Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að banna að veita upplýsingar um ferðir skipa
Lög nr. 9/1940
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2014. Útgáfa 143b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til að banna að veita upplýsingar um ferðir skipa
Lög nr. 9/1940
Tóku gildi 12. febrúar 1940.
Breytt með l. 116/1990 (tóku gildi 31. des. 1990), l. 82/1998 (tóku gildi 1. okt. 1998) og l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008).■ 1. gr. Ríkisstjórnin getur, er hún telur nauðsynlegt vegna yfirvofandi eða yfirstandandi ófriðar eða hliðstæðs ástands, fyrirskipað, að enginn megi láta neitt uppi við óviðkomandi menn um ferðir íslenskra eða erlendra skipa.
□ Nú notar ríkisstjórnin heimild þá, sem henni er veitt í lögum þessum, og taka þá bannfyrirmæli hennar til allra upplýsinga um burtför skips úr höfn, um ferð þess frá einni höfn til annarrar, um það hvar skipið er statt á hverjum tíma, um ákvörðunarstað þess og komu í höfn í ferð eða að lokinni ferð, svo og til allra upplýsinga um farm skips og farþega.
■ 2. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að gera allar þær ráðstafanir, sem henni þykir þurfa, til þess að bannfyrirmæli þau, sem um ræðir í 1. gr., komi að haldi, þar á meðal að láta stöðva símskeyti um ferðir skipa, ef þurfa þykir.
■ 3. gr. [Brot gegn lögum þessum varða sektum … 1) eða fangelsi allt að einu ári nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
□ … 2)] 3)
1)L. 82/1998, 149. gr. 2)L. 88/2008, 233. gr. 3)L. 116/1990, 23. gr.