Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Lögarfur

Hæstiréttur birt 10. september 2004

283/2004

A, B, C, D, E og F (Brynjar Níelsson hrl) gegn G, H, I, J, K og L (Hanna Lára Helgadóttir hrl)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Deilt var um skýringu á ákvæði sameiginlegrar og gagnkvæmrar erfðaskrár X og Y þar sem tekið var fram að um arf eftir það sem lengur lifði skyldi fara að ákvæðum erfðalaga nr. 8/1962. Í héraðsdómi var litið svo á að erfðaskráin fæli ekki í sér ráðstöfun á eignum X og Y með öðrum hætti en mælt væri fyrir um í 1. mgr. 6. gr. erfðalaga, enda hefðu engin gögn legið fyrir í málinu sem bentu til þess að vilji þeirra hefði staðið til þess að arfurinn rynni eingöngu til ættmenna X sem lifði eiginmann sinn. Var erfðaskráin því skýrð þannig að hin almenna tilvísun til erfðalaganna fæli í sér að um skipti eftir X færi eftir 1. mgr. 6. gr. laganna þannig að arfurinn skiptist til helminga milli skyldmenna X annars vegar og Y hins vegar. Var héraðsdómur staðfestur með vísan til forsendna hans.

Hæstiréttur birt 4. mars 2002

30/2002

Fjóla Aradóttir Sullivan Tryggvi Arason og Þór Hagalín (Ingólfur Hjartarson hrl) gegn Albert Þorkelssyni, Jóhönnu M. Axelsdóttur, Nils Helga Nilssyni, Axel J. Axelssyni, Geir Garðarssyni, Ester Garðarsdóttur, Valdimar Axelssyni, Tryggva Axelssyni, Ellen Guðrúnu Stefánsdóttur, Hjörleifi Stefánssyni, Stefáni Stefánssyni, Arnari Thor Stefánssyni, Magnúsi Þorkeli Hjörleifssyni, Yrsu Elenoru Gylfadóttur, Brynhildi Gunni Gylfadóttur, Jóhönnu Hjörleifsdóttur, Þorkeli Hjörleifssyni, Eddu Hjörleifsdóttur, Guðrúnu Hjörleifsdóttur, Kristínu Hjörleifsdóttur, Elísabetu Þ. Giorgi, Hansínu Þorkelsdóttur, Hilmari Þorkelssyni, Jóhönnu Þorkelsdóttur, Júlíusi Þorkelssyni, Kristjáni Þorkelssyni, Margréti Þ. Hansen, Sigríði Ingu Þorkelsdóttur og Sigurði Þorkelssyni (Karl Axelsson hrl)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Lykilorð Dánarbússkipti Erfðaskrá Kærumál Lögarfur Kærumál. Dánarbússkipti. Erfðaskrá. Lögarfur.