Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 12. maí 2022.
Mál nr. S-133/2022:
Lögreglustjórinn á Suðurlandi
(Þórdís Ólöf Viðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Sigurpáli Óskari Vilhjálmssyni
(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði var fundinn sekur um fíkniefnalagabrota með því að hafa ræktað kannabisplöntur. Þá var ákærði og fundinn sekur um vörslur á sterum. Var honum gert að sæta fangelsi í tólf mánuði, en með brotum sínum hafði hann rofið reynslulausn sem dæmd var upp.
Dómur
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið fimmtudaginn 28. apríl sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurlandi þann 10. mars sl., á hendur Sigurpáli Óskari Vilhjálmssyni, […] fyrir fíkniefnalagabrot og brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum með því að hafa, að kvöldi þriðjudagsins 18. maí 2021, á heimili sínu að A, haft í vörslum sínum samtals 20 kannabisplöntur í ræktun [73-123 cm á hæð] er samtals vógu 19.425 g, 675 g af kannabislaufum og 57 töflur sem innihéldu vefaukandi stera, sem lögregla fann við leit umrætt sinn og fyrir að hafa um nokkurt skeið fram til þessa dags ræktað þar framangreindar kannabisplöntur.
Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974 með síðari breytingum og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum og 1. mgr. 2. gr., sbr. 1. mgr. 4. gr. laga um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum nr. 84, 2018.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á framangreindum fíkniefnum (efnaskrá nr. 46076) og búnaði til ólögmætrar ræktunar og meðferðar fíkniefna sbr. munaskrá lögreglu nr. 153764 samkvæmt 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, og til að sæta upptöku á vefaukandi sterum (efnaskrá nr. 46077) samkvæmt 4. mgr. 4. gr. laga um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum nr. 84, 2018.
Ákærði mætti við þingfestingu málsins ásamt Stefáni Karli Kristjánssyni lögmanni, sem skipaður var verjandi ákærða að hans ósk. Ákærði viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru. Með vísan til skýlausrar játningar ákærða og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hans væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að aðilum hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Kom fram í máli ákærða að hann efaðist um að plönturnar hefðu verið svo þungar sem í ákæru greinir án þess þó að hann mótmælti lýsingu ákæru á broti hans, en velti upp hvort plönturnar hefðu verið vigtaðar með mold og pottum. Þá féllst ákærði á kröfu ákæruvaldsins um upptöku á efnum og munum þeim er fundust í bílskúr hans, en mótmælti kröfu um upptöku á þeim munum er fundust í þvottahúsi, enda tengdust þeir ekki broti því er lýst er í ákæru. Þá var af hálfu ákærða gerð athugasemd við sakarkostnaðaryfirlit, n.t.t. kostnað við greiningu plantna. Ákærði hafi frá upphafi málsins játað að um kannabisplöntur væri að ræða og því hefði verið óþarft af hálfu lögreglu að leggja út í kostnað við greiningu plantnanna.
Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærði hefur gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Meðal gagna málsins er efnaskýrsla tæknideildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Kemur þar fram að 20 kannabisplöntur er voru 73-123 cm á hæð hafi vigtað 19.425,00 g. Samkvæmt gögnum málsins voru tvær framangreindra plantna sendar til greiningar hjá rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði, er vigtuðu við komu 1.915,42 g og eftir þurrkun 581,05 g. Í hvorugri skýrslunni kemur fram hvernig staðið var að vigtun plantnanna, þ.e. hvort plönturnar voru vigtaðar með eða án mold og potta. Ekki verður þó talin ástæða til að ætla að óvanalega hafi verið staðið að vigtun plantnanna umrætt sinn, enda er samræmi milli vigtunar tæknideildar annars vegar og rannsóknarstofu hins vegar. Samkvæmt gögnum málsins er innangegnt úr íbúðarhúsi ákærða um þvottahús í bílskúr þar sem ræktun sú sem lýst er í ákæru fór fram. Þá hafi í þvottahúsi fundist afklippur og búnaður til kannabisræktunar. Að framangreindu virtu þykja ekki efni til annars en að fallast á kröfu ákæruvaldsins um upptöku muna að öllu leyti, enda falla bæði munir sem fundust í bílskúr og þvottahúsi undir ákvæði 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974. Loks verður ekki á það fallist með ákærða að lögregla hafi að óþörfu stofnað til kostnaðar vegna rannsóknar framangreindra plantna, enda er rannsakendum skylt skv. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 88/2008, að gæta jafnt að atriðum sem horfa til sýknu og sektar og því verður að telja það óhjákvæmilegan hluta rannsóknar fíkniefnalagabrots að staðreyna að um fíkniefni sé að ræða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.
Samkvæmt framlögðu sakavottorði hefur ákærði tíu sinnum áður sætt refsingu. Á árinu 2007 hlaut ákærði dóm vegna umferðarlagabrota sem og fyrir vörslur fíkniefna og var gert að sæta fangelsi í 30 daga. Á árinu 2008 var ákærða sömuleiðis gert að sæta fangelsi í 30 daga vegna umferðarlaga- og fíkniefnalagabrota. Á árinu 2010 var ákærða gert að sæta fangelsi í þrjá mánuði vegna skjalabrots og umferðarlagabrota. Á árinu 2012 var ákærða gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði vegna umferðarlagabrota sem og fyrir vörslur fíkniefna. Á árinu 2013 var ákærði dæmdur til að sæta fangelsi í sex mánuði vegna umferðarlagabrota, en þá var jafnframt dæmd upp reynslulausn sem ákærða hafði verið veitt á eftirstöðvum eldri dóma. Á árinu 2014 var ákærða í tvígang dæmdur, til að sæta fangelsi í samtals fimmtán mánuði vegna umferðarlagabrota. Þann 17. mars 2015 var ákærði meðal annars fundinn sekur um kannabisræktun og honum gerð að sæta fangelsi í sex mánuði. Þann 23. febrúar 2018 var ákærði fundinn sekur um umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í fimmtán mánuði. Var þá og dæmd upp reynslulausn sem ákærða hafði verið veitt af eftirstöðvum eldri dóma. Þann 26. maí 2020 var ákærða veirr reynslulausn af eftirstöðvum dómsins, 225 daga. Loks var ákærði þann 17. nóvember 2020 meðal annars fundinn sekur um kannabisræktun og honum gert að sæta fangelsi í fimm mánuði. Með broti því sem lýst er í ákæru hefur ákærði rofið skilorð framangreindrar reynslulausnar og ber að dæma upp framangreinda refsingu og ákveða refsingu í einu lagi sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. og 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsinga.
Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í tólf mánuði. Að virtum sakaferli ákærða þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, eru gerð upptæk framangreind fíkniefni líkt og greinir í dómsorði. Með vísan til 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, eru gerð upptækir framangreindir munir líkt og greinir í dómsorði. Með vísan til 4. mgr. 4. gr. laga nr. 84/2018, eru gerð upptæk framangreind lyf líkt og greinir í dómsorði. Með vísan til 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem nemur samkvæmt yfirliti lögreglu samtals 151.486 kr., auk þóknunar skipaðs verjanda ákærða sem er hæfilega ákveðin 368.900 kr., að teknu tilliti til virðisaukaskatts og ferðakostnaðar verjanda sem nemur 12.540 kr.
Sólveig Ingadóttir, löglærður aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, Sigurpáll Óskar Vilhjálmsson, sæti fangelsi í tólf mánuði.
Gerðar eru upptækar 20 kannabisplöntur, er samtals vógu 19.435 g og 674 g af kannabislaufum, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 46076.
Gerður er upptækur búnaður til ólögmætrar ræktunar og meðferðar fíkniefna, sbr. munaskrá lögreglu nr. 153764.
Gerðar eru upptækar 57 töflur er innihéldu vefaukandi stera, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 46077.
Ákærði greiði sakarkostnað samtals, 532.926 krónur, þar af þóknun skipaðs verjanda, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 368.900 krónur að teknu tilliti til virðisaukaskatts og ferðakostnað verjanda 12.540 krónur.
Sólveig Ingadóttir.