Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-767/2017:

verið kröfu þeirra um að fram færi lögreglurannsókn á því hvort æðstu, embættismenn Seðlabanka Íslands hefðu gerst brotlegir við 148. gr. almennra, hegningarlaga nr. 19/1940 um rangar sakargiftir. Var krafan um lögreglurannsókn og á því byggð að Seðlabanki Íslands hefði haustið 2009 sakað umrædda menn um brot

gegn

reglum nr. 1130/2008 um gjaldeyrismál þótt æðstu embættismönnum bankans, hefði verið ljóst frá öndverðu að reglurnar hefðu ekki hlotið lögáskilið, samþykki ráðherra og væru því ógild refsiheimild. Seðlabanki Íslands hefði enn, fremur látið það viðgangast að fram færi tímafrek lögreglurannsókn, þar sem og beitt hefði verið ýmsum þvingunaraðgerðum gegn stefnda, og að gefin væri út

Rangar sakargiftir. Önnur mál.

Felld var úr gildi ákvörðun ríkissaksóknara um að staðfesta þá ákvörðun lögreglustjóra að hafna kröfu X um lögreglurannsókn á ætluðum brotum æðstu embættismanna Seðlabanka Íslands gegn 148. gr. almennra hegningarlaga (rangar sakargiftir).

Helstu ágreiningsefni og yfirlit málsatvika

Með hinni umstefndu ákvörðun tók stefndi afstöðu til kæru stefnanda og annars nafngreinds manns, samkvæmt 6. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, vegna ákvörðunar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 11. nóvember 2016 þar sem hafnað hafði verið kröfu þeirra um að fram færi lögreglurannsókn á því hvort æðstu embættismenn Seðlabanka Íslands hefðu gerst brotlegir við 148. gr. almennra   hegningarlaga   nr.   19/1940   um   rangar   sakargiftir.   Var   krafan   um lögreglurannsókn á því byggð að Seðlabanki Íslands hefði haustið 2009 sakað umrædda menn um brot gegn reglum nr. 1130/2008 um gjaldeyrismál þótt æðstu embættismönnum bankans hefði verið ljóst frá öndverðu að reglurnar hefðu ekki hlotið lögáskilið samþykki ráðherra og væru því ógild refsiheimild. Seðlabanki Íslands hefði enn fremur látið það viðgangast að fram færi tímafrek lögreglurannsókn,   þar   sem   beitt   hefði   verið   ýmsum   þvingunaraðgerðum   gegn stefnda,   og   að   gefin   væri   út   ákæra   í   málinu   án   þess   að   veittar   væru   réttar upplýsingar   að   þessu   leyti,   meðal   annarra   starfsmönnum   sérstaks   saksóknara. Stefnandi byggir kröfugerð sína í málinu annars vegar á því að ákvörðun stefnda sé reist á rangri skýringu á 148. gr. hegningarlaga, en hins vegar hafi sá saksóknari sem tók ákvörðunina fyrir hönd stefnda verið vanhæfur til töku hennar. Báðum málsástæðum er mótmælt af hálfu stefnda.

Tildrög málsins eru þau að með lögum nr. 134/2008, sem breyttu lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, var Seðlabanka Íslands heimilað að gefa út reglur, að fengnu samþykki ráðherra, sem takmörkuðu eða stöðvuðu tiltekna flokka fjármagns hreyfinga og tengdra gjaldeyrisviðskipta, að nánari skilyrðum uppfylltum. Hinn 15. desember 2008 gaf bankinn út reglur nr. 1130/2008 um gjaldeyrismál sem námu úr gildi fyrri reglur um sama efni. Reglurnar voru birtar samdægurs í B-deild Stjórnar tíðinda. Í fréttatilkynningu kom fram að hinar nýju reglur væru gefnar út að fengnu samþykki   viðskiptaráðherra.   Í   málinu   er   hins   vegar   ágreiningslaust   að   slíkt samþykki ráðherra lá þá ekki fyrir.

Með bréfi 11. nóvember 2009 tilkynnti Seðlabanki Íslands Fjármálaeftir litinu, samkvæmt 15. gr. a í lögum nr. 87/1992 um gjaldeyrismál, grun um brot fjögurra nafngreindra manna, þ.á m. stefnanda, sem allir tengdust tilteknu erlendu félagi, gegn meðal annars 4. mgr. 1. gr. reglna nr. 1130/2008. Í ljósi úrlausnar málsins eru ekki efni til þess að reifa nánara efni tilkynningarinnar. Í framhaldinu hóf efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra rannsókn sakamáls á grundvelli tilkynningarinnar og var yfirmaður rannsóknarinnar Helgi Magnús Gunnarsson, síðar vararíkissaksóknari. Mun við rannsóknina hafa verið beitt þvingunarúrræðum, svo   sem   húsleit,   handtöku,   öflun   símagagna   og   kyrrsetningu.   Við   upphaf rannsóknarinnar 29. sama mánaðar var haldinn blaðamannafundur um málið þar sem   téður   Helgi   Magnús   tjáði   sig   meðal   annars   um   málið   ásamt   fulltrúum Seðlabanka Íslands.

Hinn 22. mars 2013 var gefin út ákæra gegn stefnanda og þremur öðrum mönnum. Í ákærunni voru ákærðu meðal annars gefin að sök brot gegn reglum nr. 1130/2008. Eftir útgáfu ákærunnar mun að nýju hafa hafa farið fram kyrrsetning á eignum stefnanda. Í framhaldi af athugun sérstaks saksóknara á því hvort téðar reglur hefðu verið samþykktar af ráðherra var ákveðið að falla frá ákæruatriðum er vörðuðu meint brot gegn reglunum. Stefnandi og aðrir ákærðu í málinu voru sýknaðir af öðrum liðum ákæru með dómi Héraðsdóms Reykjaness 18. desember 2014. Þeim dómi skaut sérstakur saksóknari til Hæstaréttar en hann féll síðan frá áfrýjun málsins 19. febrúar 2016.

Áðurgreind kæra til lögreglunnar 14. október 2016 var á því byggð að starfsmenn og æðstu stjórnendur Seðlabanka Íslands hefðu sýnt af sér refsiverða háttsemi gagnvart kærendum. Seðlabanki Íslands hefði ítrekað gefið ýmist rangar eða villandi upplýsingar um tilvist samþykkis ráðherra við reglur nr. 1130/2008 þrátt fyrir fjölmargar ábendingar um hið gagnstæða. Í tilkynningu bankans 11. nóvember 2009 hefði í reynd falist slík yfirlýsing bankans. Hið sama mætti segja um upplýsingar sem bankinn hefði veitt embætti sérstaks saksóknara munnlega haustið 2011 og svör sem veitt hefðu verið umboðsmanni Alþingis. Hefði þetta einnig átt við um tölvupóst aðallögfræðings Seðlabankans til saksóknarfulltrúa við embætti sérstaks saksóknara 12. nóvember 2013 þar sem aðallögfræðingurinn hefði haldið því fram að samþykki ráðherra væri fyrir hendi og vísað til bréfs ráðherra 12. desember 2008. Hefðu stjórnendur bankans með þessu brotið gegn 148. gr. hegningarlaga. Einnig var vísað til þess að með því að láta það farast fyrir að gefa að eigin frumkvæði réttar upplýsingar eftir tilkynninguna 15. nóvember 2009 hefðu stjórnendur bankans komið því til leiðar „á annan hátt“ að stefnandi yrði ranglega sakaður um refsiverðan verknað. Var vísað til þess að 148. gr. hegningarlaga áskilji ekki að slíkar sakir komi fram heldur sé nægjanlegt að hætta sé á slíku. Í máli kærenda hefði slík hætta ekki aðeins verið fyrir hendi heldur hefði hún raungerst með því að kærendur hefðu orðið að þola kæru frá Fjármálaeftirlitinu og svo ákæru, allt á grundvelli tilhæfulausra ásakana Seðlabanka Íslands.

Í rökstuðningi fyrrgreindrar ákvörðunar lögreglustjóra 11. nóvember 2016 kom   meðal   annars   fram   að   hann   legði   til   grundvallar   að   148.   gr.   almennra hegningarlaga áskilji ásetning til verknaðar. Til þess að um rangar sakargiftir sé að ræða í skilningi ákvæðisins þurfi sá er ber mann sökum, t.d. í kæru eða með framburði hjá lögreglu eða fyrir dómi, vísvitandi að fara ranglega með staðreyndir eða atvik máls í því skyni að fá mann sakaðan eða dæmdan fyrir refsiverðan verknað. Viðkomandi þurfi jafnframt að vera ljóst að sá sem borinn sé sökum sé saklaus. Það að atvik reynist vera með öðrum hætti en kærandi taldi þau vera eða að háttsemi sem hann telji refsiverða sé ekki refsiverð nægi ekki til sakfellingar samkvæmt ákvæðinu. Segir að lögreglustjóri telji, með hliðsjón af kærugögnum, að ekki séu fyrir hendi nægilegar vísbendingar um að æðstu embættismenn seðla bankans hafi af ásetningi skýrt ranglega frá atvikum í málinu og með þeim hætti borið kærendur röngum sökum í því skyni að þeir yrðu sakaðir um eða dæmdir fyrir refsiverðan verknað.

Í hinni umstefndu ákvörðun stefnda eru rakin ákvæði 1. mgr. 53. og 1. málsl. 4. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála og því slegið föstu að lögreglu sé heimilt að vísa kæru frá, að lokinni athugun á henni og án eiginlegrar rannsóknar, af þeirri ástæðu að kæran gefi ekki tilefni til þess að kæruefnið verði rannsakað. Þær ástæður geti verið af ýmsum toga, meðal annars að efni kæru feli ekki í sér lýsingu   á   refsiverðu   broti   sem   leitt   geti   til   þess   að   sakamál   verði   höfðað   af ákæruvaldsins hálfu, fyrning sakar o.fl. Þá er í ákvörðuninni rakin 1. mgr. 148. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 15. gr. laga nr. 101/1976 og 67. gr. laga nr. 82/1998,   og   tilurð   gjaldeyrishafta   frá   nóvember   2008.   Kemur   þar   fram   að samkvæmt bráðabirgðaákvæði laga nr. 134/2008 hafi verið áskilið að ráðherra þyrfti að samþykkja reglur um gjaldeyrishömlur sem Seðlabanki Íslands gæfi út og þær   skyldu   birtar   í   B-deild   Stjórnartíðinda.   Þá   segir   eftirfarandi:   „Samþykki ráðherra reyndist ekki vera fyrir reglum nr. 1130/2008 þrátt fyrir útgáfu þeirra og birtingu í Stjórnartíðindum. Ákæruvaldið hefur lagt til grundvallar í sakamáli á hendur   kærendum   o.fl.   að   umræddar   reglur   nr.   1130/2008   hafi   ekki   verið fullnægjandi sem refsiheimild þar sem skort hafi samþykki ráðherra fyrir þeim. [/] Refsiábyrgð vegna brots gegn 148. gr. almennra hegningarlaga kemur aðeins til álita   að   uppfyllt   séu   hlutlæg   og   huglæg   refsiskilyrði   sem   fram   koma   í verknaðarlýsingu ákvæðisins, auk almennra refsiskilyrða. Í verknaðarlýsingu 1. mgr. 148. gr. almennra hegningarlaga er meðal annars áskilið að maður sé sakaður um   “refsiverðan   verknað„.   Þar   sem   reglur   nr.   1130/2008   voru   ekki   fullgild refsiheimild varðandi þá háttsemi sem kærendum var gefið að sök þá verður að leggja til grundvallar að sú háttsemi hafi verið þeim refsilaus á þeim tíma sem um ræðir. Er því ekki uppfyllt hlutrænt skilyrði 148. gr. almennra hegningarlaga um “refsiverðan verknað„ og þegar af þeirri ástæðu kemur ekki til álita að hefja rannsókn á slíku broti sem kæra kærenda tekur til.“ Í ákvörðun stefnda er því næst tekið til skoðunar hvort til greina komi að hefja lögreglurannsókn vegna ætlaðra brota gegn 141. eða 146. gr. hegningarlaga en komist að þeirri niðurstöðu að slík ætluð sök sé fyrnd. Þá segir í ákvörðuninni: „Með þessum athugasemdum verður hin kærða ákvörðun staðfest.“ Í ályktarorðum ákvörðunarinnar segir: „Ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 11. nóvember 2016, að vísa frá kæru í máli nr. 300-2016-127, er staðfest.“. Ákvörðunin er undirrituð af Daða Kristjánssyni saksóknara 21. febrúar 2017.

Við   aðalmeðferð   málsins   gáfu   skýrslu   sem   vitni   Valtýr   Sigurðsson, fyrrverandi ríkissaksóknari, og Hreiðar Eiríksson, fyrrverandi starfsmaður gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands.

Helstu málsástæður og lagarök stefnanda

Stefnandi vísar til þess að leggja beri til grundvallar að grunur sé uppi um að stefnandi hafi verið hafður fyrir rangri sök af hálfu æðstu embættismanna Seðlabanka   Íslands,   enda   segi   í   ákvörðun   ríkissaksóknara   að   upplýsingagjöf bankans „hafi verið áfátt“. Lögreglu hafi samkvæmt þessu verið skylt að hefja rannsókn málsins, sbr. 2. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008. Kröfugerð stefnanda sé liður í að knýja á um að slík rannsókn fari fram. Af þessu hafi stefnandi lögvarða hagsmuni. Virk refsivarsla, sem stefnandi fari fram á, sé forsenda fyrir vernd stefnanda samkvæmt 2. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 2. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Hún sé einnig forsenda   fyrir   vernd   hans   gegn   beitingu   þvingunarráðstafana   að   ósekju   sem takmarki rétt borgaranna samkvæmt 67., 71. og 72. gr. stjórnarskrár og 5., 8. gr. og 1. gr. 1. viðauka mannréttindasáttmála Evrópu.

Stefnandi telur þetta eiga sérstaklega við þegar ásakanir eigi rætur að rekja til opinberra embættismanna vegna þess vægis sem yfirlýsingar embættismanna hafi   alla   jafnan,   sbr.   4.   mgr.   117.   gr.   laga   nr.   88/2008   og   áskilnað   13.   gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, um raunhæf réttarúrræði þegar opinberir embættismenn hafi gerst brotlegir.

Stefnandi byggir kröfu sína um ógildingu í fyrsta lagi á því að skýring embættisins á 148. gr. almennra hegningarlaga standist enga skoðun. Lögskýringin feli að mati stefnanda í sér svokallaða „hringavitleysu.“ Með henni séu opinberir embættismenn undanþegnir refsiábyrgð, jafnvel þótt þeir viðhafi ósannindi gegn betri vitund, svo að borgarar þurfi að þola afar íþyngjandi rannsóknir, ákæru og mögulega dóm, allt fyllilega að ósekju. Slík undanþága frá refsiábyrgð geti aldrei helgast af því að atvikin sem ranglega er greint frá varði grundvöll refsiheimildarinnar sjálfrar. Þegar svo hátti til sé það þvert á móti til þess fallið að gera misgjörðina alvarlegri og refsiverndina mikilvægari. Einnig verði að horfa til þess að lögregla beitti þvingunarúrræðum, með atbeina dómstóla, og sérstakur saksóknari hafi gefið út ákæru fyrir ætluð brot á reglum nr. 1130/2008. Þær aðgerðir lögreglu, ákæruvalds og dómstóla hljóti að hafa grundvallast á þeirri afstöðu að ásökun Seðlabankans væri um „refsiverðan verknað.“ Aðrar útskýringar komi   ekki   til   álita.   Stefnandi   vísar   einnig   til   refsiþyngingarákvæðis   138.   gr. hegningarlaga þegar opinber starfsmaður gerist sekur um refsilagabrot sem telja verði misnotkun á stöðu hans. Grunsemdir um rangan sakaráburð embættismanna verði því ekki léttvægar fundnar.

Í annan stað byggir stefnandi kröfu sína á því að sá saksóknari sem tók ákvörðunina, Daði Kristjánsson, hafi verið vanhæfur til töku hennar þar sem hann hafi verið undirmaður Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara, sem hafi komið að rannsókn málsins með mjög sérstökum hætti og því verið vanhæfur til meðferðar málsins. Við munnlegan flutning málsins var því einnig hreyft af hálfu stefnanda að embætti stefnda hefði í heild sinni verið vanhæft til meðferðar málsins þar sem téður Helgi Magnús hefði verið yfirmaður þess auk þess sem fyrrverandi ríkissaksóknari   hefði   komið   að   rannsókn   málsins.   Hefði   því   borið   að   setja ríkissaksóknara til meðferðar máls stefnanda. Með hliðsjón af úrlausn málsins er ekki ástæða til að rekja nánar málsástæður og lagarök stefnanda um þetta atriði.

Helstu málsástæður og lagarök stefnda

Við   munnlegan   flutning   málsins   taldi   stefndi   það   hafa   þýðingu   fyrir málatilbúnað   sinn   að   ákvörðun   stefnda   væri   þess   eðlis   að   hún   sætti   ekki endurskoðun dómstóla samkvæmt 1. mgr. 24. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og dómaframkvæmd. Í öllu falli væri hér um að ræða þá aðstöðu að endurskoðunarvald dómstóla væri takmarkað. Ákvörðun stefnda væri endanleg og yrði ekki borin undir dómstóla. Væri það ákæruvaldið sem færi með endanlega ákvörðun um það hvort af rannsókn eða saksókn yrði og gæti það ekki átt undir dómstóla að endurskoða þá ákvörðun.

Að   því   er   varðar   lagagrundvöll   ákvörðunar   stefnda   er   byggt   á   sömu ástæðum og færðar eru fram í áðurlýstri ákvörðun stefnda. Stefnda sé heimilt samkvæmt 1. málslið 4. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008 að vísa kæru um brot frá ef ekki   þykja   efni   til   að   hefja   rannsókn   út   af   henni.   Stefndi   vísar   til   þess   að ákæruvaldið hafi metið það svo í máli stefnanda að umræddar reglur nr. 1130/2008 hefðu ekki verið fullnægjandi refsiheimild þar sem skort hefði samþykki ráðherra. Afstaða stefnda, sem um sé deilt í málinu, hafi byggt á því að refsiábyrgð brota gegn 148. gr. almennra hegningarlaga komi því aðeins til álita að uppfyllt séu hlutlæg og huglæg refsiskilyrði. Hafi stefndi talið að þar sem reglurnar fyrrnefndu væru ekki gild refsiheimild vegna þeirrar háttsemi sem stefnanda var gefin að sök yrði að leggja til grundvallar að háttsemin hefði verið honum refsilaus. Væri því ekki uppfyllt hlutrænt skilyrði refsingar í ljósi 148. gr. almennra hegningarlaga. Hafi því ekki komið til álita að hefja rannsókn á broti sem kæra stefnanda tók til. Stefndi vísar einnig til þess að hann hafi að eigin frumkvæði tekið til sérstakrar athugunar hvort til greina kæmi að hefja rannsókn á ætluðu broti gegn 141. gr. eða 146. gr. almennra hegningarlaga.

Stefndi byggir á því að framangreindar ástæður hafi réttilega og að lögum leitt til þess að staðfesta hafi borið ákvörðun lögreglustjóra um að vísa kærunni frá. Lögreglu hafi því ekki verið skylt að hefja rannsókn eða stefnda að mæla fyrir um hana á grundvelli 52. gr. laga nr. 88/2008. Hin ætluðu brot sæti ákæru og rannsókn ef skilyrði eru til. Ákvæði 70. gr. stjórnarskrárinnar eða 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, tryggi ekki rétt stefnanda til að knýja á um rannsókn ef ákæruvaldið telur ekki skilyrði til. Hafnar stefndi því einnig að önnur tilvitnuð ákvæði stjórnarskrár og sáttmálans í stefnu styðji kröfur stefnanda.

Stefndi hafnar því að Daði Kristjánsson saksóknari hafi verið vanhæfur til meðferðar málsins hjá stefnda. Því er sérstaklega mótmælt að ákvörðunin hafi verið tekin í skjóli Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara sem komið hafi að rannsókn   á   fyrri   stigum   enda   hafi   skipaður   ríkissaksóknari   verið   við   störf   á umræddum tíma og vararíkissaksóknari aldrei sinnt starfi sem staðgengill hennar. Við munnlegan flutning málsins hafi sjónarmiðum stefnda um vanhæfi embættis stefnda einnig verið mótmælt sem nýrri málsástæðu sem auk þess skorti heimild í íslenskum lögum. Með hliðsjón af úrlausn málsins þykir ekki ástæða til þess að reifa frekar málsástæður og lagarök stefnda um ætlað vanhæfi þess saksóknara sem fór með málið á vegum stefnda og hugsanlegt ógildi ákvörðunarinnar á þeim grundvelli.

Niðurstaða

Í máli þessu krefst stefnandi ógildingar þeirrar ákvörðunar stefnda, sem tekin var á grundvelli 6. mgr. 52. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með síðari breytingum, að staðfesta ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 11. nóvember 2016 um að hefja ekki sakamálarannsókn í tilefni af kæru stefnanda 14. október það ár. Krafa stefnanda beinist þannig að ákvörðun stefnda, sem er stjórnvald í skilningi 2. gr. stjórnarskrár lýðveldisins nr. 33/1944, í stjórnsýslumáli sem   hann   var   aðili   að.   Þótt   stefndi   njóti   sjálfstæðis   gagnvart   öðrum   þáttum framkvæmdavalds og fari með endanlegt ákvörðunarvald um tiltekin efni, sem stjórnvald,   er   honum   ekki   falið   fullnaðarúrskurðarvald   eða   ákvarðanir   hans undanskildar lögsögu dómstóla með lögum. Hvað sem líður svigrúmi stefnda til mats við meðferð valdheimilda sinna, meðal annars um það hvort hefja skuli lögreglurannsókn   vegna   gruns   um   að   refsivert   brot   hafi   verið   framið,   verður ályktun um fullnaðarúrskurðarvald ekki heldur leidd af stöðu stefnda, eðli téðrar ákvörðunar eða ólögfestum sjónarmiðum. Fer dómurinn því með úrskurðarvald samkvæmt 2. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig 60. og 72. gr. stjórnarskrárinnar, um það hvort stefndi hafi farið að lögum við ákvörðun sína og hvort slíkir annmarkar séu á ákvörðuninni, að formi eða efni til, að leiði til ógildis hennar, svo sem á er byggt af stefnanda.

A

Ákvörðun um hefja rannsókn á ætlaðri refsiverðri háttsemi er í höndum lögreglu, en ríkissaksóknari getur þó gefið lögreglu fyrirmæli um að hefja rannsókn, svo og um nánari framkvæmd rannsóknar, sbr. 1. og 2. mgr. 52. gr., sbr. 10. gr. laga nr. 47/2015, og 3. mgr. 21. gr. laga nr. 88/2008. Ákvörðun um rannsókn er að jafnaði án tillits til þess hvort kæra hefur borist lögreglu og tekur lögregla ákvörðun um rannsókn án þess að gefa þeim sem í hlut á kost á að tjá sig um þá ákvörðun. Af ákvæðum laga nr. 88/2008, svo og eðli málsins, verður dregin sú ályktun að ákvörðun um rannsókn sakamáls sé ekki einungis háð mati lögreglu á staðreyndum og túlkun refsilaga heldur einnig ýmsum öðrum atriðum, jafnvel efnahagslegum og félagslegum   þáttum.   Það   er   ekki   í   valdi   dómsins   að   taka   ákvörðun   um lögreglurannsókn eða mæla fyrir um skyldu stjórnvalda til að hefjast handa við slíka rannsókn. Svo sem áður greinir er það hins vegar dómsins að skera úr um hvort stefndi hafi gætt réttra laga við meðferð máls stefnanda og ákvörðun í því, þ.á m. hvort sú túlkun refsilaga sem stefndi reisir niðurstöðu sína á sé tæk.

Því er áður lýst að hin umdeilda ákvörðun stefnda var grundvölluð á því að stefnandi   hefði   ekki   verið   sakaður   um   refsiverða   háttsemi   með   fyrrgreindri tilkynningu Seðlabanka Íslands til Fjármálaeftirlitsins 11. nóvember 2009 þar sem reglur   nr.   1130/2008   um   gjaldeyrismál   hefðu   ekki   falið   í   sér   fullnægjandi refsiheimild. Væri því ekki fullnægt því hlutræna skilyrði 148. gr. hegningarlaga að með tilkynningunni, eða öðrum athöfnum og athafnaleysi bankans í framhaldi tilkynningarinnar,   hefði   stefndi   verið   sakaður   um   refsiverðan   verknað.   Var ákvörðun lögreglustjóra 11. nóvember 2016 staðfest með „þessum athugasemdum“ án þess að tekin væri rökstudd afstaða til efnislegs rökstuðnings lögreglustjóra fyrir því að hafna kæru stefnanda.

B

Með 148. gr. hegningarlaga er lögð refsing við því að koma því til leiðar, með rangri kæru, röngum framburði, rangfærslu eða undanskoti gagna, öflun falsgagna eða á annan hátt, að saklaus maður verði sakaður um eða dæmdur fyrir refsiverðan verknað. Samkvæmt framangreindu getur ekki farið á milli mála að nægilegt er til fullframningar brots samkvæmt 148. gr. hegningarlaga að maður komi því til leiðar að saklaus maður sé sakaður um brot án þess að ásetningur þurfi að vera til þess að hann verði dæmdur fyrir refsiverðan verknað af dómstólum. Er enn fremur ljóst að ásökun um refsiverðan verknað, án tillits til endanlegrar niðurstöðu málsins, kann að vera íþyngjandi fyrir saklausan mann með margvíslegum hætti, auk þess sem augljósir   almannahagsmunir   standa   til   þess   að   handhafar   rannsóknar-   og ákæruvalds saki ekki menn um refsiverðan verknað gegn betri vitund.

Að mati dómsins verður tilkynning Seðlabanka Íslands 11. nóvember 2009 ekki skilin á aðra leið en þá að háttsemi stefnanda sé þar talin varða við refsilög, meðal   annars   áðurgreindar   reglur   nr.   1130/2008.   Svo   sem   áður   greinir   leiddi tilkynningin til lögreglurannsóknar og að lokum til þess að sérstakur saksóknari gaf út   ákæru   22.   mars   2013   vegna   ætlaðra   brota   stefnanda   og   þriggja   annarra nafngreindra manna, meðal annars gegn reglum nr. 1130/2008. Seðlabanki Íslands var á þeim tíma sem hér um ræðir það stjórnvald sem fór með framkvæmd og frumeftirlit laga um gjaldeyrismál og reglna sem settar höfðu verið samkvæmt þeim lögum. Eðli málsins samkvæmt hlaut því í téðri tilkynningu bankans að felast ásökun um refsiverðan verknað stefnanda í skilningi 148. gr. hegningarlaga, hverjar svo sem endanlegar lyktir málsins kynnu að verða, eftir atvikum fyrir dómstólum. Myndi   það   þar   af   leiðandi   ekki   hagga   fullframningu   brots,   að   fullnægðum huglægum refsiskilyrðum, þótt hlutaðeigandi starfsmenn hefðu haft vitneskju um að þær refsiheimildir sem vísað var til væru ógildar og líklegt væri að málinu kynni að endingu að lykta með sýknu fyrir dómstólum. Á þetta því frekar við að umrædd tilkynning Seðlabanka Íslands leiddi til ýmissa þvingunarráðstafana og þess að formleg ákæra var gefin út gegn stefnanda og stefnandi því í reynd saksóttur fyrir brot gegn téðum reglum.

C

Samkvæmt   framangreindu   er   það   álit   dómsins   að   sú   skýring   á   148.   gr. hegningarlaga sem stefndi reisti ákvörðun sína á fái ekki samræmst lögum. Líkt og áður greinir verður því ekki fundinn nægilegur staður að ákvörðun stefnda hafi einnig verið á því reist að ekki væru fyrir hendi nægilegar vísbendingar um að starfsmenn Seðlabanka Íslands hefðu af ásetningi skýrt ranglega frá atvikum í máli stefnanda í því skyni að hann yrði sakaður eða dæmdur saklaus fyrir refsiverðan verknað,   sbr.   hins   vegar   rökstuðning   lögreglustjórans   á   höfuðborgarsvæðinu   í ákvörðun embættisins 11. nóvember 2016. Þvert á móti verður ekki önnur ályktun dregin af ákvörðun stefnda en að endurskoðun á þessu mati lögreglunnar hafi verið talin óþörf.

Að öllu þessu virtu eru annmarkar á lagalegum grundvelli ákvörðunar stefnda svo verulegir að ekki verður hjá því komist að fella hana úr gildi að kröfu stefnanda, svo sem nánar greinir í dómsorði. Það athugast að með þeirri niðurstöðu er engin afstaða tekin til gildis ákvörðunar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 11. nóvember 2016, sem ekki er til úrlausnar í málinu.

Eftir   úrslitum   málsins   verður   stefndi   dæmdur   til   að   greiða   stefnanda málskostnað samkvæmt 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sem þykir hæfilega ákveðinn 1.000.000 króna að teknu tilliti til virðisaukaskatts og frávísunarþáttar málsins.

Af hálfu stefnanda flutti málið Eva Halldórsdóttir lögmaður.

Af hálfu stefnanda flutti málið Einar Karl Hallvarðsson lögmaður.

Skúli Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákvörðun stefnda, ríkissaksóknara, 21. febrúar 2017 í máli nr. 300-2016-127 er felld úr gildi.

Stefndi, ríkissaksóknari, greiði stefnanda, X, 1.000.000 króna í málskostnað.

Skúli Magnússon

Heimildaskrá