Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1498/2026:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Murman Kiladze

Skilorðsbundnir dómar. Umferðarlagabrot. Útivist.

Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot á lögum um útlendinga. Var honum gert að sæta 30 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 19. mars 2026, á hendur Murman Kiladze, kt. […], […], Reykjavík,

I.

Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 30. apríl 2025, ekið bifreiðinni […] um Nýbýlaveg í Kópavogi, að […], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn, án þess að hafa notað öryggisbelti við aksturinn.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 77. gr. sbr. 1. mgr. 94. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

II.

Fyrir brot á lögum um útlendinga með því að hafa, á sama tíma og sama stað og greinir í ákærulið I., brotið gegn ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og þriggja ára endurkomubann til Íslands, dags. […].2022, birt ákærða þann sama dag, og þar með dvalið í heimildarleysi hér á landi án áritana og dvalarleyfis er lögregla hafði afskipti af ákærða umrætt sinn.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 49. gr., 50. gr. og 1. málslið 2. mgr. 101. gr., sbr. a-lið 1. mgr. 116. gr. útlendingalaga nr. 80/2016.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði sótti ekki þing við þingfestingu málsins og hafði ekki boðað forföll en ákæra og fyrirkall var birt samkvæmt lögum, í Lögbirtingarblaði 5. maí 2026 með heimild í 3. mgr. 156. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála þar sem fyrir liggur að ákærða var vísað úr landi og ekki lágu fyrir upplýsingar um dvalarstað hans. Verður málið dæmt samkvæmt heimild í a-lið 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkallinu að þannig gæti farið um meðferð málsins.

Með vísan til framanritaðs og til rannsóknargagna málsins telst framangreind háttsemi sönnuð og er hún rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði er fæddur í […]. Sakavottorð ákærða liggur ekki fyrir í málinu og engra gagna nýtur um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi.

Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 30 daga fangelsi en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari.

Rut Hrafns Elvarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Murman Kiladze, sæti fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar er frestað og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorði 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Rut Hrafns Elvarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.77. gr.
Lög nr. 22/1955 4. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 3. mgr. 156. gr.1. mgr. 161. gr.
Lög nr. 80/2016 Lög um útlendinga 1. mgr. 49. gr.50. gr.2. mgr. 101. gr.1. mgr. 116. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 77. gr.1. mgr. 94. gr.