Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sigrún Inga Guðnadóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Serxio Koci (
Gunnar Gíslason lögmaður)
Sakborningur, sem játaði sök, sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur til að sæta fangelsi í tvo mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára. Ákærði var einnig sviptur ökurétti í 27 mánuði og honum gert að sæta upptöku á fíkniefnum sem haldlögð höfðu verið við rannsókn málsins. Ákærði var látinn greiða helming sakarkostnaðar en helmingur sakarkostnaðar greiðist úr ríkissjóði. Skipaður verjandi ákærða var ávíttur vegna ummæla í greinargerð til Héraðsdóms Reykjavíkur og athugasemdir voru gerðar við vinnubrögð skipaðs verjanda og ákæruvaldsins í málinu.
Ákærðu S, L og M var gefið að sök manndráp, frelsissvipting og rán með því að hafa í félagi svipt A lífi og beitt hann í aðdraganda þess margþættu og hrottafengnu líkamlegu ofbeldi, sbr. ákærulið I, og tilraun til fjárkúgunar, sbr. ákærulið II. Þá var ákærða X gefið að sök peningaþvætti með því að hafa samþykkt, að beiðni L og M, að taka við millifærslu inn á bankareikning sinn af bankareikningi A, sbr. ákærulið III. Loks var ákærðu R gefin að sök hlutdeild í frelsissviptingu og ráni í ákærulið I, sbr. ákærulið IV. Með hinum áfrýjaða dómi voru S, L og M sakfelldir samkvæmt ákærulið I og var S einnig sakfelldur fyrir háttsemi samkvæmt ákærulið II en L og M sýknaðir. Þá var X sakfelldur fyrir háttsemi samkvæmt ákærulið III en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið. Loks var R sýknuð af sakargiftum samkvæmt ákærulið IV. Var ákærðu S og L gert að sæta fangelsi í 17 ár og M fangelsi í 14 ár. Loks var S, L og M gert að greiða eiginkonu og syni A bætur. Í dómi Landsréttar var talið hafið yfir skynsamlegan vafa að S, L og M hefðu gerst sekir um þá háttsemi sem lýst væri í ákærulið I og staðfesti Landsréttur sakfellingu ákærðu fyrir manndráp, sbr. 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, frelsissviptingu og rán. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms varðandi ákærulið II. Að mati Landsréttar þótti ákæruvaldinu ekki hafa tekist að sanna, svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa, að X hefði haft vitneskju um að upplýsingarnar sem hann veitti yrðu nýttar til að koma undan ávinningi af refsiverðu broti og að hann hefði verið bær til að veita samþykki sitt til þess á verknaðarstundu. Sýknaði Landsréttur því X samkvæmt ákærulið III. Loks taldi Landsréttur að þáttur R í aðdraganda frelsissviptingar A uppfyllti skilyrði til að teljast hlutdeild í frelsissviptingu A en ákæruvaldinu hefði aftur móti ekki tekist sönnun um það að ásetningur R hefði staðið til þess að A yrði beittur líkamlegu ofbeldi til að ná af honum fé. Var R því sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en sýknuð af hlutdeild í ráni samkvæmt ákærulið IV. Var refsing S og L ákveðin fangelsi í 16 ár, refsing M fangelsi í 12 ár auk þess sem þeim var gert að greiða eiginkonu og syni A bætur. Loks var R gert að sæta fangelsi í 6 mánuði sem bundið var skilorði.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Anna Guðbjörg Hólm Bjarnadóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Söndru Rún Raybould (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærða var sakfelld fyrir m.a. þjófnað, nytjastuld, akstur undir áhrifum vímuefna án ökuréttinda og fyrir vörslur fíkniefna. Var henni gert að sæta fangelsi í 9 mánuði og hún svipt ökurétti ævilangt.
S var ákærð fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn með því að hafa á Landspítalanum, þar sem S starfaði sem hjúkrunarfræðingur, svipt A lífi með því að þröngva ofan í hana innihaldi úr tveimur flöskum af næringardrykk, en S hafi hellt drykknum upp í munn A á meðan henni var haldið að fyrirskipan S, þrátt fyrir að A gæfi til kynna að hún vildi ekki drykkinn, allt með þeim afleiðingum að drykkurinn hafnaði í loftvegi hennar, sem hindraði loftflæði um lungun og olli öndunarbilun svo að A kafnaði Var háttsemin í ákæru talin varða við 211. gr. sbr. 138. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 13. gr., sbr. 28. gr., laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn. Í dómi Landsréttar var framburður þriggja vitna að atvikinu metinn mun trúverðugri en framburður S og talið hafið yfir skynsamlegan vafa að umrætt sinn hefði S þröngvað næringardrykk ofan í A með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Þá þótti miðað við gögn málsins og framburð vitna, og þrátt fyrir að mörk væru á því vægi sem skýrslu um útvíkkaða réttarkrufningu yrði gefið við sönnunarmat, hafið yfir skynsamlegan vafa að með háttsemi sinni hefði S svipt A lífi og þá með þeim hætti sem lýst væri í ákæru. Þrátt fyrir að ýmis atriði sem S bæri ekki ábyrgð á hefðu stuðlað að því að atvikið gat átt sér stað og haft áhrif á rás atburða breyttu þau því ekki að ákæra málsins tæki til nánar tiltekinnar háttsemi S, er haft hefði nánar tilteknar afleiðingar, og teldust bæði háttsemin og afleiðingar hennar sannaðar. Ósannað þótti að S hefði haft ásetning til að svipta A lífi og var því brot hennar ekki fært undir 211. gr. hegningarlaga. Þá var ekki talið unnt að staðhæfa að í háttsemi S hefði falist vísvitandi stórfelld líkamsárás sem færð yrði undir 2. mgr. 218. gr. sömu laga. S var á hinn bóginn sakfelld fyrir brot gegn 215. gr. laganna, enda hefði hún sýnt af sér gáleysi með háttseminni. Þá var hún einnig sakfelld fyrir brot gegn 1. mgr. 13. gr., sbr. 28. gr., laga nr. 34/2012. Rúmt ár var liðið síðan hinn áfrýjaði dómur gekk í héraði og talsvert á fimmta ár síðan atvik gerðust. Með þessari athugasemd en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var sú niðurstaða staðfest að fresta ákvörðun refsingar ákærðu skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að S bæri að greiða dánarbúi B 2.760.884 krónur ásamt nánar tilgreindum vöxtum.
Ákærði A sakfelldur fyrir hlutdeild í stórfelldum þjófnaði, peningaþvætti, umferðar-, fíkniefna- og vopnalagabrot, þjófnaði, þ.m.t. stórfelldan þjófnað, nytjastuld og fjársvik, en hluti brotanna var framinn í félagi við aðra, þ.m.t. ákærða B. Ákærði B sakfelldur fyrir hlutdeild í nytjastuldi og stórfelldum þjófnaði ákærða A. Ákærði A dæmdur til að greiða skaðabætur en ákærði B sýknaður af þeirri kröfu. Báðir ákærðu dæmdir til refsingar og ákærði A að auki til sviptingar ökuréttar.
S var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps með því að hafa veist með ofbeldi að A og stungið hann með hnífi tvisvar sinnum ofarlega í brjóstkassa með þeim afleiðingum að A hlaut lífshættulega áverka. Ekki var fallist á að athafnir S hefðu réttlæst af neyðarvörn. Refsing S var ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá var S gert að greiða A 2.155.379 krónur í skaðabætur.
Ákærði sakfelldur fyrir manndráp með því að hafa veist að móður sinni og banað henni með því að stinga hana með hnífi. Ákærði var metinn sakhæfur á verknaðarstundu en hins vegar var talið að vitsmunaleg skerðing og geðsjúkdómur ákærða væri þess eðlis að ekki væri líklegt að fangelsisvist myndi bera árangur, auk þess sem fangelsi hefði ekki viðunandi möguleika á því að sinna vandamálum hans.
Héraðssaksóknari (
Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Francisco Javier Lorenzo Llama (
Vaka Dagsdóttir lögmaður) og
Franklin Santana Severino (
Kristín Eva Geirsdóttir lögmaður)
Ákærðu voru sakfelldir fyrir að hafa í félagi staðið að innflutningi á 656,90 g af kókaíni með 65-66% styrkleika. Dæmd refsing var fangelsi í 15 mánuði.
Sýknað af ákæru um nauðgun og kynferðisbrot gegn barni. Einkaréttarkröfu brotaþola vísað frá dómi.
Með tveimur dómum héraðsdóms var MJ sakfelldur fyrir umferðarlagabrot, nokkur brot gegn valdstjórninni, að gabba lögreglu, tvær líkamsárásir og tilraun til manndráps samkvæmt samtals fjórum ákærum. MJ skaut báðum dómunum til Landsréttar og voru málin þar sameinuð. Með dómi Landsréttar var niðurstaða beggja héraðsdómanna um sakfellingu MJ staðfest. Ákvæði 16. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 voru ekki talin standa því í vegi að MJ yrði gerð refsing í málinu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot MJ væru ófyrirleitin og margítrekuð. Með vísan til þessa og að teknu tilliti til 3. mgr. 106. gr. og 1. mgr. 218. gr. c, sbr. 71. gr. almennra hegningarlaga, og 1., 2., 3., 5., 6. og 8. töluliðar 1. mgr. 70. gr. sömu laga, var MJ gert að sæta fangelsi í átta ár en gæsluvarðhald sem hann hafði sætt skyldi dragast frá refsingunni. Þá var MJ gert að greiða brotaþolunum A og B tilgreindar miskabætur og að sæta upptöku á hnífsblaði með tilheyrandi svörtu handfangi.
Endurtekin kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum
X var með dómi héraðsdóms sakfelldur í fimm ákæruliðum fyrir brot í nánu sambandi. Fyrir Landsrétti takmarkaðist endurskoðun réttarins við það hvort X skyldi sakfelldur fyrir ákærulið A.V, þar sem honum var gert að sök að hafa brotið gegn nálgunarbanni, hver refsing hans skyldi vera og hvort ástæða væri til að ákveða brotaþola hærri bætur en gert var í héraði, þar sem þær námu 600.000 krónum. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest niðurstaða hans um sakfellingu X samkvæmt ákærulið A.V. Við ákvörðun refsingar var litið til 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í ljósi forsögu refsiákvæða sömu laga um brot í nánu sambandi var við refsiákvörðun X vegna brots gegn 218. gr. b almennra hegningarlaga ekki litið til refsiþyngingarákvæðis 3. mgr. 70. gr. laganna. Þrátt fyrir þetta og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur um refsingu ákærða, skilorðsbundið fangelsi í sex mánuði. Þá var X gert að greiða 800.000 krónur í miskabætur.
Ákæruvaldið (
Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sturlu Eide Jenssyni (
Oddur Ástráðsson lögmaður)
Banaslys í umferðinni.
Ákæruvaldið (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Nansý Rut Víglundsdóttur (
Leifur Runólfsson lögmaður)
Akstur sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkinefna.
Ákæruvaldið (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kamillu Thao Duong (
Einar Hugi Bjarnason lögmaður)
Vörslur og framleiðsla fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Agnes Ýr Stefánsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Róberti Jónssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Endurtekinn þjófnaður og lyfja- og fíkniefnaakstur.
Maður sýknaður af ákæru um nauðgun, sbr. 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Einkaréttarkröfum ætlaðs brotaþola vísað frá dómi og sakarkostnaður felldur á ríkissjóð.
Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Vinh The Vu (sjálfur ólöglærður)
Vörslur og framleiðsla fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Huu Ðuc Nguyen (
Leó Daðason lögmaður)
Vörslur og framleiðsla fíkniefna.
Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Hoa Thanh Thi Khong (sjálf ólöglærð)
Vörslur og framleiðsla fíkniefna.
Ákæruvaldið (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Tung Duy Duong (sjálfur ólöglærður)
Vörslur og framleiðsla fíkniefna.
Vörslur og framleiðsla fíkniefna.
Ákærðu var gerð fangelsisrefsing fyrir innflutning á kókaíni.
Ákæruvaldið (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Jóhanni Þór Sævarsyni (
Sævar Þór Jónsson lögmaður)
Ákærða var gerð fangelsisrefsing og sekt vegna umferðarlagabrota. Honum var gert að sæta eignaupptöku og að greiða sakarkostnað.
Ákæruvaldið (Júlí Karlsson aðstoðarsaksóknari) gegn
Sturlu Arnarssyni
Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir fíkniefnalagabrot og gert að þola eignaupptöku
Staðfestur var úrskurður Landsréttar um niðurfellingu máls á hendur einum af ákærðu.
Ákærða var gerð eignaupptaka og fangelsisrefsing fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Kennedy Aparecido Silva De Almeida (
Elisabeth Matthíasdóttir lögmaður)
Ákærða var gerð fangelsisrefsing fyrir innflutning fíkniefna
Ákærða sakfelld fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða brotaþola. Ákærða var dæmd í fangelsi í 10 ár.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gabríel Sveini Bragasyni (
Björgvin Þórðarson lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir meiriháttar líkamsárás. Einnig var fallist á einkaréttarkröfu.
Ákæruvaldið (
Haukur Gunnarsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sindra Þór Stefánssyni (
Þorgils Þorgilsson lögmaður) og
Sigurði Kristjáni Grímlaugssyni (
Snorri Sturluson lögmaður)
Ákærðu var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir fíkniefna- og vopnalagabrot.
Þjófnaður og rán.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Anabela Vaz E Silva (
Vaka Dagsdóttir lögmaður)
Ákærða játaði innflutning á kókaíni í sölu og dreifingarskyni. Henni var gerð fangelsisrefsing.
Ákærði játaði innflutning á hassi í sölu og dreifingarskyni. Honum var gerð fangelsisrefsing sem var skilorðsbundin að hluta.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hamid Abbou (
Elías Kristjánsson lögmaður)
Ákærði játaði innflutning á hassi í sölu og dreifingarskyni. Honum var gerð fangelsisrefsing sem var skilorðsbundin að hluta.
Ákærði játaði innflutning á hassi í sölu og dreifingarskyni. Honum var gerð fangelsisrefsing sem var skilorðsbundin að hluta.
Ákæruvaldið (
Agnes Ýr Stefánsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Sebastian Artur Oklejak (
Bjarni Hólmar Einarsson lögmaður)
Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi (
Rósamunda Jóna Baldursdóttir fulltrúi)
gegn
X (
Húnbogi J. Andersen lögmaður)
Ákærði var fundinn sekur um manndráp af gáleysi sem og líkamsmeiðingar af gáleysi, en með ölvunar- og ofsaakstri varð hann valdur að dauða eins farþega bifreiðar sinnar og líkamstjóns annars farþega. Var ákærða gert að sæta fangelsi í níu mánuði, þar af sex skilorðsbundið til tveggja ára, auk greiðslu hluta sakarkostnaðar. Þá var ákærði sviptur ökurétti í tvö og hálft ár. Við ákvörðun refsingar var litið til skýlausrar játningar ákærða, hreins sakaferill hans og þess að hann sýndi mikla iðrun. Þá var ákærði dæmdur til að greiða foreldrum hins látna farþega miskabætur og útfarakostnað og hinum slasaða farþega miskabætur, auk málskostnaðar.
Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing vegna líkamsárásar.
Ákæruvaldið (
Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi)
gegn
Ívari Ketilssyni (
Almar Þór Möller lögmaður)
Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing og fallist á upptökukröfur vegna fíkniefnalagabrots. Allur sakarkostnaður var einnig felldur á ákærða.
Sakfellt og dæmd skilorðsbundin refsing og fallist á upptökukröfur vegna fíkniefnalagabrota og vopnalagabrots.
Ákærða var gerð fangelsisrefsing vegna umferðarlagabrots. Játningarmál.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Páli Þór Rúnarssyni
Ákærða var gerð sekt fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Hann var einnig sviptur ökurétti tímabundið og þurfti hann að þola upptöku fíkniefna. Útivistarmál.
Sakfellt og dæmd refsing og ákvarðaðar miskabætur fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en ekki var talið sýnt fram á að ákærði hefði haft ásetning til manndráps.
Ákærða var gerð fangelsisrefsing sem var að hluta skilorðsbundin fyrir að hafa staðið að innflutningi á 9.900 g af maríhúana
Ákærða varð gerð fangelsisrefsing fyrir skjalfals
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Maksims Nazarovs (
Birkir Már Árnason lögmaður)
Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir fíkniefnalagabrot. Um hegningarauka var að ræða.
Ákæruvaldið (Kamilla Kjerúlf saksóknarfulltrúi) gegn
Tomas Montrimas
Ákærði gerðist sekur um þjófnað og ítrekuð umferðarlagabrot. Gerð fangelsisrefsing og ökuréttarsvipting. Fallist á einkaréttarkröfu.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Gestur Alexander Hilmarsson (
Ólafur V. Thordersen lögmaður)
Ákærða var gerð skilorðsbundin fangelsisrefsing fyrir vörslu fíkniefna, vopnalagabrot og peningaþvætti.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Maurice Andy og Monica Ekiuwa Adun (
Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)
Ákærðu voru dæmd til skilorðsbundinnar fangelsisrefsingar fyrir peningaþvætti