Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

50 dómar fundust

Lykilorð: Boðun til þinghalds

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. janúar 2020

E-1404/2019

A, B og C Flóki Ásgeirsson gegn Reykjavíkurborg Ebba Schram

Dómkröfum stefnenda um miskabætur, skaðabætur og endurgreiðslu kostnaðar var hafnað þar sem ekki var talið sannað að vera á biðlista í um þrjú og hálft ár eftir félagslegu úrræði fæli við svo búið í sér bótaskylda háttsemi stefnda, eða kostnað eða miska sem stefndi bæri ábyrgð á lögum samkvæmt .

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. janúar 2020

E-461/2019

REYKJAVÍK DEVELOPMENT ehf (Sigurður Ágústsson lögmaður) gegn Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Sýknað var af kröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar sýslumanns um synjun rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007. Stefnandi hafði óskað leyfis til sölu gistingar í flokki II, gististaður án veitinga, í íbúð sinni í miðborg Reykjavíkur. Synjunin byggðist á því að lögbundinn umsagnaraðili, Reykjavíkurborg, hefði lagst gegn veitingu leyfisins af skipulagsástæðum. Stefnandi byggði einkum á því að ákvörðun sýslumanns væru haldin verulegum annmarka að efni til þar sem aðalskipulagsbreyting frá 2017, sem vísað var til í umsögn Reykjavíkurborgar, væri haldin ógildingarannmörkum. Lá fyrir að stefnandi hefði höfðað annað mál á hendur Reykjavíkurborg til ógildingar á aðalskipulagsbreytingunni, en því máli var enn ólokið. Stefnandi óskaði í stefnu eftir sameiningu málanna, en dómari hafnaði þeirri beiðni þar sem ekki voru talin uppfyllt skilyrði 30. gr. laga nr. 91/1991 til sameiningar málanna gegn mótmælum stefnda. Í dóminum var tekið fram að ekki yrði séð að sameining málanna hefði neinu breytt varðandi niðurstöðu um þá dómkröfu sem stefnandi hafði uppi í málinu. Ekki lægi annað fyrir en að málsmeðferð stefnda hefði samræmst lögum og vönduðum stjórnsýsluháttum. Stefndi hefði t.d. borið athugasemdir stefnanda undir umsagnaraðilann áður en umþrætt ákvörðun var tekin, en þær athugasemdir höfðu ekki leitt til þess að umsagnaraðilinn breytti umsögn sinni. Ekki yrði séð að áfátt væri þeirri ályktun stefnda að ekkert væri komið fram í málinu sem hróflaði við skyldubundnu mati hins lögbundna umsagnaraðila. Umsögnin hefði tekið mið af gildandi skipulagsákvæðum á þeim tíma er umsögnin var veitt. Dómurinn taldi því ósannað að ákvörðun stefnda væri haldin slíkum annmörkum að varðaði ógildi hennar. Nýrri málsástæðu stefnanda, sem fyrst kom fram við aðalmeðferð, um að umsögn Reykjavíkurborgar væri haldin ógildingarannmarka var hafnað sem of seint fram kominni, en jafnframt efnislega. Í samræmi við málsúrslit var stefnda dæmdur málskostnaður úr hendi stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. janúar 2020

S-129/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sýknað af ákæru um ofbeldi í nánu sambandi, eða líkamsárás, og broti gegn barnaverndarlögum. Einkaréttarkröfu vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. október 2019

E-1669/2018

Diðrik Jóhann Sæmundsson (Þórhallur H. Þorvaldsson lögmaður) gegn Náttúruhamfaratryggingu Íslands

Stefnandi krafði stefnda, Náttúruhamfaratryggingu Íslands, um skaðabætur vegna málsmeðferðar stefnda í þremur stjórnsýslumálum er vörðuðu ákvörðun tjónsbóta vegna tjóns sem varð á tilteknum fasteignum stefnanda í jarðskjálfta á árinu 2008. Ágreiningi um tjónsbætur lauk með úrskurðum kærunefndar skv. 19. gr. laga nr. 55/1992 í desember 2016. Vísaði kærunefndin frá kröfum stefnanda um greiðslu málskostnaðar þar sem lagaheimild skorti, en átaldi þó málsmeðferð stefnda í einu málanna. Krafði stefnandi stefnda um skaðabætur í framhaldi þess, en þeirri kröfu var synjað. Höfðaði stefnandi þá mál þetta og byggði á því að kostnaður sem hann hefði orðið fyrir meðan á rekstri málanna stóð vegna aðstoðar lögmanns, öflun matsgerða,starfa iðnaðarmanna í tengslum við matsgerðir og aksturs eigin bifreiðar, fæli í sér tjón sem rekja mætti til skaðabótaskyldrar háttsemi eða athafnaleysis stefnda. Stefndi var sýknaður af öllum dómkröfum stefnanda þegar af þeirri ástæðu að á skorti að skilyrði sakarreglunnar um ólögmæti og saknæmi teldust uppfyllt, en auk þess var í ýmsum atriðum talið skorta á sönnun þess að skilyrði um orsakatengsl og sennilega afleiðingu teldust uppfyllt. Málskostnaður milli aðila var þó felldur niður.

Hæstiréttur birt 10. apríl 2014

422/2013

Ákæruvaldið gegn Kristófer, John og Unnsteinssyni (Þórhallur H. Þorvaldsson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

K var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa slegið A hnefahöggi í andlitið þannig að hann féll aftur fyrir sig með höfuðið utan í vegg. Refsing hans var ákveðin fangelsi í tvo mánuði, en fresta skyldi fullnustu refsingarinnar og félli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dómsins héldi K almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Þá var K gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 400.000 krónur. Fyrir Hæstarétti var höfð uppi krafa um að einkaréttarkröfu brotaþola yrði vísað frá dómi sökum útivistar í héraði. Hæstiréttur hafnaði þeirri kröfu og um það sagði meðal annars í dómi réttarins að lögfræðingur sá er samdi bótakröfuna fyrir brotaþola hefði ekki haft lögmannsréttindi á þeim tíma og því ekki verið heimilt að mæta í þinghald fyrir hans hönd . Í stað þess að boða lögfræðinginn til þingfestingar hefði héraðsdómara borið að boða brotaþola sjálfan til þinghaldsins samkvæmt 1. mgr. 174. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Héraðsdómari hefði síðan réttilega brugðist við þeim mistökum sem urðu til þess að útivist varð af hálfu brotaþola, er jafna mætti til þess að hann hefði haft lögmæt forföll.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2012

E-1307/2011

Einrúm ehf (Ásgerður Ragnarsdóttir hdl) gegn Framkvæmdasýslu ríkisins, Fjarðabyggð, íslenska ríkinu, Studio Striki ehf (Jón Eðvald Malmquist hdl) og Framkvæmdasýsla ríkisins (Óskar Thorarensen hrl)

Felld var úr gildi ákvörðun um að svipta aðalstefnanda fyrstu verðlaunum í hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Fjarðabyggð. Enn fremur var fallist á kröfu aðalstefnanda um viðurkenningu á skaðabótaskyldu stefnda, íslenska ríkisins, í tilefni af því að ákveðið var að semja við annan keppanda um áframhaldandi hönnun hjúkrunarheimilisins. Aðalstefnandi var sýknaður af kröfu gagnstefnanda um endurgreiðslu á verðlaunafénu. Þá voru kröfur aðalstefnanda á hendur tveimur stefndu vísað frá dómi þar sem þeir hefðu ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. febrúar 2012

E-2588/2011

Jóhann Gunnlaugsson (Páll Kristjánsson hdl) gegn Verði tryggingum hf (Helga María Pálsdóttir hdl)

Tryggingafélag dæmt til að greiða stefnanda að helmingi bætur úr slysatryggingu ökumanns vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir þegar bifhjól sem hann ók lenti á bifreið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. janúar 2012

E-7596/2010

Stefán Ingvar Guðjónsson (Bjarni Guðmundur Björgvinsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Stefnandi krafðist ómerkingar á úrskurðum skattstjóra og yfirskattanefndar, en samkvæmt þeim var honum gert að greiða tekjuskatt af lánum, sem hann hafði þegið hjá einkahlutafélagi sínu og endurgreitt. Var talið að lagaákvæði, sem skyldaði stefnanda til greiðslu tekjuskatts af láni, sem hann hafði þegar endurgreitt, bryti gegn stjórnarskrárvörðum eignarrétti hans. Voru úrskurðirnir því felldir úr gildi og stefnda gert að endurgreiða stefnanda það, sem hann hafði þegar greitt á grundvelli úrskurðanna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júlí 2011

E-5553/2010

Brimborg ehf (Tómas Jónsson hrl) gegn Reykjavíkurborg (Kristbjörg Stephensen hrl)

Fallist var á kröfu stefnanda um að stefndu Reykjavíkurborg bæri að endurgreiða honum gjöld, sem hann hafði greitt borginni í tengslum við úthlutun á atvinnuhúsalóð, gegn því að stefnandi skilaði borginni lóðinni. Talið var stefnandi hafi haft réttmætar væntingar til þess að úthlutunin gengi til baka við einhliða yfirlýsingu hans um skil á lóðinni í samræmi við fyrri stjórnsýsluframkvæmd og að Reykjavíkurborg hafi borið að taka tillit til þess þegar afstaða var tekin til gildissviðs breyttrar framkvæmdar.

Hæstiréttur birt 14. júní 2011

275/2011

Sigurður Einarsson (Gestur Jónsson hrl) gegn Kaupþingi banka hf (Guðni Ásþór Haraldsson hrl)

S kærði úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu hans um að mál K hf. á hendur honum yrði fellt niður. Við uppkvaðningu úrskurðar í héraðsdómi um frávísunarkröfu S var sótt þing af hálfu hans en ekki K hf. Krafðist S þá að málið yrði fellt niður og honum úrskurðaður málskostnaður. Í úrskurði héraðsdóms sagði að réttaráhrif sem bundin væru við ákvörðun um nýtt þinghald á dómþingi yrðu ekki virk nema þeirrar ákvörðunar væri getið í þingbók. Þar sem það hefði ekki verið gert yrðu útivistaráhrif samkvæmt 105. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála ekki bundin við fjarveru lögmanns K hf. úr þinghaldinu. Með hliðsjón af f. lið 1. mgr. 97. gr. laga nr. 91/1991 hefði fjarvist úr þinghaldi jafngilt lögmætum forföllum við fyrirtöku málsins. Fyrir Hæstarétti hélt lögmaður K hf. því fram að eftir munnlegan flutning málsins um frávísunarkröfu S hefði dómari skýrt frá því að hann hygðist kveða upp úrskurð tiltekinn dag á tilteknum tíma. Tímasetningunni hefði síðar verið breytt án þess að hann hefði haft um það upplýsingar. Að þessu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var hann staðfestur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. apríl 2011

X-22/2010

Viðurkennt að svokallað heildsöluinnlán hollensks sveitarfélags nyti forgangs samkvæmt 112. laga nr. 21/1991 við slitameðferð Landsbanka Íslands hf. M.a. deilt um hugtakið innstæða og gildi neyðarlaganna svokölluðu

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. nóvember 2010

E-13256/2009

Inge E.M. Löwner gegn Högum hf, Sjóvá-, Almennum tryggingum hf. til réttargæzlu, kveðinn og upp svohljóðandi

Viðurkennd skaðabótaábyrgð stefnda vegna tjóns stefnanda, sem hún hlaut við að renna á ávexti sem var á gólfi í verzlun stefnda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. október 2010

E-2034/2010

Valitor hf (Helga Melkorka Óttarsdóttir hdl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Gizur Bergsteinsson hdl)

Fallist var á kröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar stefnda um að veita stefnanda aðeins takmarkaðan aðgang að tilgreindum kafla í erindi til stefnda þar sem því var haldið fram að stefnandi hefði brotið gegn samkeppnislögum. Enn fremur var felldur úr gildi úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála þar sem þessi ákvörðun var staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. janúar 2010

S-867/2009

Ákæruvaldið (Eyjólfur Ármannsson saksóknarfulltrúi) gegn Stefáni Guðjohnsen (Ragnar Halldór Hall hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði sakfelldur fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald. Dæmdur til að sæta 12 mánaða skilorðsbundnu fangelsi og til greiðslu fésektar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. janúar 2010

E-983/2009

Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf (Jón Elvar Guðmundsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Sigurður Gísli Gíslason hrl)

Íslenska ríkið sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðar Ríkisskattstjóra sem laut að kröfu stefnanda um breytingu á reikningsári. Þá var vísað frá 2. lið kröfugerðar stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. nóvember 2009

E-5348/2009

Heimir Karlsson (Tómas Hrafn Sveinsson hdl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald hrl)

Stefnandi slasaðist við akstur bifhjóls síns. Tryggingafélagið féllst á bótarétt hans þannig að hann bæri sjálfur þriðjung síns vegna eigin sakar. Stefnandi andmælti þessu og taldi að hann hafi ekki sýnt af sér stórkostlegt gáleysi er hann slasaðist heldur hafi um óhapp verið að ræða. Dómarinn taldi hins vegar stórkostlegt gáleysi af stefnanda að aka mótorhjóli á umferðargötu innanbæjar með þeim hætti sem hann gerði og féllst á kröfu tryggingafélagsins um sýknu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. janúar 2009

E-3899/2007

Loftur Jóhannsson (Ástráður Haraldsson hrl) gegn Íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Flugumferðarstjóri krafði íslenska ríkið um leiðréttingu á launum samkvæmt úrskurði samgönguráðuneytisins. Ráðuneytið var ekki talið bært til að úrskurða í málinu og var ekki fallist á kröfur stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. desember 2008

E-666/2008

Impregilo S.p.A., útibú á Íslandi (Garðar Valdimarsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Stefnanda hafði verið gert af skattyfirvöldum að greiða staðgreiðslu af launum portútgalskra starfsmanna sem ráðnir voru af starfsmannaleigum. Var stefndi dæmdur til að endurgreiða stefnanda þær greiðslur.

Héraðsdómur Vesturlands birt 24. nóvember 2008

S-290/2007

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson settur saksóknari) gegn Pálma Lorenssyni Marý Sigurjónsdóttur
Málaflokkur: Skattaréttur

Hjón sakfelld fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda, með því að hafa ekki skilað virðisaukaskýrslum og skilagreinum, og að hafa ekki gert skil á þessum gjöldum. Brotið er einnig talið varða við 262. gr. alm. hgl.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. janúar 2008

E-245/2008

Einar Stefánsson (Karl Axelsson hrl) gegn Landspítala-háskólasjúkrahúsi (Skarphéðinn Þórisson hrl)

Íslenska ríkið sýknað af viðurkenningarkröfu læknis, þess efnis að Landspítala-sjúkrahúsi hefði verið óheimilt að banna honum, haustið 2006, að reka sjálfstæða lækningastofu, samhliða starfi yfirlæknis með stjórnunarskyldur. Einnig var sýknað af launakröfu vegna tiltekins tímabils, en fallist á kröfu um ófyrnda dráttarvexti.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júlí 2008

S-1501/2007

Ákæruvaldið (Eyjólfur Ármannsson fulltrúi) gegn Ólafi Friðrikssyni (Ástríður Gísladóttir hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Fyrrum framkvæmdarstjóri og stjórnarmaður byggingafyrirtækis sakfelldur fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt, lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og almennum hegningarlögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júní 2008

E-6574/2006

Víkurver ehf (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Gildi -lífeyrissjóði (Gestur Jónsson hrl) og Landssambandi smábátaeigenda (Ástráður Haraldsson hrl)

Ákvæði 6. og 8. gr. laga nr. 24/1986 um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins voru ekki talin brjóta í bága við ákvæði stjórnarskrár. Stefndu voru sýknaðir af kröfum stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2008

E-7115/2007

Leifur Björnsson (Tryggvi Þórhallsson hdl) gegn Tryggingastofnun ríkisins (Þóra Björg Jónsdóttir hdl)

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, um tiltekna skuld stefnanda vegna ofgreidds ellilífeyris, var felld úr gildi. Öðrum kröfum stefnanda varðandi skuldastöðu var vísað frá dómi án kröfu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. apríl 2008

S-161/2008

Ákæruvaldið (Eyjólfur Ármannsson ftr) gegn Helga Ragnari Guðmundssyni (Garðar Guðmundur Gíslason hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Sakfellt fyrir brot gegn lögum um virðisaukaskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. Við ákvörðun refsingar var tekið mið af því að ákærði hafði staðið skil á verulegum hluta þeirrar fjárhæðar sem ákært var út af. Brot ákærða gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda þótti meiri háttar og því var einnig sakfellt fyrir brot gegn 262. gr. almennra hegningarlaga. Refsing ákveðin 2.500.000 krónur í sekt og tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. mars 2008

S-1974/2007

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson settur saksóknari) gegn Lidia Piecychna Lauffelli ehf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Framkvæmdastjóri Lauffells ehf. var dæmd í 8 mánaða fangelsi skilorðsbundið 2 ár, fyrir stórfellt skattalaga- og bókhaldsbrot. Þá var framkvæmdastjóranum og einkahlutafélaginu gert að greiða óskipt 78.000.000 króna sekt til ríkissjóðs.

Héraðsdómur Reykjaness birt 6. mars 2008

E-2097/2007

Ingunn Vattnes Jónasdóttir Sverrir Óskarsson (Arnar Þór Stefánsson hdl) gegn Kópavogsbæ (Þórður Clausen Þórðarson hrl)

Stefnendur höfðuðu mál gegn Kópavogsbæ til heimtu skaðabóta á þeim grunni að úthluta hefði átt ákveðinni lóð til stefnenda en ekki til þeirra er lóðina hlutu. Kópavogsbær var sýknaður af kröfu stefnenda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. febrúar 2008

E-4807/2007

Rúna Helga Hilmarsdóttir (Gísli Guðni Hall hrl) gegn Landspítala - háskólasjúkrahúsi (Óskar Thorarensen hrl)

Stefnandi var ein af fimm starfsmönnum sem var sagt upp störfum. Þar sem ekki var réttilega staðið að uppsögninni voru bætur vegna fjártjóns ákveðnar að álitum 900.000 kr. Ekki var fallist á miskabótakröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2007

E-2279/2006

María H Guðmundsdóttir (Jónas Þór Guðmundsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Íslenska ríkið sýknað af kröfu lífeyrisþega um að felldur yrði úr gildi úrskurður skattstjóra, þar sem því var hafnað að greiða ætti fjármagnstekjuskatt af þeim hluta lífeyris sem stefnandi taldi vera ávöxtun af innborguð iðgjaldi.

Héraðsdómur Suðurlands birt 20. apríl 2007

S-44/2007

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Daníel Ægi Kristjánssyni (Grímur Sigurðarson hdl)

Ákært fyrir að hafa valdið hættu og hneykslan, ölvaður á almannafæri með því að sitja uppi í afturrúðu bifreiðar og neita að gefa lögreglu upp nafn og kennitölu. Ákærði sakfelldur fyrir brot á lögreglulögum og lögreglusamþykkt. Þá var háttsemi ákærða færð til 1. mgr. 71. gr. umferðarlaga en ekki sakfellt fyrir þá háttsemi sem í lagaákvæðinu er lýst þar sem þeirri háttsemi var ekki lýst í ákæru.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. desember 2006

E-7839/2006

Björgun ehf (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Á grundvelli laga nr. 73/1990 um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins fékk stefnandi leyfi 1990 til 30 ára til malar- og sandtekju af sjávarbotni. Lög nr. 101/2000 leiddu til niðurfellingar leyfisins árið 2005 og skyldi áframhaldandi framkvæmd vera gjaldskyld og háð lögum um mat á umhverfisáhrifum. Sýknað af kröfum um að úrskurður umhverfisráðherra um að efnistaka stefnanda af hafsbotni í Kollafirði, Faxaflóa skuli sæta mati á umhverfisáhrifum verði felldur úr gildi og að viðurkennt verði að leyfi stefnanda, útgefið 28. ágúst 1990, sé enn í gildi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júlí 2006

S-1227/2005

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson lögl. fulltr) gegn Hlyni Ársælssyni (Guðmundur Ingvi Sigurðsson hdl) og Níelsi Adolf Ársælssyni (Guðmundur Ágústsson hdl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Tveir forsvarsmenn þriggja einkahlutafélaga sakfelldir fyrir að standa ekki sýslumanni skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna.