Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

22 dómar fundust

Lykilorð: Læknar

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. apríl 2022

S-2857/2020

Ákæruvaldið (Finnur Þór Vilhjálmsson saksóknari) gegn Rosio Bertu Calvi Lozano (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir umboðssvik en sýknað af ákæru varðandi meintan fjárdrátt/umboðssvik, misneytingu og gripdeild. Sakartæming gagnvart peningaþvætti. Skilorðsbundin refsing, fjármunir gerðir upptækir og fallist á skaðabótakröfur. Sakarkostnaður að hluta felldur á ríkissjóð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. febrúar 2019

E-3172/2017

A (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður) gegn Ríkissjóði Íslands (Soffía Jónsdóttir lögmaður)

Íslenska ríkið sýknað af skaðabótakröfu sjúklings. Ósannað var að um saknæm mistök læknis hefði verið að ræða, heldur sjaldgæfan fylgikvilla aðgerðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. nóvember 2018

E-1864/2017

A (Hulda Rós Rúriksdóttir lögmaður) gegn T (Valgeir Pálsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur tryggingafélagi og krafðist viðurkenningar á rétti á fébótagreiðslu á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna sjúkdómsmeðferðar sem B lýtalæknir framkvæmdi á árinu 2007 og fólst í ísetningu PIP brjóstapúða. Tryggingafélagið var sýknað þar sem ekki þótti sýnt fram á að B hefði gert mistök í skilningi laganna og þá var ósannað að tjón A mætti rekja til galla í brjóstapúðunum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. júní 2018

E-2026/2017

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Erla Svanhvít Árnadóttir lögmaður)

Dómurinn, sem m.a. var skipaður sérfróðum meðdómanda, taldi stefnanda ekki eiga rétt á bótum á grundvelli laga um sjúklingatryggingu vegna greiningar og meðferðar á hjartadeild Landspítala. Sýknað af kröfu um ógildingu úrskurðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. desember 2014

E-5081/2014

yrði leyst úr þeirri málsástæðu stefnda að krafa stefnanda væri fyrnd. Var málið flutt um þennan þátt máls og dómtekið 21. sama mánaðar. Dómi héraðsdóms gegn stefnda vegna ætlaðra mistaka heilbrigðisstarfsmanna við fæðingu hennar hefði ekki verið fallin niður fyrir fyrningu þegar mál þetta var höfðað. Málinu

Ekki var fallist á að saknæm mistök hefðu verið gerð við fæðingu K þannig að R bæri skaðabótaábyrgð á líkamstjóni K sem varð við fæðinguna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. maí 2011

E-6/2010

A, B, fyrir hönd ólögráða, sonar og C (Haukur Örn Birgisson hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um greiðslu bóta. Krafan var á því reist að stefnandi hafi orðið fyrir varanlegu heilsutjóni vegna þess að grundvallaratriðum í mæðraskoðun hafi ekki verið sinnt vegna meðgöngu og fæðingar hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. júní 2010

E-2839/2009

Örn Jónsson (Dögg Pálsdóttir hrl) gegn Brynjólfi Y. Jónssyni Byjorto ehf og Tryggingamiðstöðinni hf. til réttargæslu (Valgeir Pálsson hrl)

Í málinu krafði stefnandi stefndu um bætur vegna tjóns sem hann varð fyrir á heilsu sinni í kjölfar aðgerðar vegna meintra læknamistaka. Voru stefndu sýknaðir af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. desember 2008

E-3991/2006

Olga Lind Guðmundsdóttir (Arnar Þór Stefánsson hdl) gegn Landspítalanum (Óskar Thorarensen hrl)

Stefnandi gekkst undir skurðaðgerð á Landspítalanum sem tókst ekki sem skyldi þar sem líðan hennar, sem var mjög slæm fyrir, versnaði til frambúðar. Hún krafðist skaðabóta þar sem aðgerðarlæknir hefði ekki upplýst hana um að svo kynni að fara. Sýkna þar sem talið var að veittar upplýsingar hefðu verið fullnægjandi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. nóvember 2007

E-140/2007

Grétar Þórðarson (Einar Gautur Steingrímsson hrl) gegn Jakobi Jónssyni Vátryggingafélagi Íslands hf (Anna Dögg Hermannsdóttir hdl)

Stefndu voru sýknaðir af skaðabótakröfu stefnda. Ekki var talið að veikindi stefnanda yrðu rakin til umferðaróhapps sem stefnandi varð fyrir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. mars 2007

E-4245/2006

A (Dögg Pálsdóttir hrl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu íslenska ríkisins vegna þess að hún hafði smitast af lifrarbólgu C við blóðgjöf á árinu 1990. Bótaskylda íslenska ríkisins var talin vera fyrir hendi.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 21. desember 2006

E-491/2005

Stefán Gunnlaugur Stefánsson, Sandra Rós Pétursdóttir, v/ ólögráða dóttur, Katrínar og Hvannar Stefánsdóttur (Magnús B. Brynjólfsson hdl) gegn Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (Árni Pálsson hrl)

Sjúkrahús sýknað af kröfu stefnanda sem taldi sig hafa hlotið skaða við mistök lækna við mæðraeftirlit, við fæðingu eða eftirmeðferð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2006

E-2626/2003

Svanur Geirdal Oddsson (Eiríkur Jónsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Sigurður Gísli Gíslason hdl) og Halldóri Jóhannssyni (Þorsteinn Einarsson hrl)
Lykilorð: Læknar. Skaðabætur.

Íslenska ríkinu og lækni, sem rak læknastofu, var gert að greiða manni fullar bætur in solidum vegna mistaka sem talin voru hafa leitt til þess að taka varð af vinstri fót hans fyrir ofan hné.