Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

260 dómar fundust

Lög: Lög um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940. nr. 40/1992

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. janúar 2026

S-4029/2025

Héraðssaksóknari (Halldór Rósmundur Guðjónsson aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Vali Guðmundssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Alexander Hafþórsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 199. gr. a í almennum hegningarlögum en sýknaður af broti gegn 209. gr. og 233. gr. b í sömu lögum. Var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Landsréttur birt 9. febrúar 2024

116/2023

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Sigurður Jónsson réttargæslumaður) (Sverrir Sigurjónsson lögmaður, 3. prófmál) (Sigurður Sigurjónsson réttargæslumaður) (Jónína Guðmundsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Áfrýjað var dómi héraðsdóms þar sem X var sakfelldur fyrir brot gegn 2. mgr. 202. gr., sbr. 2. mgr. 201. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa áreitt A kynferðislega, með því að hafa ítrekað haldið um kynfæri hennar utan klæða þar sem hún lá við hlið hans í rúminu og í tvö til þrjú skipti fært A upp á sig þannig hún lægi með bringuna upp við kynfæri hans utan klæða. Með dómi héraðsdóms var X einnig sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 199. gr. almennra hegningarlaga, sbr. áður 209. gr. sömu laga, með því að hafa tekið mynd af B þar sem hún lá sofandi nakin að neðan, fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a, 1. mgr. 199. gr. a almennra hegningarlaga, sbr. áður 209. gr. sömu laga, og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með því að hafa tekið myndir af C nakinni eða fáklæddri, og fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a almennra hegningarlaga með því að hafa haft í vörslu sinni í farsíma samtals tólf myndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Þá var X gert að sæta upptöku á framangreindu myndefni, farsíma og turntölvu. Í Landsrétti var X sýknaður af kynferðisbroti gegn A, sbr. 2. mgr. 202. gr., sbr. 2. mgr. 201. gr., almennra hegningarlaga, og einkaréttarkröfu hennar vísað frá dómi. Í dómi Landsréttar kom meðal annars fram að þegar frá væru taldir framburðir X og A nyti ekki við í málinu neinna beinna sönnunargagna um þá kynferðislegu áreitni sem X væri gefin að sök í þessum lið ákærunnar. Við aðalmeðferð málsins í héraði hefði ekkert þeirra vitna sem þar gaf skýrslu getað borið um sakargiftir málsins af eigin raun, en flest þeirra tengist X og A fjölskylduböndum. Móðir A hefði greint frá því að dóttir hennar hefði á tímabili sýnt af sér óeðlilega kynferðislega hegðun og hefði hún leitað ráðgjafar í Barnahúsi af því tilefni. Í gögnum málsins lægi hins vegar ekkert fyrir um samskipti við Barnahús og mat starfsfólks þess á hegðun A og þá hefðu í málinu ekki verið leidd fram önnur vitni sem varpað gætu ljósi á þessa hegðun A. Í Landsrétti var X einnig sýknaður af broti gegn 210. gr. a. almennra hegningarlaga, meðal annars með vísan til þess að ekki væri talið hafið yfir skynsamlegan vafa að myndirnar sýndu börn „á kynferðislegan eða klámfenginn hátt“ í skilningi 1. mgr. 210. gr. a. laganna. Var hinn áfrýjaði dómur að öðru leyti staðfestur um sakfellingu ákærða fyrir kynferðisbrot gegn B og C, greiðslu miskabóta og upptöku. Var refsing X ákveðin fangelsi í sex mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára.

Landsréttur birt 17. nóvember 2023

521/2022

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður) (Þorbjörg Inga Jónsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur í héraði fyrir að hafa sent fyrrverandi eiginmanni A smáskilaboð með kynferðislegum myndum af A og smáskilaboð með myndbandi sem sýndi A í kynferðislegum athöfnum samkvæmt ákærulið I.2 í ákæru, dagsettri 28. október 2021, sem og að hafa sent A tölvupóst með fjórum ljósmyndum í viðhengi en tvær myndanna sýndu A veita X munnmök, sbr. ákærulið I.3 í sömu ákæru. Héraðsdómur heimfærði háttsemi X undir 199. gr. a, sbr. áður 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Með dómi Landsréttar var sakfelling X staðfest. Var háttsemi X samkvæmt ákærulið I.2 heimfærð undir 199. gr. a og 233. gr. b almennra hegningarlaga, en háttsemi hans samkvæmt ákærulið I.3 var heimfærð undir 209. gr. og 233. gr. b almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar X var litið til þess að brot hans fólu í sér grófa röskun á friðhelgi einkalífs A og væri til þess fallið að valda þeim sem fyrir því yrði andlegu tjóni eða hugarangri. Þá væri ávallt hætta á því að myndefni af þessum toga færi í stjórnlausa dreifingu á internetinu. Einnig var tekið tillit til þess að tafir höfðu orðið á meðferð málsins. Að öllu þessu virtu og með vísan til 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. og 78. gr., sbr. 1. mgr. 77. gr., almennra hegningarlaga, var refsing X ákveðin fangelsi í sex mánuði en fullnustu hennar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X gert að greiða A 500.000 krónur í miskabætur.

Landsréttur birt 17. febrúar 2023

44/2022

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn Erling Arnari Erlingssyni (Jónas Þór Jónasson lögmaður) (Arnar Kormákur Friðriksson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

E var ákærður samkvæmt 1. ákærulið fyrir brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, nú 1. mgr. 199. gr. a sömu laga, fyrir að hafa, er hann var stuðningsfulltrúi á sambýli, tekið upp myndbrot af vistmanni á sambýlinu, brotaþola, er hann lá nakinn í rúmi sínu og handlék ber kynfæri sín og sent myndbrotið með samskiptaforriti á vitnið A. Var brot ákærða samkvæmt 1. ákærulið jafnframt heimfært til 138. gr. hegningarlaga sem mælir fyrir um heimild til refsiþyngingar, hafi opinber starfsmaður gerst sekur um refsilagabrot með verknaði sem telja verður misnotkun á stöðu hans og við því broti því er ekki lögð sérstök refsing sem broti í embætti eða sýslan. Var E jafnframt ákærður samkvæmt 2. ákærulið fyrir hótunarbrot samkvæmt 233. gr. hegningarlaga með því að hafa viðhaft nánar tilgreindar hótanir í garð vitnisins A gegnum samskiptaforrit. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu E fyrir brot samkvæmt 1. ákærulið sem var refsivert samkvæmt 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. nú 1. mgr. 199. gr. a. sömu laga. Fram kom að í ljósi gagna málsins lægi ekkert fyrir í málinu því til stuðnings að ákærði hefði stöðu sinnar vegna sem stuðningsfulltrúi eða á grundvelli heimildar í lögum getað tekið eða haft áhrif á ákvarðanir um réttindi eða skyldur heimilismanna á sambýlinu. Að því gættu og jafnframt í ljósi túlkunar hugtaksins opinber starfsmaður í skilningi 138. gr. hegningarlaga, sem og að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, var staðfest niðurstaða hans um að sýkna bæri ákærða af þeim sakargiftum í 1. ákærulið sem lutu að broti í opinberu starfi samkvæmt ákvæðinu. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu fyrir hótunarbrot samkvæmt 2. ákærulið, refsingu ákærða og greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2022

S-3887/2021

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt og sýknað af ákæru um sendingu kynferðislegs myndefnis. Einnig sýknað af ákæru vegna meints brots í nánu sambandi, meintrar nauðgunar og meintra brota gegn nálgunarbanni. Miskabætur dæmdur en einkaréttarkröfum að öðru leyti vísað frá dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. desember 2021

S-3223/2021

Ákæruvaldið (Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jónas Þór Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt fyrir kynferðisbrot og hótun. Sýknað af broti í opinberu starfi.

Landsréttur birt 11. október 2019

781/2018

Ákæruvaldið gegn X (Benedikt Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Staðfestur var dómur héraðsdóms þar sem X var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn A með því að hafa notfært sér andlega fötlun hennar og misnotað freklega þá aðstöðu sína að hún var honum háð til að hafa margsinnis við hana samræði. Var háttsemin talin varða við 2. mgr. 194 gr. og 198. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing X var ákveðin fangelsi í fjögur ár auk þess sem honum var gert að greiða A 2.000.000 króna í miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 10. febrúar 2017

S-335/2015

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Uros Rudinac (Páll Kristjánsson hdl)
Lykilorð: Kynferðisbrot. Sýkna.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn blygðunarsemi og fyrir barnaverndarlagabrot. Brotaþola dæmdar miskabætur.

Hæstiréttur birt 24. nóvember 2016

74/2016

Ólafur Reynir Guðmundsson (Reimar Snæfells Pétursson hrl) gegn Önnu Steinunni Þórhallsdóttur og Hallgrími Þór Harðarsyni (Ragnar Aðalsteinsson hrl)

A og H höfðuðu mál á hendur Ó til heimtu eftirstöðva kaupverðs samkvæmt kaupsamningi um fasteign, en Ó hélt uppi gagnkröfu vegna ætlaða galla á hinu selda. Var gagnkrafan í fyrsta lagi vegna ýmissa galla sem hann taldi vera innanhúss, einkum vegna raka eða myglu, í öðru lagi á þaki, í þriðja lagi á fráveitulögnum og í fjórða lagi á baðherbergi. Þá krafðist Ó skaðabóta vegna kostnaðar við leigu á húsnæði þann tíma sem viðgerðum og endurbótum stóð. Talið var að Ó hefði engar sönnur fært að því að A og H hefðu verið kunnugt um þann raka sem fannst innanhúss þannig að varðaði vanrækslu á upplýsingaskyldu seljanda samkvæmt 26. gr. fasteignakaupalaga nr. 40/2002. Á hinn bóginn þótti sannað að A og H hefðu hlotið að vita um ástand þakviða við skorstein fasteignarinnar og að öndunarpípa hefði ekki legið í gegnum þakið, heldur endað í risinu sjálfu. Voru þau því dæmd skaðabótaskyld vegna tjóns sem af þessu mátti leiða. Jafnframt var talið að ástand frárennslislagna hefði ekki verið í samræmi við upplýsingar í söluyfirliti fasteignarinnar. Með vísan til 1. mgr. 27. gr. fasteignakaupalaga voru A og H látin bera ábyrgð á því. Þá var litið svo á að þeir ágallar sem Ó taldi vera á baðherbergi fasteignarinnar væru ekki gallar í skilningi 18. gr. laganna. Loks var ekki fallist á með Ó að þeir gallar, sem hefðu verið á fasteigninni og leiddu til réttar hans til skaðabóta, hefðu verið slíkir að nauðsynlegt hefði verið fyrir hann að flytja úr íbúðinni til lengri tíma vegna úrbóta á þeim. Voru A og H því sýknuð af þeirri kröfu.

Hæstiréttur birt 29. september 2016

35/2016

Málaflokkur: Kynferðisbrot

Í héraði voru X, Y, Z, Þ og Æ sýknaðir af því að hafa í félagi í svefnherbergi íbúðar haft margs konar kynferðismök við A með því að beita hana ofbeldi og annars konar ólögmætri nauðung. Þá var Y einnig sýknaður af því að hafa í beinu framhaldi af þessu haft kynmök við A á baðherbergi í sömu íbúð gegn vilja hennar. Æ var á hinn bóginn sakfelldur og gert að greiða A miskabætur fyrir að hafa myndað kynmökin í svefnherberginu án leyfis A, en sýknaður af því að hafa daginn eftir sýnt öðrum en meðákærðu myndefnið. Í dómi Hæstaréttar var ekki fallist á með ákæruvaldinu að ómerkja bæri héraðsdóm á þeim grunni að samningu dómsins hefði verið áfátt. Þá var vísað til þess að samkvæmt 2. mgr. 208. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála gæti Hæstiréttur ekki endurmetið niðurstöðu héraðsdóms um sönnunargildi munnlegs framburðar nema hlutaðeigandi vitni eða ákærði gæfu skýrslu þar fyrir dómi. Við þær aðstæður gæti Hæstiréttur hins vegar fellt úr gildi héraðsdóm samkvæmt 3. mgr. sömu lagagreinar ef taldar væru líkur á að niðurstaða héraðsdómara um sönnunargildi munnlegs framburðar fyrir dómi kynni að vera röng svo að einhverju skipti um úrslit máls. Talið var að í hinum áfrýjaða dómi hefði verið tekin afstaða til þess á rökstuddan hátt, meðal annars með mati á trúverðugleika munnlegs framburðar ákærðu, A og eftir atvikum annarra vitna fyrir dómi, hvað teldist sannað í þeim þætti málsins er varðaði hina ætluðu nauðgun og hvað ekki, sbr. f. lið 2. mgr. 183. gr. laga nr. 88/2008. Sama var talið gilda um þátt Æ við myndun kynmakanna. Var sá hluti dómsins því ekki ómerktur á grundvelli 3. mgr. 208. gr. laganna. Á hinn bóginn var frásögn Æ um að einhver, sem hann gat ekki nafngreint, hefði tekið farsíma hans ófrjálsri hendi og sýnt nokkrum samnemendum myndefnið talin fjarstæðukennd. Var því litið svo á að nægar líkur hefðu verið leiddar að því að mat meirihluta hins fjölskipaða héraðsdóms á sönnunargildi framburðar Æ og tiltekinna vitna kynni að vera rangt svo að einhverju skipti um úrlausn sakargifta á hendur honum hvað þennan lið ákæru varðaði. Af þeim sökum var sá hluti dómsins ómerktur og þeim þætti málsins vísað heim í hérað til meðferðar og dómsálagningar að nýju, sbr. 3. mgr. 208. gr. laga nr. 88/2008. Að öðru leyti og með hliðsjón af þeirri meginreglu að allan vafa um sekt ákærða eigi að skýra honum í hag var niðurstaða héraðsdóms staðfest.

Héraðsdómur Vestfjarða birt 1. júlí 2016

S-9/2016

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn X (Tryggvi Guðmundsson hdl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn ellefu ára dreng og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Hæstiréttur birt 27. nóvember 2014

538/2014

Ákæruvaldið gegn X (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn A, sem þá var 12 ára gömul, með því að hafa farið með hönd undir sæng hennar þar sem hún lá í rúmi, fært fótleggi A í sundur, káfað á kynfærum hennar innan klæða og sett fingur inn í leggöng. Var brot X talið varða við 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði, en fullnustu 12 mánaða af henni frestað og félli sá hluti niður að liðnum tveimur árum héldi X almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Þá var X gert að greiða A 600.000 krónur í skaðabætur.

Hæstiréttur birt 23. október 2014

388/2014

Ákæruvaldið gegn Robert Tomasz Czarny (Ingi Tryggvason hrl, Pétur Kristinsson hdl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

R var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn A, sem þá var á aldrinum 8 til 13 ára, og var háttsemin talin varða við 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 2. mgr. sömu greinar og síðastgreint ákvæði, sbr. 20. gr. laganna. R var einnig sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn systur A, B, sem þá var á aldrinum 12 til 14 ára, og var háttsemin talin varða við 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga og 2. mgr. sömu greinar. Um ákvörðun refsingar var skírskotað til þess að R væri sakfelldur fyrir alvarleg margendurtekin kynferðisbrot gegn tveimur börnum sem staðið hefðu yfir í langan tíma er hann dvaldi á heimili þeirra. Var R talinn hafa nýtt sér aðstöðumun sinn og trúnaðartraust brotaþolanna og hann ekki talinn eiga sér málsbætur. Við ákvörðun refsingar var af þeim sökum litið til 1., 4. og 6. tölul. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga og refsing hans ákveðin með vísan til 77. gr. sömu laga, svo og að teknu tilliti til þess að brot R voru öll framin eftir gildistöku laga nr. 61/2007, sem breyttu refsimörkum hlutaðeigandi refsiheimilda. Var refsing R ákveðin fangelsi í sex ár og honum gert að greiða skaðabætur að fjárhæð 3.500.000 krónur til hvors brotaþola um sig.

Hæstiréttur birt 8. maí 2014

147/2014

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Hjálmari Forna Poulsen (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) (Einar Gautur Steingrímsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

H var sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa tælt A, sem þá var 15 ára, til að hafa við sig kynferðismök með því að gefa honum vilyrði fyrir bifhjóli að launum fyrir þau. Ljóst þótti að H hefði notfært sér yfirburði aldurs, reynslu og þroska í því skyni að tæla A til kynferðismakanna. Þá var H einnig sakfelldur fyrir að hafa í vörslu sinni hreyfimynd sem sýndi barn á kynferðislegan og klámfenginn hátt. Var háttsemi H talin varða við 3. mgr. 202. gr. og 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Við ákvörðun refsingar var litið til alvarleika brots hans gagnvart A, en að auki að hann hefði ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, hann hefði verið ungur að aldri er brotið var framið og rannsókn málsins hefði dregist nokkuð. Var refsing H ákveðin fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var H gert að greiða A 600.000 krónur í miskabætur og sæta upptöku á fartölvu.

Hæstiréttur birt 6. mars 2014

329/2013

Ákæruvaldið gegn X (Ásgeir Jónsson hrl, Jón Haukur Hauksson hdl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa í tvö aðgreind skipti haft kynferðismök við A, sem þá var 14 ára, gegn greiðslu, án þess að gæta nægjanlegrar varúðar um aldur piltsins. Var háttsemin talin varða við 1. mgr. 202. gr., sbr. 204. gr., og 2. mgr. 206. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var refsing X ákveðin fangelsi í 12 mánuði, en rétt þótti að fresta fullnustu 9 mánaða af refsingunni skilorðsbundið í 3 ár sökum þess að meðferð málsins hafði dregist úr hömlu, af ástæðum sem X varð ekki um kennt. Þá var X gert að greiða A 600.000 krónur í miskabætur.

Hæstiréttur birt 27. febrúar 2014

495/2013

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Jóni Fannari Hafsteinssyni (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl) (Árni Pálsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

J var sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því m.a. að hafa berað á sér kynfærin og fróað sér í návist A, sem þá var 15 ára, viðhaft við hana kynferðislegt og ósiðlegt tal, reynt að taka af henni sæng og káfað á henni og við það notfært sér yfirburðastöðu sína vegna aldurs- og aflsmunar og reynsluleysis A auk þess sem hún var ein með honum í herbergi og fjarri heimili sínu. Var háttsemi J talin varða við 199. gr. og 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Var refsing J ákveðin fangelsi í 12 mánuði auk þess sem honum var gert að greiða A 800.000 krónur í miskabætur.

Hæstiréttur birt 24. október 2013

586/2012

Ákæruvaldið gegn Berki Ragnarssyni (Brynjar Níelsson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

B var sakfelldur fyrir kynferðisbrot með því að hafa í að minnsta kosti eitt skipti haft kynferðismök við A, sem var 14 ára, gegn greiðslu. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir tilraun til kynferðisbrots með því að hafa mælt sér mót við A og farið með hann á afvikinn stað þar sem hann ætlaði að hafa við hann kynferðismök gegn greiðslu. Var háttsemi B annars vegar talin varða við 1. mgr. 202. gr. og 2. mgr. 206. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og hins vegar við framangreind ákvæði, sbr. 1. mgr. 20. gr. sömu laga. Var refsing B ákveðin fangelsi í 2 ár og 6 mánuði auk þess sem honum var gert að greiða A miskabætur.

Hæstiréttur birt 23. maí 2013

111/2013

Ákæruvaldið gegn Nael, H. A og Rajabi (Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

N var sakfelldur fyrir tvö kynferðisbrot gegn A, sem þá var 14 ára, annars vegar með því að hafa áreitt hana kynferðislega og kysst hana á muninn og hins vegar að hafa áreitt hana kynferðislega og haft við hana kynferðismök með því að klæða hana úr peysu og strjúka henni með hendi á brjóstum og kynfærum innan klæða og láta hana fróa sér uns hann hafði sáðlát og síðan með því að biðja stúlkuna um að hafa við sig samræði. Var háttsemin talin varða við 1. og 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hins vegar var ekki fallist á með ákæruvaldinu að tengsl N við stúlkuna hefðu verið með þeim hætti sem greindi í 1. mgr. 201. gr. laganna, sbr. 5. mgr. 202. gr. þeirra. Þá var N einnig sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn B, sem þá var 13 ára, með því að hafa í færri en átta skipti áreitt hana kynferðislega með því að kyssa hana tungukossa, strjúka henni með hendi á brjóstum innan og utan klæða, strjúka henni með hendi á kynfærum utan klæða og biðja hana um að hafa við sig samræði eða önnur kynferðismök. Var háttsemin talin varða við 2. mgr. 202. gr. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að N hefði nýtt sér yfirburði sína gagnvart stúlkunum í skjóli aldurs og reynslu. Hann hefði á hinn bóginn ekki áður sætt refsingu og þá hefðu orðið tafir á rekstri málsins sem honum yrði ekki um kennt. Með vísan til þessa og 1., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing N ákveðin fangelsi í 18 mánuði og honum gert að greiða skaðabætur til A að fjárhæð 1.000.000 krónur og til B að fjárhæð 800.000 krónur.

Hæstiréttur birt 24. janúar 2013

335/2012

Ákæruvaldið gegn Vali, Brynjari og Andersen (Björn Jóhannesson hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

V var ákærður fyrir að hafa áreitt kynferðislega tvær fjórtán ára stúlkur með því að hafa án vitneskju þeirra tekið ljósmyndir af þeim nöktum á ljósabekk á sólbaðsstofu, en í tilteknum fjölda tilvika hafi kynfæri þeirra sést þar greinilega. Voru brotin í ákæru talin voru varða aðallega við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara 209. gr. sömu laga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Hvorki var af orðalagi 2. mgr. 202. gr., sbr. 199. gr. almennra hegningarlaga né lögskýringargögnum um ákvæðin ráðið skýrlega að kynferðisleg áreitni gæti verið fólgin í háttsemi, sem sá, sem hún beindist að yrði ekki var við. Vafa um inntak 2. mgr. 202. gr. að þessu leyti yrði að meta ákærða í hag og voru brot hans því heimfærð undir 209. gr. almennra hegningarlaga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga. V var einnig ákærður fyrir að hafa haft fyrrgreindar ljósmyndir ásamt afritum þeirra í sínum vörslum. Var V vegna þeirrar háttsemi sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 210. gr. a. almennra hegningarlaga. Refsing V var, að virtum 78. gr., 60. gr. og 77. gr., ákveðin fangelsi í fimm mánuði, en hann hafði áður gerst sekur um brot gegn 209. gr. almennra hegningarlaga og rauf skilorð eldri dóms með vörslu fyrrgreindra ljósmynda.

Héraðsdómur Vesturlands birt 14. janúar 2013

S-17/2012

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl)
Lykilorð: Kynferðisbrot.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart tveimur stúlkum. Refsing tveggja ára fangelsi.

Hæstiréttur birt 8. nóvember 2012

309/2012

Ákæruvaldið gegn X (Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Við rannsókn málsins og fyrir dómi var fenginn túlkur til að túlka fyrir X en báðir töluðu arabísku. Af hálfu X var því haldið fram að hann hefði ekki notið réttlátrar málsmeðferðar þar sem sú arabíska sem túlkurinn talaði væri mjög frábrugðin þeirri arabísku sem X talaði, enda voru þeir frá sitt hvoru landinu. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt nokkrir hnökrar hefðu verið á íslensku túlksins lytu athugasemdir X ekki að efnislegum atriðum sem skipt gætu máli varðandi vörn X. Var því ekki fallist á að túlkurinn hefði ekki haft nægilegt vald á íslenskri og arabískri tungu til þess að X nyti réttlátrar meðferðar málsins. Aftur á móti varð hvorki séð að ákæra hefði verið þýdd úr íslensku yfir á arabísku né að túlkurinn hefði við meðferð málsins þýtt hana orðrétt fyrir ákærða. Þá hefðu skýrslur brotaþola og annarra vitna fyrir dómi heldur ekki verið þýddar. Var hinn áfrýjaði dómur því ómerktur og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til löglegrar meðferðar að nýju frá þingfestingu þess.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 17. apríl 2012

S-70/2012

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn X (Ingvar Þóroddsson hdl)
Lykilorð: Kynferðisbrot.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 12. apríl 2012

S-71/2012

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari) gegn X
Lykilorð: Kynferðisbrot.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum.

Héraðsdómur Vesturlands birt 23. mars 2012

S-17/2012

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Grímur Sigurðarson hdl)
Lykilorð: Kynferðisbrot.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gagnvart tveimur stúlkum. Refsing tveggja ára fangelsi.

Héraðsdómur Vesturlands birt 21. júní 2011

S-156/2011

Ríkissaksóknari (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn X (Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð: Kynferðisbrot.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Karlmaður sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot gagnvart stúlku sökum fyrningar.

Héraðsdómur Reykjaness birt 14. nóvember 2011

S-383/2011

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari) gegn X, Y, Þ og Æ (Brynjar Níelsson hrl)
Lykilorð: Börn. Kynferðisbrot.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Menn dæmdir fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára dreng um borð í skipi. Sýknað var af tveimur ákæruliðum.

Hleð fleiri dómum…