Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

10 dómar fundust

Lykilorð: Sakarreglan

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. febrúar 2026

E-3784/2025

Reitir – atvinnuhúsnæði ehf (Dagmar Helga Einarsdóttir lögmaður) gegn Skefjum ehf (Sunna Magnúsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Leiguréttur

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda sem laut að því að stefnda bæri að bæta tjón stefnanda vegna sjálfsábyrgðar húseigandatryggingar sem greiddi bætur vegna vatnstjóns í húsnæði stefnanda, en tjónið átti rætur að rekja til hluta hússins sem stefndi hafði á leigu. Ágreiningur málsins hafði um margt áður komið fyrir dóm í öðrum búningi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2025

E-3324/2024

A (Sigríður Harradóttir lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Telma Sif Reynisdóttir lögmaður)

Stefnandi slasaðist þegar hann var að færa kjötskrokka úr flutningabíl inn í vinnslustöð. Talið var ósannað að slysið hefði orsakast af saknæmri háttsemi vinnuveitanda hans. Því var hafnað kröfu stefnanda um viðurkenningu á rétti hans til greiðslu skaðabóta úr ábyrgðartryggingu vinnuveitandans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2025

E-3431/2024

A (Elías Karl Guðmundsson lögmaður) gegn Reykjavíkurborg (Björn Atli Davíðsson lögmaður)

Stefnanda var sagt upp störf hjá stefnda vegna hagræðingar. Í ljósi þess að stefnandi var trúnaðarmaður á starfsvettvangi stefnda bar að láta hana sitja um vinnu sína. Þar sem reglum um réttarvernd trúnaðarmanna var ekki fylgt við uppsögn voru henni dæmdar skaðabætur fyrir fjártjón að álitum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. apríl 2024

E-4363/2022

A (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður) gegn Matvælastofnun og íslenska ríkinu (Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður)

Því var hafnað að verulegur form- eða efnisannmarki hefði verið á úrskurði kærunefndar jafnréttismála þegar hún taldi konu hæfari karli sem sótti um sama starf.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. apríl 2024

S-374/2024

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður) (Hilmar Garðars Þorsteinsson lögmaður bótakrefjanda)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing vegna brots gegn valdstjórninni, nytjastuldar bifreiðar og umferðarlagabrota. Einnig dæmdar skaðabætur vegna tjóns á bifreið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. apríl 2023

E-4836/2022

Lækjarhús ehf (Björn Líndal lögmaður) gegn Sýslumanninum á Suðurlandi og íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu stefnanda um bætur, en stefnandi hélt því fram að í þeirri háttsemi þinglýsingarstjóra að færa ekki tvö veðskuldabréf inn í tölvufærða þinglýsingabókfyrr en árið 2017 hefðu falist mistök sem leitt hefðu til tjóns stefnanda, enda hefði hann byggt á veðbókarvottorði þar sem bréfanna hefði ekki verið getið. Dómurinn taldi ekki uppfyllt það frumskilyrði bótaréttar skv. a-lið 49. gr. þinglýsingalaga að veðbókarvottorð hefði verið gefið út og að stefnandi hafi mátt treysta því. Þá stafaði tjón stefnanda ekki af háttsemi þinglýsingarstjóra og væri ekki sennileg afleiðing hennar heldur stafaði það beinlínis af háttsemi grandsamra viðsemjenda við þá er hann leiddi rétt sinn frá. Skilyrði nefnds lagaákvæðis og sakarreglunnar um sennilega afleiðingu væri því ekki heldur uppfyllt. Loks voru fyrningarreglur taldar styðja við niðurstöðu dómsins við sýknu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2022

S-2857/2020

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Rosio Bertu Calvi Lozano (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.

Héraðsdómur Vesturlands birt 24. mars 2022

E-132/2021

Móabyggð ehf (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður) gegn Snæfellsbæ (Sveinn Jónatansson lögmaður)

Fallist á bótaskyldu stjórnvalds vegna kostnaðar aðila við að fá ólögmætri ákvörðun stjórnvaldsins hnekkt fyrir æðra stjórnvaldi

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. júní 2021

E-884/2020

Ingibjörg Ólafía Ólafsdóttir (Hróbjartur Jónatansson lögmaður) gegn Nauthóli ehf. (Sigurður Sigurjónsson lögmaður), Jóni Sigurði Ólafssyni (Ingólfur Vignir Guðmundsson lögmaður) og TM hf.

Stefndu sýknaðir af kröfu stefnanda um meint tjón á fasteigna hans, vegna fleygunar klappar á samliggjandi lóð. Viðurkenningarkröfu á hendur tryggingarfélagi vegna ábyrgðartryggingar byggingingarstjóra var vísað sjálfkrafa frá dómi.