Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1213/2026:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sigurði Geir Geirssyni

(Snorri Sturluson lögmaður)

Ákærði dæmdur í 11 mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var 13. maí 2026 og dómtekið 26. maí sama ár, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 21. apríl á hendur ákærða, Sigurði Geir Geirssyni, kt. […], […],

I.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 7. nóvember 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 100 ng/ml og kókaín 260 ng/ml) um Faxafen í Reykjavík, að húsi nr. […], þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða. Er háttsemin talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

II.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 5. janúar 2026 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist kókaín 440 ng/ml) um Norðurhellu í Hafnarfirði, við Krónuna, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

III.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 16. janúar 2026 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Hraunhellu í Hafnarfirði, að Norðurhellu nr. […], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

IV.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 18. febrúar 2026 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Krýsuvíkurveg í Hafnarfirði, við Hamborgarabúlluna á Völlunum, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

V.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 20. febrúar 2026 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Hafnarfjarðarveg í Garðabæ, við Lyngás. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

VI.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 9. mars 2026 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist kókaín 310 ng/ml) um Hraunhellu í Hafnarfirði, að Selhellu, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða. Er háttsemin talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

Fyrir dómi játaði ákærði afdráttarlaust sök samkvæmt ákæru. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá krefst verjandi þóknunar að mati dómsins. Samkvæmt sakavottorði ákærða var hann dæmdur 11. nóvember 2022 til að greiða 500.000 króna sekt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og var jafnframt sviptur ökurétti í 2 ár og 6 mánuði, frá 12. janúar 2023. Þann 12. janúar 2023 gekkst ákærði undir tvær lögreglustjórasektir, samtals 540.000 krónur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og lyfja. Í það sinn var ákærði annars vegar sviptur ökurétti í 9 mánuði frá 12. júlí 2025 og hins vegar í þrjú ár frá 12. apríl 2026. Næst var ákærði 18. apríl 2024 dæmdur í 30 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár og honum gert að greiða 420.000 króna sekt og hann sviptur ökurétti í 18 mánuði frá 12. apríl 2029. Þá gekkst ákærði 11. september 2024 undir 200.000 króna lögreglustjórasekt fyrir sviptingarakstursbrot. Ákærða var með dómi 27. júní 2025 gert að sæta 75 daga fangelsi, þar af 30 daga skilorðsbundið í tvö ár, honum gert að greiða 1.550.000 króna sekt og hann sviptur ökurétti ævilangt fyrir sviptingarakstursbrot undir áhrifum ávana- og fíkniefna, ásamt öðrum fíkniefna brotum en um hegningarauka var að ræða. Loks var ákærði 8. janúar 2026 dæmdur í 4 mánaða fangelsi en dómur ákærða var brot á skilorði og dómur hans frá 27. júní 2025 dæmdur upp. Jafnframt var ævilöng svipting ökuréttar ákærða áréttuð. Brot samkvæmt ákærulið I. og II. sem ákærði er hér sakfelldur fyrir var framið fyrir uppsögu síðasta dóms. Samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ber því nú að dæma ákærða hegningarauka er samsvari þeirri þyngingu refsingarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í sama máli. Að gættri 78. og 77. gr sömu laga þykir refsing nú hæfilega ákveðin 11 mánaða fangelsi.

Í ljósi framangreinds og með vísan til 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð. Þá ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 103.136 króna útlagður kostnaður ákæruvaldsins, þóknun Snorra Sturlusonar verjanda ákærða á rannsóknarstigi máls og hér fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir þóknun verjanda hæfilega ákveðin 176.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Sigurður Geir Geirsson, sæti fangelsi í 11 mánuði.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði 279.836 krónur í sakarkostnað, þar með talda 176.700 króna þóknun Snorra Sturlusonar verjanda síns.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 78. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.