Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1202/2026:

Ákæruvaldið

(Kristín Una Pétursdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Oleksandr Kuznietsov

(Enginn)

Dómur

Mál þetta var þingfest 13. maí 2026 og dómtekið sama dag. Málið höfðaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 17. apríl á hendur ákærða, Oleksandr Kuznietsov, kt. […], […],

I.

fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, sunnudaginn 28. apríl 2024, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Faxabraut, Reykjanesbæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

II.

Fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 3. maí 2024, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Reykjanesbraut, Sandgerði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

III.

Fyrir skjalafals, með því að hafa, sunnudaginn 29. desember 2024, framvísað í blekkingarskyni, við lögreglumenn sem höfðu stöðvað ákærða við umferðareftirlit, grunnfölsuðu […] ökuskírteni, ánafnað honum sjálfum nr. […]. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birtingu ákæru og fyrirkalls og boðaði ekki forföll. Verður málið því dæmt á grundvelli heimildarákvæðis a-liðar 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkallinu til ákærða að þannig gæti farið um meðferð málsins léti hann undir höfuð leggjast að mæta fyrir dóm. Að þessu gættu og með hliðsjón af rannsóknargögnum máls telst háttsemi ákærða sönnuð og þykir hún réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Sakarferill ákærða hefur ekki áhrif á ákvörðun refsingar í máli þessu. Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing réttilega ákveðin 30 daga fangelsi. Þá greiði ákærði 250.000 króna sekt til ríkissjóðs. Greiði ákærði ekki dæmda fésekt innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu skal koma í hennar stað 18 daga fangelsi.

Engan sakarkostnað leiddi af málinu.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, Oleksandr Kuznietsov, sæti fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði 250.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu en sæti ella 18 daga fangelsi.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 155. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 161. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.