Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

67 dómar fundust

Lykilorð: Lyf

Héraðsdómur Vesturlands birt 23. desember 2025

S-252/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sýknaður af ákæru vegna ólögmæts lyfjainnflutnings þar sem upplýsingar á vefsíðu Lyfjastofnunar um gildandi reglur og þar með leyfilegt magn voru rangar. Ákærði því talinn í góðri trú og huglæg skilyrði fyrir broti hafi því skort. Lyfin voru öll samkvæmt lyfseðli og ætluð til eigin nota.

Héraðsdómur Vesturlands birt 23. desember 2025

S-251/2025

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Emil Sigurðsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Snorri Steinn Vidal lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærða sýknuð af ákæru vegna ólögmæts lyfjainnflutnings þar sem upplýsingar á vefsíðu Lyfjastofnunar um gildandi reglur og þar með leyfilegt magn voru rangar. Ákærði því talinn í góðri trú og huglæg skilyrði fyrir broti hafi því skort. Lyfin voru öll samkvæmt lyfseðli og ætluð til eigin nota.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. júlí 2025

S-1741/2025

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Modestas Augustavicius (Elisabeth Matthíasdóttir lögmaður)
Lykilorð: Lyf. Skilorð. Tollalagabrot. Upptaka.
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og tollalögum.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. júlí 2025

S-1648/2025

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Aurimas Dubickas
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærði dæmdur í fangelsi fyrir að hafa haft í vörslum sínum lyf við komu til landsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. ágúst 2024

S-1956/2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Friðriki Marvin Björnssyni
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn lyfjalögum. Var honum gert að sæta fangelsi í 5 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2024

S-6685/2023

Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Viktori Kristinssyni (Áslaug Lára Lárusdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing og fallist á upptökukröfur vegna fíkniefnalagabrota og vopnalagabrots.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. október 2023

S-1614/2023

Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Sigurði Smára Ólafssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærða var gerð fangelsisrefsing fyrir vörslur vopna og vörslur ávana-fíkniefna og lyfja í sölu- og dreifingarskyni. Vegna tafa á málsmeðferð var refsingin skilorðsbundin í heild. Ákærði þurfti að þola eignaupptöku og var gert að greiða sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. september 2023

S-1751/2023

Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn Guðmundi Þór Ármannssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og Ernu Ósk Agnarsdóttur (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Sakfellt fyrir tilraun til móttöku fíkniefna sem send voru til landsins með póstsendingu frá Þýskalandi. Einnig sakfellt fyrir vörslur fíkniefna og fíknilyfja.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. maí 2023

S-5341/2021

Ákæruvaldið (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Rannveigu H. Guðbrandsdóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir fíkniefna- og lyfjaakstur og vörslur fíkniefna og svipaðra lyfja en ákærða sýknuð af ákæru um brot gegn valdstjórninni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. maí 2023

S-6108/2022

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn Heiðari Þór Guðmundssyni (Ómar R. Valdimarsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir m.a. fíkniefnalaga-, umferðarlaga- og vopnalagabrot. Ákærði var dæmdur í 20 mánaða fangelsi, gert að sæta upptöku m.a. fíkniefna og lyfja auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar var áréttuð.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 5. apríl 2023

S-332/2022

Ákæruvaldið (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Lóu Dögg Grétarsdóttur (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Lykilorð: Lyf. Þjófnaður. Vörslur.
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir þjófnað og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2022

S-1762/2021

Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði X sakfelldur fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni og lyfjalögum, vopnalagabrot og peningaþvætti. Ýmsir munir og ávinningur af peningaþvætti gert upptækt. Ákærða Y var sakfelld fyrir peningaþvætti. Ákærðu Z og U voru sýknuð af ákæru en U gert að sæta upptöku á vopnum.

Héraðsdómur Suðurlands birt 12. maí 2022

S-133/2022

Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Þórdís Ólöf Viðarsdóttir fulltrúi) gegn Sigurpáli Óskari Vilhjálmssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð: Fíkniefnalagabrot. Lyf.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um fíkniefnalagabrota með því að hafa ræktað kannabisplöntur. Þá var ákærði og fundinn sekur um vörslur á sterum. Var honum gert að sæta fangelsi í tólf mánuði, en með brotum sínum hafði hann rofið reynslulausn sem dæmd var upp.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. október 2021

S-3889/2021

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristín Einarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Aðalsteini Unnarssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að sæta fangelsi í 2 mánuði, skilorðsbundið, og hann sviptur ökurétti. Þá voru gerð upptæk fíkniefni til ríkissjóðs.

Héraðsdómur Reykjaness birt 1. júní 2021

K-893/2021

Bayer Intellectual Property GmbH (Árni Vilhjálmsson lögmaður) gegn Williams & Halls ehf (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)
Lykilorð: Einkaleyfi. Lögbann. Lyf.

Í málinu var deilt um gildi einkaleyfis sóknaraðila og hvort uppfyllt væru lagaskilyrði til þess að leggja á lögbann. Dómurinn féllst á kröfu sóknaraðila og lagði fyrir sýslumann, gegn tryggingu, að leggja lögbann við því að varnaraðili flytti inn, markaðssetti og seldi tiltekið lyf sem talið var falla innan einkaleyfis sóknaraðila. Einnig var lagt fyrir sýslumann að ákvarða að varnaraðila yrði gert að innkalla og fjarlægja þær afurðir sínar af sölustöðum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2021

S-236/2020

Ákæruvaldið (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir brot í nánu sambandi, hótanir, líkamsárás, fíkniefnalagabrot o.fl. Sýknað af ákæru um rán.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. apríl 2021

S-5314/2020

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir hættu- og vopnalagabrot, auk fíkniefnalagabrots o.fl.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. febrúar 2021

S-3263/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn Grzegorz Zdzislaw Fedorów
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur fíkniefna- og lyfjalagabrot. Fíkniefni og lyf gert upptækt

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. janúar 2020

S-129/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sýknað af ákæru um ofbeldi í nánu sambandi, eða líkamsárás, og broti gegn barnaverndarlögum. Einkaréttarkröfu vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2019

S-468/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Herði Hákoni Jónssyni (Þröstur Þór Guðmundsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir fjársvik og umferðar-, lyfja- og tollalagabrot. Sviptur ökurétti ævilangt.

Héraðsdómur Reykjaness birt 3. desember 2019

S-1058/2019

Ákæruvaldið (Einar Laxnes aðstoðarsaksóknari) gegn Ívari Aroni Hill Ævarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði var dæmdur í 22 mánaða fangelsi fyrir fjölmörg brot, þar á meðal umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot, þjófnaðarbrot og eina líkamsárás.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. nóvember 2019

S-1467/2019

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ásu Gígju (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærða sakfelld fyrir brot á lyfja-, lyfsölu- og tollalögum en þeim hluta ákæru er laut að meintu peningaþvætti vísað frá dómi. Refsing ákærðu ákveðin sex mánaða fangelsi en fullnustu fjögurra mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. október 2019

S-3244/2019

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu Sonja Hjördís Berndsen saksóknarfulltrúi (Sonja H. Berndsen saksóknarfulltrúi) gegn Sigfúsi Valgeiri Ómarssyni (Unnsteinn Arnar Elvarsson lögmaður)
Lykilorð: . Játning. Lyf. Umferða.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og lyfjalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. október 2019

S-4830/2019

I (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ásgeiri Gíslasyni (Jón Egilsson lögmaður), Kristínu Bjarnadóttur (Reynir Þór Garðarsson lögmaður) og Valtý Guðmundssyni (Jón Páll Hilmarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu dæmd í skilorðsbundið fangelsi m.a. fyrir að hafa haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 206 kannabisplöntur og hafa um nokkurt skeið ræktað plönturnar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. september 2018

S-198/2018

Ákæruvaldið (Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir hótanir, innflutning á lyfseðilskyldu lyfi, tollalagabrot og vopnalagabrot. Frávísun að hluta. Dráttur málsins hafði áhrif á refsiákvörðun. Fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins.

Héraðsdómur Reykjaness birt 17. maí 2018

S-156/2018

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir saksóknarfulltrúi) gegn Jakub Fitzet (Ólafur V. Thordersen lögmaður) og Wawrzyniec Piotr Latus (Magnús Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

Ákærðu sakfelldir fyrir lyfja- og tollalagabrot. Refsing hvors ákærðu um sig ákveðin tveggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjaness birt 22. nóvember 2017

S-13/2016

Ákæruvaldið (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Björgvin Þorsteinsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir þjófnað en sýknuð af ákæru um akstur bifreiðar án þess að vera fær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Þar sem ákærða hafði áður gerst sek um þjófnað var refsing hennar ákveðin 30 daga fanelsi en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvör ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. júní 2013

E-2600/2010

Grund, dvalar- og hjúkrunarheimili (Guðbjörg Benjamínsdóttir hdl) gegn Lyfjastofnun (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefnandi krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður heilbrigðisráðherra þar sem staðfest var ákvörðun stefnda um að leyfa ekki innflutning stefnanda á tilgreindum lyfjum. Á kröfuna var ekki fallist. Viðurkenningarkröfum sem stefnandi hafði einnig uppi í málinu var vísað frá dómi

Hleð fleiri dómum…