Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

19 dómar fundust

Lykilorð: Erfðir

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. febrúar 2024

T-232/2024

Skúli Thoroddsen (Sjálfur) gegn sýslumanninum á Suðurnesjum (Ásdís Ármannsdóttir sýslumaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Ákvæði jarðalaga nr. 81/2004 voru talin það óskýr að ekki væri á þeim byggjandi um forkaupsrétt sameigenda jarða við erfðir. Var höfnun sýslumanns á að þinglýsa skiptayfirlýsingu dánarbús felld úr gildi og lagt fyrir sýslumann að þinglýsa yfirlýsingunni.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. apríl 2019

Q-3/2018

Málaflokkur: Erfðaréttur

Kröfu sóknaraðila, vegna ágreinings við fjárskipti hjóna, um að fasteignir væru séreignir hennar vegna arfs sem hún hafði fengið í hjónabandi var hafnað. Þá var varakröfu hennar um að skáskiptum yrði beitt við fjárslit hjónanna hafnað. Kröfu um að lán frá LÍN yrði ekki dregið frá hjúskapareign hjóna var vísað frá dómi. Kröfu vegna viðhalds á fasteign var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. febrúar 2019

E-3583/2017

A (Snorri Steinn Vidal lögmaður) gegn B, C, D, E, F og G (Marteinn Másson lögmaður)
Lykilorð: Erfðir. Hlutafélög.

Aðila greindi á um hvort stefnandi væri með réttu eigandi að 7,5% hlut í félaginu B hf. Talið var að málsatvik og fyrirliggjandi gögn bæru ótvírætt með sér að faðir stefnanda hefði selt hlut sinn í félaginu haustið 1991 og að hluturinn hafi því ekki fallið til stefnanda eftir andlát hans. Voru stefndu því sýknaðir af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. október 2018

E-3910/2017

Jóhann Þorvarðarson (Páll Ásgeir Davíðsson lögmaður) gegn F.S. Torgi ehf (Guðfinna J. Guðmundsdóttir lögmaður)

Stefndi, sem var fasteignasala, var sýknaður af fjárkröfum stefnanda. Ekki var fallist á að starfsmenn stefnda hefðu vanrækt starfsskyldur sínar eða með öðrum hætti ekki gætt að réttmætum hagsmunum seljanda við sölu fasteignarinnar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. mars 2018

Q-9/2017

A, B og C (Helga Vala Helgadóttir Bachmann lögmaður) gegn D (Þórdís Bjarnadóttir lögmaður)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Ágreiningur milli erfingja við opinber skipti dánarbús. Ásakanir um að einn erfingja hefði nýtt fé í eigu búsins í eigin þágu. Ágreiningur um skiptingu innbús og ábyrgð á láni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. mars 2018

E-2119/2017

Lánasjóður íslenskra námsmanna (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður) gegn Ingibjörgu Erlu Birgisdóttur Guðbjörgu Guðmannsdóttur (Sara Pálsdóttir lögmaður)

Í málinu var deilt um ábyrgð stefndu til að greiða eftirstöðvar námsláns hjá stefnanda. Stefndu höfðu tekist á hendur ábyrgðir með því að gangast við arfi eftir ábyrgðarmann að láninu en bú aðalskuldara verið tekið til gjaldþrotaskipta. Báru stefndu því aðallega við að ábyrgð þeirra teldist fyrnd þar sem lánið hafi fyrir löngu verið gjaldfellt en auk þess höfðu þau uppi frekari málsástæður til að styðja við sýknukröfur sínar. Var ekki á þær fallist gagnvart tveimur stefndu sem héldu uppi vörnum í málinu og var málið dæmt m.t.t. dómkröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. febrúar 2012

Q-1/2012

Árið 2012 og föstudaginn 16. nóvember og er dómþing Héraðsdóms Reykjaness og sem háð er að og Fjarðargötu 9 og Hafnarfirði og af Ástríði Grímsdóttur héraðsdómara og í málinu nr. og Q-1/2012: og Sigurður Kristján Hjaltested og Karl Lárus Hjaltested (Sigmundur Hannesson hrl), Sigríður Hjaltested og Markús Ívar Hjaltested (Valgeir Kristinsson hrl) og Hansína Sesselja Gísladóttir og Finnborg Bettý Gísladóttir og Guðmundur Gíslason og Margrét Margrétardóttir og Gísli Finnsson og Elísa Finnsdóttir og Kristján Þór Finnsson (Guðjón Ólafur Jónsson hrl) gegn Kristrúnu Ólöfu Jónsdóttur, Þorsteini Hjaltested, Vilborgu Björk Hjaltested, Marteini Þ. Hjaltested og Sigurði Kristjáni Hjaltested (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Ágreiningur kom upp hjá skiptastjóra dánarbús hvort jörðin Vatnsendi í Kópavogi teldist til eigna dánarbúsins eða ekki. Var ágreiningnum vísað til Héraðsdóms. Var niðurstaða dómsins sú að eignarrétturinn að jörðinni hafi aldrei verið með löglegum hætti fluttur frá Sigurði K. Lárussyni Hjaltested, sem fékk jörðina í arf eftir föðurbróður sinn. Þrátt fyrir mörg dómsmál þar sem tekist var á um jörðina fram til ársins 2011, þá fluttist eignarrétturinn að jörðinni aldrei til niðja Sigurðar, heldur eingöngu afnota- og umráðarétturinn, eins og tekið var fram í erfðaskránni að skyldi gera. Þrátt fyrir að jörðin hafi gengið til elsta sonar elsta sonar, eins og erfðaskráin kvað á um, þá var það mat dómsins að þrátt fyrir mismunandi orðalag í undangengnum dómum undirréttar og Hæstaréttar Íslands um eignarhald á jörðinni hafi í raun einungis afnota- og umráðaréttur á jörðin færst milli niðja. Var jörðin því talin til eigna dánarbús Sigurðar Kristjáns Lárussonar Hjaltested.

Héraðsdómur Suðurlands birt 13. júlí 2012

E-24/2011

Jónína Guðmundsdóttir, Ástþór Runólfsson, Guðmundur Helgason, Daníel Helgason, Rannveig Helgadóttir og Markúsína Linda Helgadóttir (Gunnar Ingi Jóhannsson hdl) gegn Hólmfríði Oddbjörgu Haraldsdóttur (Halldóra Þorsteinsdóttir hdl)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Deilt um það hvort stefnda bæri ábyrgð á tiltekinni háttsemi látins eiginmanns hennar í tengslum við meðferð hans á fjármunum móður hans að henni látinni. Sýknað sökum tómlætis.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. janúar 2012

E-17/2010

Ásgrímur Kristinn Gylfason, Guðbjörg Gerður Gylfadóttir og Hörður Jónsson gegn Grindavíkurkaupstað, Sjóvá-Almennum tryggingum ehf og til réttargæslu

Sýknað af kröfu stefnenda um bætur fyrir varanlega örorku og annað fjártjón sem byggt var á að hefðu gengið til arfs skv. 2. mgr. 18. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

Héraðsdómur Suðurlands birt 3. júní 2009

E-682/2009

Hallgrímur Birkisson og Sonja Arnarsdóttir (Brynjar Níelsson hrl) gegn Róberti Guðna Einarssyni og Steinunni H. Gunnarsdóttur (Óskar Sigurðsson hrl)
Lykilorð: Erfðir.

Deilt um gildi yfirlýsingar þar sem stefndu ánefndu stefnendum hluta jarðar. Yfirlýsingin var afturkölluð síðar og var jörðin seld. Stefnendur kröfðust þess að þau fengju 40% kaupverðsins í sinn hlut en þeirri kröfu var hafnað og talið að fyrir stefndu hafi vakað að veita stefnendum tiltekinn arfshlut í jörðinni að þeim látnum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 14. nóvember 2007

T-1/2008

Jakob Adolf Traustason (sjálfur) gegn sýslumanninum á Selfossi (Ásgerður Ragnarsdóttir hdl)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Krafist var úrskurðar um að sýslumanni yrði gert að þinglýsa fjórum skjölum, þ.m.t. afsali á jörð í skjóli umboðs látins manns. Kröfum sóknaraðila, sem ekki var einn erfingja, var hafnað þar sem skjölin stöfuðu ekki frá dánarbúinu.

Héraðsdómur Austurlands birt 2. maí 2006

Q-1/2006

Hulduhlíð,heimili aldraðra (Bjarni Guðmundur Björgvinsson hdl) gegn Guðrúnu Hrönn Hilmarsdóttur, Huld Hilmarsdóttir Göethe, Sigurði Hreini Hilmarssyni og Björgvini Hrafni Hilmarssyni (Ragnar Halldór Hall hrl)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Deilt var um túlkun á erfðaskrá. Dæmt var að samkvæmt ákvæðum erfðaskrárinnar tæki hún ekki til arfs, sem hinum látna hafði tæmst skömmu áður en hann lést. Var fallist á með varnaraðilum að fjármunir þessir skyldu renna til lögerfingja samkvæmt erfðalögum.