Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-3862/2025:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Birgi Erni Jónssyni

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Ákærði dæmdur í 20 mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot. Þá var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku á fjaðrahníf.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var 3. mars 2026 og dómtekið 21. maí sama ár, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 5. desember 2025 á hendur ákærða, Birgi Erni Jónssyni, kt. […], […],

I.

fyrir umferðar- og vopnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 3. ágúst 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist alprazólam 4,6 ng/ml, amfetamín 71 ng/ml, díazepam 150 ng/ml, ketamín 52 ng/ml, kókaín 230 ng/ml, nordíazepam 200 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 1,7 ng/ ml) um Skipholt í Reykjavík, við hús nr. 51, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn og haft í vörslum sínum fjaðrahníf, sem lögreglumenn fundu við leit í bifreiðinni […]. Er háttsemin talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 og b. lið 2. mgr. 30. gr., sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

II.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudaginn 8. september 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Fífuhvammsveg í Kópavogi, við Fitjalind. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

III.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 19. október 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Sæbraut í Reykjavík, við Kleppsveg. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019. Krafist er upptöku á fjaðrahníf, sem lögregla lagði hald á, með vísan til 1. mgr. 37. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

Við fyrirtöku máls þessa 5. maí 2026 var mál nr. S-990/2026 sem höfðað var á hendur ákærða með ákæru útgefinni 31. mars 2026, einnig tekið fyrir og sameinað þessu máli, sbr. heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

IV.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 6. desember 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist kókaín 22 ng/ml og tetrahýdrókannabínól 32 ng/ml) um Lómasali í Kópavogi, við hús nr. 2-4, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærða. Er háttsemin talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

V.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 17. janúar 2026 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist tetrahýdrókannabínól 6,9 ng/ml) um Hæðasmára í Kópavogi, við Orkuna, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

Fyrir dómi játaði ákærði afdráttarlaust sök samkvæmt ákæru. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá krefst verjandi ákærða þóknunar samkvæmt tímaskýrslu.

Með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum máls, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefið að sök í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða.

Samkvæmt sakavottorði ákærða var hann dæmdur 13. febrúar 2012 í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, og til greiðslu 300.000 króna sektar, auk þess sem hann var sviptur ökurétti í tvö ár og sex mánuði fyrir líkamsáras, fíkniefnalagabrot og akstur undir ávana- og fíkniefna og áfengis. Þann 12. febrúar 2013 var ákærði dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot. Með dómnum var áðurnefndur skilorðsdómur frá 13. febrúar 2012 dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu lagi. Ákærði var dæmdur 9. febrúar 2015 í 45 daga fangelsi, auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð, fyrir sviptingarakstursbrot og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með dómi 7. nóvember 2016 var ákærði dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir vopnalaga- og fíkniefnalagabrot, akstur sviptur ökurétti og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotum sínum rauf ákærði skilorð eins árs reynslulausnar sem ákærði hlaut 16. maí 2015 á eftirstöðvum 65 daga refsingar vegna áðurnefndra dóma frá 12. febrúar 2013 og 9. febrúar 2015. Þá var ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð. Þann 1. febrúar 2017 var ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð fyrir akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Brotin framdi ákærði fyrir uppkvaðningu dóms frá 7. nóvember 2016 og honum því gerður hegningarauki. Þann 31. október 20. júlí 2019 gekkst ákærði undir 214.000 króna lögreglustjórasekt fyrir fíkniefnalagabrot. Síðar sama ár eða 31. október 2019 gekkst ákærði undir 316.000 króna lögreglustjórasekt fyrir fíkniefnalagabrot. Með dómi 6. nóvember 2011 var ákærða gerð 4 mánaða fangelsisrefsing fyrir akstur sviptur ökuréttindum og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þann 18. desember 2019 var ákærði dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir sviptingarakstursbrot, akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, fíkniefnalaga- og þjófnaðarbrot. Jafnframt var ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð. Var dómurinn hegningarauki við dóm ákærða frá 6. nóvember 2019. Næst var ákærði með dómi 20. maí 2020 Vesterålen tingrett í Noregi dæmdur í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár ásamt sekt að fjárhæð 10.000 norskra króna, fyrir nytjastuldur, hótanir með hníf, akstur án gildra ökuréttinda og akstur undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna. Loks var ákærði 24. júní 2020 dæmdur 4 mánaða fangelsi fyrir sviptingarakstursbrot.

Af sakavottorði er ljóst að ákærði tók út refsingu með afplánun fyrir annars vegar dóm frá 7. nóvember 2016 og lauk afplánun 4. júlí 2018 og hins vegar með dómi frá 1. febrúar 2017 og lauk afplánun 18. ágúst 2018. Þar að auki tók ákærði út refsingu samkvæmt dómum frá 6. nóvember 2019, 18. desember 2019 og 24. júní 2020 með samfélagsþjónustu og lauk henni 4. júlí 2024. Verður refsing í máli þessu ákveðin með hliðsjón af téðum refsilokum, sbr. 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að gættri þeirri lagagrein er ákærði nú í sjötta sinn sakfelldur fyrir sviptingarakstursbrot og í sjötta sinn sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með hliðsjón af þeim sakarferli er refsing réttilega ákveðin 20 mánaða fangelsi. Í ljósi framangreinds og með vísan til 99. og 101. gr. laga nr. 77/2019, er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð.

Samkvæmt greindri niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru. Þá ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst 788.798 króna útlagður kostnaður ákæruvaldsins, þóknun Guðmundar St. Ragnarssonar verjanda ákærða hér fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda og viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir þóknun verjanda hæfilega ákveðin 282.720 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærði, Birgir Örn Jónsson, sæti fangelsi í 20 mánuði.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði sæti upptöku á fjaðrahníf.

Ákærði greiði 1.071.518 krónur í sakarkostnað, þar með talda 282.720 króna þóknun Guðmundar St. Ragnarssonar verjanda síns.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 3. mgr. 71. gr.
Lög nr. 16/1998 Vopnalög 2. mgr. 30. gr.1. mgr. 36. gr.1. mgr. 37. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 169. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.