Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

35 dómar fundust

Lykilorð: Úrskurður

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2026 kl. 23:53

E-2380/2025

Stofulind ehf (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um að felldir yrðu úr gildi úrskurðir yfirskattanefndar og skattrannsóknarstjóra um að útgefnir sölureikningar á hendur stefnanda sem um var deilt í málinu uppfylltu ekki skilyrði frádráttar rekstrargjalda samkvæmt 31. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og væru ekki tækir sem grundvöllur innskattsfrádráttar samkvæmt 3. mgr. 15. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. nóvember 2025

E-5754/2024

atNorth ehf (Guðmundur Siemsen lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður)

Fallist á kröfu rekstraraðila gagnavers um ógildingu úrskurðar ríkisskattstjóra um endurákvörðun á virðisaukaskatti hans rekstrarárið 2022. Jafnframt fallist á kröfu um að íslenska ríkið endurgreiði þá fjárhæð sem það móttók á grundvelli úrskurðarins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2025

E-504/2025

A (Helgi Þorsteinsson Silva lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen lögmaður)
Málaflokkur: Útlendingamál

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógiltur yrði með dómi úrskurður Kærunefndar útlendingamála þar sem synjað var umsókn stefnanda um alþjóðlega vernd á Íslandi, ásamt því að honum var þá einnig synjað um dvalarleyfi á grunni 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og vísað frá landinu.

Héraðsdómur Suðurlands birt 30. maí 2025

E-690/2024

Höskuldur Þór Þórhallsson (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður) gegn Magnúsi H. Breiðfjörð Traustasyni (Flosi Hrafn Sigurðsson lögmaður)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um ógildingu úrskurðar úrskurðarnefndar lögmanna, þar sem stefnandi var látinn sæta áminningu. Var ekki fallist á með stefnanda að nefndinni hefði verið rétt að vísa málinu frá í heild sinni. Þó fallist hafi verið á með stefnanda að rétt hefði verið að veita honum andmælarétt varðandi atriði sem nefndin byggði á og varðaði meðferð málsins fyrir nefndinni, var ekki fallist á með stefnanda að það varðaði ógildindu úrskurðarins. Loks var það mat dómsins að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að nefndin hafi komist að efnislega rangri niðurstöðu.

Landsréttur birt 4. júní 2021

8/2020

Þrotabú Særeka, glugga og hurða slf (Skúli Sveinsson lögmaður) gegn Helgu Sigurðardóttur og Helga Haraldssyni (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður)

HS og HH höfðuðu mál gegn S slf. og kröfðust þess að staðfest yrði riftun á samningi þeirra um kaup á sérsmíðuðum gluggum og að S slf. yrði dæmt til að endurgreiða þeim kaupverð glugganna auk greiðslu skaðabóta. Í Landsrétti var málið munnlega flutt um formsatriði þess og var frávísunar- og ómerkingarkröfu S slf. hafnað með úrskurði 17. febrúar 2021. Í dómi Landsréttar kom fram að á hinum umþrættu gluggum væru verulegir ágallar sem snéru að smíði þeirra, vali á efni og frágangi á yfirborði þeirra. Samkvæmt því hefðu gluggarnir ekki þá eiginleika til að bera sem HS og HH máttu vænta við kaup á þeim, sbr. b-lið 15. gr. laga nr. 48/2003 um neytendakaup. Væru þeir því gallaðir samkvæmt a-lið 1. mgr. 16. gr. laganna. Þá var S slf. ekki talið hafa boðið HS og HH viðhlítandi úrbætur á gluggunum og yrði ekki bætt úr gallanum nema með endursmíði þeirra. Hefði HS og HH því verið heimilt að rifta samningnum um smíði þeirra. Jafnframt ættu HS og HH rétt á skaðabótum vegna tjóns sem þau hefðu beðið vegna gallans, sbr. 1. mgr. 33. gr. laga nr. 48/2003.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. október 2019

E-1007/2019

Seðlabanki Íslands (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) gegn Ara Brynjólfssyni (Einar Þór Sverrisson lögmaður)

Hafnað er kröfu stefnanda, Seðlabanka Íslands, um að felldur verði úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 810/2019 í máli ÚNU 19010016, sem kveðinn var upp 3. júlí 2019, þar sem stefnanda var gert að veita stefnda, Ara Brynjólfssyni blaðamanni aðgang að skjalinu "Samningur um stuðning við námsdvöl og leyfi frá störfum", dags. 29. apríl 2016.

Hæstiréttur birt 27. júní 2019

29/2019

ALC A321 7237 LLC (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður) gegn Isavia ohf (Hlynur Halldórsson lögmaður)

Kærður var úrskurður Landsréttar en með honum var staðfestur úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu ALC um að því yrði heimilað að fá tilgreint loftfar tekið með beinni aðfarargerð úr vörslum I ohf. og afhent sér. I ohf. hafði fyrir Landsrétti krafist þess að úrskurður héraðsdóms yrði staðfestur um annað en málskostnað en ALC hafði aðallega krafist þess að málinu yrði vísað þaðan frá dómi og til vara staðfestingar úrskurðarins. Í hinum kærða úrskurði hafnaði Landsréttur aðalkröfu ALC en tók að því búnu til endurskoðunar forsendur úrskurðar héraðsdóms sem var svo staðfestur að niðurstöðu til. Í dómi Hæstaréttar kom fram að ef ALC hefði jafnframt kært úrskurð héraðsdóms fyrir sitt leyti til Landsréttar og krafist þess að breytt yrði niðurstöðu hans hefði orðið að taka úrlausn héraðsdóms um einstakar málsástæður aðilanna til endurskoðunar eftir þeirri meginreglu sem fælist í 1. mgr. 98. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að samþykki málsaðili dómkröfur sem gagnaðili beinir að honum verði ekki í dómsúrlausn tekin afstaða til málsástæðna að baki viðkomandi kröfu eða hluta hennar heldur verði niðurstaða reist á samþykki einu og sér. Í skilningi fyrrefnds ákvæðis fólst í varakröfu ALC fyrir Landsrétti samþykki á þeim þætti í dómkröfum I ohf. sem laut að staðfestingu úrskurðar héraðsdóms um að synja ALC um heimild til aðfaragerðar. Hefði því Landsrétti borið að verða við kröfu I ohf. og staðfesta niðurstöðu úrskurðarins um þetta atriði án þess að taka á nokkurn hátt afstöðu til röksemda fyrir henni og leysa einvörðungu úr ágreiningi aðilanna um málskostnað. Var því talið að með hinum kærða úrskurði hefði í verulegum atriðum verið vikið frá réttri meðferð málsins og því óhjákvæmilegt án kröfu að ómerkja úrskurðinn og vísa málinu á ný til Landsréttar til löglegrar meðferðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. júní 2015

S-206/2013

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson saksóknari) gegn Hreiðari Má Sigurðssyni (Hörður Felix Harðarson hrl), Sigurði Einarssyni (Gestur Jónsson hrl), Ingólfi Helgasyni (Grímur Sigurðsson hrl), Einari Pálma Sigmundssyni (Gizur Bergsteinsson hrl), Birni Sæ Björnssyni (Halldór Jónsson hrl), Pétri Kristni Guðmarssyni (Vífill Harðarson hrl), Magnúsi Guðmundssyni (Kristín Edwald hrl) og Bjarka H. Diego (Jóhannes Sigurðsson hrl)

Markaðsmisnotkun. Umboðssvik.

Hæstiréttur birt 25. ágúst 2014

451/2014

Skúli, Einarsson, Jónína, Einarsdóttir, Jóhanna, Lilja Einarsdóttir, Valdís, Einarsdóttir, Ólöf, Björg Einarsdóttir, Svanborg, Þuríður Einarsdóttir, Jón, Ægisson, Harald, Óskar Haraldsson, Bjarni, Hermannsson og Unnsteinn Kristinn Hermannsson (Ólafur Björnsson hrl) gegn Veiðifélagi Laxdæla (Karl Axelsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem vísað var frá dómi máli S o.fl. á hendur V. Hæstiréttur ómerkti hinn kærða úrskurð og vísaði málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar, með skírskotun til þess að úrskurðurinn uppfyllti ekki áskilnað fyrri máliðar 4. mgr. 112. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og e. liðar 1. mgr. 114. gr. sömu laga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. maí 2013

S-206/2013

Ákæruvaldið (Björn Þorvaldsson saksóknari) gegn Hreiðari Má Sigurðssyni (Hörður Felix Harðarson hrl), Sigurði Einarssyni (Gestur Jónsson hrl), Ingólfi Helgasyni (Jóhannes Bjarni Björnsson hrl), Einari Pálma Sigmundssyni (Gizur Bergsteinsson hrl), Birni Sæ Björnssyni (Halldór Jónsson hrl), Pétri Kristni Guðmarssyni (Vífill Harðarson hdl), Magnúsi Guðmundssyni (Karl Axelsson hrl) og Bjarka H Diego (Jóhannes Sigurðsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Úrskurður um framlagningu gagna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. febrúar 2012

E-7338/2010

Lyf og heilsa hf (Hákon Árnason hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Brynjar Níelsson hrl)

Stefnda, Samkeppniseftirlitið, sýknað af kröfu lyfjafyrirtækis um ógildingu úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála, en kröfu stefnanda um ógildingu á ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vísað frá dómi.

Héraðsdómur Austurlands birt 11. nóvember 2011

E-25/2011

Valgerður Leifsdóttir (Garðar Þ. Garðarsson hrl) gegn Hvítingi ehf. og Róshildi Jónsdóttur og Ingunni Jónsdóttur og Þorvaldi Jónssyni (Þorsteinn Magnússon hdl) og Ingimari Bjarnasyni og Þorbergi Bjarnasyni (enginn) og Hvítingur ehf. og Róshildur Jónsdóttir og Ingunn Jónsdóttir og Þorvaldur Jónsson (Þorsteinn Magnússon hdl) gegn Valgerði Leifsdóttur (Garðar Þ. Garðarsson hrl) og Ingimari Bjarnasyni og Þorbergi Bjarnasyni (enginn)

Kröfu um frávísun gagnsakar hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. ágúst 2010

S-149/2010

Ákæruvaldið (Lára Valgerður Júlíusdóttir settur ríkissaksóknari) gegn Andra Leó Lemarquis (Brynjar Níelsson hrl), Jóni Benedikt Hólm (Tryggvi Agnarsson hdl), Kolbeini og Aðalsteinssyni og Ragnheiði Esther og Briem (Ragnar Aðalsteinsson hrl) og Snorra Páli Jónssyni og Sólveigu Önnu og Jónsdóttur og Steinunni og Gunnlaugsdóttur og Teiti Ársælssyni (Bjarni Eiríksson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Synjað var kröfu fjögurra ákærðu í málinu um það að dómarinn víki sæti.

Hæstiréttur birt 21. ágúst 2009

383/2009

Málaflokkur: Barnaréttur

K krafðist þess að aflað yrði nánar tilgreindra sérfræðilegra gagna, í máli M á hendur henni um forsjá tveggja sona þeirra. Héraðsdómur hafnaði kröfum K án þess að taka rökstudda afstöðu til þeirra allra. Í ljósi þess annmarka var óhjákvæmilegt að ómerkja hinn kærða úrskurð og leggja fyrir héraðsdóm að taka afstöðu til beggja krafna K.

Hæstiréttur birt 15. desember 2008

651/2008

Með úrskurði héraðsdóms var leyst úr ágreiningsefni milli A og B sem upp kom við opinber skipti á dánarbúi C. Í úrskurðinum var jafnframt kveðið á um að málskostnaður milli aðilanna félli niður en greiða skyldi úr ríkissjóði gjafsóknarkostnað hvorrar þeirrar fyrir sig. Eftir uppkvaðningu úrskurðarins kom lögmaður B því á framfæri við héraðsdómara að henni hefði ekki verið veitt gjafsókn. Héraðsdómari brást við þessu samdægurs og var lögmönnum aðilanna birtur „nýr úrskurður“ með tölvubréfi þar sem ekki aðeins var fellt brott ákvæði um greiðslu gjafsóknarkostnað B úr ríkissjóði, heldur var úrskurðinum breytt á þann veg að A var gert að greiða B tiltekna fjárhæð í málskostnað. A kærði úrskurðinn að þessu leyti og krafðist þess að málskostnaður yrði látinn falla niður. Í niðurstöðu Hæstaréttar er vísað til þess að samkvæmt 1. málslið 3. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991 sé dómur bindandi fyrir dómara þegar hann hefur verið kveðinn upp. Heimild í 2. málslið sama ákvæðis til að leiðrétta ritvillur, reikningsskekkjur, nafnskekkjur og aðrar bersýnilegar villur gæti með engu móti tekið til þess að breyta efnislegri niðurstöðu í dómsúrlausn. Yrði því að líta svo á að í hinum kærða úrskurði hafi verið kveðið á um að málskostnaður milli þeirra félli niður og bæri því að virða að vettugi þær breytingar sem héraðsdómari hafði gert á því ákvæði, sbr. 3. mgr. 116. gr. laga nr. 91/1991. Þar sem kæra A laut ekki að neinu, sem að lögum yrði talið fólgið í hinum kærða úrskurði, var málinu vísað af sjálfsdáðum frá Hæstarétti.

Héraðsdómur Suðurlands birt 16. ágúst 2007

S-259/2007

málinu nr. S-259/2007 Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn X (Unnar Steinn Bjarndal hdl)
Málaflokkur: Önnur sakamál

Ákært fyrir brot á 1.mgr. 257. gr. hegningarlaga. Málinu vísað frá dómi þar sem skilyrði 4. mgr. 257. gr. hgl. voru ekki uppfyllt svo og að ákæran uppfyllt ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 116. gr. oml.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. júní 2007

E-7084/2006

Heiðar Sigurðsson (Katrín Theodórsdóttir hdl) gegn Sparisjóði Vestfirðinga (Sveinn Sveinsson hrl)

Kröfu stefnanda um það að felld yrði úr gildi aðfarargerð sem fram fór hjá sýslumanninum í Reykjavík var vísað frá dómi þar sem frestur til þess að krefjast dómsúrlausnar um gerðina var liðinn þegar málið var höfðað.

Hæstiréttur birt 13. júní 2007

314/2007

Ríkislögreglustjóri (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Farbann. Úrskurður.

Ákvörðun héraðsdóms um að X skyldi sæta farbanni á grundvelli b. liðar 1. mgr. 103. gr. og 110. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur með þeirri athugasemd að héraðsdómara hefði verið rétt að úrskurða um farbannskröfuna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. nóvember 2006

E-4001/2006

Gísli Jóhannesson (Tryggvi Agnarsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Óskar Thorarensen hrl)

Krafist var að úrskurður yfirskattanefndar og tveir úrskurðir skattstjórans í Reykjavík yrðu felldir úr gildi. Stefndi krafðist frávísunar en í framhaldi af því krafðist stefnandi þess að málið yrði fellt niður án kostnaðar. Stefndi krafðist þá úrskurðar dómsins um málskostnað. Málið var fellt niður og málskostnaður ákveðinn með úrskurðinum.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 29. september 2006

M-21/2006

Jón G Guðlaugsson (Erla Svanhvít Árnadóttir hrl) gegn Lilju Guðrún Þ Guðlaugsdóttur (Árni Pálsson hrl) og Gísla Guðlaugi Geirssyni og Svölu Geirsdóttur og Hönnu Margréti Geirsdóttur og Brynju Geirsdóttur og Blindrafélaginu og KFUM og KFUK Akureyri og KFUM og KFUK Reykjavík og Akureyrarbær v/Dvalarheimilisins Hlíðar (Inga Þöll Þórgnýsdóttir hdl)
Málaflokkur: Erfðaréttur

Öflun sönnunargagna án þess að mál hafi verið höfðað.

Hæstiréttur birt 4. maí 2006

223/2006

Ákæruvaldið (Júlíus Magnússon fulltrúi) gegn X (Helgi Birgisson hrl)

Héraðsdómari ákvað að heimila ákæruvaldinu að leiða tvö nafngreind vitni í máli sem höfðað hafði verið gegn X fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hæstiréttur felldi þessa ákvörðun úr gildi með vísan til þess að dómaranum hefði borið að kveða upp úrskurð í stað þess að taka ákvörðun, sbr. 2. mgr. 61. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 16. janúar 2003

22/2003

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson fulltrúi) gegn X (sjálfur)

Héraðsdómari ákvað að hafna kröfu X um að fá að leiða þrjú nafngreind vitni í máli, sem ákæruvaldið hafði höfðað gegn honum fyrir brot gegn 120. gr. a. almennra hegningarlaga. Hæstiréttur felldi þessa ákvörðun úr gildi með vísan til þess að dómaranum hefði borið að kveða upp úrskurð í stað þess að taka ákvörðun, sbr. 61. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Hæstiréttur birt 23. október 2002

474/2002

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Jón Einar Jakobsson hdl)

Héraðsdómari ákvað að hafna kröfu X um að fá að leiða þrjú nafngreind vitni í máli, sem hún hafði borið undir héraðsdóm til að fá leyst úr lögmæti halds, sem lagt var á dagbók í eigu hennar við rannsókn lögreglu á opinberu máli. Hæstiréttur felldi þessa ákvörðun úr gildi með vísan til þess að dómaranum hefði borið að kveða upp úrskurð í stað þess að taka ákvörðun, sbr. 61. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.