Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 8. febrúar 2023.
Mál nr. S-360/2022:
Héraðssaksóknari
(Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gareese Joshua Gray
(Leifur Runólfsson lögmaður)
(Sunna Axelsdóttir réttargæslumaður)
Lykilorð
Brot gegn blygðunarsemi. Heimfærsla. Kynferðisbrot. Miskabætur. Munnlegur framburður. Rannsókn. Rannsókn sakamáls.. Sönnun. Sönnunarfærsla. Sönnunarmat.
Útdráttur
Talið var sannað með munnlegum framburðum fyrir dómi að ákærði hefði gerst sekur um kynferðisbrot, sem heimfært var til 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 (brot gegn blygðunarsemi) í samræmi við dómaframkvæmd, en ekki 194. gr. laganna, líkt og ákæruvaldið krafðist. Brotaþola dæmdar miskabætur að fjárhæð 1.100.000 krónur og ákærða gert að greiða allan sakarkostnað.
Dómur
- Mál þetta, sem dómtekið var 26. janúar sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, dagsettri 15. september 2022, á hendur Gareese Joshua Gray, […], […], […], „fyrir nauðgun, með því að hafa í júlí 2021 á heimili A, kennitala […], að […], […], með ofbeldi og ólögmætri nauðung og án samþykkis, haft önnur kynferðismök en samræði við A, en ákærði settist klofvega ofan á A, hélt henni niðri og nuddaði getnaðarlim sínum við andlit hennar þar til hann fékk sáðlát yfir andlitið.
Telst þetta varða við 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkrafa:
Af hálfu B, kt. […], fyrir hönd ólögráða dóttur hennar, A, kt. […], er þess krafist að ákærða verði gert að greiða henni skaðabætur að fjárhæð 2.000.000 kr. ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 1. júlí 2021 til þess dags er mánuður er liðinn frá því að bótakrafa þessi var kynnt ákærða, en með dráttarvöxtum frá þeim degi skv. 9. gr., sbr. 6. gr., sömu laga til greiðsludags. Þá er þess krafist að ákærða verði gert að greiða málflutningsþókun [svo] réttargæslumanns samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi að viðbættum virðisaukaskatti.“
Afstaða og kröfur ákærða
- Ákærði neitar sök, krefst sýknu og að einkaréttarkröfu verði vísað frá dómi. Til vara krefst ákærði að brotið verði heimfært til 209. gr. almennra hegningarlaga og honum verði gerð lægsta refsing sem lög leyfa. Þá krefst ákærði hæfilegrar þóknunar til handa verjanda sínum, sem greidd verði úr ríkissjóði.
Málsatvik og sönnunarfærsla
- Rannsókn máls þessa hófst á grundvelli beiðni Barnaverndar […] 27. september 2021, eftir að brotaþoli greindi félagsráðgjafa Barnaverndar frá því í viðtali 14. september 2021 að hún hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi á heimili sínu í júlí 2021. Áður hafði hún greint frá sama atviki á [….] […] nokkrum dögum fyrr, þar sem hún hafði verið lögð inn vegna […]. Kvað brotaþoli atvik máls þessa hafa átt þátt í því að hún lagðist inn á geðdeild, en einnig væru aðrar orsakir þar að baki.
- Samkvæmt gögnum málsins bauð brotaþoli tveimur piltum heim til sín, ákærða í máli þessu og C, en ákærða hafði hún komist í samband við á samfélagsmiðlum sama dag, en C nokkrum dögum áður. Hún bauð þeim inn í herbergi til að hlusta á tónlist og spjalla. Fljótlega hófust atlot á milli brotaþola og ákærða, sem voru með vilja beggja. Um 15 - 20 mínútum eftir að piltarnir komu kvaðst C ætla að skreppa í burtu en að hann myndi koma aftur. Eftir voru ákærði og brotaþoli ein í herberginu og héldu atlotin áfram, en þeim ber ekki saman um hvernig atburðarásin þróaðist.
- Ákærði kveður brotaþola hafa haft frumkvæðið, en hann hafi snert hana og kysst á móti. Á endanum hafi hann spurt hana hvort hún vildi sjá lim hans og hún samþykkt það. Hann hafi sýnt henni liminn í örstutta stund. Á þessum tíma hafi hann legið á bakinu á rúminu og brotaþoli klofvega ofan honum. Hann hafi ekkert gert án hennar samþykkis og hvorki fróað sér né fengið sáðlát. Að þessu loknu hafi hann togað buxur sínar aftur upp og þau hætt atlotunum og brotaþoli farið úr herberginu á snyrtinguna. Sjálfur hafi ákærði farið að hlusta á tónlist.
- Brotaþoli kvað ákærða hins vegar hafa orðið ágengari í snertingum og tali eftir að C fór út og byrjað að reyna að snerta brjóst hennar og draga hana úr buxunum. Hann hafi tekið út lim sinn og reynt að fá hana til að fróa sér. Hún hafi ítrekað sagt honum að hún vildi þetta ekki strax og ýtt honum frá sér. Hún hafi viljað að þau kynntust fyrst. Að lokum hafi hann sagt henni að leggjast niður, sem hún hafi gert, og að hann ætlaði að fróa sér yfir andlit hennar. Hún hafi ítrekað sagt að hún vildi þetta ekki, en hann hafi gert það engu að síður og haft sáðlát yfir andlit hennar og hár. Hún hafi þá farið inn á bað að þrífa sig. Þar hafi hún sent C skilaboð og beðið hann að koma og fara með ákærða úr íbúðinni, sem hann hafi gert. Systir brotaþola, D, hafi komið inn á bað og séð hana þar hágrátandi að þrífa sæði úr hári sínu. Hún hafi sagt henni hvað hafi gerst og þær síðan haldið saman til eldri systur brotaþola, E, en ekki sagt móður sinni frá atvikinu þar sem brotaþoli hafi ekki viljað það.
- Samkvæmt gögnum málsins var móðir brotaþola heima að horfa á sjónvarpið er umrætt atvik átti sér stað. Einnig voru heima systir brotaþola, D, ásamt kærasta sínum, og yngri bróðir brotaþola. Framburðum hjá lögreglu bar ekki saman um hvort stjúpfaðir brotaþola hafi einnig verið heima.
- Á meðal gagna málsins er myndskeið af samskiptum á samfélagsmiðlinum Instagram, sem brotaþoli segist hafa tekið upp af samskiptum sínum við ákærða samdægurs eftir að meint atvik átti sér stað, en gögn þessi afhenti brotaþoli lögreglu nokkru eftir að hún gaf þar skýrslu. Einnig eru á meðal gagna málsins myndir af samskiptum á milli brotaþola og C á samskiptamiðlinum Snapchat, sem brotaþoli afhenti lögreglu. Í þessum gögnum er að finna eftirfarandi skilaboð, sem brotaþoli segir stafa frá ákærða í gegnum Instagram: „Just know I really sorry ... Sorry … Didn´t mean for it to happen like that ... Am human feeling took over i shit happen that normally not me ... A i really liked you and this shit happen please know am sorry .... am sorry we all human we all make mistakes”. Ákærði kannast ekki við að hafa sent umrædd skilaboð.
Skýrslur fyrir dómi
- Auk ákærða gáfu skýrslur fyrir dómi, A, brotaþoli, C, kærasti brotaþola, D, systir brotaþola, E, systir brotaþola, B, móðir brotaþola, F, félagsráðgjafi hjá barnavernd, og lögreglumaður nr. G. Báru framburðir fyrir dómi þess merki að 18 mánuðir eru liðnir frá atvikum málsins. Verður nú gerð grein fyrir þeim að því marki sem þýðingu hefur.
- Ákærði kvaðst hafa verið í vinnunni og á Instagram, þar sem hann hafi kynnst brotaþola umræddan dag. Hann hafi farið að spjalla við hana en ekkert kynferðislegt verið rætt. Hún hafi boðið honum að koma í heimsókn og koma með C, sem hún sagðist þekkja og sá að var líka vinur ákærða. Þeir hafi farið á bíl ákærða heim til brotaþola, mamma hennar hafi verið í sófanum að horfa á sjónvarpið, en þeir farið inn í herbergi til brotaþola. Þau hafi farið að spjalla, hún hafi sagst vera fædd í […], þar sem pabbi hennar byggi. Hún hafi verið að tala um pabba sinn og sagt að hann hafi gleymt afmælinu hennar, sem verið hafi nokkrum dögum áður. Einnig hafi hún sýnt þeim […]. C hafi verið að hlusta á rapptónlist. Brotaþoli hafi skroppið aðeins úr herberginu og á meðan hafi C sagt ákærða að hann þyrfti að skreppa frá til að hitta vinkonu sína og beðið ákærða að lána sér bílinn. Þetta hafi verið um 20 mínútum eftir að þeir komu til brotaþola.
- Brotaþoli hafi komið aftur inn í herbergið áður en C fór. Þau hafi hlustað á tónlist og brotaþoli hafi sagt að hún hafi séð ákærða akandi áður og að henni þætti hann myndarlegur. Þau hafi síðan talað um skólann, en allt í einu hafi hún hallað sér að ákærða og farið að kyssa hann, C hafi þá ekki enn verið farinn. Þau þrjú hafi öll setið á rúmi brotaþola. Brotaþoli hafi setið á öðrum endanum við sjónvarpið, ákærði í miðjunni og C á hinum endanum. Ákærði hafi setið með bakið að veggnum. Þau hafi svo haldið áfram að kyssast og spjalla. Brotaþoli hafi verið að snerta líkama hans. Hann hafi snert háls hennar og andlit á meðan þau kysstust. Ákærði hafi síðan spurt hvort hún vildi sjá lim hans og hún hafi viljað það. Hún hafi ekki snert liminn, heldur horft á hann og bara flissað. Þetta hafi verið stutta stund.
- Um 10 mínútum síðar hafi C komið aftur og skilaði sér bíllyklunum, en þá hafi brotaþoli verið farin úr herberginu og inn á baðherbergi. C hafi farið að hitta stelpu en væri nú tilbúinn að fara og þeir hafi farið saman úr íbúð brotaþola. Í heildina hafi þeir verið um 30-40 mínútur heima hjá brotaþola. Þeir hafi stöðvað bílinn skammt frá og þá hafi sagt að A hafi sagt sér að ákærði hafi fengið sáðlát á andlit hennar. Ákærði hafi sagst vilja fara til baka að ræða hvers vegna hún segði þetta, en C ekki viljað það. Ákærði hafi verið að spyrja hví þau segðu þetta og hvaða skilaboð þau væru að senda sín á milli. Ákærði hafi loks spurt C hvort hann ætti að skutla honum heim, en hann hafi sagst ætla að ganga, en ákærði séð hann ganga í áttina að heimili brotaþola. Ákærði hafi síðan farið heim.
- Ákærði kvaðst ekki hafa kvatt brotaþola þegar þeir fóru úr íbúðinni. Ákærði hafi viljað kveðja hana, en C sagt að það væri allt í lagi að fara án þess að kveðja. Ákærði kvaðst hafa þekkt C frá því hann kom til Íslands í nóvember 2019, en hann hafi kynnst C betur í skóla 2020. Hann hafi verið einn besti vinur hans hér á landi. Þeir séu ekki vinir í dag. C hafi orðið kærasti brotaþola stuttu eftir þetta atvik og hafi hætt að heilsa ákærða eftir þetta. Ákærði hafi ekki hitt brotaþola eftir þetta, en séð hana með C.
- Aðspurður kvaðst ákærði hafa átt samskipti við brotaþola í gegnum Instagram fyrr um daginn, en ekki eftir að hann fór af heimili brotaþola. Hann hafi ekki sent skilaboð, með afsökunarbeiðni, sem brotaþoli segi hann hafa sent eftir að hann fór af heimili hennar. C hafi hins vegar verið að nota síma ákærða er þeir voru í bílnum eftir að hafa yfirgefið íbúðina og hann hafi verið að senda brotaþola skilaboð. Taldi ákærði líklegt að C hafi ritað þessi skilaboð og sent þau. C hafi beðið ákærða um að sjá hvað þeim brotaþola hafi farið á milli fyrr um daginn og því fengið síma hans. Þetta hafi verið á bílastæðinu sem þeir hafi stöðvað á rétt fyrir utan heimili brotaþola. Þegar ákærði hafi fengið símann aftur hafi C verið búinn að eyða öllum skilaboðum á milli ákærða og brotaþola. Ákærði hafi ekki beðið C um neinar skýringar á því né talið ástæðu til að nefna þetta við lögregluna er hann gaf þar skýrslu.
- Aðspurður kvað ákærði ekkert hafa gerst í herberginu sem hefði átt að gefa brotaþola ástæðu til ótta. Hann hafi engar skýringar á sökum þeim sem á hann eru bornar í þessu máli, aðrar en þær að brotaþoli og C hafi ætlað að koma á hann sök.
- Ákærði kvað móður brotaþola hafa komið í gættina í eitt sinn. Ákærði kvaðst ekki hafa séð systur brotaþola.
- Vitnið A, brotaþoli, segir ákærða hafa sent sér skilaboð á Instagram og hafi beðið um að fá að hitta hana. Hún hafi ekki þekkt hann neitt áður. Þau hafi aðeins talað saman á Instagram. Þau hafi bara ætlað að hittast og „tjilla“. Hún hafi hitt C áður og hann hafi verið góður og því hafi henni þótt í lagi að þeir kæmu í heimsókn til hennar. Þau hafi öll verið á rúminu hennar sem hafi verið frekar stórt, C verið á horninu með heyrnartólin á höfðinu, og ákærði verið við hlið hennar, hann hafi fikrað sig nær og lagst ofan á læri hennar, hún hafi sett höndina á hann og þau bara verið að „tjilla“. Þau hafi hlustað á tónlist og hún verið að tala við ákærða, hann hafi sest upp og farið að snerta læri hennar og viljað snerta brjóst hennar, en hún sagt að sig langaði bara að kynnast og ekki gera neitt svona strax. Hann hafi viljað fara undir peysuna hennar. C hafi tekið eftir að eitthvað var að gerast og þá hafi hann farið og sagst ætla út í búð en að hann myndi koma aftur. Það hafi verið um korteri eftir að þeir komu. Ágengni ákærða hafi aukist eftir það, en hún alltaf færst undan og sagst vilja kynnast betur fyrst. Á endanum hafi hún gefið eftir því hún vissi ekki hvað hún ætti að gera. Að beiðni ákærða hafi hún sest klofvega ofan á hann, þar sem hann lá á bakinu í rúminu. Þá hafi hann reynt aftur að snerta brjóst hennar, en hún sagt aftur að hún vilji ekki gera þetta heldur kynnast fyrst. Hann hafi þá spurt hvort hún vilji „fara niður á hann“ og þrábeðið hana um það, en hún hafi færst undan. Þá hafi hann beðið hana um að kyssa lim sinn og hún hafi gert það “því ég vildi bara að þetta væri búið.” Hann hafi þá reynt að fara ofan í buxurnar hennar, en hún stoppað hann, tekið höndina í burtu og sagst vilja kynnast fyrst. Hún hafi verið mjög ákveðin og á endanum hafi hann gefist upp og hún farið ofan af honum og lagst á bakið.
- Ákærði hafi áfram suðað í henni, en gefist á endanum upp á því og sest klofvega á hnjánum yfir efri hluta líkama hennar og tekið typpið aftur út og byrjað að fróa sér. Hún hafi sagst vilja kynnast betur, en hann ekki hlustað og verið klofvega á hnjánum yfir henni og runkað sér, en hún hafi verið með augun lokuð og reynt að ýta honum frá sér nokkrum sinnum með því að þrýsta á maga hans og segja að hún vildi þetta ekki. Hún hafi verið með hendurnar lausar og ákærði hafi ekki haldið henni eða reynt að þvinga hana. Typpi hans hafi ekki snert hana, en verið mjög nálægt andliti hennar. Á endanum hafi hann „fengið það yfir hana“. Hann hafi þá farið af henni og hún farið inn á bað til að þrífa sig.
- Áður hafi hún sent C skilaboð um að hjálpa sér, en hann hafi ekki séð þau strax. Þegar hún var inni á baði hafi hann verið búinn að sjá þau og svarað henni þá. Hún hafi beðið hann að koma. Hún hafi verið hágrátandi inni á baði, systir hennar hafi komið og hún hjálpað henni að þrífa sig. C hafi komið og tekið ákærða út úr íbúðinni. Þá hafi ákærði verið búinn að vera kannski 30-40 mínútur heima hjá henni.
- Móðir brotaþola hafi bankað á baðherbergishurðina og sagt henni að þeir væru að fara. Hún hafi ekki sagt móður sinni hvað hafi gerst. Herbergi brotaþola blasi við stofunni. Mamma hennar hafi verið í stofunni á meðan allt gerðist. Henni hafi ekki dottið í hug að kalla á hana. Hún hafi verið hrædd og skammast sín. Nánar aðspurð kvaðst hún hafi “frosið” þegar ákærði hafi reynt að fara með hendurnar inn á brjóst hennar. Á endanum hafi hún leyft honum það, þar sem hana “langaði að hann myndi bara láta mig í friði”. Hann hafi tekið typpið á sér út á meðan hún hafi enn verið ofan á honum og beðið hana að “fara niður á sig”. Hún hafi á endanum kysst typpið. Ákærði hafi ekki reynt að þvinga hana, en hafi reynt að setja höndina í buxur hennar, en hún hafi haldið höndinni frá.
- Brotaþoli bar um að henni hafi liðið illa á þessum tíma og byrjað að líða verr og verr eftir þetta og farið að skaða sig sjálfa. Á endanum hafi kærasti stóru systur hennar sagt móður sinni frá atvikinu, þar sem hann hafi talið það ástæðu þess að hún lagðist inn á geðdeild. Kvað brotaþoli mikið annað hafa verið í gangi á þessum tíma, en þetta hafi verið stór hluti af vanlíðan hennar.
- Aðspurð um Instagram skilaboð, sem brotaþoli kveður hafa verið á milli sín og ákærða, og hún afhenti lögreglu afrit af, kvað hún þau hafa verið send samdægurs eftir að hún var komin til E, eldri systur sinnar. Það hafi verið í beinu framhaldi af því að ákærði og C fóru frá heimili brotaþola.
- Snapchat skilaboðin “Save me” hafi hún sent C þegar hún sat klofvega ofan á ákærða og hann var að leita á hana. Hún hafi skoðað símann sinn og séð að C hafi sent henni skilaboðin „Heyo can you open the main door“ nokkrum mínútum áður um að hann væri kominn aftur og beðið hana að opna fyrir sér útidyrnar. Aðspurð hví hún hafi þá ekki notað tækifærið og sagt ákærða að C væri kominn aftur og að hún ætlaði að fara og opna fyrir honum kvaðst hún ekki skilja það sjálf í dag. Kvaðst hún halda að það hafi verið skilaboð þarna á milli sem hafi eyðst, en í þeim hafi C sagt henni að hann væri farinn aftur.
- Skilaboðin “Im too scared to come out” hafi hún sent C seinna þegar hún hafi verið komin inn á baðherbergi því hún hafi verið of hrædd til að fara þaðan út á meðan ákærði var enn í herberginu. Áður hafi hún einnig talað við C í síma eftir að hún var komin inn á baðherbergið og beðið hann um að koma og sækja ákærða svo hún þyrfti ekki að sjá hann og segja honum að fara.
- Nánar aðspurð um tímasetningar atburða dagsins, kvaðst brotaþoli hafa verið búin að vinna um 12 á hádegi þennan dag. Upphaflega hafi ákærði ætlað að koma einn heim til hennar, en hún hafi einnig verið að tala við C á Instagram og spurt hvort hann þekkti ákærða, því þeir væru báðir með erlend nöfn, og komið hafi í ljós að þeir þekktust. Þau hafi þá ákveðið að þeir myndu báðir koma til hennar. Taldi brotaþoli þetta hafa verið í síðasta lagi um þrjú leytið. Aðspurð hvernig á því stæði að framangreind skilaboð á Snapchat og Instagram hafi verið tímasett um kl. 19 og síðar um daginn, kvað hún það geta verið, hún muni ekki vel hvenær þeir hafi komið né hve lengi þeir hafi verið hjá henni.
- Brotaþoli kvaðst hafa kynnst C nokkrum dögum fyrir atvik málsins. Í nóvember 2021 hafi þau C síðan byrjað í sambandi og séu kærustupar í dag.
- Vitnið D, kvaðst hafa verið heima með F kærasta sínum en þau svo hafi farið á rúntinn. Þau hafi verið búin að bjóða brotaþola, að koma með ásamt C og ákærða, en brotaþoli sagt þeim að koma eftir um 20 mínútur. Eftir að hafa verið á rúntinum hafi vitnið komið heim til að sækja þau. Hún hafi farið inn í herbergi brotaþola og séð ákærða þar inni, en ekkert óeðlilegt hafi verið að sjá við hann. Hann hafi sagt brotaþola hafa farið inn á baðherbergi. Þar inni hafi vitnið séð systur sína hágrátandi að þvo sér. Hún hafi verið búin að þurrka úr andlitinu, en verið að þrífa úr hárinu á sér sæði, sem vitnið hafi séð. Hún hafi sagt vitninu hvað hafi gerst. Vitnið hafi viljað fara fram og henda ákærða út og segja mömmu þeirra frá þessu, en brotaþoli hafi bannað henni það. Hún hafi skilið hvers vegna brotaþoli vildi ekki blanda mömmu þeirra inn í þetta, enginn unglingur vilji það. Brotaþoli hafi verið búin að biðja C að koma og fara með ákærða út. F hafi síðan sagt henni að hann hafi séð þá báða koma skellihlæjandi út úr blokkinni.
- Taldi vitnið að þetta hafi verið um hádegi eða aðeins seinna, en kvaðst í raun ekki muna hvenær dagsins þetta var. Vitnið staðfesti skýrslu sína fyrir lögreglu.
- Aðspurð um hvers vegna hún hafi skýrt lögreglu svo frá að brotaþoli og C hafi verið meira en bara vinir, kvaðst vitnið telja sig hafa séð C vera að koma frá brotaþola einu sinni áður og hún hafi talið að eitthvað væri á milli þeirra meira en vinskapur.
- Aðspurð kvaðst vitnið ekki vita hvers vegna brotaþoli hafi beðið hana að bíða í tuttugu mínútur áður en hún myndi koma með á rúntinn. Þau hafi öll verið heima þá. Kvaðst hún hafa talið að brotaþoli ætlaði að gera sig til. Kvaðst hún hafa séð C akandi á leið í búðina þegar hún var að koma til baka með F til að sækja þau á rúntinn.
- Vitnið C, kvaðst vera í sambandi með brotaþola, það hafi byrjað 2020 og verið með hléum en þau séu nú í sambandi. Nánar aðspurður kvað hann samband þeirra hafa hafist 2021. Hann kvaðst hafa þekkt ákærða í gegnum móður sína, en mæður þeirra séu vinkonur. Vinslit hafi orðið með honum og ákærða eftir þennan dag.
- Um atvik umræddan dag kvaðst vitnið hafa farið með ákærða heim til brotaþola. Þeir hafi bara ætlað að eignast vini. Hann muni ekki hvenær dagsins þetta var, það hafi verið sumar og alltaf bjart. Hann muni ekki hvort þeir fóru á bíl vitnisins eða ákærða. Þau hafi öll þrjú farið saman í herbergi brotaþola og setið þar á rúminu, ákærði nær brotaþola, en vitnið lengra frá. Brotaþoli hafi sýnt þeim […]. Hann hafi séð ákærða leggjast á brotaþola og þá hafi vitninu liðið illa. Hann hafi verið með heyrnartólin á sér og í símanum. Hann hafi ekki viljað hlusta á hvað þau voru að tala um saman. Hann hafi ekki viljað fylgjast með þeim. Honum hafi þótt brotaþoli vera sæt, en fundist hún vera að velja ákærða og því liðið óþægilega og ákveðið að fara. Hann myndi ekki hvort hann sagði hvert hann væri að fara, en hafi sagst ætla að koma aftur. Það hafi enginn beðið hann um að fara.
- Vitnið hafi síðan fengið skilaboðin „Save me“ frá brotaþola og flýtt sér til baka. Hann hafi viljað vita hvað hafi gerst og ef eitthvað hafi gerst hvort hægt væri að laga það. Hann hafi verið á […], rétt hjá heimili brotaþola og farið strax heim til hennar. Hann hafi talið að hún gæti verið í hættu, þar sem hún hafa bara verið að kynnast ákærða og ákærði hafi verið að sýna henni áhuga. Ekki hafi meira en 25 mínútur liðið frá því hann fór og þangað til hann kom aftur. Er hann hafi komið til baka hafi hann séð D á ganginum. Hann hafi farið inn að tala við ákærða til að átta sig á hvað hefði gerst. Hann hafi ákveðið að fara með ákærða út úr íbúðinni því brotaþoli hafi verið ósátt við hann. Þeir hafi síðan farið út og ekið að bílastæði hjá […], skammt frá heimili brotaþola, og þar hafi vitnið sagt ákærða að hann þyrfti að biðjast afsökunar. Hún hafi ekki svarað síma ákærða og því hafi ákærði notað síma vitnisins til að senda henni skilaboð. Vitnið kvaðst ekki muna hvort ákærði skutlaði honum heim eða hvort hann gekk.
- Vitnið mundi ekki hver hafi hleypt honum inn í íbúðina. Vitnið kvaðst ekki kannast við að hafa komið að heimili brotaþola, beðið þar fyrir utan í stutta stund og farið aftur en snúið svo við eftir að brotaþoli hafi sent honum skilaboðin “Save me”.
- Vitnið kvaðst hafa viljað ræða málið við ákærða og fundist best fyrir ákærða að hann bæði brotaþola afsökunar. Þeir hafi rætt saman á bílastæði við […], eftir að þeir fóru frá brotaþola. Ákærði hafi sagt vitninu að eitthvað hafi gerst í herberginu, sem hafi ekki verið gott. Brotaþoli hafi seinna sagt honum hvað hafi gerst.
- Vitnið staðfesti að Snapchat skilaboðin “Save me”, sem send voru kl. 19:12 og “Im too scared to come out”, sem send voru kl. 19:36, séu skilaboð á milli hans og brotaþola sem farið hafi á milli þeirra í umrætt skipti. Skilaboðin “Its gareese” “Am sorry I iust really liked you Just caome we can take things slow Sorry dont be scared”, sem send voru kl. 19:38 hafi ákærði sent brotaþola úr síma vitnisins.
- Aðspurður um þá frásögn ákærða, að vitnið hafi sent skilaboð úr síma hans, kvaðst vitnið hafa fengið síma ákærða lánaðan til að sjá hvaða skilaboð hann hafi verið að senda brotaþola. Hann hafi verið að hjálpa ákærða að biðjast afsökunar. Hann hafi viljað að hann gerði það og þeir verið að hjálpast við að ákveða hvernig ætti að gera það. Vitnið hafi þekkt brotaþola betur og því talið sig vita frekar hvað ætti að skrifa henni. Vitnið vildi ekki útiloka að hann gæti hafa skrifað eitthvað af skilaboðum til brotaþola úr síma ákærða.
- Vitnið kvaðst ekki muna hvort brotaþoli hafi talað við sig í síma er hún var inni á baðherberginu, en kvað það geta verið. Hún hafi hins vegar ekki sagt honum hvað gerðist fyrr en síðar, né heldur beðið hann að fara með ákærða út. Vitnið hafi ákveðið það sjálfur eftir að ákærði hafi sagt honum hvað gerðist.
- Vitnið kannaðist við að hafa sagt lögreglu að honum hafi þótt ákærði ákafur gagnvart brotaþola, en kvaðst ekki hafa átt við að hún vildi það ekki, heldur að honum þætti ákærði framhleypinn. Vitnið hafi haft á tilfinningunni að brotaþola líkaði það sem var að gerast á milli hennar og ákærða, áður en vitnið fór úr herberginu. Fyrir hans leyti hafi þetta hins vegar verið að gerast of hratt miðað við hve lítið þau þekktust.
- Aðspurður kvaðst vitnið ekki muna hvort þau brotaþoli höfðu hist áður en þetta var. Hann hafi kynnst henni 2 - 3 dögum áður. Er vitnið kom á ný fyrir dóminn, kvaðst hann hafa kysst brotaþola þegar hún hafi komið heim til hans, um miðnæturleytið, tveimur dögum fyrir atvik máls þessa. Taldi vitnið að brotaþoli hafi ekki gist hjá honum. Það hafi ekki verið neitt samband á milli þeirra. Skömmu eftir að vitnið gaf skýrslu í annað sinn, óskaði hann eftir að leiðrétta fyrri framburð sinn og kom því fyrir dóminn í þriðja sinn. Kvaðst hann þá ekki hafa kysst brotaþola er hún heimsótti hann, tveimur dögum fyrir atvik málsins. Það hafi ekki verið fyrr en seinna, en gæti hafa verið áður en hann heimsótti hana með ákærða í umrætt sinn. Aðspurður upplýsti vitnið að hann hafi rætt við brotaþola áður en hann gaf skýrslu þriðja sinni, en kvað þau ekki hafa rætt skýrslugjöf hans.
- Aðspurður kvaðst vitnið ekki muna hvort hann fékk bíl ákærða lánaðan er hann skrapp í burtu umræddan dag eða hvort hann fór gangandi frá heimili brotaþola. Þá mundi hann heldur ekki hvort hann fór akandi eða gangandi að heimili brotaþola frá […], en hann kvaðst hafa hraðað sér til baka.
- Vitnið kannaðist við að þeir ákærði hafi verið hlæjandi er þeir fóru út úr íbúðinni, en þeir hafi ekki hlegið að því sem hafi gerst, heldur meira að „Gareese fucked up“ og að þeir væru báðir svartir menn, þetta hafi verið kaldhæðni.
- Vitnið A, móðir brotaþola kvaðst hafa verið að horfa á sjónvarpið þegar brotaþoli hafi komið með tvo vini inn og farið inn í herbergi. Hún vissi ekki þá hvað þeir hétu. Nokkru seinna, kannski 30 – 40 mínútum, hafi C farið, en komið svo aftur stuttu seinna. Þá hafi A verið inni á baðherbergi. Vitnið hafi hleypt honum inn í seinna skiptið. Taldi hún að C hafi ekki einu sinni komið inn þá, heldur hafi ákærði komið úr herberginu og farið beint út. Þeir hafi verið að flýta sér. Vitninu hafi þótt þetta skrýtið og farið og bankað á baðherbergisdyrnar og spurt hvort allt væri í lagi. D hafi sagt „mamma nennirðu að láta okkur í friði“.
- Vitnið kvaðst hafa skutlað brotaþola nokkrum sinnum til C áður og hafi talið að eitthvað væri á milli þeirra „þau hafi verið að dúllast saman.“ Brotaþoli hafi verið nýkomin úr öðru sambandi og nýlega farið að hitta C. Vitnið hafi þó ekki vitað nákvæmlega hvernig því var háttað. Vitnið hafi svo heyrt af atvikum frá E dóttur sinni eftir að brotaþoli tók lyf og fór á sjúkrahúsið. Vitnið hafi tekið eftir vanlíðan hjá brotaþola fyrir það. Hún hafi lokað sig af. En vitnið hafi ekki verið viss, þar sem líðan unglinga sé breytileg.
- Vitnið G, félagsráðgjafi hjá barnavernd, kveðst hafa haft aðkomu að fjölskyldu brotaþola síðast liðin fjögur ár fyrir atvik málsins. Eftir atvikið hafi henni verið tilkynnt af [….] að brotaþoli væri þar eftir að hafa gert […]. Hún hafi látið systur sína vita og hún farið með hana á […]. Þetta hafi verið í september 2021. Hún hafi sagt henni hvað hafi gerst, C hafi ætlað út í búð, þá hafi ákærði orðið ágengari og á endanum fróað sér yfir andlit hennar. Hún hafi farið fram á bað og hringt í C og beðið hann að koma og bjarga sér. Vitnið kvaðst meta það svo að brotaþoli hafi fengið áfall við þetta og flosnað upp úr námi. Hún hafi ekki verið með tilhneigingu til […] áður svo vitnið viti til. Það hafi hins vegar verið erfiðleikar með ástundun náms áður. Fjölskylduaðstæður hafi verið erfiðar.
- Vitnið E, segir brotaþola hafa hringt umræddan dag og spurt hvort hún mætti koma heim til hennar. Brotaþoli hafi sagt sér að ákærði hafi tekið út typpið og fengið sáðlát yfir andlit hennar. C hafi farið í búðina og þetta gerst á meðan. Hún hafi svo farið í sturtu og þrifið sig. Hún hafi síðan komið til vitnisins og verið í uppnámi. Þetta hafi verið um kvöldmatarleytið minni vitnið. Hún hafi búið í blokkinni við hliðina á brotaþola. Hún hafi síðan einhverjum vikum seinna tekið lyf og sagst hafa ætlað að […} og þetta væri stór ástæða fyrir því. Vitnið hafi farið með henni á […]. Brotaþoli hafi verið með […] áður en þetta gerðist, en þarna hafi hún orðið alvarlegri
- Aðspurð kvað vitnið brotaþola hafa verið að senda ákærða skilaboð þegar hún var heima hjá vitninu.
- Lögreglumaður nr. G staðfesti lögregluskýrslu sína um rannsókn á farsíma brotaþola. Vitnið kvað brotaþola hafa sent sér skjáskot af skilaboðum sem er að finna í málsgögnum. Lögreglan hafi ekki tekið skjáskotin sjálf. Hið sama eigi við um „screen record“ upptöku af skilaboðum á Instagram, sem brotaþoli segi hafa verið á milli hennar og ákærða. Brotaþoli hafi tekið þessi skjáskot og myndskeið af öðrum síma, sem hún hafi átt áður. Hún hafi afhent lögreglu þessi gögn, en ekki símann sjálfan, þar sem hún hafi verið hætt að nota þann síma sem hún notaði er atvik málsins gerðust. Lögreglan hafi hvorki rannsakað eldri síma brotaþola, né heldur síma ákærða og vitnisins C til samanburðar og staðfestingar á því að skilaboðin hafi raunverulega verið send þar á milli. Forsendur og niðurstaða
Sönnun og heimfærsla
- Í máli þessu liggja ekki fyrir önnur sönnunargögn um háttsemi þá sem ákærða er gefin að sök, en munnlegir framburðir og afrit af skilaboðum á samfélagsmiðlum, sem brotaþoli segir hafa farið á milli hennar og ákærða eftir að meint brot hafi átt sér stað en ákærði kannast ekki við.
- Hvað varðar myndir og myndskeið af skilaboðum á Instagram, þar sem ákærði virðist biðja brotaþola afsökunar á háttsemi sinni, er fyrst til þess að líta að fyrir dómi upplýsti lögreglukona sem annaðist rannsókn þessara gagna, að lögreglan hafi í raun ekki afritað gögn úr síma brotaþola, eins og málsgögn gáfu til kynna að hafi verið gert, heldur hafi brotaþoli sjálf afhent lögreglu þessi gögn og sagst hafa tekið myndir af samskiptum sínum við ákærða til að sýna systur sinni. Lögreglan hafi ekki rannsakað síma brotaþola til að sannreyna uppruna gagnanna, þar sem brotaþoli hafi þá verið hætt að nota símann. Í upptöku af skýrslutöku lögreglu af brotaþola kemur fram að umræddur sími hafi verið með brotinn skjá. Lögreglan nefnir að engu að síður geti verið unnt að nálgast gögn af símanum, en það virðist hafa farist fyrir við rannsókn málsins. Í skýrslutökunni nefnir lögreglukonan ítrekað að gögn sem þessi geti verið mjög þýðingarmikil fyrir málið og leggur áherslu á að brotaþoli afhendi lögreglu símann til rannsóknar. Hins vegar lætur hún þess getið að brotaþoli þurfi ekki að afhenda símann strax, heldur geti hún gert það seinna. Að mati dómsins hefði lögreglan með réttu átt að taka símann til rannsóknar þegar á þeirri stundu til að tryggja að ekki yrði unnt að eiga við gögnin eða útbúa gögn sem bæru með sér að vera samskipti á nefndum samfélagsmiðlum, en með einföldum hætti er unnt að verða sér úti um forrit fyrir síma, þar sem unnt er að líkja með nákvæmum hætti eftir samskiptagögnum sem þessum. Jafnframt lét lögreglan undir höfuð leggjast að rannsaka síma ákærða og vitnisins C til samanburðar og staðfestingar á því að skilaboðin hafi raunverulega farið þar á milli. Þá freistaði lögregla þess heldur ekki að rannsaka Instagram reikning brotaþola eða ákærða í sama tilgangi. Loks er hvorki að finna dagsetningu né tímasetningu á skilaboðunum.
- Í öðru lagi liggur fyrir framburður vitnisins C um að hann hafi hugsanlega ritað einhver umræddra skilaboða úr síma ákærða, þar sem hann hafi vitað betur en ákærði hvernig rétt væri að skrifa brotaþola. Samræmist þetta framburði ákærða sjálfs um að C hafi fengið síma hans lánaðan í bílnum eftir að þeir fóru frá brotaþola og sent úr honum skilaboð.
- Í þriðja lagi kemur ekkert efnislega fram í skilaboðunum, sem rakin eru að hluta til í málsgrein 8 hér að framan, sem felur í sér viðurkenningu á refsiverðum verknaði af hálfu ákærða, þó ráða megi af þeim að þar sé lýst eftirsjá vegna háttsemi gagnvart brotaþola. Í skilaboðunum segir notandinn _gareese m.a. “You didn’t really push me like that” um eftirfarandi fullyrðingu brotaþola “you know i tried to push you away and told you i wanted to chil and get to know each other better”. Meintur verknaður er ekki nefndur í skilaboðunum og efnislega verður ekki lesið meira úr þeim en að ákærði hafi verið full ágengur í ástleitni sinni gagnvart brotaþola miðað við að þau þekktust nánast ekki neitt, en í skilaboðunum vitnar sendandinn til þess að hann hefði átt að kynnast brotaþola betur fyrst og vísar til þess að C hafi einnig sagt það. Fer það saman við framburð C fyrir dómi um að honum hafi þótt ákærði of ágengur við brotaþola, að sínum dómi, þegar hann var sjálfur enn í herberginu með þeim, en bætti við að honum hafi þó ekki virst brotaþoli ósátt við atlotin þeirra á milli. Þá hefur einnig komið fram í framburði ákærða og C að það hafi fyrst og fremst verið C sem hafi talið ástæðu til að ákærði myndi biðja brotaþola afsökunar á því sem fram hafi farið.
- Með hliðsjón af öllu því sem rakið hefur verið hér að framan er það álit dómsins að slíkur vafi leiki á um áreiðanleika hinna meintu skilaboða og hvað felist í þeim efnislega að þau geti ekki haft sönnunargildi í málinu um refsiverða háttsemi ákærða.
- Sönnunarfærsla í máli þessu hvílir samkvæmt framansögðu alfarið á mati á trúverðugleika munnlegra framburða.
- Ákærði og brotaþoli eru ein til frásagnar um það sem fram fór í herbergi brotaþola. Að mestu leyti ber þeim saman um atburðarásina fram að þeirri háttsemi sem ákært er fyrir í máli þessu, þó að þau hafi bæði skýrt svo frá að hitt hafi fremur haft frumkvæðið að kossum og snertingum þeirra á milli. Þeim ber saman um að ákærði hafi haft frumkvæði að því að sýna brotaþola reistan lim sinn. Hann lýsti atvikum svo að það hafi verið örstutta stund og hann hafi dregið buxurnar aftur yfir liminn og atlotum þeirra lokið skömmu síðar og brotaþoli farið á baðherbergið. Sjálfur hafi ákærði farið að hlusta á tónlist. Ákærði var þokukenndur í frásögn sinni og gaf ekki skýringu á því hvers vegna atlotum þeirra hafi lokið skyndilega á þessu tímamarki og hann ákveðið að fara að hlusta á tónlist, en ákærði bar að brotaþoli hafi verið samþykk öllu því sem fram fór.
- Heilt yfir var framburður ákærða fyrir dómi ótrúverðugur að mati dómsins um það sem máli skiptir, hvort heldur litið er til látbragðs eða tilsvara. Frásögn ákærða var ekki bein, skýr og nákvæm, heldur óskýr og þurfti að ítreka tilteknar spurningar, svo sem um ástæður þess að hann hafi ekið að bílastæði rétt hjá heimili brotaþola og staðnæmst þar með vitninu C, þegar ákærði sagði á sama tíma að ekkert markvert hafi gerst sem þeir þyrftu að ræða. Þá var ákærði ótrúverðugur þegar hann lýsti því að C hafi fengið síma hans lánaðan og verið með hann í talsverða stund að senda skilaboð til fólks, án þess að ákærði fylgdist sérstaklega með því þar sem hann sat við hlið hans, og án þess að hann hafi kannað hvað C hafi verið að senda eða hverjum eftir að hann fékk símann aftur. Þá kvaðst hann engar athugasemdir hafa gert við C né haft af því nokkur afskipti hvað hann væri að senda eða hvers vegna hann notaði ekki sinneigin síma. Þeir hafi ekkert frekar verið að ræða samskiptin við brotaþola og ásakanir hennar á hendur ákærða, heldur en aðra hluti. Í hans huga hafi þetta ekki haft neina sérstaka þýðingu, þar sem C væri oft að grínast í honum og hann því ekki talið ástæðu til að taka mark á honum. Bar frásögn ákærða þess almennt merki að hann reyndi að gera lítið úr hlutunum og eyða spurningum sem að honum var beint. Fer framburður ákærða ekki saman við frásögn C um að honum hafi verið mikið niðri fyrir og talið mikilvægt að ákærði myndi biðja brotaþola fyrirgefningar á framkomu sinni gagnvart henni og reyna þannig að laga málin þeirra á milli, en fyrir liggur að á þessum tíma höfðu C og brotaþoli átt í samskiptum á Snapchat sem gáfu til kynna að brotaþoli væri ósátt og óttaslegin gagnvart ákærða. Að mati dómsins veikir það ekki framburð C hvað alvarleika málsins varðar, að þeir ákærði hafi verið flissandi er þeir komu út frá heimili brotaþola, en vitnið skýrði það svo að þeir hafi ekki hlegið að því sem hafi gerst, heldur meira að „Gareese fucked up“ og að þeir væru báðir svartir á hörund, þetta hafi verið kaldhæðni. Þá sýnir það alvarleika málsins og afstöðu C til atvika þess, að vinslit urðu á milli þeirra eftir þetta, en að sögn ákærða hafði C verið besti vinur hans fram að þessu.
- Í framburði sínum fyrir dómi var brotaþoli einlæg og trúverðug í frásögn, framburður hennar nákvæmur og ýkjulaus og svör við spurningum óhikuð, þó að hún væri sýnilega í miklu tilfinningalegu uppnámi við skýrslugjöfina. Þá bar framburður hennar þess ekki merki að hún leitaðist við að draga neitt undan, fegra hlut sinn eða gera hlut ákærða verri. Skýrði hún frá viðkvæmum smáatriðum, svo sem því að hún hafi kysst lim ákærða og jafnframt að fyrir þrábeiðni hans hafi hún leyft honum að snerta brjóst sín, þegar hún sat klofvega ofan á honum. Þessar upplýsingar höfðu hvergi komið fram í málinu. Jafnframt skýrði hún hreinskilnislega frá því að hún skildi það ekki sjálf í dag hvers vegna hún hafi ekki notað tækifærið og farið út úr herberginu til að opna fyrir C, þegar hún sá skilaboðin frá honum um að hann væri kominn aftur, en þá sat hún enn klofvega ofan á ákærða. Ennfremur skýrði brotaþoli hreinskilnislega frá því að ákærði hafi ekki beitt hana neinu ofbeldi, hótunum eða haldið henni, eins og tilgreint er í ákæru, heldur hafi hann verið á hnjánum yfir henni og hundsað beiðni hennar um að hætta. Þá hafi hann ekki látið lim sinn snerta andlit hennar eins og greint er í ákæru. Allt framangreint styrkir trúverðugan framburð brotaþola.
- Sú staðreynd að brotaþoli hafi ekki kallað á aðstoð móður sinnar, sem sat í stofu fyrir framan herbergi hennar og horfði á sjónvarpið, þegar ákærði fór klofvega yfir hana og hóf að fróa sér þykir ekki draga úr trúverðugleika frásagnar brotaþola. Hún skýrði frá því að þetta hafi gerst hratt og hún hafi verið að reyna að fá ákærða til að hætta. Hún hafi ekki viljað blanda móður sinni í málið. Eru skýringar brotaþola trúverðugar að mati dómsins.
- Að mati dómsins er frásögn brotaþola af því hvernig atvik þróuðust á milli þeirra ákærða eftir að hann tók út lim sinn trúverðug, en frásögn ákærða ekki. Þá sýna viðbrögð brotaþola strax eftir að hún yfirgaf herbergið og fór inn á baðherbergi, að hún var í miklu uppnámi, en til marks um það er framburður D systur hennar og skilaboðin sem hún sendi vitninu C um að hún væri of hrædd til að koma út. Var framburður D, sem kvaðst hafa komið að brotaþola hágrátandi og séð hana vera að þrífa sæði úr hárinu á sér, trúverðugur og bar þess ekki merki að hún reyndi að hagræða framburði sínum, heldur leitaðist við að fullyrða ekki meira en hún hafði upplifað. Það styður einnig framburð brotaþola að hún hélt rakleiðis með D til eldri systur sinnar E og leitaði þar stuðnings og skýrði á sama hátt frá framgöngu ákærða. Þá liggur fyrir að C og ákærði yfirgáfu íbúð brotaþola án þess að kveðja, sem einnig er til marks um að brotaþoli hafi verið ósátt við ákærða. Allt framangreint styður frásögn brotaþola um að ákærði hafi gengið yfir mörk hennar og fróað sér yfir andlit hennar gegn tilraunum hennar til að fá hann til að hætta. Ákærði hefur hins vegar enga sennilega skýringu gefið á því hvers vegna brotaþoli hefði átt að reiðast honum svona skyndilega, hafi allt verið í góðu þeirra á milli og þau einungis verið að kyssast og hlusta á tónlist eins og hann lýsti. Sú skýring ákærða að brotaþoli og Chafi viljað koma á hann sök fær enga stoð í gögnum málsins og er í beinni andstöðu við þá staðreynd að brotaþoli vildi ekki skýra frá því sem gerst hafði, fyrr en eftir að hún var lögð inn á unglingageðdeild í kjölfar lyfjainntöku um mánuði eftir atburðinn. Þá er það einnig í andstöðu við þá staðreynd að C skýrði ekki frá því að hann hafi séð ákærða gera neitt sem brotaþola hafi mislíkað.
- Upplýsingar um vaxandi vanlíðan brotaþola eftir atvikið, eins og framburðir F, starfsmanns Barnaverndar, E systur brotaþola og móður hennar eru til marks um, ásamt þeirri staðreynd að hún leitaði til unglingageðdeildar um mánuði eftir atvikið, styðja einnig frásögn hennar, þó að fleira hafi búið þar að baki eins og brotaþoli skýrði sjálf frá.
- Fyrir dómi komu fram misvísandi upplýsingar um hvort eitthvað hafi verið á milli brotaþola og C áður en atvik málsins gerðust. Þannig skýrðu D og móðir brotaþola frá því að þær hafi talið að eitthvað meira en vinátta hafi verið á milli þeirra. Brotaþoli skýrði frá því að hún hafi einungis einu sinni hitt C áður en þetta gerðist og þau hafi verið vinir. C bar fyrst að hann teldi þau hafa kysst áður en þetta var, þegar hún hafi komið í heimsókn til hans tveimur dögum áður. Síðar breytti hann þeim framburði og kvað þau ekki hafa kysst þau, en að hann teldi að þau hefðu engu að síður kysst áður en þetta var, þau hafi þó ekki verið í sambandi. Að mati dómsins verður ekki séð að það hafi þýðingu í málinu hvort eitthvað hafi verið búið að gerast á milli brotaþola og C þá tvo daga sem þau höfðu þekkst fyrir atburði málsins, en C skýrði sjálfur frá því fyrir dómi að hann hafi upplifað óþægilegar tilfinningar þegar hann sá ákærða og brotaþola láta vel hvort að öðru, en á honum var að skilja að afbrýðisemi hafi þar gert vart við sig. Í framburði sínum fór hann hvergi neikvæðum orðum um ákærða, heldur skýrði frá því að hann hafi hvatt hann til að biðjast fyrirgefningar og reyna að laga samskiptin við brotaþola. Þá skýrði hann svo frá atvikum í herberginu á meðan hann var þar, að hann hafi upplifað þau svo að kynferðisleg atlot hafi verið með vilja beggja, ákærða og brotaþola. Að mati dómsins hallaði á engan hátt á ákærða í framburði C.
- Með vísan til alls framangreinds er að mati dómsins hafið yfir skynsamlegan vafa, sbr. 108. gr. og 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008, gegn neitun ákærða, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem brotaþoli hefur lýst. Eins og getur að framan fólst háttsemi ákærða í því að fróa sér þar sem hann var klofvega á hnjánum yfir efri líkama brotaþola og fá sáðlát yfir andlit hennar þrátt fyrir að hún gerði honum ljóst að hún væri því mótfallin. Hins vegar verður ákærði ekki fundinn sekur um að hafa haldið brotaþola niðri og nuddað lim sínum við andlit hennar, eins og háttseminni er lýst í ákæru, enda hefur brotaþoli borið á annan veg.
- Brot ákærða er í ákæru talið vera nauðgun og varða við 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga (hgl.). Í nefndu ákvæði hegningarlaganna segir að hver sem hafi samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun. Eftir framburð brotaþola fyrir dómi taldi ákæruvaldið ekki ástæðu til að kvika frá heimfærslu brotsins. Dómurinn getur hins vegar ekki fallist á það með ákæruvaldinu að háttsemi ákærða, eins og brotaþoli lýsti henni fyrir dómi, falli undir hugtakið “önnur kynferðismök” í skilningi 1. mgr. 194. gr. hgl., en háttsemi sambærileg þeirri sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir hefur í dómaframkvæmd verið talin fela í sér brot gegn blygðunarsemi samkvæmt 209. gr. hgl., sbr. dóma Hæstaréttar í málum 495/2013 og 124/2015. Hefur ákæruvaldið ekki sýnt fram á að atvik í máli þessu séu frábrugðin sambærilegum atvikum sem í dómaframkvæmd hafa verið talin varða við 209. gr. hgl., en löggjafinn hefur ekki gert breytingar á verknaðarlýsingu 194. gr. hgl. frá því framangreindir dómar féllu, sem réttlætt geta frávik frá framangreindri dómaframkvæmd. Verður brot ákærða samkvæmt því heimfært til 209. gr. hgl.
Ákvörðun refsingar
- Brot gegn 209. gr. hgl. varðar fangelsi allt að 4 árum. Ákærði var 19 ára er hann braut gegn brotaþola. Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur honum ekki verið gerð refsing áður. Hann braut á grófan og auðmýkjandi hátt gegn kynfrelsi brotaþola sem var rétt orðin […] ára, á heimili hennar þar sem hún taldi sig örugga. Brotaþoli glímdi við sálræna erfiðleika í kjölfar brotsins. Ásetningur ákærða var einbeittur og skeytti hann í engu um vilja brotaþola. Eiga hér við 1., 2., 6. og 7. tl. 1. mgr. 70. gr. hgl. til þyngingar. Ákærði á sér engar málsbætur, en með hliðsjón af ungum aldri ákærða og hreinum sakaferli er refsing hans hæfilega ákveðin 9 mánaða fangelsi, sem bundið skal skilorði eins og í dómsorði greinir.
Ákvörðun skaða- og miskabóta
- Brotaþoli á rétt á miskabótum samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Fyrir liggur að brotaþoli glímdi við sálrænar afleiðingar í kjölfar brotsins, þrátt fyrir að önnur áföll hafi einnig átt hlut að máli að hennar sögn. Í dómaframkvæmd hefur því verið slegið föstu að brot sem þessi eru til þess fallin að valda brotaþola langvarandi sálrænum erfiðleikum. Með vísan til þess og dómaframkvæmdar í sambærilegum málum eru miskabætur brotaþola til handa hæfilega ákveðnar 1.100.000 krónur ásamt vöxtum eins og í dómsorði greinir. Það athugast að ekki liggja fyrir gögn um að ákærða hafi verið birt bótakrafan fyrr en við þingfestingu máls þessa 18. október sl. og miðast upphafstími dráttarvaxta við þann dag er liðnir voru 30 dagar frá þeim degi. Upphafstími vaxta miðast við 15. júlí 2021, en samkvæmt gögnum málsins átti brot ákærða sér stað þann dag, ef mið er tekið af samþykki brotaþola við vinabeiðni ákærða á Instagram þann dag og framburði um að hún hafi nýverið átt […] ára afmæli þegar brotið átti sér stað.
Ákvörðun sakarkostnaðar
- Með hliðsjón af málsúrslitum verður ákærða gert að greiða allan sakarkostnað málsins, þ.m.t. þóknun réttargæslumanns brotaþola, Sunnu Axelsdóttur lögmanns, og málsvarnarlaun verjanda síns, Leifs Runólfssonar lögmanns, eins og í dómsorði greinir að meðtöldum virðisaukaskatti. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Katrín Hilmarsdóttir, aðstoðarsaksóknari. Hlynur Jónsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, Gareese Joshua Gray, sæti fangelsi í 9 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði, B, kt. […], fyrir hönd ólögráða dóttur hennar, A, kt. […], 1.100.000 krónur í miskabætur ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 15. júlí 2021 til 18. nóvember 2022, en með dráttarvöxtum frá þeim degi samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags. Ákærði greiði þóknun réttargæslumanns brotaþola, Sunnu Axelsdóttur lögmanns, 1.032.021 krónur, og málsvarnarlaun verjanda síns, Leifs Runólfssonar lögmanns, 2.938.318 krónur.