Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 26. apríl 2017.
Mál nr. E-1015/2017:
Lykilorð
Forkaupsréttur. Hlutafélög. Önnur mál.
Útdráttur
Eignarréttur M að hlutabréfum í RB var viðurkenndur þar sem ekki var fallist á að S hefði orðið eigandi að bréfunum á grundvelli forkaupsréttar.
Með úrskurði héraðsdóms 16. október 2017 var málinu í heild vísað frá dómi. Með dómi Hæstaréttar 28. nóvember 2017 í máli nr. 696/2017 var úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi að því er varðaði frávísun á gagnsök, Mentis ehf., gegn Sparisjóði Höfðhverfinga ses. og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið að því leyti til efnismeðferðar. Var heiti málsins og tilgreiningu aðila breytt til samræmis við þetta með samþykki aðila við fyrrgreinda aðalmeðferð málsins 2. mars sl.
Helstu ágreiningsefni og yfirlit málsatvika
Stefnandi og réttargæslustefndi Sparisjóður Austurlands hf. gerðu með sér samning um kaup hins fyrrnefnda á 381.841 hlut í réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. með þeim samningi sem vísað er til í kröfugerð stefnanda. Ekki er um það deilt að stefndi, sem hluthafi í félaginu, naut forkaupsréttar við söluna. Lýtur ágreiningur aðila að því hvort stefndi hafi nýtt sér forkaupsrétt sinn með lögmætum hætti með yfirlýsingu til réttargæslustefndu Reiknistofu bankanna hf. í tölvubréfi 18. maí 2016 og þannig gengið með gildum hætti inn í kaupin. Málsatvik eru að meginstefnu ágreiningslaus.
A
Nánari tildrög málsins eru þau að 18. apríl 2016 gerðu fyrirsvarsmaður stefnanda og réttargæslustefndi Sparisjóður Austurlands hf. með sér samning um kaup hins fyrrnefnda á 381.841 hlut í réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. að nafnvirði 1 króna hver. Kaupverð hlutanna nam 4.148.869 króna og skyldi það greitt í reiðufé við afhendingu hins selda. Samkvæmt kaupsamningnum gerði fyrirsvarsmaðurinn samninginn fyrir hönd óstofnaðs einkahlutafélags, sem yrði að fullu í hans eigu og tæki við öllum réttindum og skyldum hans sem kaupanda. Ekki er um það deilt að téð félag fyrirsvarsmannsins er stefnandi, sem mun hafa verið stofnaður 30. apríl 2016, og tók það við réttindum og skyldum samkvæmt samningnum. Sama dag, 18. apríl 2016, gerði stefndi annan kaupsamning við Samband íslenskra sparisjóða um kaup á hlutum sambandsins í réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. Er annað dómsmál rekið samhliða máli þessu vegna þeirra viðskipta og forkaupsréttar stefnda vegna þeirra.
Samkvæmt grein 3.1 í fyrrgreindum kaupsamningi skyldi réttargæslustefndi Sparisjóður Austurlands hf. afhenda kaupanda hið selda fimm dögum eftir að „30 daga forkaupsréttarfrestur samkvæmt gr. 2.8. í samþykktum félagsins [þ.e. Reiknistofu bankanna hf.] rennur út.“ Í grein 3.3 sagði að aðilar myndu tilkynna eigendaskipti að hinu selda til hluthafaskrár félagsins við afhendingu. Samkvæmt grein 4.1 samningsins átti kaupandi að taka við öllum réttindum og skyldum „samkvæmt hinu selda, þ.m.t. rétti til arðgreiðslna, jöfnunarhluta, áskriftar að nýjum hlutum og útborgunar vegna lækkunar hlutafjár félagsins, frá afhendingu hins selda. Þá átti kaupandi frá afhendingu hins selda að taka við réttindum og skyldum seljanda samkvæmt tveimur samningum, sem seljandi hafði undirritað og gert við aðra hluthafa og við hið selda félag, sbr. grein 4.2 kaupsamningsins. Nánar tiltekið var, annars vegar, um að ræða samkomulag 14. desember 2010 milli tiltekinna hluthafa og hins vegar hluthafasamkomulag 15. sama mánaðar. Þessir samningar fylgdu kaupsamningnum sem viðaukar.
Í grein 2.8 í samþykktum réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. sagði eftirfarandi: „Hluthafar hafa forkaupsrétt að hlutum í hlutfalli við hlutafjáreign sína. Forkaupsréttarhafi hefur 30 daga frest til að beita forkaupsrétti sínum og telst fresturinn frá tilkynningu stjórnar um tilboð. Eigi mega líða fleiri en þrír mánuðir frá því kaup voru ákveðin þar til kaupverð er greitt.
Í grein 5.1 fyrrgreinds hluthafasamkomulags voru einnig ákvæði um forkaupsrétt hluthafa réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. Í grein 5.1.1 sagði meðal annars eftirfarandi: „Samþykki hlutahafi sölu hluta sinna í félaginu, að hluta til eða í heild, skulu aðrir hluthafar eiga forkaupsrétt að hinum seldu hlutum í réttu hlutfalli við hlutafjáreign sína, í samræmi við ákvæði samþykkta félagsins. Kjósi einn eða fleiri forkaupsréttarhafa að neyta ekki forkaupsréttar skal réttur hinna aukast í réttu hlutfalli við hlutafjáreign.“ Grein 5.1.2 var svohljóðandi: Forkaupsréttarhöfum skal þegar tilkynnt skriflega um fyrirhuguð viðskipti og það verð og skilmála sem liggja þeim grundvallar. Skulu forkaupsréttarhafar eiga rétt á því að ganga inn í kauptilboð á því verði og með þeim skilmálum sem náðst hefur samkomulag um milli seljanda og kaupanda, sbr. þó ákvæði samþykkta félagsins.“ Í grein 5.1.3 sagði eftirfarandi: „Forkaupsréttarhafar skulu tilkynna seljanda um það hvort hann hyggist neyta forkaupsréttarins innan 30 daga frá því að honum barst sannanlega tilkynning um framkomið tilboð.“
B
Með bréfi réttargæslustefnda Sparisjóðs Austurlands hf. 18. apríl 2016, sem sent var réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. með tölvubréfi kl. kl. 11:58 sama dag, tilkynnti sparisjóðurinn að hann hefði samþykkt það tilboð í hlut sjóðsins í félaginu sem áður er lýst. Var stefnandi þar tilgreindur sem kaupandi. Með vísan til greinar 2.8 í samþykktum félagsins óskaði réttargæslustefndi Sparisjóður Austurlands hf. einnig eftir því að félagið tilkynnti hluthöfum án tafar um hið samþykkta tilboð.
Daginn eftir eða 19. apríl 2016 kl. 13:57 sendi lögfræðingur réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. út tölvubréf til hluthafa þar sem tilkynnt var um fyrrgreint samþykki réttargæslustefnda Sparisjóðs Austurlands hf. á tilboði stefnanda. Í bréfinu sagði eftirfarandi: „Samkvæmt grein 2.8 í samþykktum RB hafa hluthafar forkaupsrétt að hlutum í hlutfalli við hlutafjáreign sína. Forkaupsréttarhafi hefur 30 daga frest til að beita forkaupsrétti sínum og telst fresturinn frá tilkynningu stjórnar um tilboð.“ Með tölvubréfinu fylgdu bréf réttargæslustefnda Sparisjóðs Austurlands hf. til félagsins frá 18. apríl 2016 sem og kaupsamningur sjóðsins og stefnanda.
Hinn 18. maí 2016 sendi stefnandi tilkynningu til réttargæslustefnda Sparisjóðs Austurlands hf. um að stefnandi, sem eigandi að 5,37% hluta í Reiknistofu bankanna hf., hefði ákveðið að neyta forkaupsréttar að öllum þeim hlutum sem félaginu væri heimilt að kaupa.
Hinn 18. maí 2016, kl. 18:23, sendi fyrirsvarsmaður stefnda tölvubréf til réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. vegna tilkynningarinnar frá 19. apríl s.á., með eftirfarandi orðum: „Sparisjóður Höfðhverfinga hefur ákveðið að nýta forkaupsrétt sinn vegna neðangreindra kaupsamninga, milli Sambands íslenskra sparisjóða annars vegar og Sparisjóðs Austurlands hins vegar við Mentis ehf.“. Síðar sama dag eða kl. 19.09, sendi lögfræðingur réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. hluthöfum tilkynningu þar sem minnt var á að frestur forkaupsréttarhafa rynni út 19. maí 2016 kl. 13:57. Jafnframt var upplýst að stefndi hefði tilkynnt að hann hygðist nýta forkaupsrétt sinn.
Hinn 19. maí 2016 sendi lögfræðingur réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. hluthöfum tilkynningu þar sem vísað var til fyrri tilkynningar vegna forkaupsréttar sem send var hluthöfum félagsins „í umboði Sparisjóðs Austurlands hf. og Sambands íslenskra Sparisjóða“. Þar kom fram að frestur til að nýta forkaupsrétt hefði runnið út þá um daginn kl. 13:57. Jafnframt kom þar fram að stefndi hefði tilkynnt að hann hygðist nýta sér forkaupsrétt sinn. Þá sagði að meðfylgjandi tölvubréfinu væri skeyti frá „Sparisjóði Austurlands hf. og Sambandi íslenskra sparisjóða til RB þar sem tilkynnt er um póst frá Gísla Heimissyni, f.h. Mentis ehf. um að þeir hyggist nýta forkaupsrétt sinn og svarskeyti RB í tilefni þess, […] Bendir RB á að þeir sem nefndir séu í skeyti Sparisjóðs Austurlands og Sambandi íslenskra sparisjóða séu ekki skráðir hluthafar og eigi því ekki forkaupsrétt“.
Ekki er um það deilt að stefnandi hefur greitt réttargæslustefnda Sparisjóði Austurlands hf. umsamið kaupverð fyrir hina keyptu hluti í réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. og hafa hlutirnir verið afhentir stefnanda. Á hinn bóginn hefur réttargæslustefndi Reiknistofa bankanna hf. ekki skráð stefnanda sem eiganda hlutanna í hlutaskrá vegna ágreinings málsaðila. Í gagnstefnu er því lýst að af þessum sökum sé stefnanda nauðsynlegt að höfða mál þetta til viðurkenningar á því að hann njóti eignarréttar að hinu keypta hlutafé í samræmi við ákvæði kaupsamningsins 18. apríl 2016.
Ekki var um að ræða munnlegar skýrslur við aðalmeðferð málsins.
Helstu málsástæður og lagarök stefnanda
Stefnandi byggir kröfu sína á því að hann njóti eignarréttar að hinum keyptu hlutum í réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. sem hann hafi þegar fengið afhenta. Því er mótmælt að stefndi hafi, svo gilt sé, nýtt ætlaðan forkaupsrétt sinn að umræddum hlutabréfum. Stefnandi leggur á það áherslu að við úrlausn um forkaupsrétt stefnda og beitingu hans verði almennt að horfa til þess að forkaupsréttur feli í sér takmörkun á samningsfrelsi og eignarrétti. Verði því slíkur réttur jafnan ekki skýrður rýmkandi gagnvart eiganda hagsmuna og viðsemjanda hans.
Stefnandi vísar til þess að stefndi hafi ekki neytt forkaupsréttar innan 30 daga tímafrests samkvæmt grein 2.8 samþykkta félagsins. Hafi 30 daga frestur til nýtingar réttarins verið runninn út þegar stefndi beindi tilkynningu sinni til réttargæslustefnda 18. maí 2016. Stefnandi vísar í þessu sambandi til b-liðar 1. mgr. 22. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög þar sem kveðið er á um að í samþykktum félags skuli vera ákvæði um „frest er forkaupsréttarhafi hefur til að beita forkaupsrétti sínum sem lengstur má vera tveir mánuðir, og telst fresturinn frá tilkynningu til stjórnar um tilboð.“ Samkvæmt tilvísuðu lagaákvæði, sem telja verði ófrávíkjanlegt varðandi upphafstíma slíks frests, hafi 30 daga frestur samkvæmt gr. 2.8 samþykktanna byrjað að líða 18. apríl 2016 kl. 11:58, þ.e. þegar réttargæslustefndi Sparisjóður Austurlands hf. tilkynnti réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. um kaupin. Jafnvel þótt miðað væri við 30 daga tímafrests til nýtingar á forkaupsrétti frá „tilkynningu stjórnar“ telur stefnandi að fresturinn hafi verið liðinn 18. maí 2016, kl. 18:23. Engin haldbær rök séu til þess að miða upphaf 30 daga tímafrests, sbr. gr. 2.8 samþykktanna, við næsta dag á eftir 18. apríl 2016.
Stefnandi byggir málatilbúnað sinn einnig á því að stefndi hafi ekki beint tilkynningu um nýtingu forkaupsréttar til aðila sem var bær til veita henni viðtöku að lögum, þ.e. réttargæslustefnda Sparisjóðs Austurlands hf. Með hliðsjón af úrlausn málsins er ekki ástæða til að gera nánari grein fyrir málsástæðum og lagarökum stefnanda varðandi þessi atriði eða varakröfu stefnanda.
Helstu málsástæður og lagarök stefnda
Stefndi byggir sýknukröfu sína í fyrsta lagi á því að krafa stefnanda samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála geti ekki beinst að stefnda. Jafnframt sé aðildarskortur til sóknar þar sem réttargæslustefndi Sparisjóður Austurlands hf. sé ekki stefnandi í málinu, en sjóðurinn sé skráður eigandi þeirra hluta sem krafa stefnanda byggist á. Þegar af þessum ástæðum beri að sýkna stefnda á grundvelli aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991.
Stefndi grundvallar sýknukröfu sína að öðru leyti á því að hann hafi nýtt sér forkaupsrétt að hinum umdeildu hlutum með lögmætum hætti og sé því réttur eigandi þeirra. Óumdeilt sé að hann njóti forkaupsréttar að hlutum í réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. á grundvelli samþykkta félagsins, hluthafasamkomulags og laga um hlutafélög. Stefndi hafi tilkynnt um nýtingu forkaupsréttarins og greitt kaupverð umræddra hluta inn á vörslureikning, þar sem greiðslufyrirmæli hefðu ekki borist frá seljanda. Þannig hafi stefndi efnt skyldur sínar, sem forkaupsréttarhafi, að öllu leyti.
Stefndi vísar til þess að hann hafi nýtt forkaupsrétt sinn innan tímamarka. Hann telur að bæði ákvæði samþykkta réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. og fyrrgreint hluthafasamkomulag mæli skýrlega fyrir um að fresturinn teljist frá tilkynningu stjórnar um tilboð og tilkynna skuli um nýtingu forkaupsréttarins innan 30 daga frá því að sannanlega er tilkynnt um tilboðið. Stefnda hafi ekki verið tilkynnt um tilboðið með sannanlegum hætti fyrr en 19. apríl 2016. Þegar af þeirri ástæðu sé augljóst að tilkynning stefnda um nýtingu forkaupsréttarins 18. maí 2016 hafi verið vel innan tímamarka. Stefndi áréttar að hann telji að grein 2.8 í samþykktum réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. standist lög. Ákvæði b- liðar 1. mgr. 22. gr. laga um hlutafélög fjalli um hámarksfrest við nýtingu forkaupsréttar, en þar sé ekki að finna ófrávíkjanlega reglu um upphaf frestsins. Málsástæða stefnanda að þessu leyti sé í ósamræmi við ákvæðið og einnig í hróplegu ósamræmi við framkvæmd þeirra viðskipta sem hér um ræði. Stefndi mótmælir málsástæðu stefnanda á þá leið að fresturinn hafi verið liðinn jafnvel þótt miðað sé við tilkynningu réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. 19. apríl 2016 og þeirri fullyrðingu að við þær aðstæður hafi 30 dagar verið liðnir 18. sama mánaðar. Telur hann að fresturinn hafi í öllu falli ekki runnið út fyrr en í fyrsta lagi á miðnætti aðfaranætur 20. maí 2016 eða að morgni þess dags.
Stefndi hafnar einnig þeirri málsástæðu stefnanda að hann hafi ekki beint tilkynningu um nýtingu forkaupsréttarins til aðila sem var bær til að veita henni viðtöku. Með hliðsjón af úrlausn málsins er ekki ástæða til að gera nánari grein fyrir málsástæðum og lagarökum stefnda um þessi atriði eða málsástæðum og lagarökum stefnda vegna varakröfu stefnanda.
Niðurstaða
Af málatilbúnaði stefnda verður ráðið að hann telji sig hafa orðið eiganda að þeim hlutum í réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf., sem vísað er til í kröfugerð stefnanda, á grundvelli fyrrgreindrar yfirlýsingar sinnar um beitingu forkaupsréttar 18. maí 2016. Eins er ljóst af gögnum málsins að réttargæslustefndi Sparisjóður Austurlands hf. hefur gert samning um sölu hlutanna til stefnanda og er sá samningur meðal gagna málsins. Verður ekki önnur ályktun dregin af gögnum málsins en að þessi réttargæslustefndi, sem ekki hefur látið málið til sín taka, telji sig ekki lengur eiganda hlutanna þrátt fyrir að vera skráður sem slíkur á hluthafaskrá. Liggur og fyrir að réttargæslustefndi Reiknistofa bankanna hf. hefur, vegna ágreinings málsaðila, synjað um skráningu stefnanda sem eiganda hlutanna í hluthafaskrá. Fellst dómurinn því ekki á að réttur aðili til sóknar í málinu sé réttargæslustefndi Sparisjóður Austurlands hf. þannig að sýkna beri stefnda af kröfu stefnanda vegna aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991.
Samkvæmt 22. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög má í samþykktum félags ákveða að við eigendaskipti að hlut önnur en við erfð eða búskipti skuli hluthafar eða aðrir hafa forkaupsrétt. Í samþykktum skulu þá vera nánari reglur um þetta efni og skal þar meðal annars greina ákvæði um frest er forkaupsréttarhafi hefur til að beita forkaupsrétti sínum sem lengstur má vera tveir mánuðir, og telst fresturinn frá tilkynningu til stjórnar um tilboð, sbr. b-lið 1. mgr. greinarinnar. Þessi heimild var nýtt með grein 2.8 í samþykktum réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. og grein 5 í áðurlýstum hluthafasamningi. Er ekki um það deilt að þar er gert ráð fyrir því að þessi frestur sé 30 dagar en aðila greinir hins vegar á um það við hvað beri að miða upphaf frestsins.
Ákvæði 22. gr. laga nr. 2/1995 eru ófrávíkjanleg, þar á meðal reglan um upphaf frests hluthafa til að nýta forkaupsrétt samkvæmt samþykktum félags. Af fyrrgreindu ákvæði, svo og 3. mgr. greinarinnar, verður dregin sú ályktun að stjórn félags sé ætlað það hlutverk að taka við tilkynningu um samþykkt tilboð og jafnframt að koma upplýsingum um það til hluthafa. Sömu ákvæði bera hins vegar ótvírætt með sér að upphaf frests til að nýta forkaupsrétt miðist við tilkynningu til stjórnar félags um tilboð, en ekki við tilkynningu stjórnarinnar til hluthafa sem fara skal fram þegar í stað. Er hlutverk stjórnar félags, að viðlagðri ábyrgð samkvæmt lögum nr. 2/1995 og almennum reglum, þar af leiðandi einskorðað við að tilkynna hluthöfum þegar í stað um tilboð á grundvelli hluthafaskrár félags. Geta ákvæði í samþykktum réttargæslustefnda Reiknistofunnar eða hluthafasamningi ekki haggað við fortakslausri reglu laganna um upphaf frests hluthafa til að nýta sér forkaupsrétt. Því síður gat stjórn téðs réttargæslustefnda vikið einhliða frá þessum fyrirmælum laganna með tilkynningu sinni til hluthafa 19. apríl 2016.
Samkvæmt framangreindu verður að leggja til grundvallar úrlausn málsins að frestur stefnda til að nýta sér forkaupsrétt sinn vegna áðurlýstra kaupa stefnanda og réttargæslustefnda Sparisjóðs Austurlands hf. hafi byrjað að líða 18. apríl 2016. Hvorki af lögum nr. 2/1995 né öðrum réttarheimildum verður dregin sú ályktun að við nánari ákvörðun upphafstímamarks frestsins beri að miða við annan tíma dags en rauntíma móttöku tilkynningar, enda liggi sá tími fyrir. Verður því að skilja framangreint ákvæði bókstaflega á þá leið að þar sem fyrir liggur með vissu hvenær dags tilkynning hefur borist stjórn félags beri að miða við þá tímasetningu. Samkvæmt þessu rann frestur stefnda, samkvæmt samþykktum réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna og hluthafasamningi, til að nýta sér forkaupsrétt sinn vegna áðurlýstrar sölu hlutabréfa út 18. maí 2016 kl. 11:58 þegar liðnir voru réttir 30 dagar frá því réttargæslustefndi Sparisjóður Austurlands hf. tilkynnti stjórn félagsins um söluna. Var frestur til að neyta forkaupsréttar því liðinn þegar stefndi tilkynnti um nýtingu réttarins til stjórnar réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. 18. maí 2016 kl. 18:23. Af þessari ástæðu gat tilkynning stefnda um nýtingu forkaupsréttar ekki haft þau áhrif að skapa honum eignarrétt að téðum hlutum.
Samkvæmt þessu, svo og að teknu tilliti til áðurlýstrar afstöðu réttargæslustefnda Sparisjóðs Austurlands hf., þykir stefnandi hafa fært nægilegar sönnur á eignarrétt sinn að hinum umdeildu hlutum. Verður því fallist á kröfu hans um viðurkenningu eignarréttar, svo sem nánar greinir í dómsorði og þarf þá ekki að taka afstöðu til þess hvort stefnda var rétt að beina tilkynningu um nýtingu forkaupsréttarins til réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf. Eftir úrslitum málsins verður stefndi dæmdur til að greiða stefnanda málskostnað samkvæmt 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 sem þykir hæfilega ákveðinn 1.500.000 króna að teknu tilliti til virðisaukaskatts og frávísunarþáttar málsins.
Af hálfu stefnanda flutti málið Andri Árnason lögmaður.
Af hálfu stefnda flutti málið Þórir Júlíusson lögmaður.
Skúli Magnússon héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ
Eignarréttur stefnanda, Mentis ehf., að 381.841 hlut í réttargæslustefnda Reiknistofu bankanna hf., að nafnvirði 1 króna hver, sem hann keypti af réttargæslustefnda Sparisjóði Austurlands hf. með kaupsamningi 18. apríl 2016., er viðurkenndur.
Stefndi, Sparisjóður Höfðhverfinga ses., greiði stefnanda 1.500.000 krónur í málskostnað.
Skúli Magnússon