Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

99 dómar fundust

Lykilorð: Önnur mál

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. maí 2019

E-1023/2017

Dagbjartur Bogi Ingimundarson Rafn Ingimundarson (Sigurður Sigurjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu, Landsneti hf (María Thejll lögmaður) og Rarik ohf (Lárus Blöndal lögmaður)

Hafnað var kröfu stefnenda um að stefndu væri gert að fjarlægja aðveitustöð og tengd mannvirki á landi þeirra. Fallist var á kröfu þeirra um viðurkenningu bótaskyldu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. mars 2019

E-767/2017

Ágúst Heimir Ólafsson (Andri Árnason lögmaður) gegn D&T sf. og Deloitte ehf. og Deloitte FAS ehf. og Sigurði og Páli Haukssyni og Jónasi Gesti Jónassyni og Birni Inga Victorssyni og Benóní Torfa og Eggertssyni og Hilmari Alfreð Alfreðssyni og Pálínu Árnadóttur og Halldóri Arasyni og Sif og Einarsdóttur og Páli Grétari Steingrímssyni og Önnu Birgittu Geirfinnsdóttur og Hólmgrími og Pétri Bjarnasyni og Þorsteini Pétri Guðjónssyni og Signýju Magnúsdóttur og Bjarna Þór og Bjarnasyni og Gunnari Þorvarðarsyni og Sigurði Pálma Sigurðssyni og Ragnari Jóhanni og Jónssyni og Aðalsteini Þór Sigurðssyni og Sigurði Heiðari Steindórssyni og Sigurði og Álfgeir Sigurðarsyni og Einari Hafliða Einarssyni og Jóhanni Geir Harðarsyni og Birni og Helga Arasyni og Lúðvík Þráinssyni og Haraldi Inga Birgissyni og Guðna Björgvini og Guðnasyni og Jóhanni Óskari Haraldssyni og Sunnu Dóru Einarsdóttur og Lovísu Önnu og Finnbjörnsdóttur og Birnu Maríu Sigurðardóttur (Ólafur Eiríksson lögmaður) og Birki Leóssyni og Guðmundi Kjartanssyni og Knúti Þórhallssyni og og Lárusi Finnbogasyni (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Stefnandi krafðist skaðabóta vegna ætlaðrar ólögmætrar uppsagnar á ráðningarsamningi við stefnda Deloitte FAS ehf., svo og vegna ólögmætrar innlausnar á eignarhluta stefnanda í stefnda D&T sf. Þá krafðist stefnandi bóta fyrir ófjárhagslegt tjón og miska sem stefnandi taldi sig hafa orðið fyrir vegna starfslokanna. Einnig krafðist stefnandi greiðslu fyrir eignarhlut sinn í D&T sf. eftir tiltekinni reiknireglu. Með þeirri kröfu var krafist mismunar á innlausnarverði eignarhluta stefnanda og raunvirðis eignarhlutarins samkvæmt svonefndri sjóðsstreymisaðferð. Enn fremur krafðist stefnandi hlutdeildar í hagnaði stefnda Deloitte ehf. 2016/2017. Loks krafðist stefnandi viðurkenningar á því að samningsákvæði, sem leggi hömlur við því að stefnandi sinni endurskoðunar- og ráðgjafarstörfum eftir starfslok séu ógild og óskuldbindandi, meðal annars í ljósi ólögmæts brottrekstrar, auk viðurkenningar á bótaskyldu. Dómkröfum stefanda var hafnað að öðru leyti en því að fallist var á að hann ætti rétt á skaðabótum sem svaraði til launa og annarra greiðslna í tvo mánuði til viðbótar einum mánuði sem stefnandi fékk greiddan við starfslokin.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. nóvember 2018

E-1275/2017

Dánarbú Guðmundu Árnadóttur (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður) gegn Byggingarsamvinnufélaginu Samtökum aldraðra (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)

Fallist var á tvær viðurkenningarkröfur stefnanda með vísan til dómafordæmis en stefndi var sýknaður af þriðju dómkörfu stefnanda um ógildingu á kvöð í samningi vegna fasteignar í húsi sem reist var á vegum samtaka aldraðra.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. nóvember 2018

E-1111/2017

Dánarbú Soffíu Björgúlfsdóttur (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður) gegn Byggingarsamvinnufélaginu Samtökum aldraðra (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)

Fallist var á tvær viðurkenningarkröfur stefnanda með vísan til dómafordæmis en stefndi var sýknaður af þriðju dómkörfu stefnanda um ógildingu á kvöð í samningi vegna fasteignar í húsi sem reist var á vegum samtaka aldraðra.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. nóvember 2018

E-1110/2017

Guðrún Eyjólfsdóttir, Brynjólfur Ásgeir Guðbjörnsson, Gunnar Þórólfsson, Elísabet Þórólfsdóttir, Meyvant Þórólfsson og Bjarni Þór Þórólfsson (Jóhannes Stefán Ólafsson lögmaður) gegn Byggingarsamvinnufélaginu Samtökum aldraðra (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður)

Fallist var á tvær viðurkenningarkröfur stefnenda með vísan til dómafordæmis en stefndi var sýknaður af þriðju dómkörfu stefnenda um ógildingu á kvöð í samningi vegna fasteignar í húsi sem reist var á vegum samtaka aldraðra.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. ágúst 2016

E-2470/2016

Sjarmur og Garmur ehf og Sigmar Vilhjálmsson (Daði Bjarnason lögmaður) gegn Stemmu hf (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður)

Ákvörðun hluthafafundar um sölu lóðarréttinda var talin ótilhlýðileg og andstæð 95 gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Hvorki var fallist á aðildarskort fyrrverandi stjórnarmanns né að vísa ætti málinu frá ex officio.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2018

E-3902/2017

Augnablikk ehf, ÁR ehf, B.B. rafverktakar ehf, B. Ingvarsson ehf, Fasteignafélagið GS ehf, Geiri ehf, Gullhellir ehf, HBTF ehf, Höfðasetrið ehf, Jón Trausti Harðarson, K og K ehf, S.Ó.S. fasteignir ehf, Sprinkler pípulagnir ehf og Örnólfur Sveinsson (Lúðvík Örn Steinarsson lögmaður) gegn Riverside ehf (Atli Már Ingólfsson lögmaður) og Útlendingastofnun (Þórður Bogason lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnenda um að viðurkennt væri að sameiganda þeirra að atvinnuhúsnæði og Útlendingastofnun væri ekki heimilt að reka gistiskýli fyrir hælisleitendur í húsnæðinu án samþykkis þeirra.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. maí 2018

E-1183/2017

Stiki ehf (Geir Gestsson hrl) gegn Guðjóni Viðari Valdimarssyni (sjálfur)

Staðfest er lögbannsgerð sýslumanns við því að stefndi starfi á sama starfssviði og stefnandi. Þá var stefnda gert að greiða stefnanda fjárkröfu sem byggðist á ákvæði í ráðningarsamningi stefnda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. apríl 2018

E-136/2017

Grímsnes-og Grafningshreppur (Óskar Sigurðsson lögmaður) gegn Jöfnunarsjóði sveitarfélaga íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Eitt fimm samkynja mála sveitarfélaga gegn ríkinu. Deilt um heimild stefnda til skerðinga á framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til sveitarfélaga sem hafa heildarskatttekjur af útsvari og fasteignaskatti sem teljast verulega umfram landsmeðaltal.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. mars 2018

E-681/2017

Úlfar Eysteinsson (Ragnar Halldór Hall hrl) gegn Steinbergi Finnbogasyni (Valgeir Kristinsson hrl)

Stefnandi tók að sér fyrir þrotabú að höfða mál í eigin nafni í þágu búsins. Málinu var vísað frá dómi þar eð stefnandi hafði ekki lýst kröfu í búið og naut því ekki þeirrar réttarstöðu sem er skilyrði fyrir því að mega höfða mál í nafni þrotabús skv. 130. gr. laga nr. 21/1991.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. september 2017

E-3482/2016

A (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn Tryggingastofnun ríkisins og íslenska ríkinu (Fanney Rós Þorsteinsdóttir hrl)

Deilt var um hvort Tryggingastofnun ríkisins og íslenska ríkinu væri heimilt að skerða örorkubætur til öryrkja á grundvelli þess að maki bótaþega hafði fengið greiddar fjármagnstekjur vegna sölu á einkahlutafélagi, sem komu til frádráttar bótum. Ekki var talið að reglur þess efnis færu gegn ákvæðum 76. gr. og 65. gr. stjórnarskrárinnar.

Héraðsdómur Austurlands birt 27. apríl 2017

E-45/2015

Ice Lagoon ehf (Jón Gunnar Ásbjörnsson hdl) gegn Sveitarfélaginu Hornafirði (Auðun Helgason hdl)

Fallist var á kröfu stefnanda um ógildingu stjórnvaldsákvörðunar. Um var að ræða synjun byggingarfulltrúa sveitarfélags á beiðni stefnanda um stöðuleyfi fyrir lausafjármun (húskerru) á austurbakka Jökulsárlóns. Aðila greindi á um það hvort samþykki eiganda eða lóðarhafa lægi fyrir í skilningi 2.6.1. gr. byggingareglugerðar nr. 112/2012, túlkun þess ákvæðis og hvaða kröfur til sönnunar yrðu gerðar í þeim efnum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. apríl 2017

E-2872/2016

Lykilorð: Önnur mál.

Ekki var talið að K ehf. hefði verið skylt að inna greiðslu samkvæmt nauðasamningi af hendi til P ehf. [R ehf.] við þær aðstæður að Seðlabanki Íslands hafði látið uppi þá afstöðu að greiðslan kynni að fara í bága við gildandi reglur um gjaldeyrismál og hafið rannsókn á þeim grundvelli.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. apríl 2017

E-1124/2017

Lykilorð: Önnur mál. Skattar.
Málaflokkur: Skattaréttur

Kröfu Ó og H um að felldir úr úr gildi úrskurðir skattyfirvalda, þar sem skattstofn þeirra var endurákvarðaður, var hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. mars 2017

E-767/2017

verið kröfu þeirra um að fram færi lögreglurannsókn á því hvort æðstu, embættismenn Seðlabanka Íslands hefðu gerst brotlegir við 148. gr. almennra, hegningarlaga nr. 19/1940 um rangar sakargiftir. Var krafan um lögreglurannsókn og á því byggð að Seðlabanki Íslands hefði haustið 2009 sakað umrædda menn um brot gegn reglum nr. 1130/2008 um gjaldeyrismál þótt æðstu embættismönnum bankans, hefði verið ljóst frá öndverðu að reglurnar hefðu ekki hlotið lögáskilið, samþykki ráðherra og væru því ógild refsiheimild. Seðlabanki Íslands hefði enn, fremur látið það viðgangast að fram færi tímafrek lögreglurannsókn, þar sem og beitt hefði verið ýmsum þvingunaraðgerðum gegn stefnda, og að gefin væri út

Felld var úr gildi ákvörðun ríkissaksóknara um að staðfesta þá ákvörðun lögreglustjóra að hafna kröfu X um lögreglurannsókn á ætluðum brotum æðstu embættismanna Seðlabanka Íslands gegn 148. gr. almennra hegningarlaga (rangar sakargiftir).

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. nóvember 2016

E-3489/2016

Lykilorð: Önnur mál.

Viðurkennt var að A bæri að fella niður kreditkortafærslur Þ og D sem þau höfðu heimilað í rangri trú um fjárhæðir og án þess að vara eða þjónusta kæmi fyrir.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. september 2016

E-3560/2015

Stefnda gert að afhenda læknisvottorð til Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja, um að heilsufar hans dragi ekki úr lífslíkum eða heilbrigðisvottorð að öðrum kosti, vegna skilnaðarsamnings hans og stefnanda um skiptingu lífeyrisréttinda. Uppfylli stefndi ekki skyldu sína innan tveggja mánaða ber honum að greiða dagsektir til stefnanda, 20.000 krónur á dag.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2016

E-2877/2016

aðalmeðferð 14. júní sl. Stefnandi er P153 ehf., Öldugötu 4, Reykjavík. Stefndu eru Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins, Arnarhváli, Reykjavík gegn stefnda, Seðlabanka Íslands, gerir stefnandi aðallega þá kröfu að ógilt verði sú ákvörðun hans 19. ágúst, 2016 að leggja á stefnanda stjórnvaldssekt að fjárhæð 24.200.000 krónur, en til, vara, að ákvörðuninni verði breytt á þann veg að fjárhæð sektarinnar verði, lækkuð stórkostlega. Gegn stefnda íslenska ríkinu gerir stefnandi þá kröfu að, honum verði gert að greiða stefnanda 25.270.178 krónur auk dráttarvaxta og samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 23

Stjórnvaldssekt sem Seðlabanki Íslands lagði á einkahlutafélagið P vegna brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, með síðari breytingum, var felld niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2016

E-2876/2016

aðalmeðferð 14. júní sl. Stefnandi er Rask ehf., Lágmúla 7, Reykjavík. Stefndu eru Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins, Arnarhváli, Reykjavík gegn stefnda, Seðlabanka Íslands, gerir stefnandi aðallega þá kröfu að ógilt verði sú ákvörðun hans 19. ágúst, 2016 að leggja á stefnanda 75 milljóna króna stjórnvaldssekt, en til vara, að, ákvörðuninni verði breytt á þann veg að fjárhæð sektarinnar verði lækkuð, stórkostlega. Gegn stefnda íslenska ríkinu gerir stefnandi þá kröfu að honum og verði gert að greiða stefnanda 78.160.034 krónur auk dráttarvaxta samkvæmt 1

Stjórnvaldssekt sem Seðlabanki Íslands lagði á einkahlutafélagið R vegna brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, með síðari breytingum, var felld niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2016

E-2874/2016

Lykilorð: Önnur mál.

Ekki var talið að K ehf. hefði verið skylt að inna greiðslu samkvæmt nauðasamningi af hendi til P ehf. [R ehf.] við þær aðstæður að Seðlabanki Íslands hafði látið uppi þá afstöðu að greiðslan kynni að fara í bága við gildandi reglur um gjaldeyrismál og hafið rannsókn á þeim grundvelli.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. júlí 2016

E-1967/2016

Félag íslenskra flugumferðarstjóra (Ástráður Haraldsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason hrl) og Samtökum og atvinnulífsinsins (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl)

Stefndu sýknaðir af kröfu stefnanda um að viðurkennt yrði að honum væri, þrátt fyrir ákvæði 1. gr., 2. gr. og 3. gr. laga nr. 45/2016, heimilt að efna til verkfalls í samræmi við ákvæði lagan nr. 80/1938, um stéttarfélög og vinnudeilur og að kjör félagsmanna stefnanda verði ekki afráðin með ákvörðun gerðardóms samkvæmt lögum nr. 45/2016.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 1. febrúar 2016

E-299/2016

Talið var að innanríkisráðherra hefði skuldbundið sig gagnvart sveitarfélaginu R til þess að loka flugbraut á flugvelli innan marka sveitarfélagsins. Var því fallist á kröfu R um að flugbrautinni yrði lokað og ráðherra gert að breyta skipulagi flugvallarins til samræmis við það.

Hleð fleiri dómum…