Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-955/2026:

Ákæruvaldið

(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Pham Anh Quoc Viet

(Enginn)

Ákærða dæmd í 30 daga fangelsi fyrir skjalafals.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið í dag, höfðaði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru 23. mars 2026 á hendur ákærðu, Pham Anh Quoc Viet, fæddri […] 2005 ríkisborgara […], með ókunnan dvalarstað, fyrir skjalafals með því að hafa, föstudaginn 12. desember 2025, framvísað í blekkingarskyni, sem sínu vegabréfi, við lögreglu, sem var í hefðbundu löggæslueftirliti með flugi […] í Flugstöð Leifs Eríkssonar, grunnfölsuðu vegabréfi frá […] nr. […] á nafni A, fd. […], með gildistíma 05.09.2017-05.09.2027. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þess krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærða mætti ekki við þingfestingu máls þrátt fyrir lögmæta birtingu ákæru og fyrirkalls í Lögbirtingablaði 29. apríl 2026 og boðaði ekki forföll. Verður málið því dæmt sem útivistarmál á grundvelli heimildarákvæðis a. liðar 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda var þess getið í fyrirkalli til ákærðu að þannig gæti farið um meðferð málsins léti hún undir höfuð leggjast að mæta fyrir dóm.

Samkvæmt síðast greindu og með hliðsjón af framburði ákærðu hjá lögreglu og öðrum rannsóknargögnum máls telst háttsemi ákærðu samkvæmt ákæru sönnuð í skilningi 108. og 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 og þykir hún réttilega heimfærð til refsiákvæða samkvæmt 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærða hefur ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi svo kunnugt sé. Að því gættu og með hliðsjón af ríkjandi dómaframkvæmd þykir refsing hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóminn.

Dómsorð:

Ákærða, Pham Anh Quoc Viet, sæti fangelsi í 30 daga.

Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 155. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 108. gr.1. mgr. 109. gr.1. mgr. 161. gr.