Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands vestra

Mál nr. S-59/2026:

Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra

(Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Friðriki Marvin Björnssyni

(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)

Akstur án ökuréttinda. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Ákærði var sakfelldur fyrir að aka í tvígang bifreið án gildra ökuréttinda, í annað skiptið undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Dómur

  1. Mál þetta, sem dómtekið var 10. júní 2026, var höfðað á hendur Friðriki Marvin Björnssyni, [...], með tveimur ákærum lögreglustjórans á Norðurlandi vestra, dagsettum 4. og 5. maí 2006. Í fyrrnefndu ákærunni: fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 26. febrúar 2026, ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda um Eyraveg inn á bifreiðastæði við [...], þar sem hann stöðvaði bifreiðina.

    Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. [...] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá segir í síðarnefndu ákærunni að ákært sé: fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, síðdegis mánudaginn 22. september 2025, ekið bifreiðinni [...] án gildra ökuréttinda og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist tetrahýdrókannabínól 4,5 ng/ml) um [...], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst háttsemi þessi varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. [...] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

  2. Ákærði sótti ekki þing þegar málið var þingfest 26. maí 2026 en verjandi hans hafði þá óskað eftir fresti fyrir hans hönd. Ákærði sótti þing 10. júní 2026, ásamt verjanda sínum, og játaði þar skýlaust þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærunum. Í þinghaldinu ákvað dómari að sameina þau mál sem vörðuðu ákærurnar tvær. Að framkominni játningu ákærða var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
  3. Um málsatvik vísast til ákæranna tveggja. Með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi við gögn málsins, telst sannað að hann hafi gerst sekur um háttsemi þá sem í ákærunum greinir og eru brot hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
  4. Ákærði er fæddur árið 1990. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 5. maí 2026, á ákærði nokkurn sakarferil að baki. Við ákvörðun refsingar í þessu máli skiptir máli að ákærða var 12. nóvember 2019 og 18. mars 2021 gerð sekt vegna aksturs ávana- og fíkniefna og jafnframt fyrir akstur án gildra ökuréttinda.
  5. Með vísan til framangreinds þykir refsing ákærða vera hæfilega ákveðin með þeim hætti sem hér greinir. Ákærði skal sæta fangelsi í sex mánuði en þar af skulu fimm mánuðir vera skilorðsbundnir á þann hátt að fullnustu þess hluta refsingarinnar skal frestað í tvö ár frá birtingu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá skal ákærði greiða 240.000 krónur í sekt til ríkissjóðs en 18 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja. Enn fremur verður ákærði sviptur ökuréttindum ævilangt.
  6. Með vísan til 1. mgr. 235. gr., sbr. 233. gr., laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu sakarkostnaðar til ríkissjóðs. Til þess kostnaðar telst þóknun skipaðs verjanda ákærða, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, 353.400 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Í þeim efnum er tekið tillit til þess að upphaflega var um tvö mál að ræða sem síðar voru sameinuð. Annar sakarkostnaður nemur samkvæmt yfirliti ákæruvaldsins samanlagt 129.878 krónum.
  7. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari.
  8. Þorsteinn Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Friðrik Marvin Björnsson, sæti fangelsi í sex mánuði. Fullnustu fimm mánaða af refsingunni skal frestað og skal sá hluti refsingarinnar falla niður að tveimur árum liðnum frá birtingu dómsins að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði 240.000 krónur í sekt til ríkissjóðs en 18 daga fangelsi komi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja. Ákærði er sviptur ökuréttindum ævilangt. Ákærði greiði 483.278 krónur í sakarkostnað til ríkissjóðs, þar með talda 353.400 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns.

Þorsteinn Magnússon

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.233. gr.1. mgr. 235. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.