Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lykilorð: Þingfesting

Landsréttur birt 16. september 2025

651/2025

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Hreiðar Eiríksson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem fallist var á með X að honum yrði ekki gert, gegn vilja sínum, að taka þátt í þinghaldi í gegnum fjarfundarbúnað við næstu fyrirtöku máls X.

Hæstiréttur birt 11. febrúar 2000

24/2000

Tré-X búðin hf (Garðar Briem hrl) gegn Páli Guðfinni Harðarsyni (Sigurður Georgsson hrl)

Einkahlutafélagið S fól trésmiðjunni T að smíða innréttingar. Við afhendingu innréttinganna greiddi P, fyrirsvarsmaður S fyrir þær með tékka, sem hann gaf út í eigin nafni. Tékkarnir fengust ekki innleystir í banka. T stefndi P til greiðslu tékkanna en hafði þá áður höfðað annað mál gegn S þar sem krafist var greiðslu á reikningi fyrir smíðina. Héraðsdómur vísaði máli T gegn P frá dómi á þeim grundvelli að um sömu kröfu væri að ræða í báðum málunum. Talið var að ekki væri um sömu kröfu að ræða og var m.a. vísað til þess að málið væri rekið sem tékkamál en hitt vegna lögskipta að baki þeim, auk þess sem ekki væru sömu aðilum stefnt í báðum málunum. Var því lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.