Héraðsdómur Norðurlands vestra
Dómur 18. júní 2026.
Mál nr. S-69/2026:
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra
(Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X
(enginn)
Lykilorð
Brot í nánu sambandi. Líkamsárás.
Útdráttur
Ákærða var sakfelld fyrir brot í nánu sambandi og líkamsárás.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 10. júní 2026, var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi vestra, dagsettri 27. maí 2026, á hendur X, [...], fyrir brot í nánu sambandi og líkamsárás á tímabilinu frá og með 30. júní 2025 til og með 2. júlí 2025, á og við heimili sitt að [...], með því að hafa skapað viðvarandi ógnarástand svo sem hér greinir: með því að hafa að kvöldi dags 30. júní 2025 í stofu á heimili sínu, veist að dóttur sambýlismanns síns brotaþola A, [...], með skömmum og ókvæðisorðum, þar sem hún kallaði hana meðal annars „fucking bitch“ (í. helvítis tík), áreitt hana með orðum og elt út um allt.
Þá með því að hafa síðdegis þann 1. júlí 2025, í eldhúsi á heimili sínu, veist
að, brotaþola A, fyrst með öskrum og ókvæðisorðum, þar sem ákærða kallaði brotaþola meðal annars „fucking bitch“ (í. helvítis tík) og síðan ofbeldi með því að hafa kastað síma er hæfði brotaþola í magann, kastað í hana pizzakassa og tekið báðum höndum um háls hennar og hrist og í kjölfarið ýtt eða slegið til brotaþola B, [...], er hún reyndi að ganga á milli ákærðu og brotaþola A, þá er brotaþolar flúðu út elt þær, brotið rúðu í forstofuhurð og að lokum kastað stórum pizzaskera, með 35,5 cm blaði er vóg 300 g, í átt að brotaþolum sem þá höfðu flúið út úr íbúðinni út á bílaplan, allt með þeim afleiðingum að brotaþoli A hlaut 3,2 cm mar vinstra megin á maga ofan við mjaðmakant og brotaþoli B hlaut 3,5x2 cm marblett á hægri upphandlegg.
Loks með því að hafa að morgni dags þann 2. júlí 2025 við stofudyr að heimili
sínu, veist að brotaþola A, í fyrstu með hávaða og látum, þannig að hún og vitnið B, læstu sig úti, er ákærða reyndi að brjóta sér leið inn í stofu íbúðarinnar og í framhaldinu reynt að veitast að brotaþola A í gegnum rifu á stofuhurð.
Teljast brot ákærðu varða við 1. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga nr.
19/1940 með síðari breytingum, hvað brotaþola A varðar en 1. mgr. 217. gr. sömu laga hvað brotaþola B varðar. [...]
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls
sakarkostnaðar.
- Ákærða sótti ekki þing og boðaði ekki forföll þegar málið var þingfest 10. júní sl. Málið er því dæmt með vísan til 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála enda var þess getið í fyrirkalli sem birt var á lögmætan hátt, 4. júní sl., á lögheimili ákærðu, sbr. 156. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að þannig mætti fara með málið.
- Um málsatvik vísast til ákæru. Þar sem ákærða hefur ekki látið málið til sín taka verður með vísan til þess sem að framan er rakið að líta svo á að hún viðurkenni háttsemi þá sem henni er í ákæru gefin að sök. Sök hennar telst þar með nægilega sönnuð enda er ákæran í samræmi við gögn málsins og brot hennar þar réttilega heimfærð til refsiákvæða að mati dómsins, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar frá 9. mars 2022 í máli nr. 42/2021.
- Ákærða er fædd árið 1968. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 26. maí 2026, hefur ákærða ekki áður gerst brotleg við refsilög.
- Refsing ákærðu þykir hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fresta skal fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærðu til greiðslu sakarkostnaðar til ríkissjóðs. Hann nemur samkvæmt yfirliti ákæruvaldsins 60.000 krónum.
- Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari.
- Þorsteinn Magnússon héraðsdómari kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærða, X, sæti fangelsi í tvo mánuði en fresta skal fullnustu refsingar og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærða greiði 60.000 krónur í sakarkostnað til ríkissjóðs.
Þorsteinn Magnússon