Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

57 dómar fundust

Lykilorð: Brot gegn blygðunarsemi

Landsréttur birt 28. maí 2026 kl. 16:17

515/2025

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Grétar Dór Sigurðsson lögmaður) (Sigmundur Guðmundsson réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 199. gr. a og 233. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa birt færslu á Facebook-síðu sinni með hótun um að birta myndefni af A, barnsmóður sinni og fyrrum sambýliskonu, á nánar tilgreindri vefsíðu og með því að hafa þann sama dag birt fimm kynferðislegar myndir af henni sem hafi sýnt nekt hennar, ásamt texta, á samskiptaforritinu Facebook. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki léki vafi á að allar myndirnar væru þess eðlis að falla undir 1. mgr. 199. gr. a. almennra hegningarlaga. Þá var einnig staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að í birtingu fyrstu myndarinnar, ásamt texta, hafi falist hótun um að birta nektarmynd af brotaþola á nánar tilgreindri vefsíðu og um heimfærslu brotsins til 2. mgr., sbr. 1. mgr. 199. gr. a almennra hegningarlaga. Með vísan til þessa en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu ákærða og heimfærslu brotanna. Var refsing X ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða brotaþola 800.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2025

S-3353/2025

Héraðssaksóknari, Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari, Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn Pétri Ómari Péturssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði, sem játaði sök, sakfelldur fyrir hótanir og brot gegn blygðunarsemi, líkamsárás, umferðarlagabrot og fíkniefnalagabrot, og dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem haldlögð fíkniefni voru gerð upptæk.

Hæstiréttur birt 10. desember 2025

15/2025

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Páll Kristjánsson lögmaður) (Stefán Ólafsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærð fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum nr. 80/2008 með því að hafa brotið gegn blygðunarsemi A, B og C með því að hafa viðhaft við þá kynferðislegt, vanvirðandi og ósiðlegt tal auk þess að hafa áreitt A kynferðislega með því að fara með hendurnar inn fyrir buxna- og nærbuxnastreng hans. Héraðsdómur sakfelldi X fyrir brot gegn 199. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga en sýknaði hana af broti gegn blygðunarsemi samkvæmt 209. gr. almennra hegningarlaga og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga. Með hinum áfrýjaða dómi var X fundin sek um öll ákæruatriði. Hæstiréttur staðfesti dóm Landsréttar um að ákæra málsins hefði fullnægt kröfum um skýrleika samkvæmt c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með vísan til forsendna hans og að viðbættum frekari röksemdum. Kröfu ákærðu um frávísun málsins frá héraðsdómi var því hafnað. Þá var kröfu X um ómerkingu dóms Landsréttar einnig hafnað með vísan til þess að af honum yrði ráðið að niðurstaða um sakfellingu væri byggð á heildstæðu mati á sönnunargögnum málsins auk þess sem ekkert væri komið fram um að annmarkar hefðu verið á aðferð við mat á sönnunargildi framburðar vitna sem fallnir væru til þess að hafa haft áhrif á niðurstöðu málsins. Um efnishlið málsins rakti Hæstiréttur að niðurstaða Landsréttar hefði verið reist á heildstæðu mati á öllum sönnunargögnum og þá einkum sönnunargildi munnlegs framburðar brotaþola og vitna fyrir dómi. Það mat yrði ekki endurmetið af Hæstarétt, sbr. 2. mgr. 225. gr. laga nr. 88/2008. Samkvæmt því en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um sakfellingu ákærðu en henni gert að sæta fangelsi í 30 daga skilorðsbundið.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2025

S-6864/2024

[…]. Í endanlegri mynd er ákæran svohljóðandi „fyrir eftirtalin brot I (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn ákærða X fyrir eftirfarandi brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana-, fíkniefni 1. Fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, með því að hafa föstudaginn 4. júní 2021 (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), sótt (Snorri Sturluson lögmaður) og þann (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Í málinu voru ákærðu X og Y sakfelldir fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart A. Ákærði Y var einnig sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, brot gegn blygðunarsemi, kynferðislega áreitni og ólögmæta nauðung gagnvart A á meðan á frelsissviptingunni stóð. X var auk þess sakfelldur fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. Loks var Z sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, og kynferðislega áreitni á meðan á framangreindri frelsissviptingu stóð.

Hæstiréttur birt 29. janúar 2025

26/2024

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærð fyrir blygðunarsemisbrot með því að hafa aflað sér og dreift til tveggja nafngreindra kvenna nektarmynd af þáverandi eiginmanni sínum, A, sem sýndi getnaðarlim hans, ásamt tveimur nektarmyndum af B, sem sýndu brjóst hennar, án samþykkis þeirra. Í ákæru voru brot X talin varða við 199. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. áður 209. gr. sömu laga. X byggði málsvarnir sínar á því að verknaðurinn hefði verið framinn i mikilli reiði og ekki hefði verið um lostugt athæfi af kynferðislegum toga að ræða. Hæstiréttur taldi hins vegar að komin væri fram nægileg sönnun fyrir því að háttsemi ákærðu hafi í umrætt sinn verið lostug í skilningi 209. gr. almennra hegningarlaga. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu og ákvörðun refsingar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. janúar 2025

S-3300/2024

Ákæruvaldið (Þorbjörg Sveinsdóttir saksóknari) gegn Sigurjóni Ólafssyni (Bjarni Hauksson lögmaður) (Ólöf Heiða Guðmundsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Endurtekin kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum

Landsréttur birt 17. desember 2024

277/2024

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Páll Kristjánsson lögmaður) (Stefán Þórarinn Ólafsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Með dómi héraðsdóms var X sakfelld fyrir brot gegn 199. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 með því að hafa áreitt A kynferðislega en sýknuð af því að hafa brotið gegn blygðunarsemi A, B og C samkvæmt 209. gr. sömu laga og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga. Í dómi Landsréttar var talið sannað með trúverðugum framburði A, B og C, sem fengi stuðning í framburði vitna, að X hefði brotið gegn blygðunarsemi þeirra allra með því að hafa viðhaft við þá kynferðislegt, vanvirðandi og ósiðlegt tal eins og lýst var í ákæru. Þá var staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að X hefði áreitt brotaþolann A kynferðislega. Refsing Xvar ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var henni gert að greiða A 200.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. desember 2023

S-5791/2023

Héraðssaksóknari (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Herði Éljagrími Sigurjónssyni (Kjartan Ragnars lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn blygðunarsemi, kynferðislega áreitni gegn barni og brot gegn barnaverndarlögum og dæmdur í þriggja mánaða fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 17. nóvember 2023

521/2022

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður) (Þorbjörg Inga Jónsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur í héraði fyrir að hafa sent fyrrverandi eiginmanni A smáskilaboð með kynferðislegum myndum af A og smáskilaboð með myndbandi sem sýndi A í kynferðislegum athöfnum samkvæmt ákærulið I.2 í ákæru, dagsettri 28. október 2021, sem og að hafa sent A tölvupóst með fjórum ljósmyndum í viðhengi en tvær myndanna sýndu A veita X munnmök, sbr. ákærulið I.3 í sömu ákæru. Héraðsdómur heimfærði háttsemi X undir 199. gr. a, sbr. áður 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með dómi Landsréttar var sakfelling X staðfest. Var háttsemi X samkvæmt ákærulið I.2 heimfærð undir 199. gr. a og 233. gr. b almennra hegningarlaga, en háttsemi hans samkvæmt ákærulið I.3 var heimfærð undir 209. gr. og 233. gr. b almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar X var litið til þess að brot hans fólu í sér grófa röskun á friðhelgi einkalífs A og væri til þess fallið að valda þeim sem fyrir því yrði andlegu tjóni eða hugarangri. Þá væri ávallt hætta á því að myndefni af þessum toga færi í stjórnlausa dreifingu á internetinu. Einnig var tekið tillit til þess að tafir höfðu orðið á meðferð málsins. Að öllu þessu virtu og með vísan til 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. og 78. gr., sbr. 1. mgr. 77. gr., almennra hegningarlaga, var refsing X ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X gert að greiða A 500.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 8. febrúar 2023

S-360/2022

Héraðssaksóknari (Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Gareese Joshua Gray (Leifur Runólfsson lögmaður) (Sunna Axelsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Talið var sannað með munnlegum framburðum fyrir dómi að ákærði hefði gerst sekur um kynferðisbrot, sem heimfært var til 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (brot gegn blygðunarsemi) í samræmi við dómaframkvæmd, en ekki 194. gr. laganna, líkt og ákæruvaldið krafðist. Brotaþola dæmdar miskabætur að fjárhæð 1.100.000 krónur og ákærða gert að greiða allan sakarkostnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júlí 2022

S-1149/2022

Héraðssaksóknari (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Herði Éljagrími Sigurjónssyni (Birkir Már Árnason lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðis- og umferðarlagabrot og dæmdur í þriggja ára fangelsi, til sviptingar ökuréttar og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2022

S-2267/2022

Héraðssaksóknari (Silja Rán Arnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn blygðunarsemi, brot í nánu sambandi og stórfelldar ærumeiðingar og dæmdur í 12 mánaða fangelsi en fullnustu níu mánaða af dæmdri refsingu var frestað skilorðsbundið. Var ákærði einnig dæmdur til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2022

S-3887/2021

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt og sýknað af ákæru um sendingu kynferðislegs myndefnis. Einnig sýknað af ákæru vegna meints brots í nánu sambandi, meintrar nauðgunar og meintra brota gegn nálgunarbanni. Miskabætur dæmdur en einkaréttarkröfum að öðru leyti vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. mars 2022

S-483/2022

Ákæruvaldið (Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt fyrir kynferðisbrot og barnaverndarlagabrot.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. febrúar 2022

S-377/2021

Héraðssaksóknari (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Bárði Óla Kristjánssyni (Jóhannes Albert Kristbjörnsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði var fundinn sekur um tilraun til brots gegn blygðunarsemi og barnarverndarlögum, með því að hafa í samskiptum sínum við einstakling, er kvaðst vera 14 ára stúlka en reyndist vera fullorðinn karlmaður, hafa viðhaft kynferðislegt orðbragð sem og sent mynd af getnaðarlim sínum. Var ákærða gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið.

Hæstiréttur birt 16. desember 2021

31/2021

Ákæruvaldið (Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Arnar Þór Stefánsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir nauðgun og brot gegn blygðunarsemi. Háttsemi hans samkvæmt 1. ákærulið var talin varða við 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, í 2. ákærulið var háttsemi talin varða við 1. mgr. 194. gr. sömu laga og í 3. ákærulið við 2. mgr. sömu lagagreinar en áður 209. gr. laganna. Í dómi Hæstaréttar var ekki fallist á með X að rannsókn málsins hefði verið svo ábótavant að vísa bæri því frá dómi af þeirri ástæðu. Þá var talið að talsvert skorti á að 2. liður ákærunnar væri svo greinargóður og skýr að X hefði væri fært að taka afstöðu til sakargiftanna og halda uppi vörnum gegn þeim. Væri því óhjákvæmilegt að vísa þeim ákærulið frá héraðsdómi. Um efnishlið málsins komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms að staðfesta bæri niðurstöðu hans um sakfellingu X af 1. lið ákæru. Þá var lagt til grundvallar að sú háttsemi X sem lýst var í 3. ákærulið svo og inngangsorðum ákærunnar teldist sönnuð og var háttsemi hans heimfærð undir 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga en að virtu því refsihámarki sem var í 209. gr. laganna á þeim tíma sem brotin voru framin, sbr. 1. mgr. 2. gr. laganna. Um ákvörðun refsingar kom fram að brot X hefðu verið fjölmörg og staðið yfir í langan tíma. Þau hefðu verið úthugsuð, vandlega skipulögð og framin af skeytingarleysi gagnvart brotaþola. Var refsing hans ákveðin þrjú ár og sex mánuðir. Þá var honum gert að greiða brotaþola 2.000.000 króna í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. desember 2021

S-3223/2021

Ákæruvaldið (Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jónas Þór Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt fyrir kynferðisbrot og hótun. Sýknað af broti í opinberu starfi.

Landsréttur birt 12. nóvember 2021

650/2020

Ákæruvaldið gegn Jóni Þór Þorgeirssyni (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

J var sakfelldur fyrir kynferðisbrot, sbr. 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa berað og handleikið kynfæri sín fyrir framan glugga sólbaðsstofu í viðurvist starfsmanns stofunnar og þannig sýnt af sér ósiðlegt og lostugt athæfi sem var til þess fallið að særa blygðunarsemi hennar. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot ákærða beindust að ungri stúlku og háttsemi hans fékk mjög á hana. Refsing J var ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár.

Landsréttur birt 12. nóvember 2021

617/2020

Ákæruvaldið gegn Eyþóri Arnari Ingasyni (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

E var sakfelldur fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa, án vitneskju A, tekið upp myndband og myndir af sér og A að stunda kynmök. Við ákvörðun refsingar var litið til 1. og 2. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og að E hefði hreinan sakarferil. Var refsing E ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu hennar var frestað í tvö ár. Þá var E dæmdur til að greiða A 300.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 14. október 2021

S-1826/2021

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn A (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt og sýknað að hluta fyrir kynferðisbrot. Kynferðisleg áreitni.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. júní 2021

S-7197/2020

Ákæruvaldið (Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir kynferðislega áreitni gagnvart níu ára gömlu barni og vegna umferðarlagabrota. Í málinu var jafnframt sýknað af ákæru um kynferðislega áreitni gagnvart tveimur öðrum börnum á unglingsaldri og broti gegn barnaverndarlögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. febrúar 2021

S-3225/2020

Héraðssaksóknari (Dröfn Kærnested saksóknarfulltrúi) gegn X (Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot með blygðunarsemi með því að hafa birt kynferðislega mynd af stúlku á tiltekinni vefsíðu án samþykkis hennar. Var hann dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 29. janúar 2021

131/2019

Ákæruvaldið gegn X (Lúðvík Bergvinsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 209. gr. og 233. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa tekið í heimildarleysi ljósmynd af A, fyrrum sambýliskonu sinni, hálfnakinni ásamt nöktum karlmanni þar sem þau lágu sofandi í rúmi, og í kjölfarið sent myndina þremur mönnum. Í niðurstöðu Landsréttar var það meðal annars rakið að háttsemi X hefði falið í sér lostugt athæfi samkvæmt framangreindri 209. gr. og hefði verið til þess fallin að særa blygðunarsemi A. Þá þótti sýnt að svo hefði orðið raunin. Refsing X var ákveðin með hliðsjón af 1. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr., 60. gr. og 77. gr. laga nr. 19/1940. Einnig var litið til þess að dráttur hefði orðið á málinu sem X yrði ekki kennt um. Þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X dæmdur til að greiða A 400.000 krónur í miskabætur.

Landsréttur birt 18. desember 2020

218/2019

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður) (Jóhannes Stefán Ólafsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var gefið að sök að hafa sært blygðunarsemi og móðgað og smánað fyrrverandi kærustu sína A í þrígang með því að hafa skrifað tiltekin ummæli við mynd af henni á Facebook, sett andlitsmynd af henni á tiltekna vefsíðu ásamt tilteknum ummælum og sett á sömu vefsíðu þrjár myndir af A fáklæddri ásamt tilteknum ummælum. X var sakfelldur fyrir öll þrjú brotin í héraði. Með dómi Landsréttar var X sakfelldur fyrir brot samkvæmt fyrsta og þriðja lið ákæru og þóttu þau réttilega heimfærð til 209. og 233. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. X var hins vegar sýknaður af broti samkvæmt öðrum lið ákæru þar sem ekki þótti sannað gegn neitun hans að hann hefði sett andlitsmynd af A á fyrrgreinda vefsíðu. Refsing X var ákveðin með hliðsjón af 1., 5., 6. og 7. tölul. 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr. og 77. og 78. gr. laga nr. 19/1940. Þótti auka á saknæmi verknaðarins að A var nákomin X. Einnig var litið til þess að dráttur hefði orðið á málinu sem X yrði ekki kennt um. Þótti refsing X hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu þriggja mánaða refsingarinnar var frestað skilorðsbundið. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að X skyldi greiða A 1.600.000 krónur í miskabætur.

Landsréttur birt 26. júní 2020

554/2019

Ákæruvaldið gegn X (Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir að hafa brotið gegn A, fyrrverandi sambýliskonu sinni, með því að hafa birt færslu með kynferðislegum myndum af henni á tilgreindri Facebook-síðu ásamt persónulegum upplýsingum um hana og þannig sært blygðunarsemi hennar, móðgað hana og smánað. Þá var hann sakfelldur fyrir að senda henni sex símaskilaboð sem innihéldu blygðunarsemis-, hótana- og ærumeiðingabrot. Var X með háttsemi sinni talinn hafa brotið gegn 209., 218. gr. b og 233. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að um væri að ræða alvarleg brot X gegn A sem var honum nákomin. Með hliðsjón af 1., 6. og 7. tölulið 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga var refsing hans ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu þriggja mánaða refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár vegna dráttar á meðferð málsins.

Landsréttur birt 18. júní 2020

535/2019

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Saga Ýrr Jónsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa sent þrjár myndir, sem sýndu nakinn líkama fyrrverandi kærustu hans, til vinkonu hennar gegnum samskiptavefinn Facebook. Var litið svo á að háttsemi X hefði verið lostugt athæfi í skilningi 209. gr. almennra hegningarlaga og að háttsemi hans hefði verið til þess fallin að særa blygðunarsemi A. Var refsing X ákveðin fangelsi í 60 daga en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X gert að greiða A 250.000 krónur í miskabætur.

Landsréttur birt 29. maí 2020

22/2019

Ákæruvaldið gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var gefið að sök að hafa sært blygðunarsemi A með því að hafa kíkt í gegnum skráargat á hurð að baðherbergi þar sem hún var inni. Var háttsemin talin varða við 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í dómi Landsréttar kom fram að verknaðarlýsing í ákæru bæri ekki með sér að um lostugt athæfi hefði verið að ræða sem væri til þess fallið að særa blygðunarsemi A. Ekki yrði heldur ráðið af verknaðarlýsingu í ákæru með hvaða hætti X hefði sýnt af sér vanvirðandi háttsemi í umrætt sinn. Lýsti skilgreining háttseminnar því ekki broti samkvæmt framangreindum lagaákvæðum. Var ákæran því ekki í samræmi við ákvæði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 og var ákæruliðnum, án kröfu, vísað frá héraðsdómi. Þegar af þeirri ástæðu var kröfu A um miskabætur einnig vísað frá héraðsdómi, sbr. 2. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008.

Landsréttur birt 7. apríl 2020

428/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður) og Y (Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X og Y voru sakfelld fyrir brot gegn A, dóttur Y og stjúpdóttur X. Var háttsemi þeirra talin varða við 1. mgr. 194. gr., 1. og 2. mgr. 202. gr., 1. mgr. 210. gr. a og 1., sbr. 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk þess sem Y var sakfelld fyrir áfengislagabrot. Þá var Y jafnframt sakfelld fyrir blygðunarsemisbrot gagnvart B, sbr. 209. gr. laga nr. 19/1940. X var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a laga nr. 19/1940 með því að hafa haft í vörslum sínum myndskeið og teikni- og ljósmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt, auk þess sem hann var sakfelldur fyrir brot gegn vopnalögum. Í málinu var X einnig ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. b með því að hafa beitt börnin B og C ofbeldi. Með dómi héraðsdóms hafði X verið sakfelldur fyrir þá háttsemi en háttsemin heimfærð undir 98. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í dómi Landsréttar kom fram að gegn neitun ákærða og að teknu tilliti til vitnisburða hefðu ekki verið færðar sönnur fyrir því að háttsemi hans hefði verið af þeim toga sem í fyrrgreindu ákvæði fælist og var X því sýknaður af þeim sakargiftum. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til 1., 2., 3. og 7. töluliðar 1. mgr., 2. og 3. mgr. 70. gr. og a-liðar 195. gr. laga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í sex ár og refsing Y ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá var ákærðu gert að greiða A óskipt 2.500.000 krónur í miskabætur, auk þess sem Y var gert að greiða B 400.000 krónur í miskabætur.

Landsréttur birt 13. desember 2019

342/2019

Ákæruvaldið (Einar Tryggvason saksóknari) gegn X (Valgeir Kristinsson lögmaður, Steinbergur Finnbogason lögmaður, 4. prófmál) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir að hafa brotið gegn A, fyrrverandi eiginkonu sinni, með því að hafa sent einstaklingum tengdum A mynd af henni í kynlífsathöfn og skilaboð með hótun um frekari dreifingu myndefnis og þannig sært blygðunarsemi hennar, smánað hana, móðgað og vakið hjá henni ótta um velferð hennar. Varðaði háttsemin við 209., 233. og 233. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing X var ákveðin sem hegningarauki við eldri dóm, sbr. 78. gr. þeirra laga. Hann játaði brot sín hreinskilnislega en um 19 mánuðir liðu frá því að rannsókn málsins lauk þar til ákæra var gefin út. Að því virtu og með hliðsjón af 1., 6. og 7. tölulið 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr. sömu laga var refsing hans ákvörðuð fangelsi í fjóra mánuði. Þá var X dæmdur til að greiða A miskabætur.

Landsréttur birt 13. desember 2019

812/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Arnar Þór Stefánsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 209. og 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa skrifað nánar tilgreind skilaboð til A á samskiptamiðlinum Snapchat. Var refsing X ákveðin með hliðsjón af 1. tölulið 1. mgr. 70. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga og hún ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Landsréttur birt 20. september 2019

782/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) (Eiríkur Gunnsteinsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir tvö kynferðisbrot gegn A, þáverandi eiginkonu sinni, sbr. 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, og blygðunarsemis- og barnaverndarlagabrot gagnvart syni sínum, sbr. 209. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Auk þess var X sakfelldur fyrir brot gegn 232. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa margoft gerst sekur um brot gegn nálgunarbanni. Loks var X sakfelldur fyrir brot gegn 5. mgr. 47. gr., sbr. 74. gr. laga um fjarskipti nr. 81/2003 með því að hafa komið fyrir eftirfararbúnaði og GPS-staðsetningartæki í bifreið A. Við ákvörðun refsingar var m.a. litið til 3. mgr. 70. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Á hinn bóginn var horft til þess að meðferð málsins hafði dregist úr hófi. Var refsing X ákveðin fangelsi í þrjú ár og honum gert að greiða miskabætur að fjárhæð 2.000.000 króna.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 18. september 2019

S-66/2019

Héraðssaksóknari Kolbrún Benediktsdóttir (Kolbrún Benediktsdóttir héraðssaksóknari) gegn X Kristján Óskar Ásvaldsson
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt fyrir kynferðisbrot.

Landsréttur birt 25. janúar 2019

40/2018

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður) (Þórdís Bjarnadóttir réttargæslumaður) (Þyrí Halla Steingrímsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa farið upp að glugga á heimili A og horft á hana þar sem hún stóð fáklædd inni á baðherbergi. Þá var hann sakfelldur fyrir brot gegn 231., 2. mgr. 202. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa farið í heimildarleysi inn á heimili B og áreitt hana kynferðislega með tilteknum hætti og tekið flösku af áfengi áður en hann yfirgaf húsið. Með dómi héraðsdóms var eldri skilorðsdómur tekinn upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir öll brotin samkvæmt 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt því og með hliðsjón af 1., 2. og 7. tölulið 1. mgr. 70. gr. sömu laga var refsing X ákveðin fangelsi í 13 mánuði. Þá var honum gert að greiða A og B miskabætur. Landsréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu X, greiðslu miskabóta og sakarkostnað. X lést eftir að málinu var áfrýjað til Landsréttar. Þótti því ekki efni til að kveða á um refsingu hans.

Landsréttur birt 22. júní 2018

79/2018

Ákæruvaldið gegn X (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa, án vitundar A, tekið upp myndband af A og sér þar sem þeir stunduðu kynmök, sent A mynd sem sýndi þá nakta í kynmökum og sent D umrædd gögn í pósti ásamt öðrum gögnum sem var ætlað að sýna fram á að X og A hefðu átt í kynferðissambandi. X var einnig sakfelldur fyrir brot gegn 209. og 2. mgr. 210. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa sent tveimur nafngreindum mönnum myndir af A og sér að stunda kynmök. Þá var X sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga með því að hóta A að birta fyrrgreindar myndir á netinu og senda A tölvuskeyti með hótunum um ofbeldi gegn honum og hans nánustu. Var X talinn hafa ítrekað móðgað og smánað A með þeirri háttsemi sem hann var sakfelldur fyrir svo að í því hafi falist stórfelldar ærumeiðingar í skilningi 233. gr. b almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var litið til ákvæða 1., 5., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Að því virtu og með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga var refsing X ákveðin fangelsi í 15 mánuði. Þá var X gert að greiða A miskabætur.

Hleð fleiri dómum…