Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1501/2007:

Ákæruvaldið

(Eyjólfur Ármannsson fulltrúi)

gegn

Ólafi

Friðrikssyni

Ár 2008, fimmtudaginn 24. júlí, er dómþing Héraðsdóms

Reykjavíkur háð í Dóm­­­húsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni

Ólafi Friðrikssyni, sem dóm­tekið var 8. sama mánaðar.

Ríkislögreglustjórinn höfðaði málið með ákæru útgefinni 8.

október 2007 á hendur Ólafi Friðrikssyni, kt. [...], Fjarðarseli 14, Reykjavík,

til refsingar fyrir eftirtalin skatta- og hegningarlagabrot framin í starfi

(Ástríður Gísladóttir hdl)

Boðun til þinghalds. Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Skilorð. Staðgreiðsla opinberra gjalda. Virðisaukaskattur.

Fyrrum framkvæmdarstjóri og stjórnarmaður byggingafyrirtækis sakfelldur fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt, lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og almennum hegningarlögum.

Ár 2008, fimmtudaginn 24. júlí, er dómþing Héraðsdóms Reykjavíkur háð í Dómhúsinu við Lækjartorg af Jónasi Jóhannssyni héraðsdómara og dómur kveðinn upp í máli nr. S-1501/2007: Ákæruvaldið gegn Ólafi Friðrikssyni, sem dómtekið var 8. sama mánaðar.

Ríkislögreglustjórinn höfðaði málið með ákæru útgefinni 8. október 2007 á hendur Ólafi Friðrikssyni, kt. [...], Fjarðarseli 14, Reykjavík, til refsingar fyrir eftirtalin skatta- og hegningarlagabrot framin í starfi ákærða sem framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Ólafs og Gunnars byggingafélags ehf., kt. [...], sem tekið var til gjaldþrotaskipta 1. desember 2004:

  1. Fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt.

    Með því að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskattsskýrslu fyrir einkahlutafélagið á lögmæltum tíma vegna tímabilsins maí-júní 2004, og með því að hafa ekki í samræmi við það sem lög áskilja staðið ríkissjóði skil á 1.092.182 króna virðisaukaskatti, sem innheimtur var í nafni félagsins.

    Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, sem og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995 og 139. gr. laga nr. 82/1998.

  2. Fyrir brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda.

    Með því að hafa ekki staðið skil á skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma vegna tímabilanna febrúar til og með júní og ágúst til og með október 2004, og fyrir að hafa ekki í samræmi við það sem lög áskilja staðið ríkissjóði skil á 10.464.711 króna staðgreiðslu, sem haldið var eftir af launum starfs manna félagsins vegna tímabilanna febrúar til og með október 2004, og sundurliðast sem hér segir:

Uppgjörstímabil:                                      Vangoldin staðgreiðsla:

febrúar                                                       kr.  1.342.944 mars                                                           kr.  1.190.767 apríl                                                                kr.        1.193.699 maí                                                            kr.  1.857.845 júní                                                            kr.  1.142.103 júlí                                                             kr.     902.165 ágúst                                                          kr.     866.824 september                                                  kr.     820.716 október                                                      kr.  1.147.648 Er háttsemin talin varða við 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005, sem og 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995 og 139. gr. laga nr. 82/1998.

Ákærði játar að hafa ekki staðið skil á nefndri virðisaukaskattsskýrslu og skila greinum staðgreiðslu á lögmæltum tíma og krefst að því leyti vægustu refsingar sem lög leyfa. Hann neitar sök að öðru leyti og krefst sýknu, en ellegar vægustu refsingar.

I.

Ólafur og Gunnar byggingafélag ehf. var stofnað 1995. Tilgangur félagsins var almenn byggingastarfsemi og rekstur trésmíðaverkstæðis. Ákærði var framkvæmda stjóri og stjórnarmaður á ákærutímabilinu, annaðist sem slíkur daglega fjármála stjórn og bar ábyrgð á virðisaukaskattskilum, gerð skilagreina og skilum á stað greiðslufé til ríkissjóðs, en bú félagsins var tekið til gjaldþrotaskipta 1. desember 2004. Rekur ákærði gjaldþrotið til byggingar Barnaspítala Hringsins, en félagið hafi tapað um 120.000.000 króna sem verktaki, Framkvæmdasýsla ríkisins hagnast að sama skapi sem verkkaupi, og ákærði veðsett allar eigur sínar, að andvirði 60.000.000 króna, til að unnt væri að ljúka verkinu. Laun starfsmanna hafi þó ávallt verið greidd á réttum tíma og bókhald félagsins verið fært, en sökum fjárskorts hafi skil á virðisaukaskatti og afdreginni staðgreiðslu opinberra gjalda dregist nokkuð.

Hinn 3. janúar 2006 hóf Skattrannsóknarstjóri ríkisins rannsókn á skilum félagsins á afdreginni staðgreiðslu vegna greiðslutímabilanna febrúar til og með nóvember 2004 og innheimtum virðisaukaskatti vegna uppgjörstímabilsins maí-júní 2004. Sú rannsókn þótti leiða í ljós brot ákærða á lögum um virðisaukaskatt, lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og eftir atvikum almennum hegningarlögum. Var málið því sent Ríkislögreglustjóranum til opinberrar rannsóknar 22. mars 2007. Á grundvelli hennar þótti í ljós leitt að ákærði hefði hvorki staðið skil á 1.092.182 króna virðisaukaskatti fyrir tímabilið maí-júní 2004 né heldur skilað staðgreiðslufé vegna tímabilanna febrúar-október 2004, samtals 10.464.711 krónum. Ákærði mótmælir þeim skilningi, telur að tilteknar innborganir félagsins 2004 hafi átt að renna til greiðslu nefnds virðisaukaskatts og staðgreiðsluskila fyrir þau tímabil, sem ákært er fyrir og hafi hann óskað eftir því munnlega við starfsmann Tollstjórans í Reykjavík að þannig færi um ráðstöfun fjárins. Þetta hafi einhverra hluta vegna brugðist. Að mati ákærða sé félagið engu að síður skuldlaust vegna virðisaukaskatts og opinberra gjalda ársins 2004. Bendir hann meðal annars á að hann hafi fengið bréf frá innheimtumanni ríkissjóðs snemma árs 2004, sem sýni að félagið hafi átt inneign í ríkissjóði og því hafi ákærði talið að lögmælt skil hefðu farið fram. Ákærði játar hins vegar að hafa skilað téðri virðisaukaskattsskýrslu tæpum fjórum vikum eftir eindaga 5. ágúst 2004, sem og að hafa ekki staðið lögboðin skil á umræddum skilagreinum vegna febrúar, mars, apríl, maí, júní, ágúst, september og október 2004, en skilin drógust yfirleitt í 3-4 vikur.

II.

Með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að ákærði hafi ekki staðið lögmælt skil á virðisaukaskattsskýrslunni og skilagreinum staðgreiðslu opinberra gjalda, svo sem honum er gefið að sök í ákæru. Varðar sú háttsemi refsingu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt með áorðnum breytingum og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda með áorðnum breytingum.

Ákæruvaldið byggir á því að vangoldinn virðisaukaskattur nemi enn 1.092.182 krónum vegna tímabilsins maí-júní 2004 og að félagið hafi enn ekki skilað 10.464.711 króna afdreginni staðgreiðslu vegna tímabilanna febrúar-október 2004, svo sem ákært er fyrir í málinu. Telur ákæruvaldið greiðslur, sem félagið innti af hendi á árinu 2004 engu breyta í þessu sambandi, enda hafi þeim verið ráðstafað inn á eldri skuldir félagsins vegna 2002-2003 og tímabila árið 2004, sem falli utan ákæru. Innheimtumanni hafi verið sú ráðstöfun heimil og vísar ákæruvaldið þar til hæstaréttardóma 30. mars 2006 í málum nr. 428/2005 og 469/2005, sem og til dóms 19. október 2006 í máli nr. 77/2006. Þannig sé einsætt að engar greiðslur hafi borist inn á þau tímabil, sem ákært er fyrir og samrýmist það skjalfestum upplýsingum úr tekjubókhaldi ríkissjóðs.

Við munnlegan málflutning var því lýst yfir af hálfu ákærða að óumdeilt væri að félagið hafi ekki greitt inn á þau tímabil, sem ákæra lýtur að og væri rannsóknar gögnum ekki mótmælt að því leyti. Á hinn bóginn bæri að líta til þess að umrædd vanskil verði rakin til greiðsluerfiðleika, tengdum verksamningi félagsins við hið opinbera, þess að ákærði hafi ekki auðgast á vanskilunum og þess að hann hafi verið í góðri trú um að innborgunum á árinu 2004 yrði ráðstafað til greiðslu skattskulda þess árs, þótt sú hafi ekki orðið raunin. Er í þessu sambandi bent á misvísandi greiðslukvittanir og útprentanir frá innheimtumanni, sem ákærða hafi borist í hendur. Ákærði hafi þannig hvorki auðsýnt ásetning eða stórfellt gáleysi né heldur gerst sekur um meiri háttar brot á lögum um virðisaukaskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og því beri að sýkna hann af slíkri háttsemi, sem og broti gegn 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga með áorðnum breytingum. Verði ekki á þetta fallist beri í það minnsta að taka tillit til þess að staðin  hafi verið skil á verulegum hluta skattfjárhæðar í formi álagsgreiðslna og að ákærði hafi miklar málsbætur í skilningi nefndra skattalaga og 3. mgr. 262. gr. hegningar laganna. Er af hálfu ákærða vísað til hæstaréttardóma í málunum nr. 428/2005, 469/2005 og 77/2006, sem og til dóms 22. júní 2000 í máli nr. 49/2000.

Í málinu liggur fyrir að 2003 og 2004 greiddi félagið alls 118.026.016 krónur vegna virðisaukaskatts, staðgreiðslu, tryggingargjalds og opinberra gjalda. Þar af nam höfuðstóll greiðslna ríflega 98.000.000 krónum, álag 9.093.854 krónum og dráttarvextir og annar kostnaður ríflega 10.000.000 krónum. Ef eingöngu er litið til ársins 2004 námu heildargreiðslur 37.433.800 krónum, en þar af töldust 32.374.911 krónur til höfuðstóls, 2.276.613 krónur til álags og 2.782.276 krónur til dráttarvaxta. Liggur fyrir að 6.861.332 krónum var ráðstafað til greiðslu gjalda ársins 2004, annars vegar vegna staðgreiðslu í janúar og hins vegar virðisaukaskatts vegna tímabilana janúar-febrúar, mars-apríl og júlí-ágúst, þar af 169.524 krónum í formi dráttarvaxta og 459.361 krónu í formi álags. Aðrar greiðslur félagsins á árinu 2004 runnu til uppgjörs á eldri skattskuldum áranna 2002-2003. Er þannig ljóst að ekki hafa verið staðin skil á þeim gjaldfallna virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda, sem ákæran lýtur að.

Með hliðsjón af hæstaréttardómum 22. júní 2000 í máli nr. 49/2000, 7. desember 2000 í máli nr. 331/2000 og 2. október 2003 í máli nr. 27/2003 ber að líta svo á að skattgreiðslur gangi fyrst upp í eldri skuldir og að innheimtumanni ríkissjóðs hafi verið heimilt að ráðstafa innborgunum félagsins á árinu 2004 til greiðslu eldri vanskila á bæði virðisaukaskatti og staðgreiðslufé, en í því sambandi teljast álag og dráttarvextir lögbundnar greiðslur, sem verða hluti viðeigandi skatt skuldar. Er því ekki fallist á með ákærða að innheimtumanni hafi borið að taka téðar innborganir fyrst upp í höfuðstól þeirrar skuldar, sem ákært er fyrir í málinu. Breytir engu í því sambandi staðhæfing ákærða þess efnis að hann hafi óskað munnlega eftir slíkri ráðstöfun fjárins, enda bera greiðslukvittanir, sem ákærði fékk í hendur hverju sinni, með sér að svo hafi ekki verið gert. Ber því að sakfella ákærða fyrir að hafa ekki staðið ríkissjóði lögmælt skil á 1.092.182 króna virðisaukaskatti og 10.464.711 króna staðgreiðslufé, svo sem honum er gefið að sök í málinu. Þykir sú háttsemi rétt færð til refsiákvæða í ákæru, en sökum fjárhæðar vanskilanna teljast brotin stórfelld í skilningi 1. og 3. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga með áorðnum breytingum.

III.

Samkvæmt framansögðu hefur félagið ekkert greitt inn á skattskuldina, sem ákært er fyrir og verður af þeirri ástæðu ekki vikið frá fésektarlágmarki 2. mgr. 30. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda og 1. mgr. 40. gr. virðisaukaskattslaga, svo sem þeim var breytt með 1. og 3. gr. laga nr. 134/2005, en samkvæmt 2. gr. almennra hegningarlaga ber að dæma eftir hinni breyttu löggjöf bæði um refsinæmi verknaðar og refsingu.

Óumdeilt er að staðgreiðsla opinberra gjalda var rétt tilgreind í þeim skila greinum, sem ákæran lýtur að og að reiknaður, skilaskyldur skattur samkvæmt virðisaukaskattsskýrslunni var í raun hærri en efni stóðu til, en ákærði skilaði nefndum skýrslum til innheimtumanns, þótt ekki væri innan lögmælts frests. Launabókhald félagsins mun hafa verið í eðlilegu horfi. Þá liggur ekkert fyrir um að ákærði hafi auðgast á umræddum vanskilum heldur þvert á móti veðsett eigur sínar, að andvirði um 60.000.000 króna, til að reyna að viðhalda rekstri félagsins. Má því leggja til grundvallar að vanskilin verði fyrst og fremst rakin til greiðsluerfiðleika, sem að sögn ákærða tengjast efndum félagsins á verksamningi við hið opinbera um byggingu Barnaspítala Hringsins. Með hliðsjón af dóma fordæmum Hæstaréttar þykja greind atriði þó ekki „miklar málsbætur“ í skilningi 2. mgr. 30. gr. laga um staðgreiðslu opinberra gjalda og 1. mgr. 40. gr. virðisaukaskattslaga með áorðnum breytingum og verður því heldur ekki af þeirri ástæðu vikið frá fésektarlágmarki viðkomandi refsiákvæða.

Ákærði er 63 ára. Samkvæmt sakavottorði var hann 22. september 2004 dæmdur í 130.000 króna sekt fyrir umferðarlagabrot og 4. október 2006 gekkst hann undir 220.000 króna sekt, einnig fyrir umferðarlagabrot. Samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga ber að taka tillit til þessa við ákvörðun refsingar, sem þykir með hliðsjón af 77. gr. sömu laga hæfilega ákveðin fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi, svo sem nánar segir í dómsorði, og 24.000.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærði greiði innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu, en sæti ella fangelsi í tíu mánuði.

Með hliðsjón af greindum málsúrslitum og vísan til 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála ber að dæma ákærða til að greiða þóknun Steinars Þórs Guðgeirsonar hæstaréttarlögmanns vegna verjandastarfa á rannsóknar- og dómsstigi máls, sem og málsvarnarlaun Ástríðar Gísladóttur héraðsdómslögmanns, sem tók við hagsmunagæslu ákærða skömmu fyrir aðalmeðferð. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls, fjölda þinghalda og loks að teknu tilliti til tímaskýrslu beggja lögmanna þykir þóknun þess fyrrnefnda hæfilega ákveðin 557.760 krónur og málsvarnarlaun þess síðarnefnda 446.208 krónur, hvoru tveggja að meðtöldum virðisaukaskatti.

Eyjólfur Ármannsson fulltrúi Ríkislögreglustjórans sótti málið af hálfu ákæru valdsins.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Ólafur Friðriksson, sæti fangelsi fjóra mánuði, en fresta skal fullnustu þeirrar refsingar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá dómsbirtingu haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Þá greiði ákærði 24.000.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu, en sæti ella fangelsi í tíu mánuði.

Ákærði greiði 557.760 króna þóknun Steinars Þórs Guðgeirssonar hæstaréttar lögmanns og 446.208 króna málsvarnarlaun Ástríðar Gísladóttur héraðsdóms lögmanns.

Jónas Jóhannsson

Heimildaskrá