Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

211 dómar fundust

Lög: Lyfjalög nr. 93/1994

Hæstiréttur birt 18. maí 2026 kl. 15:09

48/2025

A (Björgvin Þórðarson lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Erla Svanhvít Árnadóttir lögmaður)

A höfðaði mál gegn S og krafðist þess að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 319/2017 yrði felldur úr gildi og S dæmt til að greiða honum skaðabætur vegna líkamstjóns af völdum nýrnabilunar á lokastigi sem hann rakti til lyfjameðferðar. Byggði hann á því að það væri að rekja til sjaldgæfs og þungbærs fylgikvilla meðferðar með lyfinu og þar með bótaskylt á grundvelli 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. S byggði á því að krafa A væri fyrnd og að tjón hans væri að rekja til eiginleika lyfsins og því ekki bótaskylt, sbr. 3. mgr. 3. gr. laganna. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest að bótakrafa A væri ekki fallin niður fyrir fyrningu. Að teknu tilliti til málatilbúnaðar aðila og niðurstöðu matsgerðar voru ekki talin efni til annars en að leysa úr málinu á þeim grundvelli einvörðungu að áfrýjandi hefði notað lyfið í venjulegum skömmtum. Hæstiréttur vísaði til þess að hvorki í lögum nr. 111/2000 né lögskýringargögnum með þeim væri að finna skilgreiningu eða skýringar á því hvað fælist í hugtakinu eiginleikar lyfs í skilningi 3. mgr. 3. gr. laganna. Hæstiréttur bar saman notkun og skilgreiningu hugtakanna eiginleikar lyfs og aukaverkun í eldri lyfjalögum nr. 93/1994 og núgildandi lyfjalögum nr. 100/2020 svo og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Í öllum reglugerðum væri hugtakið aukaverkun skilgreint sem skaðleg og ótilætluð verkun lyfs sem notað væri í venjulegum skömmtum. Hins vegar væri hugtakið óvænt aukaverkun í öllum reglugerðunum skilgreint sem aukaverkun sem ekki er getið um í samantekt um eiginleika lyfs. Hæstiréttur sló því föstu að hugtakið eiginleikar lyfs í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000 bæri að skýra með þeim hætti að þar væri átt við þá eiginleika sem fram kæmu í viðurkenndri samantekt um eiginleika lyfsins sem birt væri í sérlyfjaskrá og á fylgiseðli þess. Nýrnabilunar væri aðeins getið sem aukaverkunar vegna ofskömmtunar í lýsingu á eiginleikum lyfsins í sérlyfjaskrá og teldist lokastig nýrnabilunar vegna eðlis, alvarleika og afleiðinga vera óvænt aukaverkun sem ekki félli undir eiginleika lyfsins í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000. Var tjón A talið meira en svo að sanngjarnt væri að hann þyrfti að þola það bótalaust í skilningi 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 og voru skilyrði ákvæðisins fyrir greiðslu bóta úr sjúklingatryggingu talin uppfyllt. Var úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 319/2017 því felldur úr gildi og S gert að greiða A bætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2025

E-7026/2023

Lyfjaval ehf (Jón Örn Árnason lögmaður) gegn Lyfjastofnun en og íslenska ríkinu til vara (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Íslenska ríkið sýknað af kröfu lyfsala um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna ákvörðunar Lyfjastofnunar frá 24. febrúar 2023 um smásöluálagningu ávísunarskyldra lyfja árið 2023. Kröfum á hendur Lyfjastofnun vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2025

E-4845/2023

Lyf og heilsa hf (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Lyfjastofnun og til vara íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Íslenska ríkið sýknað af kröfu lyfsala um viðurkenningu á skaðabótaskyldu vegna ákvörðunar Lyfjastofnunar frá 24. febrúar 2023 um smásöluálagningu ávísunarskyldra lyfja árið 2023. Kröfum á hendur Lyfjastofnun vísað frá dómi.

Landsréttur birt 17. maí 2024

483/2022

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn X (Oddgeir Einarsson lögmaður) og Y (Steinbergur Finnbogason lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

X var gefið að sök fíkniefnalagabrot og lyfjalagabrot. Landsréttur vísaði frá héraðsdómi, vegna óskýrleika ákæru, hluta ákæru þar sem X var gefið að sök að hafa allt frá árinu 2013 og til 6. mars 2019 selt og afhent ótilgreindum fjölda fólks lyfseðilsskyld lyf og ávana- og fíknilyf, án þess að hafa til þess markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar, en taldi seinni hlutann þar sem tilgreind voru þau lyf og ávana- og fíknilyf sem X hafði í vörslum sínum í þrjú nánar tilgreind skipti á árunum 2018 og 2019, í sölu- og afhendingarskyni, án þess að hafa markaðs- og lyfsöluleyfi Lyfjastofnunar, uppfylla kröfur um skýrleika ákæru, sbr. c-lið 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu X af þeim hluta sakargifta sem eftir stóðu. Þá var X sakfelldur fyrir vopnalagabrot með því að hafa haft nánar tilgreind vopn í vörslum sínum. Loks var X sakfelldur fyrir peningaþvætti með því að hafa, á tímabilinu frá 28. september 2012 til 30. október 2018, tekið við, nýtt, umbreytt, afhent og/eða aflað sér ávinnings allt að 84.449.884 krónum með sölu og dreifingu sinni á ótilteknu magni lyfja, sbr. I. kafla ákæru, og eftir atvikum með öðrum ólögmætum og refsiverðum hætti. Y var jafnframt gefið að sök peningaþvætti með því að hafa, á tímabilinu frá 28. september 2012 til 30. október 2018 tekið við, nýtt, umbreytt, afhent og/eða aflað sér ávinnings allt að fjárhæð 23.826.637 krónum, sem talinn var kominn til af refsiverðum brotum X og eftir atvikum öðrum ólögmætum og refsiverðum hætti. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki væri um að ræða aðra lýsingu á frumbrotinu en tilvísun til refsiverðra brota X, án frekari afmörkunar, og eftir atvikum til annarrar ólögmætrar og refsiverðrar háttsemi. Enga aðra tilvísun væri þar að finna til þeirra frumbrota sem Y væri talin hafa haft ávinning af, né heldur hvers efnis þau frumbrot væru eða eftir atvikum hvaða brotaflokki þau tilheyrðu. Þá væri í ákærunni ekki að finna fullnægjandi lýsingu á því í hverju sú öflun ávinnings fólst, af hálfu Y umfram það sem hefði falist í frumbrotum X. Yrði því ekki talið að nægileg lýsing kæmi fram í ákærunni á þeirri refsiverðu háttsemi sem ákæran á hendur Y byggði á um þetta atriði. Var þegar af þessum sökum talið að lýsing ákæruefnisins uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um skýrleika og að ágallarnir væru verulegir. Var því óhjákvæmilegt að vísa sakargiftum á hendur Y frá héraðsdómi án kröfu. Við ákvörðun refsingar X var litið til 1., 5. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr., 77. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í tvö ár. Þá var staðfest ákvæði héraðsdóms um upptöku nánar tilgreindra ávana- og fíknilyfja, eignarhluta í tilgreindri fasteign, vopna, peninga og muna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. maí 2024

E-4169/2021

Lyf og heilsa hf og Jóhanna Guðmundsdóttir (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Lyfjastofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnenda um að ógilt yrði með dómi ákvörðun stefndu, um að synja stefnendum um undanþágu frá mönnunarákvæði lyfjalaga, þar sem stefnda braut gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga við meðferð málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. maí 2024

E-4168/2021

Lyf og heilsa hf og Hlíf Sigríður Vilhelmsdóttir (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Lyfjastofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnenda um að ógilt yrði með dómi ákvörðun stefndu, um að synja stefnendum um undanþágu frá mönnunarákvæði lyfjalaga, þar sem stefnda braut gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga við meðferð málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. maí 2024

E-4167/2021

Lyf og heilsa hf og Renata Monika Hacz (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Lyfjastofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnenda um að ógilt yrði með dómi ákvörðun stefndu, um að synja stefnendum um undanþágu frá mönnunarákvæði lyfjalaga, þar sem stefnda braut gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga við meðferð málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. maí 2024

E-4166/2021

Lyf og heilsa hf og Jóhanna Baldvinsdóttir (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Lyfjastofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnenda um að ógilt yrði með dómi ákvörðun stefndu, um að synja stefnendum um undanþágu frá mönnunarákvæði lyfjalaga, þar sem stefnda braut gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga við meðferð málsins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. maí 2024

E-4165/2021

Lyf og heilsa hf og Adda Björk Brynjarsdóttir (Ólafur Eiríksson lögmaður) gegn Lyfjastofnun (Fanney Rós Þorsteinsdóttir lögmaður)

Fallist var á kröfu stefnenda um að ógilt yrði með dómi ákvörðun stefndu, um að synja stefnendum um undanþágu frá mönnunarákvæði lyfjalaga, þar sem stefnda braut gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga við meðferð málsins.

Landsréttur birt 15. desember 2023

139/2023

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Ottó Erni Þórðarsyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

O var sakfelldur með dómi héraðsdóms 19. maí 2017 fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots með því að hafa, í félagi við aðra, fjármagnað, skipulagt og staðið að tilraun til innflutnings á samtals 3735 g af amfetamíni til landsins. Þá var hann sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa í eitt skipti haft í vörslum sínum 130,04 g af maríhúana og 14 kannabisplöntur og hafa um skeið ræktað greindar plöntur og með því að hafa í annað skipti haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 18,74 g af amfetamíni, 59,60 g af ecstasy, 86,94 g af kókaíni, 871, 99 g af maríhúana, 388,64 g af kannabislaufum, 181,57 g af kannabisstönglum og 3 kannabisplöntur auk þess að hafa um skeið ræktað greindar plöntur. Með dómi Landsréttar 16. nóvember 2018 var héraðsdómur staðfestur um sakfellingu O og hann dæmdur til að sæta fangelsi í tvö og hálft ár. Með úrskurði endurupptökudóms 23. janúar 2023 var fallist á beiðni O um endurupptöku fyrrgreinds landsréttarmáls. Í dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu O. Við ákvörðun refsingar var litið til 1., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Samkvæmt því og kröfugerð ákæruvalds og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing O ákveðin fangelsi í tvö ár en vegna mikils dráttar á meðferð málsins og breyttum högum ákærða var fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Landsréttur birt 16. júní 2023

117/2022

Hýsir ehf (Jakob A. Traustason fyrirsvarsmaður) gegn íslenska ríkinu (Björn Jóhannesson lögmaður)

H ehf. krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir vegna ákvarðana Ríkiskaupa og úrskurða kærunefndar útboðsmála í tengslum við nánar tilgreind útboð vegna lyfjakaupa. Hafði kröfum H ehf. á hendur Í vegna sömu atvika þrívegis verið vísað frá dómi. Með hinum áfrýjaða dómi var Í sýknað af nánar tilgreindum kröfum en fallist á eina kröfu H ehf. Þá var einni kröfu hans vísað frá héraðsdómi. Í dómi Landsréttar kom fram að H ehf. hefði ekki borið niðurstöðu um frávísun þeirrar kröfu frá héraðsdómi undir Landsrétt með kæru eftir reglum XXIV. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sbr. c-lið 2. mgr. 143. gr. og 1. mgr. 144. gr. þeirra laga, líkt og honum hefði borið að gera vildi hann ekki una henni. Þessi hluti héraðsdóms gat því ekki sætt endurskoðun Landsréttar og var kröfunni því vísað án kröfu frá Landsrétti. Að öðru leyti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að málatilbúnaður H ehf. væri haldinn slíkum annmörkum að óhjákvæmilegt væri að vísa kröfum hans frá héraðsdómi.

Landsréttur birt 16. desember 2022

467/2021

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Davíð Þór Gunnarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Með hinum áfrýjaða dómi var D var sakfelldur fyrir þjófnaðar-, fíkniefnalaga-, lyfjalaga, lögreglulaga- og umferðarlagabrot. Refsing D var hæfilega ákveðin fangelsi í 14 mánuði. Samkvæmt dómvenju og virtum sakarferli D voru ekki forsendur til að skilorðsbinda dæmda refsingu. Með vísan til forsenda hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur.

Landsréttur birt 4. nóvember 2022

505/2021

Ákæruvaldið (Marín Ólafsdóttir saksóknari) gegn Atla Viðari Gunnarssyni (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var ákærður fyrir ýmis brot í 13 ákæruliðum. Við meðferð málsins í héraði féll ákæruvaldið frá 5 ákæruliðum. Með hinum áfrýjaða dómi var A sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem eftir stóðu, að undanskildum ákærulið 11 sem hann var sýknaður af. Fyrir Landsrétti krafðist A sýknu af ákæruliðum 4, 10 og 12 en hann hafði játað brot samkvæmt ákæruliðum 1, 8, 9 og 13. Við úrlausn um ákærulið 4, sem sneri að meintum þjófnaði A úr verslun og umferðarlagabroti, kom fram í dómi Landsréttar að gögn um rannsókn lögreglu væru rýr og ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var A því sýknaður af ákærulið 4. Samkvæmt ákærulið 10 var A gefinn að sök nytjastuldur með því að hafa heimildarlaust tekið tilgreinda bifreið og notað hana uns lögregla hafði afskipti af honum sofandi í bifreiðinni. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki hefði verið sýnt fram á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæruliðnum væri lýst. Var A því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins að þessu leyti. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti var horft á myndupptöku af atburðum sem heyra undir ákærulið 12 og kannaðist A við sig á upptökunni. Með hliðsjón af því, vættum vitna og gögnum málsins að öðru leyti, var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu A samkvæmt ákærulið 12. Hinn áfrýjaði dómur var að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna um annað en ákvörðun refsingar, sviptingu ökuréttar og upptöku á tveimur farsímum og spjaldtölvu. Refsing A þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða brotaþola skaðabætur.

Héraðsdómur Suðurlands birt 28. september 2022

S-182/2022

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum (Arndís Bára Ingimarsdóttir fulltrúi) gegn Teiti Guðbjörnssyni (enginn)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði var fundinn sekur um fíkniefnalagabrot, lyfjalagabrot og peningaþvætti og gert að sæta fangelsi í 60 daga, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið til tveggja ára. Þá voru gerð upptæk fíkniefna og lyf, sem og sími ákærða og fjármunir sem tengdust brotum hans.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. febrúar 2022

E-3786/2018

A (B fyrirsvarsmaður) gegn íslenska ríkinu

Stefnandi, félag sem hugðist flytja inn lyf, höfðaði í fjórða sinn mál á hendur íslenska ríkinu til viðurkenningar á rétti sínum til skaðabóta úr hendi stefnda vegna tjóns sem stefnandi taldi Ríkiskaup og kærunefnd útboðsmála hafa valdið sér með aðgerðum og aðgerðaleysi við útboð á lyfjum sem fóru fram á árunum 2002 og 2003. Viðurkenndur var réttur stefnanda til bóta sem samsvöruðu kostnaði hans af því að taka þátt í útboðunum. Stefndi var sýknaður af viðurkenningarkröfu um aðrar skaðabætur og kröfu um endurgreiðslu kostnaðar sem stefnandi hafði verið dæmdur til þess að greiða stefnda í fyrri málum. Kröfu stefnanda um viðurkenningu vaxta var vísað frá dómi.

Landsréttur birt 10. desember 2021

541/2020

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Aðalsteini Árdal Björnssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

A var sakfelldur fyrir fjölmörg hegningarlagabrot, umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og vopnalagabrot. Með hliðsjón af sakarefni málsins, dómvenju og 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing A ákveðin fangelsi í 20 mánuði. Að auki var áréttuð ævilöng ökuréttarsvipting hans og honum gert að sæta upptöku fíkniefna og vasahnífs.

Landsréttur birt 12. nóvember 2021

656/2020

Ákæruvaldið (Hrafnhildur M. Gunnarsdóttir saksóknari) gegn X (Arnar Þór Stefánsson lögmaður) (Einar Gautur Steingrímsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir brot í nánu sambandi og kynferðisbrot með því að hafa ráðist að þáverandi kærustu sinni, A, með því að beita hana ofbeldi, hótunum og stórfelldum ærumeiðingum og særa blygðunarsemi hennar. Í ákæru voru brot X talin varða við 209. gr. og 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Auk þess var hann ákærður fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot með því að hafa á heimili sínu haft í vörslu sinni 1,11 grömm af kókaíni, hnúajárn með föstu hnífsblaði, öxi og fimm kaststjörnur. Landsréttur taldi að ekki hefðu myndast slík tengsl á milli X og A að samband þeirra gæti talist náið í skilningi 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga. Þá var ekki fallist á að háttsemin sem slík uppfyllti áskildar kröfur um alvarleika. Landsréttur taldi ákæruvaldið ekki hafa axlað þá sönnunarbyrði sem á því hvíli eftir 108. gr. og 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 að sýna fram á að X hefði beitt brotaþola ofbeldi með því að slá hana ítrekað í líkamann. Var X því sýknaður af þeim sakargiftum. Var hann jafnframt sýknaður af ákæru um brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga þar sem ekki var fallist á að ummælin væru af kynferðislegum toga. X var aftur á móti sakfelldur fyrir hótanir í garð A. Landsréttur taldi nánar tilgreind ummæli vera til þess fallin að vekja ótta hjá A um velferð og líf hennar og voru þau því talin varða við 233. gr. almennra hegningarlaga. Loks var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu ákærða fyrir vopna- og fíkniefnalagabrot staðfest. Með þeim brotum sem X var sakfelldur fyrir hafði hann rofið skilyrði reynslulausnar og voru eftirstöðvar refsingar teknar upp og dæmdar með í þessu máli, sbr. 1. mgr. 82. gr. laga nr. 15/2016 um fullnustu refsingar. Var refsing X ákveðin samkvæmt 77. gr. almennra hegningarlaga og honum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði. Þá var X gert að greiða A 300.000 krónur í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjaness birt 5. nóvember 2021

S-3017/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Guðnýju Báru Tryggvadóttur (Kristján Flygenring lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Játningarmál. Ákærða sakfelld fyrir brot á lyfja- og lyfsölulögum, tollalagabrot og akstur undir áhrifum lyfja.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. júní 2021

S-4465/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Atla Viðari Gunnarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir m.a. líkamsárás, þjófnað og umferðarlagabrot. Var hann dæmdur í átta mánaða fangelsi, sviptur ökurétti og gert að sæta upptöku haldlagðra ávana- og fíkniefna o.fl.

Héraðsdómur Reykjaness birt 24. júní 2021

S-3265/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Ásmundur Jónsson saksóknarfulltrúi) gegn Hermanni Hjartarsyni Gustum (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði játaði sök og var dæmdur fyrir vörslu fíkniefna og vopnalagabrot.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. júní 2021

S-8184/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn Davíð Þór Gunnarssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir m.a. þjófnað, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, umferðar- og lögreglulagabrot og dæmdur í 14 mánaða fangelsi auk þess sem ævilöng svipting ökuréttar hans var áréttuð og haldlögð fíkniefni voru gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. apríl 2021

S-5314/2020

Ákæruvaldið (Matthea Oddsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ingvari Árna Ingvarssyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir hættu- og vopnalagabrot, auk fíkniefnalagabrots o.fl.

Landsréttur birt 19. mars 2021

779/2019

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið, sem hafnaði utan vegar í skurði, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Í dómi Landsréttar kom fram að niðurstaða fyrirliggjandi matsgerðar væri afdráttarlaus um að X hefði verið undir slíkum áhrifum að hann hefði verið óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega umrætt sinn. Var X gert að greiða 70.000 króna sekt í ríkissjóð en ella sæta fangelsi í sex daga. Þá var hann sviptur ökurétti í fjóra mánuði.

Héraðsdómur Reykjaness birt 15. mars 2021

S-1556/2020

Ákæruvaldið (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn X (Arnar Kormákur Friðriksson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir peningaþvætti, hylmingu, fjölda umferðarlagabrota, brot gegn vopnalögum, fíkniefnalögum o.fl. Refsing var skilorðsbundin, ekki síst í ljósi þess að ákærði hafði ekki áður hlotið refsidóm. Þá var ákærði sviptur ökurétti í fimm ár. Synjað var um upptöku á tveimur bifreiðum í eigu ákærða, en fjöldi annarra verðmæta gerður upptækur til ríkissjóðs.

Héraðsdómur Reykjaness birt 11. febrúar 2021

S-3263/2020

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson saksóknarfulltrúi) gegn Grzegorz Zdzislaw Fedorów
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði dæmdur fíkniefna- og lyfjalagabrot. Fíkniefni og lyf gert upptækt

Landsréttur birt 5. febrúar 2021

808/2019

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn Dariusz Stanislaw Lesniak (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

D var sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á 900 millilítrum af vökva sem innihélt amfetamín. Jafnframt var hann sakfelldur fyrir brot gegn tollalögum og lyfjalögum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að D hafði ekki áður gerst sekur um brot sem varðaði refsingu. Var refsing D ákveðin fangelsi í 20 mánuði auk þess sem nánar tilgreind fíkniefni og lyf voru gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. janúar 2021

S-4467/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari) gegn Björn Bender (Sigmundur Hannesson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot. Um ítrekuð brot var að ræða. Ákærði var dæmdur í átta mánaða fangelsi og fíkniefni voru gerð upptæk.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. janúar 2021

S-2309/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ernu Ósk Agnarsdóttur (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir m.a. umferðarlagabrot, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og fjársvik og dæmd í fimm mánaða fangelsi, skilorðsbundið að hluta, og svipt ökurétti

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 17. desember 2020

E-5178/2019

A (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ólafur Helgi Árnason lögmaður)

Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu einstaklings vegna tjóns af völdum bólusetningar gegn svokallaðri svínaflensu, en einstaklingurinn hafði áður fengið greiddar bætur samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu.

Héraðsdómur Vesturlands birt 7. desember 2020

S-283/2020

Lögreglustjórinn á Vesturlandi (Jón Haukur Hauksson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóhanni H. Steinþórssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Lykilorð: Lyfjaakstur. Umferðarlög.
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Maður sakfelldur fyrir akstur án okuréttinda og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Héraðsdómur Reykjaness birt 23. nóvember 2020

S-975/2019

Ákæruvaldið (Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Steinþóri Einarssyni (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot á almennum hegningarlögum, umferðarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni, vopnalögum, lögreglulögum, lyfjalögum og tollalögum

Landsréttur birt 20. nóvember 2020

162/2019

Ákæruvaldið (Jón H. B. Snorrason saksóknari) gegn Adam Borzynski (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

AB var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, sbr. 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa slegið A fjórum sinnum með sleggju með nánar tilgreindum afleiðingum. Þá var hann sakfelldur fyrir eignaspjöll, sbr. 1. mgr. 257. gr. sömu laga með því að hafa slegið með sleggjunni í afturhurð bifreiðar þannig að rúða í hurðinni brotnaði. Loks var hann sakfelldur fyrir lyfja- og tollalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum og flutt ólöglega til landsins nánar tilgreint magn lyfja. Refsing AB var ákveðin fangelsi í níu mánuði en þar af var fullnustu sex mánaða af refsingunni frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var honum gert að greiða A miskabætur og sæta upptöku framangreindrar sleggju og lyfja.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. nóvember 2020

S-3957/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Kári Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Emilíu Jennu Húnfjörð (Snorri Sturluson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærða sakfelld fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot og gert að greiða 1.230.000 króna sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins að telja en sæta ella fangelsi í 44 daga. Þá var ákærða svipt ökurétti í 2 ár og 4 mánuði frá birtingu dómsins að telja. Fíkniefni gerð upptæk og ákærðu gert að greiða sakarkostnað.

Landsréttur birt 6. nóvember 2020

622/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Árni Bergur Sigurðsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Héraðsdómur Reykjaness birt 13. október 2020

S-1817/2020

Héraðssaksóknari (Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi) gegn Sævari Frey Höskuldssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn umferðarlögum, lögreglulögum og lögum um ávana- og fíkniefni en sýknaður af broti gegn almennum hegningarlögum.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 7. október 2020

S-5100/2020

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Margrét Herdís Jónsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Ívari Erni Forberg (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir fíkniefna-, lyfja- og tollalagabrot og fyrir brot gegn vopnalögum. Ákærði dæmdur í 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára.

Hleð fleiri dómum…