Forsjármál
Skilnaðar- og forsjármáli var vísað frá dómi ex officio með því að ekki var uppfyllt skilyrði 33. gr. a barnalaga um að málsaðilar gengjust undir sáttameðferð samkvæmt ákvæðum lagagreinarinnar áður en málið var höfðað. Úr þessu varð ekki talið bætt með sáttafundi málsaðila hjá sálfræðingi eftir að málið var höfðað. Með því að kröfu stefnanda um forsjá, umgengni og meðlag var vísað frá dómi varð ekki hjá því komist með vísan til 34. gr. barnalaga að vísa lögskilnaðarkröfu stefnanda einnig frá dómi.
Stefndi var sviptur forsjá sonar síns þar sem uppfyllt voru skilyrði a- og d-liða 29. gr. baranverndarlaga.
Forsjármál.
Stefnandi krafðist forsjár dóttur málsaðila. Málinu var vísað frá dómi þar sem íslenskur dómstóll hafði ekki lögsögu í því.
Fallist á frávísunarkröfu stefndu.
Dæmt að stefnandi skyldi fara með forsjá dóttur málsaðila. Með dóminum var umgengni dótturinnar við stefnda ákveðinn og að hann skyldi greiða stefnanda meðlag með stúlkunni til 18 ára aldurs hennar.
Forsjármál.
Forsjárdeila
Stefnda svipt forsjá dóttur sinnar, að kröfu Barnaverndarnefndar Reykjavíkur.
Forsjármál
M dæmd forsjá barns.
Málinu vísað frá ex officio.
Ágreiningur um forsjá.
Ágreiningur um forsjá barns.
Að kröfu barnaverndarnefndar var stefnda svipt forsjá dóttur sinnar.
Forsjármál. Föður dæmd forsjá 6 ára stúlku, auk þess sem kveðið var á um umgengni og meðlagsgreiðslur.
Leyst var úr ágreiningu um forsjá og umgengni.
Í ágreiningi um forsjá var móður dæmd forsjáin.
Forsjármál
M og K deildu um forsjá þriggja dætra sinna, en K hafði haft forsjá þeirra frá árinu 2003. Samkvæmt niðurstöðu dómkvadds matsmanns voru aðilar bæði hæf til að fara með forsjá dætranna. Fjölskipaður dómur taldi ekki vera hjá því komist að taka tillit til afdráttarlauss vilja eldri dætranna, sem eru á fimmtánda og þrettánda ári, um að K færi með forsjá þeirra. Þá var ekki talið rétt, þrátt fyrir að K hefði tálmað umgengni M við yngstu dótturina, sem er átta ára, að raska þeim stöðugleika sem ríkt hefur í lífi hennar. Var K því falin forsjá allra dætranna. Einn dómenda skilaði sératkvæði.
Forsjármál
Ágreiningur um forsjá barns. Móður dæmd forsjá.
M var dæmd forsjá þriggja barna hans og K. Í dóminum var einnig kveðið á um meðlag K með börnunum og umgengni við börnin.
Stefnanda var dæmd forsjá tveggja barna aðila. Þá var kveðið á um inntak umgengnisréttar.
K dæmd forsjá barns hennar og M. M lét málið ekki til sín taka.
Í forsjármáli var M dæmd forsjá tveggja sona hans og K, mælt fyrir um umgengnisrétt og kveðið á um greiðslu meðlags.
Faðir 15 ára stúlku höfðaði málið gegn móður stúlkunnar og krafðist þess að honum yrði falin forsjá stúlkunnar til 18 ára aldurs hennar en móðirin fór með forsjána samkvæmt samkomulagi málsaðila. Tekið var tillit til vilja stúlkunnar við úrlausn málsins. Að virtum öllum atriðum, sem fram höfðu komið í málinu, var stúlkunni talið fyrir bestu að faðir hennar færi með forsjá hennar og var honum falin forsjáin með dóminum.
Aðilar deildu um forsjá tveggja drengja. Móður dæmd forsjá.
Málsaðilar höfðu sameiginlega forsjá þriggja barna sinna en kröfðust þess í málinu að hvoru þeirra yrði dæmd forsjá allra barnanna en ekki gagnaðila. Einnig að dómurinn tæki ákvörðun um inntak umgengnis barnanna við það foreldri sem ekki fengi forsjá barnanna. Börnunum var talið fyrir bestu að stöðu þeirra og högum yrði sem minnst raksað og var stefnanda falin forsjá þeirra. Umgengni var ákveðin eftir því sem börnunum var talið fyrir bestu.
K og M deildu um forsjá 3 drengja. Niðurstaða dómsins að M færi með forsjá þeirra.
Málsaðilar deildu um forsjá tveggja sona sinna, sem fæddir voru 1995 og 1997. Báðir foreldrar voru taldir hæfir til þess að fara með forsjána, en talið var að hagsmunum drengjanna væri best borgið ef stefnandi færi með forsjá þeirra beggja og því var henni dæmd forsjá þeirra.
Forsjá Z var fengin M. Þóttu ekki nægilega sýnt að hagsmunum Z væri betur borgið með því að forsjá hans yrði fengin K, enda lá fyrir að í því tilviki yrði Z að flytja í nýtt umhverfi gegn vilja sínum.
K gegn
M
Forsjármáli var lokið með sátt, en umgengni ákveðin að nokkru með dómi.