Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lykilorð: Tafabætur
Stefndi dæmdur til greiðslu samningsbundinna dagsekta vegna afhendingardráttar seldrar fasteignar. Ekki var fallist á að krafan væri ekki orðin gjaldkræf né að með samningsákvæðum um dagsektir hafi verið brotið gegn 33. eða 36. gr. laga nr. 7/1936. Þá var ekki fallist á að með veitingu veðleyfis í fasteigninni hafi falist ígildi afhendingar fasteignarinnar. Að auki var fallist á kyrrsetningu í tilgreindum eignum stefnda fyrir hinum áföllnu dagsektum enda töldust skilyrði 5. gr. laga nr. 31/1990 uppfyllt og ekki var fallist á að í kaupsamningi aðila fælist næg trygging fyrir stefnanda fyrir greiðslu dagsektanna.
Í málinu krafðist M ehf. greiðslu dagsekta eða tafabóta úr hendi Í hf. á grundvelli verksamnings M ehf., sem verkkaupi, og Í hf., sem verktaki, um stækkun á nánar tilgreindu hóteli M ehf. Á hinn bóginn krafðist Í hf. þess að M ehf. greiddi honum kostnaðarauka sem hann hafi orðið fyrir vegna tafa á verkinu þar sem M ehf. hefði sjálfur borið ábyrgð á öllum töfum sem orðið hefðu á verkinu. Þá krafðist M ehf. greiðslu skaðabóta vegna ætlaðra galla á verkinu og ólokinna verkþátta. Á hinn bóginn krafðist I hf. greiðslu ógreiddra framvindureikninga og reikninga vegna aukaverka í tengslum við verkið. Í dómi Landsréttar kom fram að M ehf. ætti rétt á greiðslu 12.000.000 króna í tafabætur er tæki til 40 daga Í annan stað var fallist á þá kröfu I ehf. um að M ehf. skyldi greiða I ehf. 20.298.590 krónur vegna nefnds kostnaðarauka. Þá var fallist á kröfu I ehf. um skyldu M ehf. til greiðslu tveggja framvindureikninga að fjárhæð 729.028 krónur. Til viðbótar greindi aðila ekki á um að M ehf. bæri að greiða I ehf. fjóra framvindureikninga að fjárhæð 22.578.890 krónur. Auk þess bar M ehf. að greiða I ehf. 6.002.507 krónur fyrir viðbótar- og aukaverk. Enn var M ehf. gert að greiða I ehf. 20.298.590 krónur vegna kostnaðar við aðstöðu og tengda þætti á framlengdum verktíma. Samtals bæri M ehf. að greiða I ehf. 49.609.015 krónur með dráttarvöxtum. Til frádráttar þeirri fjárhæð kæmi fyrrgreind krafa M ehf. á hendur I hf. vegna tafa á verki að fjárhæð 12.000.000 króna sem M ehf. væri heimilt að skuldajafna við kröfu I ehf. Loks kæmi einnig til frádráttar krafa vegna galla og verkliða sem ekki var lokið við að fjárhæð 1.160.942 krónur.
Þb. F ehf. krafði S hf. um greiðslu eftirstöðva fastverðs samkvæmt verksamningi milli aðila auk greiðslu sem það taldi sig eiga rétt á fyrir ýmis auka- og viðbótarverk sem unnin höfðu verið í tengslum við verkið. S hf. hafði uppi gagnkröfur á hendur þb. F ehf. til skuldajöfnunar vegna útlagðs kostnaðar sem hann taldi eiga rétt á vegna ólokinna verka sem F ehf. hefði átt að vinna samkvæmt verksamningnum sem og bóta vegna tafa sem höfðu orðið á verkinu. Í dómi Landsréttar kom fram að af hálfu S hf. hefði ekki verið gerð grein fyrir því til hvaða tafa krafa hans tæki, það er á hvaða tímabili þær tafir hefðu orðið sem þb. F ehf. bæri ábyrgð á. Þá væri fjárhæð kröfunnar ekki sundurliðuð á grundvelli slíkrar útlistunar. Til þess væri að líta að S hf. hefði borið að tilkynna F ehf. án tafar þegar hann teldi fram komið tilefni til að krefja F ehf. um tafabætur. Skriflegri tilkynningu um tafabætur hefði fyrst verið beint að F ehf. þegar liðnir voru nær átta mánuðir frá því að F ehf. hefði tilkynnt S hf. um verklok. Ekki yrði hjá því komist að líta svo á að S hf. hefði sýnt af sér tómlæti með því að tilkynna ekki, þegar hann taldi tilefni til, að hann hygðist krefjast tafabóta samkvæmt verksamningi aðila. Krafa hans um tafabætur væri því fallin niður fyrir tómlæti og var henni hafnað. Var S hf. gert að greiða þb. F ehf. tilgreinda fjárhæð sem nam eftirstöðvum fjárhæðar verksamnings þeirra en S hf. var sýknaður af kröfu um greiðslu fyrir eitt tiltekið aukaverk sem S hf. hafði verið gert að greiða með hinum áfrýjaða dómi. Landsréttur féllst á að S hf. gæti nýtt til skuldajafnaðar kröfu um greiðslu útlagðs kostnaðar samkvæmt fimm reikningum, þar sem um hefði verið að ræða verk sem F ehf. hefði borið að vinna í samræmi við verksamning aðila, auk áður úrskurðaðs málskostnaðar.
Þ hf. höfðaði mál gegn SU ehf. og móðurfélagi þess, SJ ehf., til heimtu verklauna á grundvelli verksamnings á milli Þ hf. og SU ehf. um uppsteypu og frágang utanhúss á nánar tilgreindri hótelbyggingu í Reykjavík. Byggðist aðild SJ ehf. í málinu á sjálfskuldarábyrgð félagsins á skuldum SU ehf. að tiltekinni fjárhæð samkvæmt verksamningnum. SU ehf. og SJ ehf. kröfðust aðallega sýknu en til vara lækkunar á kröfum Þ hf. á grundvelli gagnkrafna SU ehf., einkum vegna galla á verkinu og frekari tafabóta en Þ ehf. hafði samþykkt, sem skuldajafna ætti við tildæmdar kröfur Þ hf. Í dómi Landsréttar var krafa Þ hf. vegna óuppgerðrar skuldar á viðskiptareikningi að tiltekinni fjárhæð tekin til greina en til frádráttar henni skyldu koma tilteknar gagnkröfur SU ehf. Þá var tekin til greina krafa Þ hf. er laut að óreikningsfærðum verkþáttum samkvæmt verksamningi annars vegar og viðbótarkostnaðar vegna tiltekinna magnbreytinga hins vegar. Jafnframt voru teknar til greina kröfur Þ hf. vegna ýmissa viðbótar- og aukaverka en tveimur þeirra hafnað. Loks var krafa Þ hf. um greiðslu kostnaðar vegna verktryggingar tekin til greina. Samkvæmt dómi Landsréttar var fallist á gagnkröfu SU ehf. vegna nánar tilgreinds galla en á hinn bóginn þótti félagið hafa fyrirgert rétti sínum til tafabóta sökum tómlætis. Voru kröfur Þ ehf. þannig teknar til greina með 37.371.743 krónum og gagnkröfur SU ehf. með 5.583.022 krónum.
Þb. F ehf. krafði S hf. um greiðslu eftirstöðva samningsfjárhæðar samkvæmt verksamningi milli aðila auk greiðslu sem það taldi sig eiga rétt á fyrir ýmis auka- og viðbótarverk sem unnin hefðu verið í tengslum við verkið. S hf. hafði uppi gagnkröfur á hendur þb. F ehf. til skuldajöfnunar vegna útlagðs kostnaðar sem hann taldi sig eiga rétt á vegna ólokinna verka sem F ehf. hefði átt að vinna samkvæmt verksamningnum sem og bóta vegna tafa sem höfðu orðið á verkinu. Í dómi Landsréttar kom fram að í málatilbúnaði S hf. hefði ekki verið gerð grein fyrir því til hvaða tafa á verkinu væri vísað, á hvaða tímabili tafirnar hefðu orðið og fjárhæð kröfunnar ekki verið sundurliðuð með hliðsjón af því, en tafir á verkinu hefðu ekki verið að öllu leyti raktar til atvika er vörðuðu F ehf. Þá yrði ekki annað ráðið en að formlegri kröfu um tafabætur hefði fyrst verið beint til F ehf. þegar nær átta mánuðir voru liðnir frá því að F ehf. tilkynnti S hf. um verklok. Var því talið að S hf. hefði sýnt af sér tómlæti með því að tilkynna ekki, þá þegar hann taldi tilefni til, að hann hygðist krefjast tafabóta samkvæmt verksamningnum. Var S hf. gert að greiða þb. F ehf. tilgreinda fjárhæð sem nam eftirstöðvum fjárhæðar verksamnings þeirra auk þess sem fallist var á kröfu þb. F ehf. um greiðslu fyrir tiltekið aukaverk. Á hinn bóginn féllst Landsréttur á að S hf. gæti nýtt til skuldajöfnunar kröfu um greiðslu útlagðs kostnaðar samkvæmt fjórum reikningum, þar sem um hefði verið að ræða verk sem F ehf. hefði borið að vinna í samræmi við verksamning aðila, auk áður dæmds málskostnaðar.
Verktaki krafðist viðbótargreiðslna af verkkaupa vegna tjóns sem hann hefði orðið fyrir annars vegar vegna tafa og aukins umfangs vegna mengunar í jarðvegi og hins vegar annarra tafa sem verkkaupi bæri ábyrgð á.