Landsréttur
Úrskurður fimmtudaginn 11. júní 2026.
Lykilorð
Niðurfelling máls. Málskostnaður.
Útdráttur
Að kröfu A var málið fellt niður fyrir Landsrétti með vísan til c-liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Með úrskurði Landsréttar var ákveðið að A skyldi greiða B málskostnað fyrir Landsrétti, sbr. 2. mgr. 130. gr. sömu laga.
Úrskurður Landsréttar
Landsréttardómararnir Eyvindur G. Gunnarsson og Ragnheiður Bragadóttir og Guðrún Oddsdóttir sálfræðingur kveða upp úrskurð í máli þessu.
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Áfrýjandi skaut til Landsréttar 15. janúar 2026 dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra 19. desember 2025 í málinu nr. E-[…]/2025. Hinn 12. mars 2026 skaut áfrýjandi einnig til Landsréttar dómi Héraðsdóms Austurlands 17. febrúar 2026 í málinu nr. E- […]/2025. Með ákvörðun Landsréttar 27. apríl 2026 voru málin sameinuð með vísan til a- og b-liðar 1. mgr. 30. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 166. gr. og 1. mgr. 164. gr. sömu laga, sbr. einnig 1. mgr. 38. gr. barnalaga nr. 76/2003.
- Með tölvubréfi lögmanns áfrýjanda til Landsréttar 1. júní 2026 upplýsti hún að áfrýjandi hefði ákveðið að falla frá áfrýjun til Landsréttar. Lögmaður stefnda krafðist málskostnaðar úr hendi áfrýjanda fyrir Landsrétti með tölvubréfi til réttarins sama dag. Í þinghaldi 2. júní 2026 krafðist áfrýjandi þess að málið yrði fellt niður og að hvor aðila bæri sinn kostnað af málinu fyrir Landsrétti. Stefndi andmælti kröfu áfrýjanda um að fella málskostnað niður og krafðist málskostnaðar sér til handa.
Niðurstaða
- Með vísan til c-liðar 1. mgr. 105. gr., sbr. 166. gr. laga nr. 91/1991 verður málið fellt niður fyrir Landsrétti.
- Varnaraðili höfðaði málið nr. E-[…]/2025 fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra 28. mars 2025 og krafðist þess meðal annars að lögheimili dóttur aðila yrði hjá honum. Sóknaraðili hélt uppi vörnum og krafðist sýknu í málinu. Með dómi héraðsdóms 19. desember 2025 voru kröfur varnaraðila teknar til greina að öðru leyti en því að málskostnaður var felldur niður.
- Sóknaraðili höfðaði málið nr. E-[…]/2025 fyrir Héraðsdómi Austurlands 8. ágúst 2025 og gerði meðal annars þá dómkröfu að lögheimili tveggja sona aðila yrði hjá henni. Varnaraðili krafðist sýknu af kröfum sóknaraðila í málinu. Með dómi héraðsdóms 17. febrúar 2026 voru kröfur varnaraðila teknar til greina að öðru leyti en því að málskostnaður var felldur niður.
- Samkvæmt 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 skal stefnanda gert að greiða stefnda málskostnað ef mál er fellt niður af annarri ástæðu en þeirri að stefndi efni þá skyldu sem hann er krafinn um í máli. Í dómaframkvæmd hefur allt að einu verið vísað til ákvæðisins sem meginreglu og hafa dómstólar horft til aðstæðna allra við mat á því hvort rétt þyki að víkja frá henni, sbr. meðal annars til hliðsjónar dóma Hæstaréttar 24. janúar 2014 í máli nr. 780/2013 og 30. október 2001 í máli nr. 402/2001 og úrskurð Landsréttar 25. mars 2026 í máli nr. 149/2026.
- Ljóst er að með rekstri málanna fékk sóknaraðili í engu framgengt dómkröfum sínum. Samkvæmt því og að virtum málsatvikum að öðru leyti þykja ekki efni til að víkja frá fyrirmælum 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 við ákvörðun málskostnaðar. Að virtu efni og umfangi málsins telst hann hæfilega ákveðinn 1.300.000 króna að meðtöldum virðisaukaskatti.
Úrskurðarorð:
Mál þetta er fellt niður.
Áfrýjandi, A, greiði stefnda, B, 1.300.000 krónur í málskostnað fyrir Landsrétti.
Heimildaskrá
Lagaskrá
Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála
1. mgr. 30. gr.1. mgr. 105. gr.2. mgr. 130. gr.1. mgr. 164. gr.166. gr.
Lög nr. 76/2003 Barnalög
1. mgr. 38. gr.