Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

20 dómar fundust

Lykilorð: Stjórnvaldssektir

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. nóvember 2018

E-143/2018

365 miðlar hf (Einar Þór Sverrisson lögmaður) gegn fjölmiðlanefnd (Eiríkur Áki Eggertsson lögmaður)

Stefndi, fjölmiðanefnd, var sýknuð af kröfu stefnanda, 365. miðla hf., um ógildingu á ákvörðun nefndarinnar um álagningu stjórnvaldssektar vegna birtingar áfengisauglýsinga í tilteknum heftum tímaritsins Glamour. Talið var að ákvörðuninni hefði verið réttilega beint að stefnanda þar sem hann hefði verið sú fjölmiðlaveita sem starfrækti tímaritið í skilningi laga nr. 38/2011 um fjölmiðla á þeim tíma sem máli skipti. Það var því ekki fallist á röksemdir stefnanda um að nefndinni hefði skort heimild til að taka umrædda ákvörðun þar sem tímaritið hefði verið gefið út af bresku dótturfélagi stefnanda sem væri með starfsstöð og aðalskrifstofu í Bretlandi, og félli utan gildissviðs laga nr. 38/2011. Þá var ekki heldur fallist á þá röksemd stefnanda að brotið hefði verið gegn jafnræðisreglu og reglum EES-réttar með hinni umdeildu ákvörðun.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. maí 2018

E-550/2016

Samkeppniseftirlitið (Gizur Bergsteinsson lögmaður) gegn Byko ehf. og Norvik hf. (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður) og Byko ehf. og Norvik ehf. (Halldór Brynjar Halldórsson lögmaður) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson lögmaður)

Staðfest var niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála um brot félagsins Byko ehf. á 10. gr. samkeppnislaga en sektarfjárhæð gagnvart móðurfélagi þess Norvik hf. hækkuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. apríl 2018

E-1931/2017

Eimskipafélag Íslands hf (Ólafur Arinbjörn Sigurðsson lögmaður) gegn Fjármálaeftirlitinu og íslenska ríkinu (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Hafnað var kröfu stefnanda um ógildingu ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins um álagningu stjórnvaldssektar vegna brots gegn 1. mgr. 122. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, sem og varakröfu um lækkun sektarfjárhæðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. desember 2017

E-4049/2017

á hendur stefnanda að fjárhæð 72.000.000 króna í ríkissjóð vegna ætlaðra brota stefnanda gegn 57. gr. a í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, og reglum settum á, grundvelli þess ákvæðis, og að stefnda íslenska ríkinu verði gert að og endurgreiða stefnanda sömu fjárhæð með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr

Talið var að reglur F um kaupaukagreiðslur fjármálafyrirtækja hefði skort lagastoð vegna greiðslna sem fjármálafyrirtækið A hafði innt af hendi til tiltekinna starfsmanna sinna á árunum 2012-2015. Hins vegar var talið að A hefði brotið gegn reglum um kaupaukagreiðslur með því að greiða tilteknum starfsmönnum sínum arð á grundvelli hluta sem tengdir voru rekstrarafkomu þeirra deilda þar sem þeir störfuðu fyrir árin 2016 og 2017. Var því hafnað kröfu A um ógildingu ákvörðunar F en stjórnvaldssekt fyrirtækisins lækkuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2016

E-2877/2016

aðalmeðferð 14. júní sl. Stefnandi er P153 ehf., Öldugötu 4, Reykjavík. Stefndu eru Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins, Arnarhváli, Reykjavík gegn stefnda, Seðlabanka Íslands, gerir stefnandi aðallega þá kröfu að ógilt verði sú ákvörðun hans 19. ágúst, 2016 að leggja á stefnanda stjórnvaldssekt að fjárhæð 24.200.000 krónur, en til, vara, að ákvörðuninni verði breytt á þann veg að fjárhæð sektarinnar verði, lækkuð stórkostlega. Gegn stefnda íslenska ríkinu gerir stefnandi þá kröfu að, honum verði gert að greiða stefnanda 25.270.178 krónur auk dráttarvaxta og samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 23

Stjórnvaldssekt sem Seðlabanki Íslands lagði á einkahlutafélagið P vegna brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, með síðari breytingum, var felld niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. september 2016

E-2876/2016

aðalmeðferð 14. júní sl. Stefnandi er Rask ehf., Lágmúla 7, Reykjavík. Stefndu eru Seðlabanki Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins, Arnarhváli, Reykjavík gegn stefnda, Seðlabanka Íslands, gerir stefnandi aðallega þá kröfu að ógilt verði sú ákvörðun hans 19. ágúst, 2016 að leggja á stefnanda 75 milljóna króna stjórnvaldssekt, en til vara, að, ákvörðuninni verði breytt á þann veg að fjárhæð sektarinnar verði lækkuð, stórkostlega. Gegn stefnda íslenska ríkinu gerir stefnandi þá kröfu að honum og verði gert að greiða stefnanda 78.160.034 krónur auk dráttarvaxta samkvæmt 1

Stjórnvaldssekt sem Seðlabanki Íslands lagði á einkahlutafélagið R vegna brota á lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, með síðari breytingum, var felld niður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. janúar 2015

E-3292/2013

Skeljungur hf (Hörður Felix Harðarson hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið voru sýknuð af kröfum stefnanda um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi og að stefnandi fengi sekt, sem hann hafði innt af hendi, endurgreidda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. janúar 2015

E-3291/2013

Olíuverzlun Íslands hf (Eyvindur Sveinn Sólnes hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið voru sýknuð af kröfum stefnanda um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi og að stefnandi fengi sekt, sem hann hafði innt af hendi, endurgreidda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. janúar 2015

E-3002/2013

Ker ehf (Anton Björn Markússon hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Samkeppniseftirlitið og íslenska ríkið voru sýknuð af kröfum stefnanda um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi og að stefnandi fengi sekt, sem hann hafði innt af hendi, endurgreidda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. desember 2012

E-2150/2012

IGS ehf (Þórir Júlíusson hdl) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson hrl)

Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda sem var á því reist að hann ætti rétt á vöxtum og dráttarvöxtum af greiddri stjórnvaldssekt sem var lækkuð af æðra stjórnvaldi og aftur af dómstólum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 27. janúar 2012

E-6395/2010

Síminn hf (Halldór Brynjar Halldórsson hdl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Gizur Bergsteinsson hdl)

Stefndi, Samkeppniseftirlitið, var sýknaður af kröfu stefnanda, Símans hf., um ógildingu sektarákvörðunar áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna brota sem stefndi taldi stefnanda hafa gerst sekan um á 5. og 7. töluliðum í skilyrðum samkeppnisráðs fyrir samruna stefnanda og Íslenska sjónvarpsfélagsins hf. Sektin var hins vegar lækkuð þar sem dómurinn taldi ekki liggja fyrir að stefnandi hefði gerst brotlegur við 7. tölulið skilyrðanna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. desember 2010

E-202/2010

Vélar verkfæri ehf (Heiðrún Lind Marteinsdóttir hdl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hrl)

Stefnandi krafðist þess að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi en með honum var stefnanda gert að greiða 10.000.000 króna sekt vegna brota á 11. gr. samkeppnislaga. Einnig var krafist endurgreiðslu á sektinni. Sýknað var af öllum kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. febrúar 2010

E-7649/2009

Hagar hf (Þórður Bogason hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu og íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hdl)

Stefnandi krafðist þess að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála yrði felldur úr gildi en með honum var staðfest ákvörðun stefnda Samkeppniseftirlitsins um að stefnandi hefði misnotað markaðsráðandi stöðu. Með ákvörðuninni var stefnanda gert að greiða sekt, að fjárhæð 315.000.000 króna, vegna brota á 11. gr. samkeppnislaga. Einnig krafðist stefnandi endurgreiðslu á sektargreiðslunni og á dráttarvöxtum sem stefnandi taldið að hefðu ranglega verið lagðir á hann. Kröfunum var öllum hafnað og stefndu sýknaðir af þeim.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. febrúar 2010

E-8622/2007

Icelandair ehf (Helga Melkorka Óttarsdóttir hdl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Gizur Bergsteinsson hdl)

Stefndi, Samkeppniseftirlitið, og áfrýjunarnefnd samkeppnismála sýknuð af aðalkröfu stefnanda, Icelandair, um ógildingu úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála og ákvörðunar stefnda, en fellt úr gildi ákvæði áfrýjunarnefndar samkeppnismála um greiðslu stjórnvaldssektar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. október 2007

E-7825/2006

Árdegi ehf (Andri Árnason hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu (Heimir Örn Herbertsson hrl)

Stefnandi krafðist þess að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli nr. 4/2006 yrði felldur úr gildi en til vara að sekt, sem stefnanda var gert að greiða með úrskurðinum, yrði felld niður eða lækkuð. Með úrskurðinum var staðfest ákvörðun samkeppniseftirlitsins um að stefnandi hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með gerð tveggja samninga og þar með brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga. Ekki var fallist á kröfur stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. maí 2006

E-6187/2005

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Þórunn Guðmundsdóttir hrl) gegn Samkeppniseftirlitinu íslenska ríkinu (Gizur Bergsteinsson hdl)

Stefndu voru sýkn af kröfu um ógildingu úrskurðar áfrýjunarnefndar samkeppnismála þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að stefnandi hefði tekið þátt í ólögmætu samráði við innleiðingu tjónamatskerfis.