A höfðaði mál gegn S og krafðist þess að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 319/2017 yrði felldur úr gildi og S dæmt til að greiða honum skaðabætur vegna líkamstjóns af völdum nýrnabilunar á lokastigi sem hann rakti til lyfjameðferðar. Byggði hann á því að það væri að rekja til sjaldgæfs og þungbærs fylgikvilla meðferðar með lyfinu og þar með bótaskylt á grundvelli 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. S byggði á því að krafa A væri fyrnd og að tjón hans væri að rekja til eiginleika lyfsins og því ekki bótaskylt, sbr. 3. mgr. 3. gr. laganna. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest að bótakrafa A væri ekki fallin niður fyrir fyrningu. Að teknu tilliti til málatilbúnaðar aðila og niðurstöðu matsgerðar voru ekki talin efni til annars en að leysa úr málinu á þeim grundvelli einvörðungu að áfrýjandi hefði notað lyfið í venjulegum skömmtum. Hæstiréttur vísaði til þess að hvorki í lögum nr. 111/2000 né lögskýringargögnum með þeim væri að finna skilgreiningu eða skýringar á því hvað fælist í hugtakinu eiginleikar lyfs í skilningi 3. mgr. 3. gr. laganna. Hæstiréttur bar saman notkun og skilgreiningu hugtakanna eiginleikar lyfs og aukaverkun í eldri lyfjalögum nr. 93/1994 og núgildandi lyfjalögum nr. 100/2020 svo og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Í öllum reglugerðum væri hugtakið aukaverkun skilgreint sem skaðleg og ótilætluð verkun lyfs sem notað væri í venjulegum skömmtum. Hins vegar væri hugtakið óvænt aukaverkun í öllum reglugerðunum skilgreint sem aukaverkun sem ekki er getið um í samantekt um eiginleika lyfs. Hæstiréttur sló því föstu að hugtakið eiginleikar lyfs í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000 bæri að skýra með þeim hætti að þar væri átt við þá eiginleika sem fram kæmu í viðurkenndri samantekt um eiginleika lyfsins sem birt væri í sérlyfjaskrá og á fylgiseðli þess. Nýrnabilunar væri aðeins getið sem aukaverkunar vegna ofskömmtunar í lýsingu á eiginleikum lyfsins í sérlyfjaskrá og teldist lokastig nýrnabilunar vegna eðlis, alvarleika og afleiðinga vera óvænt aukaverkun sem ekki félli undir eiginleika lyfsins í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000. Var tjón A talið meira en svo að sanngjarnt væri að hann þyrfti að þola það bótalaust í skilningi 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 og voru skilyrði ákvæðisins fyrir greiðslu bóta úr sjúklingatryggingu talin uppfyllt. Var úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 319/2017 því felldur úr gildi og S gert að greiða A bætur.
Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu stefnda vegna meðferðar stefnanda hjá lækni sem keypt hafði hjá stefnda annars vegar sjúklingatryggingu og hins vegar starfsábyrgðartryggingu. Fallist var á kröfuna að því er varðar bótaskyldu vegna sjúklingatryggingar á grundvelli þágildandi laga nr. 111/2000, en viðurkenningarkröfu stefnanda á grundvelli starfsábyrgðartryggingar læknisins var vísað frá dómi vegna vanreifunar.
A höfðaði mál aðallega á hendur SÍ en til vara á hendur Í. Gerði A þær kröfur á hendur SÍ að honum yrði gert að greiða sóknaraðila bætur á grundvelli þágildandi laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna tjóns sem hann varð fyrir vegna afleiðinga læknismeðferðar á Landspítalanum. Þá gerði A þær kröfur á hendur Í, sem varastefnda, að ef SÍ yrði sýknaður af dómkröfu A í héraði yrði hann dæmdur til að greiða A sömu fjárhæð og krafist var úr hendi aðalstefnda SÍ. Varakrafan var gerð svo A gæti sótt skaðabótakröfu á hendur Í að því marki sem A fengi tjón sitt ekki bætt hjá SÍ. Við rekstur málsins nýtti A sér það réttarfarshagræði sem felst í 2. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að stefna SÍ aðallega og Í til vara, enda áttu kröfurnar rætur að rekja til sama atviks. Við meðferð málsins í héraði gerðu A og SÍ með sér dómsátt þar sem SÍ viðurkenndi bóta- og greiðsluskyldu vegna tjóns sem A hafði orðið fyrir. Með þeirri greiðslu, auk greiðslu sem hann hafði áður fengið, hafði SÍ greitt A hámarksbætur samkvæmt þágildandi 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000. Í framhaldinu lagði A fram endanlegar dómkröfur á hendur Í þar sem tekið var mið af þeim greiðslum sem SÍ hafði innt af hendi til A. Með úrskurði héraðsdóms 18. september 2025 var máli A gegn Í vísað frá dómi. Í dómi Landsréttar kom fram að eins og samspil krafna á hendur aðal- og varastefnda var háttað í málinu væri ekki efni til að vísa kröfum á hendur Í frá dómi. Þá væri engin ástæða til að efast um að málatilbúnaður A samkvæmt endanlegri kröfugerð hans samrýmdist þágildandi 7. gr. laga nr. 111/2000. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
A höfðaði mál gegn S vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í skurðaðgerð sem A gekkst undir í júní 2016. A krafðist aðallega viðurkenningar á skaðabótaskyldu S en til vara að felld yrði úr gildi ákvörðun S frá 8. maí 2020, þar sem S komst að þeirri niðurstöðu að ekki lægi fyrir bótaskylt tjón sem að öllum líkindum mætti rekja til þátta sem féllu undir gildissvið sjúklingatryggingar samkvæmt 2. gr. laga um sjúklingatryggingar nr. 111/2000. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, þar sem fram kom að A hefði ekki sýnt fram á að um bótaskylt tjón hefði verið að ræða sem fallið gæti undir gildissvið 2. gr. laga nr. 111/200, staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sýknu S af aðalkröfu A. Þá taldi Landsréttur, að fenginni niðurstöðu um sýknu S af aðalkröfu A, hagsmuni A ekki standa til þess að fá ákvörðun S fellda úr gildi, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var varakröfu A því vísað frá héraðsdómi.
Stefnandi höfðaði málið til heimtu bóta vegna líkamstjóns, aðallega á hendur Sjúkratryggingum Íslands en til vara á hendur íslenska ríkinu. Málið var sætt milli stefnanda og aðalstefnda en eftir stóð krafa stefnanda á hendur varastefnda. Talið var að ekki hefðu verið lagaskilyrði til þess að stefnandi hefði mátt beina kröfum sínum aðallega að aðalstefnda en til vara að varastefnda, á þann hátt sem stefnandi gerði. Dómurinn vísaði því af sjálfsdáðum frá kröfum stefnanda á hendur varastefnda.
A höfðaði mál gegn S og krafðist þess að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 319/2017 yrði felldur úr gildi og S dæmt til að greiða honum 12.104.500 krónur í skaðabætur vegna tjóns sem hann rakti til lyfjameðferðar sem hann gekkst undir. Byggði A á því að tjón sitt væri að rekja til sjaldgæfs og þungbærs fylgikvilla meðferðar með tilgreindu lyfi og að ekki væri unnt að rekja svo sjaldgæfan fylgikvilla til eiginleika lyfsins heldur væri um að ræða einstaklingsbundna svörun hans við lyfinu og tjón hans því bótaskylt á grundvelli 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 11/2000 um sjúklingatryggingu. S byggði á því að tjón A mætti rekja til eiginleika lyfsins og því ekki til staðar bótaskylda þar sem 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000 kveður á um að bætur greiðist ekki samkvæmt lögunum ef rekja má tjón til eignleika lyfs. Í dómi Landsréttar var rakið að í matsgerð dómkvaddra matsmanna kæmi fram að tjón A væri að rekja til langvarandi notkunar á umræddu lyfi og að ekkert kæmi fram í málatilbúnaði A eða í hinum áfrýjaða dóm um hvað fælist í einstaklingsbundinni svörun A við lyfinu. Var því lagt til grundvallar að nýrnabilun sú, sem A þjáðist af, væri að rekja til langvarandi notkunar umrædds lyfs og um væri að ræða sjaldgæfa en þekkta aukaverkun lyfsins sem teldist til eiginleika þess. Þar sem ekki þótti tækt að túlka 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000 með þeim hætti að hún næði ekki til sjaldgæfra og alvarlegra aukaverkanna lyfja var bótaskyldu hafnað og S sýknað af kröfum A.
Aðilar málsins deildu um hvort lög nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu heimiluðu S að greiða A miskabætur á grundvelli a-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Tilefni þess var ágreiningur um hvort læknir á Landspítala sem framkvæmdi kviðarholsspeglun á A þar sem báðir eggjastokkar hennar voru fjarlægðir hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi við framkvæmd aðgerðarinnar. S byggði á því að skilja yrði orðalag 1. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 á þann veg að þar væri eingöngu vísað til I. kafla skaðabótalaga. A byggði aftur á móti á því að samkvæmt orðalagi ákvæðisins væri vísað til reglna skaðabótalaga í heild sinni. Hæstiréttur vísaði til markmiðs og forsögu laga nr. 111/2000 og að þeim hafi verið ætlað að bæta rétt sjúklinga og annarra sem nýti sér heilbrigðisþjónustu meðal annars með því að gera sök ekki að skilyrði greiðslu bóta. Hæstiréttur tók fram að samkvæmt orðum 1. mgr. 5. gr. laganna væri eingöngu vísað til þess að ákvörðun um fjárhæð tjóns færi eftir reglum skaðabótalaga en ekki að bótaréttur ákvarðaðist eftir reglum þeirra laga. Yrði því að skilja málsgreinina þannig að í henni fælust fyrirmæli um ákvörðun fjárhæðar bóta án tillits til sakar samkvæmt nánari fyrirmælum laganna. Þá væri sá bótagrundvöllur sem mælt er fyrir um í 26. gr. skaðabótalaga sérstaks eðlis. Komst Hæstiréttur því að þeirri niðurstöðu að bætur sem ákvarðaðar væru á grundvelli mats á ásetningi eða stórfelldu gáleysi samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga féllu ekki undir að vera ákvörðun bótafjárhæðar í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000. Var S því sýknaður af kröfum A.
Ekki var fallist á kröfu stefnanda um viðurkenningu á skaðabótaskyldu stefnda á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu þar sem skilyrði 2. gr. laganna voru ekki talin uppfyllt. Stefndi var því sýknaður í málinu.
A höfðaði mál á hendur Í og S og krafðist skaðabóta á grundvelli 13. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna missis framfæranda, en eiginmaður hennar lést eftir meðferð á sjúkrahúsi. S greiddi A hámarksbætur samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Þá viðurkenndi Í bótaskyldu gagnvart A að tiltekinni fjárhæð en að frádreginni þeirri greiðslu sem S hafði innt af hendi. Snerist ágreiningur aðila um það við hvaða vísitölu ætti að miða framreikning skaðabóta samkvæmt 4. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Héraðsdómur féllst á það með Í að miða ætti við lánskjaravísitölu og var Í gert að greiða A þá fjárhæð sem Í hafði viðurkennt. Í dómi Landsréttar var því slegið föstu með vísan til lögskýringargagna og dóms Hæstaréttar í máli nr. 142/2014 að skýra bæri ákvæði 1. mgr. 15. gr. skaðabótalaga sem svo að hámark skaðabóta samkvæmt 4. mgr. 7. gr. laganna tæki breytingum miðað við lánskjaravísitölu frá og með gildistöku laganna. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms því staðfest.
A höfðaði mál til viðurkenningar skaðabótaskyldu Í vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í skurðaðgerð á tilgreindu sjúkrahúsi í nóvember 2017 og við eftirfarandi meðferð á Landspítalanum. Hélt A því fram að starfsmenn, sem Í bæri ábyrgð á, hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi við störf sín sem hefði leitt til þess að skorið var í görn A við skurðaðgerðina. Þá hafi komið gat á ristil A þegar dreni var komið fyrir á Landspítalanum eftir að sýkingar varð vart. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Landsrétti, kom fram að ekki hefði verið sýnt fram á að starfsmenn sem Í bæri ábyrgð á hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi við þá meðferð A sem um ræddi. Þá yrði ekki séð að meðferðin hefði verið í ósamræmi við ákvæði laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn, laga nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga eða önnur ákvæði sem A hefði vísað til. Það væri þó eigi að síður ljóst að A hefði fengið alvarlega sýkingu í kjölfar skurðaðgerðarinnar í nóvember 2017 og orðið fyrir líkamstjóni af þeim sökum. Talið var að óhappatilvik hefði valdið þessari sýkingu sem meta yrði til fylgikvilla aðgerðarinnar. Vegna þessa hefði A þegar fengið greiddar hámarksbætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Var Í sýknað af kröfum A.
Stefnandi krafðist bóta úr hendi stefnda á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna afleiðinga aðgerðar sem stefnandi gekkst undir í kjölfar slyss. Eftir að málið var höfðað greiddi stefndi stefnanda stærstan hluta hinnar upphaflegu dómkröfu og studdist við ákvörðun bótafjárhæðar við matsgerð sem stefnandi aflaði. Eftir stóð þó ágreiningur um þjáningabætur vegna 43 daga. Dómurinn taldi að ætla yrði að þótt ekkert hefði farið úrskeiðis í aðgerðinni hefði stefnandi engu að síður liðið þjáningar í skilningi 1. mgr. 3. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna slyssins á umræddu tímabili. Sjúklingatryggingaratburðurinn var því ekki talinn meginorsök þjáninga stefnanda á tímabilinu. Stefndi var því sýknaður af kröfu stefnanda.
Stefnanda og S greindi á um hvort henni hefðu þegar verið greiddar hámarksbætur samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu og hvernig skýra bæri ákvæðið. Fallist var á að hámarksfjárhæð bóta skyldi taka mið af því ári sem hið bótaskylda atvik varð og var S sýknað af kröfunni. Í var jafnframt sýknað af kröfu stefnanda þar sem ekki var talið sýnt fram á að hið bótaskylda atvik hefði valdið henni varanlegri örorku.
Stefndi var sýknaður af kröfu stefnanda um að viðurkenndur yrði réttur til bóta úr sjúklingatryggingu tveggja lækna vegna líkamstjóns sem byggt var á að stefnandi hefði orðið fyrir í skurðaðgerð.
Í málinu var deilt um hvort A hefði orðið fyrir líkamstjóni sem mætti rekja til óforsvaranlegrar meðferðar sjúkraþjálfara í kjölfar krossbandsaðgerðar sem hann gekkst undir. A höfðaði mál gegn V hf. og krafðist þess að tjón hans yrði bætt úr sjúklingatryggingu sjúkraþjálfarans. Í héraði var sakarefni málsins skipt með heimild í 1. mgr. 31. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála þannig að fyrst var fjallað um hvort bótakrafa A væri fyrnd. Lagt var til grundvallar að A hefði fengið eða mátt fá vitneskju um meint tjón sitt í síðasta lagi í mars 2013 og hefði fyrningarfrestur meintrar bótakröfu samkvæmt 2. gr. 111/2000 um sjúklingatryggingu þá tekið að líða, sbr. 19. gr. laganna. Þá var ekki fallist á að fyrningu kröfunnar hefði verið slitið með kvörtun hans til landlæknis samkvæmt 12. gr. laga nr. 41/2007 um landlækni og lýðheilsu. Var því talið að sú krafa, sem A kynni að hafa átt á hendur V hf., hefði verið fallin niður fyrir fyrningu.
Ágreiningur aðila laut að því hvort að krafa A á hendur S til heimtu bóta vegna varanlegs líkamstjóns, sem hann taldi sig hafa orðið fyrir vegna ónógs eftirlits lækna á nánar tilgreindum sjúkrastofnunum, hefði verið fyrnd þegar málið var höfðað. Talið var að leggja yrði til grundvallar að A hefði haft vitneskju um ætlað tjón sitt þegar hann sótti um bætur til S með umsókn 25. október 2010 og hefði fyrningarfrestur hugsanlegrar bótakröfu samkvæmt 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu þá tekið að líða, sbr. 19. gr. laganna. S hafnaði kröfu A 12. apríl 2011 og var fyrningu þá slitið, sbr. 16. gr. og 21. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda, og nýr fyrningarfrestur hófst vegna dómkröfu hans. A höfðaði málið 16. desember 2015 og voru þá liðin meira en fjögur ár frá því að fyrningu var slitið. Var því talið að sú krafa, sem A kynni að eiga á hendur S, hefði verið fallin niður fyrir fyrningu.
A krafðist þess að felldur yrði úr gildi sá hluti ákvörðunar S sem laut að því að bætur til hans samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu skertust samkvæmt þeim fyrirmælum 2. mgr. 5. gr. laganna að hámarksbætur væru 5.000.000 króna. Reisti hann þá kröfu á því að fyrrgreint ákvæði bryti gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og stjórnarskrárinnar, auk þess sem í því fælist skerðing eignarréttinda samkvæmt 72. gr. stjórnarskrárinnar. Í dómi héraðsdóms kom meðal annars fram að þar sem lög nr. 111/2000 mæltu fyrir um rétt sem óvíst væri hvort sjúklingar ættu annars en sviptu þá ekki rétti væri ekki um að ræða brot gegn eignaréttarákvæði 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar. Þá styddist það við málefnaleg sjónarmið að setja þak á fjárhæð bóta eftir lögunum. Loks væri hvorki um að ræða brot gegn jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 né 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var kröfu A því hafnað. Í dómi Hæstaréttar sagði að þar sem ákvörðun S ætti stoð í skýru og ótvíræðu ákvæði 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 væri ekki um að ræða brot á jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga. Um eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar sagði síðan að því hefði verið slegið föstu í dómaframkvæmd að löggjafinn hefði nokkurt svigrúm til að takmarka fjárhæð bóta vegna skerts aflahæfis væru slíkar takmarkanir reistar á efnislegum ástæðum og jafnræðis gætt. Þar sem málefnaleg sjónarmið lægju að baki 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 og reglan tæki jafnt til allra tjónþola samkvæmt lögunum fæli hún ekki í sér brot gegn 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var S því sýknaður af kröfu A.
Ágreiningur aðila laut að því hvort S og Í bæru bótaábyrgð á líkamstjóni sem A taldi að rekja mætti til afleiðinga læknismeðferðar sem hann hlaut árið 2003, annars vegar á Ítalíu þar sem hann var fyrst lagður inn í kjölfar þess að hann varð fyrir heilablóðfalli og hins vegar á Landspítala sem tók við meðferð A eftir komu hans til Íslands um viku síðar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að A hefði sjálfur leitað á umrætt sjúkrahús á Ítalíu án þess að vist hans þar hefði komið til eftir reglum þágildandi 35. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, sbr. nú 1. mgr. 23. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, hvorki að því er varðaði ástæðu fyrir henni né aðdraganda hennar. Af þessum sökum gæti hann ekki krafið S um bætur vegna tjóns, sem rekja mætti til meðferðarinnar þar ytra. Kröfu um bætur fyrir slíkt tjón yrði enn síður beint að Í á grundvelli almennra reglna um sakarábyrgð starfsmanna Landspítala og vinnuveitandaábyrgð Í á þeim. Kom því einungis til skoðunar hvort A ætti rétt til bóta vegna tjóns af þeirri meðferð sem hann fékk á Landspítala á nánar tilgreindu tímabili. Með hliðsjón af niðurstöðum tveggja matsgerða var talið að ýmis mistök hefðu verið gerð við meðferð A frá því að hann var lagður inn á Landspítala, þar á meðal að ekki hefði verið gætt að því að afla upplýsinga frá ítalska sjúkrahúsinu um greiningu á sjúkdómi hans og meðferð þar, ekki hefði verið bætt úr þessu með viðhlítandi rannsóknum og A hefði vegna mistaka þurft að sæta einangrun vegna smithættu lengur en þörf hefði verið. Þá hefði honum verið gefið lyf sem yki hættu á því að hann fengi á ný blóðtappa í heila, sem síðar varð raunin. Var því lagt til grundvallar að uppfyllt væru skilyrði 1. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu til að A öðlaðist rétt til bóta úr sjúklingatryggingu. Í samræmi við niðurstöðu yfirmatsgerðar var jafnframt lagt til grundvallar að tjón A af völdum meðferðarinnar á Landspítala á umræddu tímabili svaraði til fjórðungs af heildartjóni hans. Loks var ekki fallist á með S að krafa A hefði verið fallin niður fyrir fyrningu samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 111/2000. Samkvæmt framansögðu var S gert að greiða A tilgreinda fjárhæð.
Ágreiningur aðila laut að því hvort krafa A á hendur Í, til greiðslu bóta vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í fæðingu í janúar 1996, hefði verið fyrnd þegar málið var höfðað í desember 2014. Fyrir lá að ári eftir fæðingu A tilkynnti móðir hennar atburðinn til Tryggingastofnunar ríkisins og rúmum fimmtán árum síðar, í febrúar 2012, tóku Sjúkratryggingar Íslands ákvörðun um bætur til handa A úr sjúklingatryggingu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þegar eftir fæðingu A hefðu lögráðamenn hennar átt tveggja kosta völ vildu þeir fyrir hennar hönd leita réttar af því tilefni. Annars vegar að höfða mál til heimtu skaðabóta samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar og hins vegar að beina bótakröfu A í farveg samkvæmt þágildandi lögum nr. 117/1993 um almannatryggingar, svo sem gert hafði verið, en nú giltu í þeim efnum ákvæði laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Með vísan til 2. töluliðar 4. gr. laga nr. 14/1905 um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda var talið að krafa A, sem hún kynni að eiga á hendur Í samkvæmt reglum skaðabótaréttar, fyrndist á 10 árum og teldist fyrningarfrestur hennar frá fæðingardegi A, sbr. 1. mgr. 5. gr. laganna. Á hinn bóginn var litið svo á að með setningu laga nr. 117/1993 og síðar laga nr. 111/2000 hefði verið stefnt að því að veita sjúklingum sem yrðu fyrir áföllum í tengslum við læknismeðferð víðtækari bótarétt en þeir ættu samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar og gera þeim jafnframt auðveldara að ná fram rétti sínum. Með hliðsjón af því og þar sem úrlausn um rétt A til sjúklingatryggingar hefði á stjórnsýslustigi borið undir Tryggingastofnun ríkisins og síðar Sjúkratryggingar Íslands var með lögjöfnun frá 1. og 11. gr. laga nr. 14/1905 fallist á með A að fyrning fjárkröfu hennar gagnvart Í hefði verið rofin með tilkynningu móður hennar til Tryggingastofnunar ríkisins í janúar 1997. Af þeirri niðurstöðu leiddi að nýr fyrningarfrestur kröfunnar hefði ekki getað byrjað að líða fyrr en ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands lá fyrir í febrúar 2012. Samkvæmt framansögðu var talið að krafa A á hendur Í hefði ekki verið fallin niður fyrir fyrningu þegar málið var höfðað desember 2014.
Kærumál. Afhending gagna. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms, þar sem vísað var frá dómi máli á hendur A, meðal annars með skírskotun til þess að krafa sóknaraðila hafi verið nægjanlega skýr og afmörkuð til þess að héraðsdómara hafi verið unnt að taka afstöðu til hennar.
Æ höfðaði mál gegn Í þar sem hann krafðist viðurkenningar á bótaskyldu Í vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir af völdum rangrar greiningar og seinkunar meðferðar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar hann leitaði þangað á slysadeild í kjölfar höfuðáverka sem hann hlaut í slysi 2009. Í hinum kærða úrskurði var máli Æ vísað frá dómi þar sem hann hefði átt að beina kröfunni að S, sbr. 7. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Í dómi Hæstaréttar var rakið að S hefði hafnað erindi Æ um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 á þeim grundvelli að tilvikið félli utan bótasviðs laganna. Að fenginni niðurstöðu S hefði Æ átt þess kost að láta reyna á það fyrir dómi hvort synjun stofnunarinnar við erindi hans hefði átt sér lagastoð. Æ hefði kosið að gera það ekki heldur höfðað mál þetta með fyrrgreindri viðurkenningarkröfu. Taldi Hæstiréttur að ákvæði 7. gr. laga nr. 111/2000 stæðu slíkri málshöfðun ekki í vegi en af málatilbúnaði Æ leiddi að hann nyti við málsóknina ekki þess hagræðis sem hann ella nyti hefði hann rekið mál sitt áfram á grundvelli framangreindra laga. Var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
V gerði kröfu um að felld yrði úr gildi ákvörðun T, þar sem synjað var umsókn hennar um bætur úr sjúklingatryggingu samkvæmt lögum nr. 111/2000. Óumdeilt var að V greindist með algert sjónhimnulos á hægra auga í nóvember 2002. Þá lá einnig fyrir að í október sama ár greindi V, deildarlækni og hjúkrunarfræðingi, sem bæði voru samstarfsmenn hennar á augndeild Landspítala, frá því að hún hefði flygsur fyrir auga. Aðilar voru ekki á einu máli um hvað þeim fór nákvæmlega á milli. Talið var að samskipti þeirra hefðu ekki talist falla undir rannsókn eða sjúkdómsmeðferð á sjúkrahúsi, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 111/2000 og að V hefði heldur ekki getað talist hafa verið notandi heilbrigðisþjónustu í skilningi 1. mgr. 2. gr. laga nr. 74/1974 um réttindi sjúklinga og þess vegna ekki sjúklingur sem rétt gæti átt til bóta samkvæmt lögum nr. 111/2000. Þá var heldur ekki talið að dreifibréf vegna lækningaþjónustu við starfsmenn væri til þess fallið að styðja dómkröfu hennar í málinu. Var T því sýknað af kröfu V.