Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

52 dómar fundust

Lykilorð: Verktakar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. desember 2025

E-1578/2025

KS hús ehf (Elva Ósk Wiium lögmaður) gegn Jóni Braga Bergmann og Sigrúnu Helgadóttur (Ingvar Ásmundsson lögmaður)

Ágreiningur var um hvort samið hafi verið um viðgerð á þaki í fasteign stefndu í tímavinnu eða á grundvelli tilboðs, hvort gróft kostnaðarmat frá stefnanda hafi falið í sér verðáætlun í skilningi 29. gr. laga nr. 42/2000 og hvaða áhrif það ætti að hafa á uppgjör aðila, hvort um væri að ræða viðbótarverk eða vinnu sem falli innan upphaflegs kostnaðarmats. Einnig var ágreiningur um sönnunarbyrði, upplýsingaskyldu og aðildarhæfi. Fallist var á að um verðáætlun væri að ræða í skilningi 29. gr. laga að mestu en ekki öllu leyti þar sem stefndi hafði ekki fallist á að útfærslan væri í samræmi við kostnaðarmatið og því mátt gera ráð fyrir að sá hluti verksins sem ekki féll undir kostnaðarmatið yrði unnin í tímavinnu. Annar stefndu var sýknaður vegna aðildarskorts en hinn dæmdur til greiðslu á kostnaði sem kom til vegna breytinga og viðbótarverka, auk þess sem talið var að vikmörk frá kostnaðarætlun næmu 20%.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. október 2025

E-2585/2024

Húsasmiðjan ehf (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður, Magnús Ingvar Magnússon lögmaður) gegn Dalsnesi ehf. (Anna Kristín Kristjánsdóttir lögmaður, Bjarki Þór Sveinsson lögmaður) og gagnsök

Ágreiningur þessa máls varðaði verksamning vegna framkvæmda við vöruhúsa- og skrifstofubyggingu að Korngörðum 3 í Reykjavík. Óumdeilt var að verkið hefði tafist vegna seinkunar á afhendingu hönnunargagna en ágreiningur var um hvort hún skýrði þær tafir sem urðu á verkframkvæmdinni. Aðalstefnandi sem var einn af undirverktökum byggði á því að kostnaður hans hefði aukist verulega vegna stórfelldra vanefnda á afhendingu hönnunargagna, verkstaðar og af völdum annarra verktaka. Gagnstefnandi sem jafnframt var aðalverktaki fasteignarinnar, byggði á því að hann ætti rétt á afslætti og bótum vegna afnotamissis og galla á verkframkvæmdinni. Ágreiningurinn laut að mörgum verkþáttum, svo sem framleiðslu á stáli og uppsetningu stálvirkis í eigninni, samlokueiningum vegna utanhússklæðningar, samlokueiningum í frysti, samningi um viðbótarstál og samningi um afhendingu á trapízuplötum í skrifstofuhluta. Þá var deilt um hvort gallar hefðu verið á verkinu, svo sem málningu stálvirkis, herslumælingar, litamismun í klæðningu, leka, þykkt samlokueininga í frysti og frágangi. Ágreiningur var um fullnægjandi upplýsingagjöf, afhendingu vinnusvæðis, starfsmannafjölda, tafabætur, tapaðar leigutekjur, gengismun, afhendingu verkstaðar, verkábyrgð, sönnun, þ.m.t sönnunargildi matsgerða, verkstjórn, vaxtakröfu, gengismun, stöðuúttektir, skuldajöfnuð, dráttarvaxtakröfu og verðbætur. Niðurstaða dómsins var sú að gagnstefnandi bæri ábyrgð á þeim töfum sem urðu á reisningu stálvirksins, ekki aðeins vegna tafa á hönnunargögnum og afhendingu verksvæðis, heldur fyrst og fremst vegna tafa á vinnu uppsteypuverktaka sem gagnstefnandi bar ábyrgð á. Að mati dómsins var það forsenda þess að unnt færi að ljúka stálreisningunni að uppsteypu væri lokið. Að því er varðaði utanhússklæðningu á svokölluðum MW samlokueiningum var talið að sú staðreynd að verkið fluttist yfir á tímabil þar sem veðurfar var miklu óhagstæðara hefði aðalstefnandi átt rétt á framlengingu verktímans. Allt að einu var talið að aðalstefnandi yrði að bera ábyrgð á töfum vegna skorts á efni vegna skemmdra og gallaðra samlokueininga, sem mátti rekja til skemmda í flutningi, geymslu efnis og gallaðra pantana. Þá var jafnframt fallist á tafabætur vegna riftunar á samningi um skrifstofuhluta. Fallist var á að aðalstefnandi hefði upplýst gagnstefnda um tafir og jafnframt að hann ætti kröfu um viðbótarkostnað vegna seinkunar á afhendingu verkstaðarins, aukins kostnaðar við yfirstjórn, viðbótarkostnaðar við uppsetningu á stálvirkinu, en hafnað var greiðslu vegna viðbótarverka og stáli sem ekki nýttist. Þá var fallist á að gagnstefnandi hefði verið heimilt að ganga að verkábyrgð, auk þess sem ekki var talið að aðalstefnandi ætti rétt á vöxtum vegna uppgjörs reikninga, en fallist var á gengismun vegna fjögurra reikninga og fyrirframgreiðslu. Þá var jafnframt fallist á tafabætur ýmsar gallakröfur gagnstefnanda, en krafa um tapaðar leigutekjur var talinn tilhæfulaus enda tafabætur umsamdar. Var gagnstefnanda gert að greiða málskostnað vegna þessa þáttar málsins en að öðru leyti féll málskostnaður niður. Loks var hafnað kröfum um aukinn kostnað vegna eftirlits, viðbótarstáls, verðbóta, þykktar samlokueininga, og tafabóta sem gagnstefnandi greiddi til undirverktaka sem annaðist framleiðslu og uppsetningu á hillukerfi svo á gámaleigu vegna búnaðar þessa undirverktaka.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. janúar 2024

E-2747/2023

Theodór Sveinjónsson (Lúðvík Örn Steinarsson lögmaður) gegn Ungmennafélaginu Fjölni (Arnar Heimir Lárusson lögmaður)
Lykilorð: Verkkaup. Verktakar.

Stefndi sem sagt hafði upp verksamningi aðila um þjálfun knattspyrnuliðs var sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu vangoldinnar verktakagreiðslu vegna hluta af uppsagnarfresti. Stefnandi hafði ekki þrátt fyrir áskorun upplýst um umfang starfs síns við knattspyrnuþjálfun í þágu annars knattspyrnuliðs sem hann sinnti á uppsagnarfresti sínum né um fjárhæð þeirra greiðslna sem hann þáði frá síðarnefnda knattspyrnufélaginu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2023

E-2272/2022

Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf (Gestur Gunnarsson lögmaður) gegn Ægisgötu 5, húsfélagi (Jónatan Hróbjartsson lögmaður)

Fallist var að hluta til á kröfu stefnanda, sem er byggingaverktaki, á hendur stefnda húsfélagi um greiðslu á eftirstöðvum samkvæmt samkomulagi þeirra, en stefnandi gekkst við því að vissir annmarkar hafi verið á umræddu verki sem fól í sér lagningu á þakpappa og leiddi til viss kostnaðar fyrir stefnda vegna úrbóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. nóvember 2022

E-1075/2021

OSN ehf (Orri Heimisson lögmaður) gegn Ellert Skúlasyni ehf (Orri Sigurðsson lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda um fjölda reikninga vegna vinnu og efnistúttekta allt frá árinu 2017. Var stefndi sýknaður, m.a. vegna fyrningar, tómlætis eða sönnunarskorts. Þá voru gerðar athugasemdir við málatilbúnað stefnanda sem krafði stefnda um fjölda reikninga sem þegar höfðu verið greiddir að fullu. Var stefnandi látinn bera málskostnað að fullu m.a. vegna þessa.

Héraðsdómur Vesturlands birt 4. nóvember 2021

E-65/2021

Íslandsgámar ehf (Sigurður S. Júlíusson lögmaður) gegn Akraneskaupstað (Unnur L. Hermannsdóttir lögmaður)

Verktaki krafðist viðbótargreiðslna af verkkaupa vegna tjóns sem hann hefði orðið fyrir annars vegar vegna tafa og aukins umfangs vegna mengunar í jarðvegi og hins vegar annarra tafa sem verkkaupi bæri ábyrgð á.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. október 2021

E-28/2019

Þarfaþing hf (Jóhannes Bjarni Björnsson lögmaður) gegn Suðurhúsum ehf. og Sjöstjörnunni ehf og THG arkitektum til réttargæslu (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður)

Stefnandi og stefndi undirrituðu verksamning um uppsteypu og frágang utanhúss á nýju hóteli við Hafnarstræti. Ágreiningur var um ýmis atriði varðandi verkframkvæmdina, verktímann, tafabætur, hönnunargögn og vanhönnun, aukaverk, meinta galla á verki, upphafstíma dráttarvaxta og greiðslu framvindureikninga. Stefnukrafan var lækkuð verulega vegna ýmissa atvika sem stefnandi, sem verktaki, var talinn ber ábyrgð á. Hins vegar var ekki fallist á kröfu um greiðslu tafabóta og málskostnaður felldur niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2017

E-134/2018

IGP Orka ehf (Ólafur Örn Svansson lögmaður) gegn Byggingastjóranum ehf (Eva Halldórsdóttir lögmaður)

Í aðalsök deildu aðilar um efni munnlegs verktakasamnings og hvort forsendur fyrir honum hefðu brostið. Óumdeilt var að stefnandi annaðist ástandsskoðanir fasteigna fyrir hönd stefnda, en deilt var um hvert endurgjald hans hefði átt að vera. Varð stefnandi að bera hallann af sönnunarskorti um efni samningsins og breytingar á honum sem hann taldi hafa átt sér stað meðan á samnngsambandi aðila stóð. Stefndi varð aftur á móti að bera hallann af skorti á sönnun þess að forsendur hefðu brostið fyrir samningnum vegna ástæðna sem vörðuðu stefnanda. Var því fallist að hluta til á dómkröfu stefnanda í aðalsök. Í gagnsök var talið ósannað að til munnlegs samnings um leigu á atvinnuhúsnæði hefði stofnast milli sömu aðila og var gagnstefndi því sýknaður af fjárkröfu gagnstefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. september 2018

E-2458/2017

Þak og renna slf (Jóna Margrét Harðardóttir lögmaður) gegn Andra Gao Peng (Gísli Tryggvason lögmaður)

Ágreiningur um verklaun vegna þakviðgerðar o.fl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2017

E-2283/2017

Hagtak hf (Þórður Heimir Sveinsson hdl) gegn Íslenskum aðalverktökum hf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl)

Máli vísað frá dómi vegna ósamræmis í kröfugerð, vanreifunar á hluta málsins og þess að stefnandi færði að mati dómsins ekki viðhlítandi rök fyrir því að hann hafi orðið fyrir tjóni og þess vegna voru skilyrði 2. mgr. 25. gr. laga um meðferð einkamála fyrir því að höfða mál til viðurkenningar á bótaskyldu ekki uppfyllt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. október 2016

E-2510/2013

Ósafl sf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn Vegagerðinni (Guðni Ásþór Haraldsson hrl)
Lykilorð: Verktakar.

Ekki fallist á að jarðfræðiaðstæður við gerð Óshlíðarganga, hafi verið með þeim hætti að sköpuðu verktaka rétt til víðbótargreiðslna. Hins vegar voru dæmdar bætur að álitum vegna tafa sem urðu við framkvæmdina vegna setlaga sem dómurinn, sem skipaður var sérfróðum meðdómsmönnum, taldi óvenju óstöðug og erfið viðureignar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2016

E-1920/2015

Sara Rut Ágústsdóttir (Hulda Guðný Kjartansdóttir hdl) gegn Skemu ehf og reKode Education Inc (Guðrún Bergsteinsdóttir hdl)

Talið var að ráðningarsamningur hefði komist á milli stefnanda og aðalstefnda þannig að sá síðarnefndi væri skuldbundinn til þess að greiða stefnanda vangoldin laun í einn mánuð sem og laun í þriggja mánaða uppsagnarfresti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2016

E-1919/2015

Ágústa Fanney Snorradóttir (Hulda Guðný Kjartansdóttir hdl) gegn Skemu ehf og reKode Education Inc (Guðrún Bergsteinsdóttir hdl)

Talið var að ráðningarsamningur hefði komist á milli stefnanda og aðalstefnda þannig að sá síðarnefndi væri skuldbundinn til þess að greiða stefnanda vangoldin laun í einn mánuð sem og laun í þriggja mánaða uppsagnarfresti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júní 2013

E-2494/2012

Verkfar ehf (Jón Egilsson hrl) gegn Dúfnahólum 6, húsfélagi (Guðmundína Ragnarsdóttir hdl)

Stefndi dæmdur til að greiða stefnanda umkrafða reikningsfjárhæð fyrir vinnu og efni við að bera sílan (vatnsfælu) á útveggi fasteignar. Ekki var talið sannað að vinnunni hefði verið áfátt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. nóvember 2011

E-2749/2010

Ístak hf (Sigurður S. Júlíusson hdl) gegn Landsvirkjun (Geir Arnar Marelsson hdl)
Lykilorð: Verktakar. Verksamningur.

Fallist á með stefnanda að hann geti krafist breytinga á samningsfjárhæð að því marki sem lög nr. 10/2009 höfðu áhrif á vísitölu byggingarkostnaðar til lækkunar hennar og þar með endurgjald stefnanda fyrir verk samkvæmt verksamningi. Talið var að ákvæði í ÍST 30 tæki til tilviks stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. nóvember 2011

E-2748/2010

Ístak hf (Sigurður S. Júlíusson hdl) gegn Landsvirkjun (Geir Arnar Marelsson hdl)
Lykilorð: Verktakar. Verksamningur.

Stefndi sýknaður af kröfum stefnanda þar sem krafist var breytinga á samningsfjárhæð að því marki sem lög nr. 10/2009 höfðu áhrif á vísitölu byggingarkostnaðar til lækkunar hennar. Talið var að ákvæði í útboðsgögnum, sem á var byggt, tæki ekki til tilviks stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. júní 2010

E-6640/2009

Ístak hf (Sigurður S. Júlíusson hdl) gegn Vegagerðinni og Kópavogsbæ (Reynir Karlsson hrl)

Stefnandi hafði gert verktakasamning við stefndu sem verkkaupa. Krafði hann stefndu um bætur vegna viðbótarkostnaðar sem hann hefði haft vegna þess að stefndu hefðu ekki staðið við samning aðila. Var viðurkennt að stefndu bæri að greiða stefnanda hluta krafnanna.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 21. apríl 2010

E-229/2009

Húsfélögin Holtateigur 2-10 12-16 og 18-22 (Árni Pálsson hrl) gegn Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars ehf (Hlynur Halldórsson hdl)
Lykilorð: Skaðabætur. Verktakar.

Verktaki hafði fengið úthlutað byggingarreit við Holtateig á Akureyri. Skyldi hann jafnframt sjá um gerð aðkomuleiða og bílastæða. Verktakinn byggði íbúðir á svæðinu og seldi. Fljótlega komu fram töluverðar skemmdir á malbiki og var verktakinn dæmdur til greiðslu bóta vegna þess.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2009

E-9442/2008

Fjölsmíði ehf gegn Sportfitness, ehf, kveðinn og upp svohljóðandi
Lykilorð: Verktakar. Vinnulaun. Skuldamál.

Stefnandi vann sem launamaður hjá stefnda við smíðavinnu, einkum við heimili fyrirsvarsmanns stefnda. Greiddi stefndi honum laun og allan útlagðan kostnað við verkið. Á verktímanum stofnaði stefnandi einkahlutafélag og vann að sama verki sem verktaki. Greindi aðila á um hvort stefndi eða fyrirsvarsmaður stefnanda væri viðsemjandi stefnanda. Dæmt að kröfu

Héraðsdómur Norðurlands vestra birt 29. maí 2009

E-40/2008

Krákur ehf (Stefán Þórarinn Ólafsson hrl) gegn Árna Sigurjóni Sveinbjörnssyni og Guðrúnu Sveinbjörnsdóttur (Erlendur Þór Gunnarsson hdl)

Ágreiningur um greiðslu fyrir vinnu og efni við flutning og uppsentingu húsa o.fl. Niðurstaða dómsins að fara í meginatriðum eftir matsgerð sem aflað var undir rekstri málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. október 2007

E-7849/2005

Tryggingamiðstöðin hf (Jóhannes Karl Sveinsson hrl) gegn íslenska ríkinu og íslenska ríkið (Heiðar Ásberg Atlason hdl)

Í málinu var deilt um uppgjör á verkkostnaði við endurbætur á húsnæði Þjóðminjasafns Íslands við Hringbraut, Reykjavík. Var stefndi dæmdur til að endurgreiða stefnanda útlagðan kostnað vegna verksins. Þá var ekki fallist á að stefnandi þyrfti að sæta frádrætti af kröfum sínum á grundvelli verkábyrgðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. apríl 2007

E-2855/2007

Lykilorð: Verktakar. Verksamningur.

Stefndi A hafði samband við stefnanda F um að hann ynni verk í fasteign, sem hann var að endurgera, sem undirverktaki aðalverktakans E sá ekki fram á að geta unnið. Greindi aðila á um, hvort F hefði tekið að sér verkið beint fyrir A eða hvort hann hefði tekið það að sér sem undirverktaki E. Að verki loknu gerði F E reikning, og höfðaði dómsmál á hendur E, og var stefna árituð um greiðsluskyldu E. Vegna gjaldþrots E fór krafan í árangurslaust fjárnám og var síðan lýst í þrotabúið. Sýkna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. mars 2007

E-4657/2006

Þorsteinn Guðnason (Karl Ólafur Karlsson hdl) gegn VS Húsum ehf (Katrín Theodórsdóttir hdl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu stefndu vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir þegar vinnupallur féll undan honum. Krafan var tekin til greina með vísan til þess að báðir stefndu voru taldir bera sameiginlega og óskipta skaðabótaábyrgð á tjóni stefnanda.

Hleð fleiri dómum…