Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lykilorð: Trúnaðarmaður

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2025

E-3431/2024

A (Elías Karl Guðmundsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Björn Atli Davíðsson lögmaður)

Stefnanda var sagt upp störf hjá stefnda vegna hagræðingar. Í ljósi þess að stefnandi var trúnaðarmaður á starfsvettvangi stefnda bar að láta hana sitja um vinnu sína. Þar sem reglum um réttarvernd trúnaðarmanna var ekki fylgt við uppsögn voru henni dæmdar skaðabætur fyrir fjártjón að álitum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. janúar 2025

E-1350/2024

A (Alexander Hafþórsson lögmaður) gegn Þjóðleikhúsinu (Sonja H. Berndsen lögmaður)

Stefnanda var sagt upp störfum hjá stofnun ríkisins á grundvelli rekstrarlegra forsendna er tengdust m.a. kórónaveirufaraldrinum. Í málinu tókst stefnanda ekki sönnun þess að hann hefði verið trúnaðarmaður á starfsstöð fyrir uppsögn. Þá var ekki fallist á með stefnanda að önnur sjónarmið hefðu búið uppsögninni að baki en rekstrarleg og var því ekki fallist á kröfur hans um bætur fyrir fjárhagslegt og ófjárhagslegt tjón.

Hæstiréttur birt 2. desember 2004

204/2004

Magnús S. Magnússon (Halldór Helgi Backman hrl) gegn Flugþjónustunni Keflavíkurflugvelli ehf (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl)

M var undir lok október 2002 fyrirvaralaust sagt upp starfi sínu sem hlaðmaður hjá F, eftir að ýfingar urðu með honum og hlaðstjóra í afdrepi hlaðmanna, en ágreiningslaust var að M sló kaffibolla úr hendi hlaðstjórans að mörgum mönnum ásjáandi. Var ekki talið sannað, að M hafi tekið á hlaðstjóranum eða gerst sekur um líkamsárás á hann. Þá var ekki litið svo á að þessi háttsemi M hafi verið svo alvarleg í eðli sínu að heimilt hafi verið hennar vegna að víkja honum fyrirvaralaust úr starfi án undangenginnar áminningar. Var því fallist á að M bæru bætur, sem svöruðu til fullra mánaðarlauna hans í þriggja mánaða uppsagnarfresti, auk þess hluta október sem eftir lifði. Var ekki fallist á að M ætti sem trúnaðarmaður rétt til frekari bóta. Hins vegar þótti sýnt að M hafi orðið af hlutabréfum í Flugleiðum hf., sem starfsmönnum F hafði verið lofað, vegna hinnar fyrirvaralausu uppsagnar. Var F gert að bæta M missi þeirrar launauppbótar.