Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
6 dómar fundust
Lykilorð: Sameignarfélög
Fallist var á kröfu stefnanda um ógildingu stjórnvaldsákvörðunar. Um var að ræða synjun byggingarfulltrúa sveitarfélags á beiðni stefnanda um stöðuleyfi fyrir lausafjármun (húskerru) á austurbakka Jökulsárlóns. Aðila greindi á um það hvort samþykki eiganda eða lóðarhafa lægi fyrir í skilningi 2.6.1. gr. byggingareglugerðar nr. 112/2012, túlkun þess ákvæðis og hvaða kröfur til sönnunar yrðu gerðar í þeim efnum.
Lögaðili, sem átti hlutdeild í jörð með 32 öðrum eigendum, krafðist hlutdeildar í tekjum af jörðinni. Talið var að stefnandi hefði glatað rétti til meginhluta hlutdeildar sinnar í tekjunum fyrir tómlæti og honum því einungis dæmdur réttur til ríflega 20% þeirrar fjárhæðar sem hann krafðist.
Stefndu voru vinir og viðskiptafélagar stefnanda og eiginmanns hennar. Stefnandi krafði stefndu um tiltekna fjárhæð í tengslum við uppgjör innan óskráðs sameignarfélags, sem stefnandi hélt því fram að hefði komist á með samkomulagi málsaðila samkvæmt lögum Georgíu-fylkis í Bandaríkjunum. Ósannað var talið að til slíks samkomulags hefði stofnast með málsaðilum og nægði stefnanda í þeim efnum ekki að vísa til dóms bandarísks dómstóls í Cobb-sýslu í Georgíu. Voru stefndu því sýknuð af dómkröfu stefnanda.
Lyf og heilsa hf (
Ingólfur Kristinn Magnússon hdl)
gegn
Yogi sf, Úrsúlu, Guðmundsdóttur, Örnu Dan Guðmundsdóttur, Margréti Helgu, Guðmundsdóttur, Guðmundi Á, Gunnarssyni og Úrsúlu Árnadóttur
Skuldamál. Húsaleiga. Sameignarfélag.
Ákvörðun félagsfundar í sameignarfélagi um brottvikningu félagsmanns var talin ógild.
Fallist var á kröfu stefnanda um slit á sameignarfélagi, skilanefnd og eignarhlutföll í sameignarfélagi.