Ákærði sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi.
Brynhildur Briem, Hannes Þór Sigurðsson, Jón Benjamín Jónsson, Örn Ingi Ingvarsson, Ólafur Arnar Jónsson og Ölhóll ehf (
Sif Konráðsdóttir lögmaður)
gegn
íslenska ríkinu og Umhverfis- og orkustofnun og Húsnæðis- og mannvirkja- og skipulagsstofnun (
Þorvaldur Hauksson lögmaður),
Landsvirkjun (
Guðjón Ármannsson lögmaður) og
Jóni Árna Vignissyni og Náttúruverndarsamtökum Íslands og Veiðifélagi Þjórsár (enginn)
Deilt var um gildi tveggja stjórnvaldsákvarðana tengdum áformum stefnda Landsvirkjunar um að reisa vatnsaflsvirkjunina (raforkuverið) Hvammsvirkjun í neðri hluta Þjórsár en þær fyrirhuguðu framkvæmdir hafa áður verið til umfjöllunar í dómi Hæstaréttar 9. júlí 2025 í máli nr. 11/2025. Annars vegar var með síðari dómkröfu stefnenda deilt um gildi úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála 15. febrúar 2018 þar sem staðfest var ákvörðun Skipulagsstofnunar 16. desember 2015, samkvæmt 12. gr. þágildandi laga nr. 106/2000, um endurskoðun matsskýrslu Landsvirkjunar frá árinu 2003 en ákvörðunin fól í sér að ekki þyrfti að endurskoða matsþættina vatnalíf og vatnafar. Frávísunarkröfu íslenska ríkisins o.fl. sem laut aðeins að þeirri dómkröfu var hafnað í dóminum en málið, sem rekið var sem flýtimeðferðarmál, var flutt í einu lagi um formhlið og efnishlið þess. Í efnisþætti málsins voru stefndu sýknaðir af kröfu um ógildingu úrskurðarins, m.a. með vísan til þess að með forsendum nefnds dóms Hæstaréttar hefði verið leyst efnislega og með bindandi hætti úr málsástæðum stefnenda er lutu að umhverfismatsferlinu, sbr. meginreglu 1. og 2. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991. Þá var talið að 5. mgr. 101. gr. sömu laga girti fyrir að nýjar málsástæður, sem tilefni hefði verið til að hafa uppi um það efni í fyrra dómsmáli, kæmust að í máli þessu. Sú regla var þó ekki talin girða fyrir að leyst yrði úr öðrum málsástæðum stefnenda sem ekki var talið einsýnt að tilefni hefði verið til að hafa uppi í hinu fyrra máli. Hins vegar var með fyrri dómkröfu stefnenda deilt um gildi ákvörðunar Umhverfis- og orkustofnunar 12. desember 2025 um útgáfu virkjunarleyfis fyrir Hvammsvirkjun, þar sem jafnframt var veitt heimild til að breytingar á vatnshlotunum Þjórsá 1 og Þverá samkvæmt 18. gr. laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála. Stefndu voru einnig sýknaðir af þeirri dómkröfu. Málskostnaður var þó felldur niður með vísan til 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Gunnhildur Anna Alfonsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Svavari Sigurðssyni (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði, sem játaði brot sitt, dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot og gert að sæta upptöku.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Helgu Þorkelsdóttur (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir umferðarlagabrot og fjársvik. Var henni dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 4 mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, ásamt því sem áréttuð var ævilöng svipting ökuréttar ákærðu.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Shahin Alikhil
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Var honum dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 15 daga.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Murman Kiladze
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot á lögum um útlendinga. Var honum gert að sæta 30 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
Lögreglustjórinn á Vesturlandi (
Guðfinnur Stefánsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Friðriki Marvin Björnssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna í þriðja sinn innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga, sem og fyrir akstur án gildra ökuréttinda og hraðakstur. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð og var skilorðsdómur því dæmdur upp og ákærða ákvörðuð refsing í einu lagi. Ákærða gert að sæta fangelsi í 6 mánuði og sviptur ökurétti ævilangt.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi) gegn
Jóni Þór Gíslasyni (enginn)
Ákærði var sakfelldur fyrir akstur sviptur ökuréttindum. Farið var með málið eftir 161. gr. laga nr. 88/2008. Var ákærða gert að sæta fangelsi í 4 mánuði.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Margrét Harpa Garðarsdóttir fulltrúi)
gegn
Ismael Imaalitane Maali (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot. Farið var með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008. Ákærða var dæmdur hegningarauki og gert að sæta fangelsi í 60 daga. Með vísan til hegningaraukasjónarmiða var ákærða ekki gerð frekari ökuréttarsvipting.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra (
Sólveig Ingadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Jóhannes Már Sigurðarson lögmaður)
Sýknað var af ákæru um ölvunarakstur.
Kröfu stefnanda um viðurkenningu skaðabótaskyldu á þeim grunni að stefndu hafi valdið skaðabótaskyldu tjóni vísað frá dómi vegna ágalla á málatilbúnaði.
Héraðssaksóknari (
Harpa Sólveig Björnsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Alfreð Þór Jóhannessyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás samkvæmt. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Jakob Steinn Stefánsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Gunnari Frey Kristinssyni (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir rán og dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Ákæruvaldið (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, til greiðslu á 100.000 króna sekt til ríkissjóðs og gert að sæta upptöku á þar til greindum munum.
Ákæruvaldið (
Rannveig Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóni Þór Eymundssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 2 ára fangelsi fyrir sviptingarakstursbrot og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá var ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.
Ákærði dæmdur í 20 mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot. Þá var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku á fjaðrahníf.
Ákæruvaldið (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sigurði Geir Geirssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 11 mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot.
Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Sasa Drca (Enginn)
Ákærði dæmdur í 11 mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot.
Ákærða sýknuð fyrir stórfelldar ærumeiðingar og umsáturseinelti, en sakfelld fyrir brot gegn nálgunarbanni og dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og gert að greiða brotaþola miskabætur.
Stefndi var sýknaður á grundvelli aðildarskorts af viðurkenningarkröfu stefnanda vegna líkamstjóns af völdum slyss sem hún varð fyrir í starfi. Leitt taldist í ljós að annað félag en stefndi hefði verið vinnuveitandi stefnanda þegar slysið varð. Eins og atvikum var háttað var stefnda gert að bera hluta málskostnaðar í málinu.
Máli stefnanda, sem krafðist bóta úr hendi stefnda vegna seinkunar á flugi, var vísað frá dómi þar sem varnarþingsreglur íslensks réttar gátu ekki staðið til málshöfðunar hér á landi.
Ákæruvaldið (Kristín Una Pétursdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Oleksandr Kuznietsov (Enginn)
Ákærði dæmdur í 7 mánaða fangelsi fyrir sviptingarakstursbrot.
Fallist var á fjárkröfu stefnanda í máli hans gegn tryggingafélagi. Málið varðaði einkum ágreining um viðkomandi skilmála vátryggingasamnings vegna frítímaslysatryggingar stefnanda og sönnun og sönnunarbyrði í því sambandi.
Kröfum varnaraðila var vísað frá dómi, m.a. þar sem kröfugerðin fullnægði hvorki þeim kröfum sem gerðar eru í d-lið 1. mgr. 80. gr. né í 4. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. 2. mgr. 178. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl.
Íslenska ríkið var talið bera bótaábyrgð á grundvelli hlutlægrar bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 vegna handtöku og blóðsýnatöku sem stefnandi gekkst undir. Ekki var fallist á að hann hefði sjálfur valdið eða stuðlað að aðgerðum lögreglu þannig að rök stæðu til þess að fella niður eða lækka bætur til hans.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Roya Abedi (Enginn)
Ákærða dæmd í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X (
Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot, líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Var honum gert að sæta 60 daga fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára.
Ákærði sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti og hraðakstur.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Wei Han (Enginn)
Ákærða dæmd í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Tran Trong Nghia (Enginn)
Ákærða dæmd í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Le Hoang Hiep (Enginn)
Ákærða dæmd í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Pham Anh Quoc Viet (Enginn)
Ákærða dæmd í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals.
Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Badyh Karemy (Enginn)
Ákærða dæmd í 30 daga fangelsi fyrir skjalfals.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Kamilla Kjerúlf aðstoðarsaksóknari)
gegn
Guðmundi Þ. Gíslasyni (
Helgi Birgisson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir minni háttar líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um að viðurkenndur yrði dómi réttur stefnanda til greiðslu bóta úr sjúkdómatryggingu hjá stefnda þar sem að ársfrestur 2. mgr. 124. gr. laga nr. 30/2004 til að höfða mál eða krefjast meðferðar málsins fyrir úrskurðaraðila var liðinn þegar stefnandi höfðaði málið.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sonja Wiium saksóknarfulltrúi)
gegn
Breka Þór Frímannssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Ákærði sem játaði sök var dæmdur til að sæta fangelsi í 8 mánuði fyrir m.a. sérstaklega hættulega líkamsárás og rán. Var um að ræða hegningarauka við refsingu í fyrri dómi.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Karen Lárusdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Eggert Frey Rúnarssyni (
Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og brot gegn lögreglulögum. Var honum gert að sæta fangelsi í 4 másnuði ásamt því að vera sviptur ökuréttindum ævilangt.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (
Halldór Tumi Ólason saksóknarfulltrúi)
gegn
X (
Friðrik Smárason lögmaður)
Ákærða var gefið að sök brot í nánu sambandi en til vara líkamsárás með því að ráðast að brotaþola, dóttur ákærða, þegar hún var að reyna að stöðva deilur ákærða og eiginkonu hans. Brotaþoli og vitni skoruðust undan því að gefa skýrslu fyrir dómi. Með hliðsjón af framburði þeirra hjá lögreglu og framburði ákærða fyrir dómi var talið sannað að ákærði hefði slegið brotaþola og ýtt henni upp við vegg þannig að höfuð hennar skylli í vegginn. Að virtu heildarmati á atvikum var háttsemin heimfærð til 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og ákærða gert að sæta skilorðsbundinni fangelsisvist í 30 daga. Þá var ákærði látinn bera þrjá fjórðu hluta sakarkostnaðar.
Fallist var á kröfu um viðurkenningu á skaðabótaábyrgð vinnuveitanda og rétt starfsmanns til greiðslu bóta úr frjálsri ábyrgðartryggingu sama vinnuveitandans hjá tryggingarfélagi vegna líkamstjóns sem starfsmaðurinn varð fyrir í vinnuslysi.
Sigrún Hrefna Sveinsdóttir (
Sveinn Jónatansson lögmaður)
gegn
Guðmundur Gísli Geirdal (Sjálfur)
Í málinu deildu aðilar um lok leigutíma og kröfur leigusala í tryggingarfé leigjanda vegna málunar, þrifa og skemmda á borðplötu. Kröfu stefnanda, leigusala, um ógildingu úrskurðar kærunefndar húsamála var hafnað.
Ákærði var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni en sýknaður af öðrum ákæruefnum. Hvorki 15. né 16. gr. almennra hegningarlaga voru taldar eiga við um ákærða og var honum gert að sæta fangelsi í þrjú ár.
Ákærði sakfelldur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi en hann ók bifreið sinni á gangandi vegfaranda.
Ekki var fallist á að stefnandi ætti skaðbótakröfu á hendur stefnda, vátryggingafélagi byggingarstjóra, vegna ágalla á múrverki fasteignar og skorts á lögbundnu eftirliti þar sem krafan væri fyrnd auk þess sem að ekki var talið að byggingarstjóri gæti borið ábyrgð á verkum verktakans eins og atvikum var háttað.
Fallist var á kröfu stefnenda um viðurkenningu á umferðarrétti þeirra, þ.m.t. á vélknúnum ökutækjum, um veg sem liggur um land stefnda. Litið var til þess að fasteign stefnenda hefði upphaflega verið skipt út þeirri jörð sem vegurinn liggur um og að ekki hefði verið sýnt fram á að raunhæft væri að ætlast til þess að stefnendur notuðu aðra samgönguleið til að komast til og frá landareign sinni.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Serxio Koci (
Gunnar Gíslason lögmaður)
Sakborningur, sem játaði sök, sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærði var einnig sviptur ökurétti í 27 mánuði og honum gert að sæta upptöku á fíkniefnum sem haldlögð höfðu verið við rannsókn málsins. Ákærði var látinn greiða helming sakarkostnaðar en helmingur sakarkostnaðar greiðist úr ríkissjóði. Skipaður verjandi ákærða var ávíttur vegna ummæla í greinargerð til Héraðsdóms Reykjavíkur og athugasemdir voru gerðar við vinnubrögð skipaðs verjanda og ákæruvaldsins í málinu.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur héraðssaksóknari)
gegn
Elísabetu S. Guðmundsdóttur (
Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sitt, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í 30 daga, skilorðsbundið til tveggja ára.
Héraðssaksóknari (
Karl Ingi Vilbergsson settur varahéraðssaksóknari)
gegn
Vali Sigurðssyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Sakborningur, sem játaði brot sitt, sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur til að sæta fangelsi í einn mánuð, skilorðsbundið til tveggja ára.
Fallist var á kröfu um viðurkenningu á bótaskyldu íslenska ríkisins á tjóni sem ekkja og þrír ólögráða synir hennar urðu fyrir vegna plastbarkaaðgerðar sem gerð var á eiginmanni hennar og föður drengjanna og leiddi til andláts hans.