Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

33 dómar fundust

Lykilorð: Meðdómendur

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2022

S-2857/2020

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Rosio Bertu Calvi Lozano (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.

Héraðsdómur Suðurlands birt 15. mars 2017

E-61/2017

Fyrir er tekið málið nr. E-61/2017 EKO eignir ehf (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður) gegn Sveitarfélaginu Árborg (Torfi Ragnar Sigurðsson lögmaður)

Stefnda talið hafa brotið gegn lögum um opinber innkaup við útboð á sorphirðu í sveitarfélaginu síðari hluta ársins 2011. Var krafa stefnanda talin fyrnd. Auk þess var stefnandi ekki talinn hafa fært sönnur fyrir ætluðu tjóni sínu og var stefnda sýknað af af skaðabótakröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júlí 2017

E-3401/2016

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Kristín Edwald hrl) gegn Stálsmiðjunni-Framtaki ehf og Tryggingamiðstöðinni hf (Hjörleifur Kvaran hrl)

Málið laut að endurkröfu vátryggingarbóta sem stefnandi hafði greitt í tilefni af tjóni sem hlaust af því að skip sökk þegar það var sjósett við slippinn í Reykjavíkurhöfn. Starfsmenn stefnda voru taldir hafa sýnt af sér sök við undirbúning og framkvæmd sjósetningarinnar. Vegna meðábyrgðar tjónþola var sök skipt þannig að stefndi var látinn bera helming tjónsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. júlí 2012

E-2839/2012

málinu nr. E-2839/2012 A gegn íslenska ríkinu og Sjóvá-Almennum tryggingum hf. til réttargæslu

Stefndi, íslenska ríkið, sýknað af kröfum stefnanda um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna ætlaðra mistaka við læknisaðgerðir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. apríl 2013

S-54/2013

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jens Hjartarsyni (Hólmgeir Elías Flosason hdl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur í átta ára fangelsi fyrir nauðgun, nokkrar líkamsárásir og fleiri brot. Þá var ákærði dæmdur til að greiða brotaþolum miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. mars 2013

E-2356/2010

Þrotabú Baugs Group hf (Heiðar Ásberg Atlason hrl) gegn Fjárfestingafélaginu og Gaumi ehf. og Eignarhaldsfélaginu og ISP ehf. og Gaumi og Holding S.A. og Bague og S.A. (Gísli Guðni Hall hrl), Banque og Havilland S.A. (Jón Ármann Guðjónsson hdl) og Pillar og Securitisation og S.à r.l. (Guðjón Ármann Jónsson hrl)

Fallist var á kröfu þrotabús um að rifta bæri tilteknum greiðslum til fyrrum eigenda félagsins á grundvelli 2. mgr. 131. gr. laga nr. 21/1991 og að þeim bæri að greiða þrotabúinu tjónsbætur á grundvelli 1. mgr. 142. gr. sömu laga. Ekki þótti sýnt fram á að skilyrðum 146. gr. laganna væri fullnægt til að krefja mætti banka, sem hafði á sama tíma fengið greidda kröfu sína á hendur einum eigendanna, um greiðslu fjárins. Bankinn var því sýknaður.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. apríl 2012

E-972/2011

SVK ehf (Klemenz Eggertsson hdl) gegn Árna Guðmundssyni og Sigríði Huld Konráðsdóttur (Garðar Þ. Garðarsson hrl)

Stefnandi krafði stefndu um eftirstöðvar kaupverðs á sumarbústað. Stefndu greiddu upp áhvílandi lán og skuldajöfnuðu á móti greiðslunni. Var sá réttur stefndu staðfestur. Gagnstefnt var í málinu og krafist skaðabóta vegna myglusvepps sem var í byggingarefni hússins. Var talið sannað að myglusveppurinn hafi verið í byggingarefni hússins við afhendingu þess, þrátt fyrir að hann hafi ekki uppgötvast fyrr en níu mánuðum síðar. Var gagnstefndi dæmdur til að greiða kostnað við að útrýma myglusveppinum og skaðabætur að álitum fyrir afnotamissi hússins. Var þeirri kröfu gagnstefnenda skuldajafnað á móti eftirstöðvum er þau áttu eftir ógreitt til aðalstefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. mars 2012

E-3011/2011

Sigurður Skjaldberg gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf Vífilfelli hf. og Aroni Arnbjörnssyni, Sjóvá-Almennum tryggingum hf og Vífilfelli hf. til réttargæslu

Stefnandi krafði stefndu um viðbótarbætur vegna líkamstjóns og byggði á því að heilsu hans hefði hrakað frá því að bótauppgjör fór fram og um væri að ræða ófyrirsjáanlegar breytingar á heilsu hans. Stefndu voru sýknuð af þessari kröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. júní 2010

E-6640/2009

Ístak hf (Sigurður S. Júlíusson hdl) gegn Vegagerðinni og Kópavogsbæ (Reynir Karlsson hrl)

Stefnandi hafði gert verktakasamning við stefndu sem verkkaupa. Krafði hann stefndu um bætur vegna viðbótarkostnaðar sem hann hefði haft vegna þess að stefndu hefðu ekki staðið við samning aðila. Var viðurkennt að stefndu bæri að greiða stefnanda hluta krafnanna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2009

E-1109/2008

Smellinn hf (Daníel Isebarn Ágústsson hdl) gegn Berglindi Evu Ólafsdóttur og Berglind Eva Ólafsdóttir (Ástríður Gísladóttir hdl)

Í máli þessu krafði stefnandi stefndu um greiðslu eftirstöðva kaupverðs, en stefnda hafði haldið eftir greiðslu vegna meints afhendingardráttar og galla á hinu selda. Hafði stefnandi boðið ákveðinn afslátt sem stefnda sætti sig ekki við. Var niðurstaða málsins sú að um stefnda þótti eiga rétt á skaðabótum úr hendi stefnanda vegna afhendingardráttar og afslætti af kaupverði vegna galla og var sú fjárhæð hærri en stefnandi hafði viðurkennt. Var stefnukrafan lækkuð vegna þessa.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. maí 2009

E-1947/2007

Ingunn Jóna Gísladóttir (Páll Arnór Pálsson hrl) gegn JB Byggingafélagi ehf, Bjarna Má Bjarnasyni, Vátryggingafélagi Íslands hf, til og réttargæslu

Í máli þessu krafði stefnandi seljanda fasteignar og byggingastjóra um skaðabætur og/eða afslátt vegna galla á fasteign á grundvelli matsgerðar. Var talið að fasteignin væri haldin göllum og viðurkennt að stefnandi ætti rétt á afslætti úr hendi seljanda og var matsgerðin að hluta lögð til grundvallar niðurstöðunni. Byggingastjórinn var sýknaður. Í málinu var einnig tekist á um það hvort nýjar málsástæður stefndu kæmust að og var niðurstaðan sú að þær væur of seint fram komnar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. nóvember 2008

E-1434/2008

Michael Valdimarsson Guðrún Ólöf Jónsdóttir (Magnús Baldursson hdl) gegn Góðverki ehf. (Guðmundur Óli Björgvinsson hrl), Guðmundi Einarssyni (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) og Vátryggingafélagi Íslands hf. (Anna Dögg Hermannsdóttir hdl)

Stefnendur fengu stefnda, Góðverk ehf., til að vinna að endurbótum á íbúðarhúsi sínu, svo og til nýbyggingar við það. Stefndi, Guðmundur Einarsson, var byggingastjóri verksins. Stefnendur tölu að gallar hafi verið á verkinu svo og að endurgjald fyrir það hafi verið of hátt. Stefndi, Góðverk ehf., var dæmt til endurgreiðslu hluta verkgjaldsins, svo og til að bæta galla er voru á verkinu. Byggingastjórinn var sýknaður.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. júlí 2008

E-2527/2007

Valur S. Svavarsson (Hlöðver Kjartansson hrl) gegn Ragnari Þorsteinssyni (Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir hdl)

Stefndi neitaði að greiða stefnanda fyrir flísalögn einkum með þeim rökum að henni hefði verið svo áfátt að hún hefði verið með öllu ónothæf en stefndi hafði vísað stefnanda frá verkinu áður en því var lokið. Um það leyti sem stefnandi gaf út reikning fyrir þeim hluta verksins sem hann vann hafði stefndi látið leggja nýjar flísar yfir allan flötinn, einnig þann hluta sem stefnandi hafði þegar lagt. Talið að stefnda hefði ekki tekist sönnun þess að flísalögn stefnanda hefði verið svo áfátt að ekki hefði mátt bæta úr hefði stefnanda verið gefinn kostur á því. Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda fyrir það verk sem hann hafði unnið áður en honum var vísað af verkinu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 20. febrúar 2008

E-222/2007

Klumba ehf (Ólafur Eiríksson hrl) gegn Héðni hf (Indriði Þorkelsson hdl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu stefnda vegna óbætts tjóns sem stefnandi varð fyrir er fiskverkunarhús stefnanda brann að mestu leyti niður. Fallist var á að galli hefði verið í vél sem stefndi seldi stefnanda og að starfsmaður stefnda hefði sýnt af sér gáleysi sem leiddi til þess að skammhlaup fór af stað í vélinni. Talið var að ekki hefði kviknað í húsinu, þrátt fyrir skammhlaupið, ef rétt hefði verið gengið frá varnarbúnaði rafmagns sem tengt var inn á vélina. Þar sem stefndi var ekki talinn bera ábyrgð á því hvernig gengið hefði verið frá rafmagninu var hann sýknaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. nóvember 2007

E-140/2007

Grétar Þórðarson (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Jakobi Jónssyni Vátryggingafélagi Íslands hf (Anna Dögg Hermannsdóttir hdl)

Stefndu voru sýknaðir af skaðabótakröfu stefnda. Ekki var talið að veikindi stefnanda yrðu rakin til umferðaróhapps sem stefnandi varð fyrir.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. febrúar 2007

E-2082/2005

Magnús Möller Bergljót Hreinsdóttir (Erlendur Gíslason hrl) gegn Önnu Sigurbjörgu Sigurðardóttur (Halldór Helgi Backman hrl)

Aðilar deildu um hvort fasteign væri haldin göllum og kröfðu stefnendur stefndu um greiðslu skaðabóta af þeim sökum. Var viðurkennt að stefnendur ættu rétt á skaðabótum sem þó var að mun lægri fjárhæð en viðurkennt var að stefnendur skulduðu stefndu þar sem þau höfðu haldið eftir greiðslum samkvæmt kaupsamningi. Var stefnda því sýknuð af kröfum stefnenda.