Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Mál þetta, sem dómtekið var 7. nóvember sl., höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 9. ágúst sl. á hendur ákærða, Ívari Aroni Hill Ævarssyni, kt. 000000-0000, Suðurgötu 20 í Sandgerði: „Fyrir eftirtalin brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni, lyfjalögum og umferðarlögum;

I.

Nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa, aðfaranótt föstudagsins 19. mars 2019, tekið í heimildarleysi bifreiðina [...], á bifreiðastæði við [...], innri Njarðvík, og í framhaldi ekið bifreiðinni, austur Reykjanesbraut uns hann ók henni útaf við Hvassahraun, sviptur ökuréttindum og undir áhrifum lyfja og vímuefna sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði (í blóði ákærða mældist 12 ng/ml klónazepam, 820 ng/ml amfetamín og 1,7 ng/ml tetrahýdrókannabínól) og því ekki verið fær um að stjórna bifreiðinni örugglega umrætt sinn.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og 1., sbr. 2. mgr. 44. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a., 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

II.

Fíkniefna- og lyfjalagabrot, með því að hafa umrætt sinn skv. ákærulið I., haft í vörslum sínum 0,85 grömm af maríhúana, 7 stk. af morfín lyfjum, 13 stk. af OxyContin lyfjum , 9 stk. af Rivotril lyfjum og [...], sem lögregla fann í seðlaveski í hægri úlpuvasa ákærða.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og reglugerð nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 490/2001, reglugerð nr. 248/2002 og reglugerð nr. 848/2002 og 1. mgr. 7. gr., 1. mgr. 20. gr., 32. gr. og 34. gr., sbr. 1. mgr. 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 og 51. gr., sbr. 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er jafnframt krafist að ákærða verði gert að sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 1. mgr. 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993 og lög nr. 66/2006. Þá er þess krafist að gerð verði upptæk haldlögð fíkniefni og lyf skv. ákærulið II., skv. heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 68/2001 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, og 3. mgr. 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 og 2. mgr. 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963.“

Hinn 7. nóvember 2019 var mál nr. S-1876/2019 sameinað máli þessu, sbr. heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Málið höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru, útgefinni 24. október 2019, á hendur ákærða:

,,fyrir eftirtalin brot framin á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2019, nema annað sé tekið fram:

  1. Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 13. desember 2017 að Miðhrauni 14 í Hafnarfirði haft í vörslum sínum 1,21 g af marihúana-kannabis, sem ákærði framvísaði.

    Telst þetta varða við 2., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.

  2. Fyrir líkamsárás, með því að hafa þriðjudaginn 24. júlí 2018 utandyra undir stúkunni á Laugardagsvelli í Reykjavík, veist að A, kt. 000000-0000, með því að slá A í andlitið og höfuðið svo að hann féll til jarðar og síðan sparkað í líkama og höfuðið með þeim afleiðingum að A hlaut heilahristing, mar á baki og yfirborðsáverka á höfði.

    Telst þetta varða við 217. gr. almennra hegninglaga nr. 19/1940.

  3. Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 3. janúar 2019 ekið bifreiðinni [...] undir áhrifum ávana- og fíkniefna óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega (í blóði mældist amfetamín 205 ng/ml og tetrahýdrókanníbínól 4,1 ng/ml) og sviptur ökuréttindum og án þess að hafa öryggisbelti spennt, við Stórhöfða 15 í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a, 1. mgr. 48. gr., og 1. mgr. 71. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  4. Fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 14. mars 2019 í bifreiðinni [...], að [...] í Garðabæ haft í vörslum sínum 5,39 g af amfetamíni og jafnframt í haft í vörslum sínum hníf, sem lögregla fann eftir leit.

    Telst þetta varða við 2., sbr. 4. og 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 1, mgr. 30. gr.., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998. [...]

  5. Fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 31. mars. 2019 ekið bifreiðinni [...] undir áhrifum ávana- og fíkniefna og slævandi lyfja óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega án nægilegrar aðgæslu og varúðar (í blóði mældist amfetamín 365 ng/ml, tetrahýdrókannabínól 3,4 ng/ml, klónazepam 16 ng/ml og alprazólam 29 ng/ml) og sviptur ökuréttindum suður Suðurlandsveg í Reykjavík, við Rauðavatn yfir á rangan vegarhelming og síðan útaf, þar sem bifreiðin lenti utanvegar þar sem akstri lauk og eigi sinnt skyldum sínum við óhappið, og jafnframt á sama tíma haft í vörslum sínum 1,20 g af kókaíni og 0,41 g af maríhúna-kannabis, sem lögregla fann á ákærða eftir leit.

    Telst þetta varða við 1. mgr. 4. gr., 1. mgr. 14. gr., 1., sbr., 2. mgr. 44. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og 2., sbr. 4. og 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974.

  6. Fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 7. apríl 2019 brotist inn að [...] í Reykjavík, með því spenna upp svalahurð og stolið þaðan Acer spjaldölvu [...].

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  7. Fyrir nytjastuld, þjófnað og skjalabrot með því að hafa fimmtudaginn 15. ágúst 2019 í félagi við þekktan aðila, heimildarlaust tekið bifreiðina [...] að bílaleigunni Lagoon Car Rental að Sundagörðum 8 í Reykjavík, en bifreiðinni var ekið um götur höfuðborgarsvæðisins í félagi við þekktan aðila undir skráningarmerkjunum [...] en skráningarmerkjunum hafði ákærði stolið af bílaverkstæði á Seltjarnarnesi, en ákærði var handtekinn í bifreiðinni síðar sama dag við Miklubraut í Reykjavík á móts við Stakkahlið.

    Telst þetta varða við 259. gr., 254. gr. og 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og umferðarlög.

  8. Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 15. ágúst 2019 stolið gaskút fyrir utan íbúðarhúsið að [...] í Hafnarfirði.

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  9. Fyrir þjófnað í félagi við þekktan aðila, með því að hafa fimmtudaginn 15. ágúst 2019 brotist inn að [...] í Hafnarfirði, með því að spenna upp glugga og stolið þaðan skartgripum, 8 armbandsúrum, hátalara, ljósmyndavél, flassi, veiðihjóli, 2 Ipad spjaldtölvum, heyrnatólum, seðlaveski, 2 hleðslutækjum, kveikjuáslykli, skráningarskírteini [...], peysu, hönskum og klút, sbr. munarskýrsla lögreglu nr. 139731, 139730 og 139698.

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 9/1940. [...]

  10. Fyrir þjófnað, með því að hafa aðfaranótt þriðjudagsins 20. ágúst í versluninni Nettó, Mjódd að Þönglabakka í Reykjavík, stolið matvöru og snyrtivörum að andvirði kr. 21.760,-.

    Telst þetta varða við 244. gr. almennr hegningarlaga nr. 19/1940.

  11. Fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 19. ágúst brotist inn í bílaleigu Hertz Flugvallarvegi 5 í Reykjavík, með því að brjóta rúðu og stolið þaðan kveikjuáslyklum af bifreiðinni [...] og öðrum lyklum og tekið bifreiðina í framhaldinu heimildarlaust og ekið henni sviptur ökurétti, en bifreiðin fannst síðar þegar ákærði var handtekinn í Húsafelli í Borgarfirði 29. ágúst við bústað nr. 64.

    Telst þetta varða við 244. gr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðalaga nr. 50/1987.

  12. Fyrir umferðalagabrot, með því að hafa að kvöldi föstudagsins 23. ágúst 2019 ekið bifreiðinni [...] norður Hvalfjarðargöng á 86 km á klst, þar sem leyfður hámarkshraði er 70 km á klst.

    Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 4. mgr. 37. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 5071987.

  13. Fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 27. ágúst 2019 farið heimildarlaust inn í starfsmannaaðstöðu Hótels Húsafells í Húsafelli í Borgarfirði, og stolið þaðan tösku sem innihélt lykla af bifreiðinni [...] greiðslukorti og skilríki og í framhaldinu tekið bifreiðina heimildarlaust og ekið henni sviptur ökurétti, en bifreiðin fannst síðar sama dag í Reyðarfellsskógi.

    Telst þetta varða við 244. og 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  14. Fyrir þjófnað í félagi, í með því að hafa þriðjudaginn 27. ágúst 2019 brotist inn í sumarhús að Svignaskarði í Borgarfirði, hús nr. [...], með því að spenna upp glugga og stolið sjónvarpi, dvd spilara og hljómflutningstækjum.

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  15. Fyrir tilraun til þjófnaðar í félagi, með því að hafa þriðjudaginn 29. ágúst 2019 í auðgunarskyni reynt að brjótast inn í sumarhús að Svignaskarði í Borgarfirði, hús nr. [...], með því að reyna spenna upp glugga, en þurft frá að hverfa.

    Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  16. Fyrir tilraun til þjófnaðar [...], með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 2. september 2019 brotist inn að [...] í Kópavogi, með því að spenna upp glugga, og reynt að stela ýmsum munum, sem kærði setti í bakpoka og út á svalir, en vitni varð var við ákærða, og kallaði til lögreglu sem handtók ákærða.

    Telst þetta varða við 244. gr., sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  17. Fyrir nytjastuld, umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 7. september 2019 að [...] í Kópavogi tekið heimildarlaust bifreiðina [...] og ekið henni sviptur ökurétti um götur Reykjavíkur, en bifreiðin fannst sunnudaginn 8. september við Bónus í Hraunbæ og var ákærði þar hjá, jafnframt á sama tíma haft í vörslum sínum 0,55 g af maríhúana-kannabis, sem lögregla fann við leit.

    Telst brot kærða varða við 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlagar nr. 50/1987 og við 2., sbr. 4 og 5. gr. laga um ávana- og fíknefni nr. 65/1974.

  18. Fyrir tilraun til þjófnaðar og til vara húsbrot, með því að hafa sunnudaginn 15. september 2019 í auðgunatilgangi brotist inn í hús Veitna að að Heiðmerkurvegi í Reykjavík, með því að brjóta glugga, en þurft frá að hverfa skömmu síðar.

    Telst þetta geta varðað við 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga en til vara 231. gr. sömu laga.

  19. Fyrir þjófnað, með því að hafa sunnudaginn 15. september 2019, skömmu eftir innbrotið í hús Veitna á Heiðmerkuvegi brotist inn í bifreiðina [...], með því að brjóta rúðu í bifreiðinni og stolið Iphone hleðslusnúru.

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/ 1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006, og að 5,39 g af amfetamíni, 2,17 g af maríhúana og 1,20 g af kókaín sem lagt var hald á, verði gert upptækt samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/ 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 og að hnífur verði gerður upptækur samkvæmt 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

    Einkaréttarkrafa:

    Í málinu gerir Gísli Tryggvason lögmaður f.h. A, kt. 230597- 3169, kröfu um að ákærði, Ívar Aron Hill Ævarsson, kt. 000000-0000 verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 1.113.523, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá tjónsdegi, sem var 24. júlí 2018 þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. vaxtalaga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar að mati dómara eða samkvæmt síðar framlögðum reikningi, auk virðisaukaskatts á málskostnað.“

    Kröfur ákærða í málinu eru þær að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa vegna verjandastarfans.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði hefur játað sakargiftir og var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Hvað ákærulið nr. 2 varðar þá samþykkir ákærði bótaskyldu en telur bótakröfu úr hófi og leggur í mat dómsins.

    Í ákærulið II í ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum frá 9. ágúst sl. er vikið að vörslum ákærða á „7 stk. af morfín lyfjum, 13 stk. af OxyContin lyfjum og 9 stk. af Rivotril lyfjum“. Þau efni eru ekki bönnuð á íslensku yfirráðasvæði samkvæmt 2. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, sbr. einnig 2. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Þá er ekki byggt á því af hálfu ákæruvaldsins að ákærði hafi flutt umrædd lyf til landsins, framleitt þau eða haft þau að öðru leyti undir höndum í sölu- eða dreifingarskyni. Er því ekki unnt að heimfæra vörslur ákærða, sem hann hefur játað, undir refsiákvæði 1. mgr. 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 eða 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963. Ber því að sýkna ákærða af þeirri háttsemi sem ákæruvaldið gefur honum að sök varðandi umrædd lyf. Að öðru leyti en varðandi fyrrgreind lyf telst sannað með skýlausri játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í málinu og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í fyrirliggjandi ákærum.

    Ákærði er fæddur árið [...]. Samkvæmt sakavottorði ákærða á hann að baki umtalsverðan sakaferil sem nær aftur til ársins 2008. Ákærða hefur ítrekað verið gerð refsing fyrir auðgunarbrot, nú síðast með dómi Héraðsdóms Reykjaness frá 13. apríl 2016. Horfir 255. gr. almennra hegningarlaga því til refsiþyngingar í málinu. Ákærði hefur nú í sjötta sinn verið fundinn sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna. Ákærði hefur nú í fimmta sinn verið fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti. Við ákvörðun refsingar ber aftur á móti að virða skýlausa játningu ákærða honum til málsbóta.

    Að öllu framangreindu virtu og með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 22 mánuði. Til frádráttar refsingu ákærða kemur gæsluvarðhald sem hann hefur undanfarið sætt frá 16. september 2019, að fullri dagatölu.

    Með vísan til tilvitnaðra ákvæða laga nr. 50/1987 í ákæru ber að árétta ævilanga sviptingu ökuréttar ákærða frá dómsbirtingu að telja.

    Þá verða fíkniefni og vopn gerð upptæk eins og krafist er og nánar greinir í dómsorði. Hvað varðar lyf í ákærulið II í ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum frá 9. ágúst sl. þá hefur ákærði játað vörslur á þeim og ekki borið því við að þær hafi verið honum heimilar á grundvelli lyfseðils. Að mati dómsins eru uppfyllt skilyrði fyrir upptöku umræddra lyfja, sbr. 3. mgr. 49. gr. lyfjalaga nr. 93/1994 og 2. mgr. 68. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963, og verður því fallist á kröfu ákæruvaldsins um upptöku þeirra.

    Brotaþolinn A krefur ákærða um skaðabætur að fjárhæð 1.113.523 krónur, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 24. júlí 2018 þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar. Sundurliðar brotaþoli bótakröfu sína í miskabætur, þjáningabætur og fjárhagslegt tjón. Eins og áður greinir samþykkir ákærði bótaskyldu en telur bótakröfu úr hófi fram.

    Með þeirri refsiverðu háttsemi sem greinir í ákærulið 2 í ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu frá 24. október 2019 hefur ákærði bakað sér bótaábyrgð gagnvart brotaþola á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Af gögnum málsins, einkum myndbandsupptöku af vettvangi, verður ráðið að atlaga ákærða var harkaleg og samkvæmt læknisvottorði var brotaþoli greindur með heilahristing, tognun á hálshrygg, mar á baki og yfirborðsáverka á höfði sem lýstu sér í blóðgúl undir húð og hrufli á enni, minni háttar hrufli á bak við vinstra eyra og aftanvert á því eyra auk roða og vægs margúls á hnakka. Samkvæmt öðru læknisvottorði sem liggur fyrir í málinu gat brotaþoli ekki sótt vinnu eftir atvikið í tiltekinn tíma og fellst dómurinn á að ákærða verði gert að greiða þjáningabætur í þá tvo daga sem brotaþoli var rúmfastur í samræmi við kröfugerð hans. Þá liggur fyrir að brotaþoli varð fyrir fjárhagslegu tjóni vegna kostnaðar sem tengist sjúkrabifreið og læknisvottorði, enda hefur hann lagt fram gögn því til stuðnings. Að öllu framangreindu virtu verður ákærða gert að greiða brotaþola 415.068 krónur, þ.e. 400.000 krónur í miskabætur samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, 6.438 krónur í þjáningabætur samkvæmt 1. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1993, 6.700 krónur vegna kostnaðar í tengslum við sjúkrabifreið og 1.930 krónur vegna öflunar læknisvottorðs, allt með vöxtum eins og nánar greinir í dómsorði. Hvað varðar annað tjón sem brotaþoli krefst bóta fyrir, þ.e. bætur vegna varanlegs miska, kostnaðar við tónleikamiða og þjáningabætur í 35 daga án þess að vera rúmfastur, þá er sá þáttur kröfunnar vanreifaður og ber því að vísa kröfu brotaþola frá að því leyti. Hið sama á við um vaxtakröfu brotaþola að því marki sem krafist er vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 af þjáningabótum, sbr. sérstakt ákvæði um vexti vegna slíks tjóns í 16. gr. laga nr. 50/1993. Ekki liggur annað fyrir en að krafa brotaþola hafi fyrst verið birt ákærða við þingfestingu málsins og miðast upphaf dráttarvaxta því við mánuð frá þeim degi, eins og nánar greinir í dómsorði. Þá verður ákærða gert að greiða brotaþola málskostnað, sbr. 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008, sem ákveðinn er með virðisaukaskatti í dómsorði.

    Loks verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns sem ákveðin er með virðisaukaskatti í dómsorði.

    Arnaldur Hjartarson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Ívar Aron Hill Ævarsson, sæti fangelsi í 22 mánuði. Gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 16. september 2019 skal koma til frádráttar refsingunni að fullri dagatölu.

Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða frá birtingu dóms þessa að telja.

Ákærði sæti upptöku á samtals 3,02 g af maríhúana, 5,39 g af amfetamíni, 1,20 g af kókaíni, 7 stk. af morfín-lyfjum, 13 stk. af OxyContin-lyfjum, 9 stk. af Rivotrillyfjum og á þeim hníf sem í ákæru greinir.

Ákærði greiði brotaþola, A, 415.068 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 400.000 krónum frá 24. júlí 2018 til 25. júlí 218, en af 401.930 krónum frá þeim degi til 1. október 2018, en af 408.630 krónum frá þeim degi til 7. desember 2019, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., laga nr. 38/2001 af 415.068 krónum frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði A 126.480 krónur í málskostnað.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 210.800 krónur. Ákærði greiði 600.117 krónur í annan sakarkostnað.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 9/1940 Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að banna að veita upplýsingar um ferðir skipa 244. gr.
Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 20. gr.77. gr.157. gr.217. gr.231. gr.244. gr.254. gr.255. gr.259. gr.1. mgr. 259. gr.
Lög nr. 30/1963 Lyfsölulög 51. gr.68. gr.2. mgr. 68. gr.
Lög nr. 65/1974 Lög um ávana- og fíkniefni 2. gr.4. gr.5. gr.6. mgr. 5. gr.6. gr.
Lög nr. 60/1980
Lög nr. 13/1985
Lög nr. 50/1987 Umferðarlög 1. mgr. 4. gr.1. mgr. 14. gr.2. mgr. 44. gr.2. mgr. 45. gr.2. mgr. 45. gr. a1. mgr. 48. gr.1. mgr. 71. gr.1. mgr. 100. gr.1. mgr. 101. gr.102. gr.
Lög nr. 44/1993 Lög um breyting á umferðarlögum, nr. 50 30. mars 1987. 25. gr.
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 1. mgr. 3. gr.16. gr.26. gr.1. mgr. 26. gr.
Lög nr. 93/1994 Lyfjalög 1. mgr. 7. gr.1. mgr. 20. gr.32. gr.34. gr.1. mgr. 49. gr.3. mgr. 49. gr.
Lög nr. 16/1998 Vopnalög 30. gr.1. mgr. 36. gr.1. mgr. 37. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.8. gr.1. mgr. 8. gr.9. gr.
Lög nr. 68/2001 Lög um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, með síðari breytingum.
Lög nr. 66/2006 18. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 169. gr.3. mgr. 176. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 4. mgr. 37. gr.1. mgr. 48. gr.1. mgr. 100. gr.101. gr.102. gr.