Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1007/2026:

Ákæruvaldið

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Óðni Erni Sigurðssyni

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Ákærði dæmdur í 7 mánaða fangelsi fyrir sviptingarakstursbrot.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var 5. maí 2026 og dómtekið 12. maí sama ár, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 8. apríl 2026 á hendur ákærða, Óðni Erni Sigurðssyni, kt. […], […],

I.

fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 25. október 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Bæjarháls í Reykjavík, við Selásbraut. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

II.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 10. desember 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Stekkjarbakka í Reykjavík, við Hamrastekk. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

III.

Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 31. desember 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Höfðabakka í Reykjavík, við Bíldshöfða. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

IV.

Fyrir dómi játaði ákærði afdráttarlaust sök samkvæmt ákæru. Var því farið með málið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga. Af hálfu ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá krefst verjandi þóknunar að mati dómsins.

Með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum máls, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefið að sök í ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða.

Samkvæmt sakavottorði ákærða var hann dæmdur 12. mars 2020 til greiðslu sektar að fjárhæð 775.000 krónur fyrir fíkniefnalagabrot og sviptingarakstursbrot. Næst var ákærði 9. nóvember 2023 dæmdur í 165 daga fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot. Jafnframt var ákærði sviptur ökurétti ævilangt. Þann 27. maí 2024 var ákærði dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir sviptingarakstursbrot. Loks var ákærði 13. nóvember 2025 dæmdur í 90 daga fangelsi fyrir sviptingarakstursbrot.

Brot ákærða samkvæmt ákærulið I. var framið fyrir uppsögu síðasta dóms. Samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ber því nú að dæma ákærða hegningarauka er samsvari þeirri þyngingu refsingarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í sama máli. Að gættri 78. og 77. gr. sömu laga þykir refsing nú hæfilega ákveðin 7 mánaða fangelsi.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, en til hans telst þóknun skipaðs verjanda hér fyrir dómi. Með hliðsjón af eðli og umfangi máls og að teknu tilliti til viðmiðunarreglna Dómstólasýslunnar nr. 1/2026 þykir þóknun verjanda hæfilega ákveðin 176.700 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Óðinn Örn Sigurðsson, sæti fangelsi í 7 mánuði.

Ákærði greiði í sakarkostnað 176.000 króna þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 77. gr.78. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 235. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.