 af þáverandi framkvæmdastjóra M ehf. hefði falist vísbending um að við það tímamark hefði verið litið svo á af hálfu M ehf. að Á væri enn í fullu starfi og ráðningarsambandi þeirra þá ekki verið slitið. Með hliðsjón af því og að teknu tilliti til þess, sem fram kom í héraðsdómi um þetta efni, staðfesti Hæstiréttur þá niðurstöðu héraðsdóms að ósannað væri að ráðningarsambandinu hefði verið slitið í nóvember 2015, en M ehf. sem vinnuveitandi bæri hallann af þeim sönnunarskorti. Þá staðfesti Hæstiréttur jafnframt að Á hefði í fæðingarorlofinu öðlast rétt til þriggja mánaða uppsagnarfrests í samræmi við kjarasamningsákvæði og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof og að hún hefði hvorki glatað réttindum sínum vegna tómlætis né annarra atvika. Var krafa Á því tekin til greina.

Hæstiréttur birt 24. nóvember 2011

257/2011

Kristín Helga Þórarinsdóttir (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

K höfðaði mál vegna ólögmætrar riftunar á ráðningarsamningi. Byggði K á því að óheimilt hefði verið að segja henni upp störfum vegna ákvæða 30. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof. Óumdeilt var að uppsögn áfrýjanda tengdist því ekki að hún hefði tilkynnt um fyrirhugaða töku fæðingarorlofs heldur greindi aðila á um hvort gildar ástæður hefðu búið að baki uppsögninni í skilningi lagagreinarinnar. Fyrir lá að K hafði ekki sérmenntun á því sviði sem starf hennar hjá G laut að. Í janúar 2010 var K tilkynnt að til stæði að ráða starfsmann með slíka sérþekkingu og var starfsmönnum stofnunarinnar einnig tilkynnt þetta í tölvubréfi 1. febrúar sama ár. Að þessu gættu féllst Hæstiréttur á með héraðsdómi að uppsögn K hefði ekki verið andstæð 30. gr. laga nr. 95/2000 og var Í sýknað af kröfum K.

Hæstiréttur birt 10. febrúar 2010

11/2010

Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf (Hörður Felix Harðarson hrl) gegn Sigurgeiri Sigurpálssyni (Hulda Rós Rúriksdóttir hrl)

S ehf. kærði úrskurð héraðsdóms þar sem fallist var á kröfu SS um viðurkenningu á forgangskröfu hans að tiltekinni fjárhæð við slitameðferð á S ehf. Taldi SS að uppsögn hans frá S ehf. hafi farið í bága við 30. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof. Var fallist á það með S ehf. að vegna mikils taps af rekstri þess á árinu 2008 og hruns bankakerfisins þá um haustið, svo og nauðsynjar endurskipulagningar í rekstri, hafi honum verið heimilt, þrátt fyrir ákvæði 30. gr. laga nr. 95/2000, að segja SS upp störfum. Var kröfu SS um viðurkenningu á forgangskröfu við slitameðferð á S ehf. því hafnað

Hæstiréttur birt 5. febrúar 2009

318/2008

Árni Reynir Alfredsson (Lára Valgerður Júlíusdóttir hrl) gegn þrotabúi Tækja, tóla og byggingavara ehf (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl)

Á var sagt upp störfum hjá M ehf. eftir að hann hafði tilkynnt um töku fæðingarorlofs en ekki hafið það. Taldi Á uppsögnina ólögmæta og höfðaði mál til greiðslu bóta vegna hennar. Málið var höfðað áður en gjalddagi kröfu Á var kominn. Litið var svo á að krafa Á hafi orðið til við uppsögn hans og því hafi 1. mgr. 26. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ekki staðið í vegi fyrir því að málið yrði höfðað á þeim tíma sem gert var. Undir meðferð málsins í héraði var kröfu Á breytt þannig að hann krafðist greiðslu bóta sem svöruðu til þeirra launa sem gjaldfallin voru á þeim tíma en viðurkenningar á rétti til bóta vegna launa vegna þess tíma sem eftir var. Krafðist Á því ekki lengur dóms um skyldu sem fullnægja mætti með aðför áður en efndatími hennar væri kominn, sbr. 2. mgr. 26. gr. laga um meðferð einkamála. Talið var að M ehf. hafi ekki sýnt fram á að félagið hafi haft gildar ástæður fyrir uppsögn Á í skilningi 30. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof og hafi því bakað sér skaðabótaskyldu. Málsástæða M ehf. um að Á hafi firrt sig rétti til skaðabóta þar sem hann hafi ekki takmarkað tjón sitt var talin komast að, þó hún hafi ekki komið fram fyrr en við aðalmeðferð málsins í héraði, en atvik sem vörnin byggðist á gerðust ekki til fullnaðar fyrr en undir rekstri málsins. Þar sem Á hafði boðist starf með sambærilegum launum var talið að hann hafi glatað rétti til bóta úr hendi M ehf. frá þeim tíma. Var M ehf. því dæmt til að greiða hluta kröfu Á.

Hæstiréttur birt 30. nóvember 2006

199/2006

Guðný Laxdal Helgadóttir (Jónas Haraldsson hrl) gegn Ingvari Helgasyni ehf (Hákon Árnason hrl)

G, sem gegndi starfi bókara hjá I, var í fæðingarorlofi í 13 mánuði. Átti hún að hefja störf að nýju 1. febrúar 2005. Á þeim tíma sem G var í leyfi urðu eigendaskipti að fyrirtækinu og voru gerðar almennar breytingar á því starfssviði sem G vann áður við. G taldi sökum þessa að starf hennar væri ekki lengur til og ætti hún því rétt á launum í uppsagnarfresti í þrjá mánuði án þess að þurfa að mæta til vinnu þann tíma. Í málinu lá fyrir að I hafði boðið G að byrja í nýju starfi hjá fyrirtækinu sem gjaldkeri en hún hafnað því. Þá fullyrti I að henni hafi síðan verið boðið svipað starf við bókhald og hún sinnti áður. G mætti ekki til vinnu 1. febrúar 2005. Í niðurstöðu Hæstaréttar kemur fram að þar sem G hafi ekki mætt til vinnu, sé ósannað að vinna sú við bókhald, sem I fullyrðir að hafi beðið hennar, hafi verið svo verulega frábrugðin þeirri vinnu sem hún sinnti áður að um vanefnd I samkvæmt starfssamningi hafi verið að ræða. Var I því sýknaður af kröfu G.

Hæstiréttur birt 10. mars 2005

404/2004

Stefán Már Pétursson (Björn Lárus Bergsson hrl) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Þorbjörg Inga Jónsdóttir hrl)

Ekki var fallist á kröfu S um greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði þar sem hann uppfyllti ekki skilyrði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof og 4. gr. þágildandi reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks um að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir upphafsdag fæðingarorlofs en greiðslur slysadagpeninga til S höfðu fallið niður tæpum tveimur mánuðum fyrir þann dag. Þá var talið að ekki hefði verið leitt í ljós að T hefði gefið S rangar upplýsingar, vanrækt upplýsingaskyldu sína eða að dráttur hefði orðið á afgreiðslu á umsókn hans um þessar greiðslu er leiða ættu til skaðabótaskyldu T. Var T því sýknað af kröfum S.

Hæstiréttur birt 7. nóvember 2002

240/2002

Íslenska ríkið (Einar Karl Hallvarðsson hrl) gegn Friðriku Hörpu Ævarrsdóttur (Jónas Haraldsson hrl)

F, sem er lögfræðingur að mennt, réðist til starfa sem fulltrúi sýslumannsins á Akureyri árið 1994. Í nóvember 1996 fór F í barnsburðarleyfi og um rétt hennar til launa í slíku leyfi fór samkvæmt þágildandi reglugerð um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins. F taldi umsamda 30 klukkustunda fasta yfirvinnu á mánuði hafa verið kaupauka við grunnlaun samkvæmt kjarasamningi, sem aukið vinnuframlag hafi ekki komið fyrir, og þannig hluti þeirra dagvinnulauna sem hún ætti rétt á í barnsburðarleyfi. Talið var sannað að vinnuframlag umfram dagvinnu skyldi ekki koma fyrir greiðslu fyrrgreindra 30 yfirvinnustunda á mánuði. Var lagt til grundvallar niðurstöðu í málinu að umsamið endurgjald F fyrir átta stunda vinnudag skyldi vera laun samkvæmt viðeigandi launaflokki og andvirði 30 yfirvinnustunda. Var talið fullt tilefni til að taka fram í umræddri reglugerð að um dagvinnulaun samkvæmt kjarasamningi væri að ræða, hafi önnur laun fyrir dagvinnu ekki átt að koma til greiðslu í barnsburðarleyfi starfsmanna. Fallist var á kröfu F en enginn tölulegur ágreiningur var í málinu. Þá var miðað við að vanefnd hafi orðið af hálfu Í 1. desember 1998, eða mánuði eftir að F gerði athugasemdir við greiðslu launa í barnsburðarleyfinu, og var krafan látin bera dráttarvexti frá þeim tíma. Aðfinnsluvert þótti hvernig héraðsdómsstefna og héraðsdómur voru úr garði gerð.