Hlutverk
Dómstólar
Ferill
Mál (2)
E-2082/2025
Stefndi, seljandi fasteignar í fjöleignarhúsi, var sýknaður af kröfu stefnanda, kaupanda sömu fasteignar, um skaðabætur vegna galla á fasteigninni. Talið var að stefndi hefði nægilega sinnt upplýsingaskyldu sinni samkvæmt fasteignakaupalögum en að stefnandi hefði ekki nægilega sinnt aðgæsluskyldu sinni samkvæmt sömu lögum. Að öðru leyti var krafa stefnanda ekki talin fullnægja gallaþröskuldi 2. málsliðar 18. gr. sömu laga til þess að um galla gæti talist að ræða.
E-3782/2025
Ekki var fallist á að stefnandi ætti skaðbótakröfu á hendur stefnda, vátryggingafélagi byggingarstjóra, vegna ágalla á múrverki fasteignar og skorts á lögbundnu eftirliti þar sem krafan væri fyrnd auk þess sem að ekki var talið að byggingarstjóri gæti borið ábyrgð á verkum verktakans eins og atvikum var háttað.