Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 4. júní 2026.
Mál nr. S-1199/2026:
Ákæruvaldið
(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sasa Drca
(Enginn)
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 11 mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot.
Dómur
Mál þetta var þingfest 13. maí 2026 og dómtekið sama dag. Málið höfðaði Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 18. apríl 2026 á hendur ákærða Sasa Drca, kt. […], […],
I.
fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 9. september 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Lágmúla í Reykjavík, við Snóker- og Poolstofuna, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
II.
Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 17. september 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Fjarðarhraun í Hafnarfirði, við Dalshraun. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
III.
Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 28. september 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Kringlumýrarbraut í Reykjavík, við Háaleitisbraut. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
IV.
Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 12. október 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Háaleitisbraut í Reykjavík, við Ármúla. Er háttsemin talin varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
V.
Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa sunnudaginn 23. nóvember 2025 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist tetrahýdrókannabínól 5,4 ng/ml) um Reykjanesbraut í Garðabæ, við Ikea, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin vara við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
VI.
Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 17. febrúar 2026 ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóðsýni mældist tetrahýdrókannabínól 3,2 ng/ml) um Suðurgötu í Hafnarfirði, við hús nr. […], þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Er háttsemin talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019. Þá er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.
VII.
Samkvæmt sakavottorði ákærða gekkst hann 5. janúar 2017 undir 140.000 króna lögreglustjórasekt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Jafnframt var hann sviptur ökurétti í 12 mánuði frá 5. janúar 2017. Þann 19. september 2019 gekkst ákærði undir 260.000 króna lögreglustjórasekt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og jafnframt sviptur ökurétti í 24 mánuði frá 19. september 2019. Ákærði gekkst 29. janúar 2020 undir 310.000 króna sekt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna sviptur ökurétti. Þá var hann sviptur ökurétti í 1 ár frá 19. september 2021. Var sú sekt hegningarauki við fyrri tvær lögreglustjórasektir. Þann 11. desember 2020 var ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir akstur undir ávana- og fíkniefna og sviptingarakstursbrot. Jafnframt var ákærði sviptur ökurétti ævilangt. Þann 28. júní 2023 hlaut ákærði 6 mánaða fangelsisdóm sem var skilorðsbundin í tvö ár, fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Ákærði gekkst 13. október 2021 undir 200.000 króna lögreglustjórasekt fyrir sviptingarakstursbrot en var sú sekt hegningarauki við dóm ákærða frá 11. desember 2020. Næst var ákærði dæmdur 9. apríl 2025 í 60 daga fangelsi fyrir fíkniefnalagabrot og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Jafnframt var hann sviptur ökurétti ævilangt. Loks var ákærði með dómi 9. október 2025 dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna sviptur ökurétti. Þá var dómur ákærða frá 28. júní 2023 dæmdur upp.
Brot samkvæmt ákærulið I, II og III sem ákærði er hér sakfelldur fyrir var framið fyrir uppsögu síðasta dóms. Samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ber því nú að dæma ákærða hegningarauka er samsvari þeirri þyngingu refsingarinnar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í sama máli. Að gættri 78. og 77. gr. sömu laga þykir refsing nú hæfilega ákveðin 11 mánaða fangelsi.
Í ljósi framangreinds og með vísan til 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, er ævilöng ökuréttarsvipting ákærða áréttuð. Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, alls 233.365 krónur. Um er að ræða kostnað vegna blóðsýnatöku, rannsókna Háskóla Íslands og matsgerða.
Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærði, Sasa Drca, sæti fangelsi í 11 mánuði.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.
Ákærði greiði 233.365 krónur í sakarkostnað.
Sóley Ólöf Rún Guðmarsdóttir