Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

26 dómar fundust

Lykilorð: Heimilisofbeldi

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 9. desember 2024

S-295/2024

Ákæruvaldið (Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) (Inga Lillý Brynjólfsdóttir lögmaður bótakrefjanda) (Ólöf Heiða Guðmundsdóttir lögmaður bótakrefjanda)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærða voru gefin að sök alvarleg brot gegn eiginkonu sinni. Í ákærulið I var honum gefið að sök manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi. Háttsemin sem lýst var í ákæru var talin sönnuð en ekki að hann hafi haft ásetning til manndráps. Var brotið heimfært til 2. mgr. 218. gr. og 1., sbr. 2. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga. Hann var einnig sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi sem lýst var í ákærulið II. Þrátt fyrir að ákærði hafi verið greindur með heilabilun var hann talinn sakhæfur og að ætla mætti að refsing gæti borið árangur. Hann var dæmdur til tólf ára fangelsisvistar. Þá var honum gert að greiða miskabætur og útfararkostnað.

Héraðsdómur Reykjaness birt 26. júní 2024

S-1448/2024

Málið nr. S-1448/2024 Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson saksóknari) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir ofbeldisbrot gagnvart unnustu sinni, auk brota gegn sérrefsilöggjöf og dæmdur í 12 mánaða fangelsi. Þá var ákærði sviptur ökurétti ævilangt. Var um hegingarauka að ræða við fimm mánaða fangelsisdóm frá maí 2024.

Héraðsdómur Reykjaness birt 27. september 2023

S-51/2023

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Grímur Már Þórólfsson réttargæslumaður)
Lykilorð: Heimilisofbeldi. Hótanir.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir brot í nánu sambandi en sýknaður af broti um hótanir. Ákærði var dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða miskabætur 600.000 kr.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. ágúst 2023

S-397/2023

Málið nr. S-397/2023 Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) (Ásta Björk Eiríksdóttir réttargæslumaður brotaþola) (Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður einkaréttarkröfuhafa)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Karlmaður var sakfelldur fyrir heimilisofbeldi gagnvart þáverandi sambýliskonu sinni frá ársbyrjun 2018 til maí 2020, auk brota gegn móður sambýliskonunnar. Ákærði játaði háttsemina fyrir dómi og féllst á bótaskyldu gagnvart konunum. Með hliðsjón af niðurstöðum dómkvadds matsmanns (geðlæknis) um að ákærði hafi verið ósakhæfur á verknaðarstundu vegna alvarlegra veikinda, að refsing í formi fangelsisvistar hefði enga jákvæða þýðingu og að ákærði sé nú og hafi lengi verið undir eftirliti sérfræðinga og sú meðferð skilað árangri, var niðurstaða dómsins sú að gera ákærða ekki refsingu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. júní 2022

S-6022/2021

Ákæruvaldið (Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Björgvin Sigmari M. Ómarssyni (Jónas Örn Jónasson lögmaður)
Málaflokkur: Auðgunarbrot

Sakfellt fyrir ofbeldi í nánu sambandi, tilraun til sérstaklega hættulegrar líkamsárásar, tilraun til hylmingar, fíkniefnabrot, þjófnað, húsbrot, eignaspjöll, nytjastuld, brot gegn lögreglulögum, brot gegn sóttvarnarlögum o.fl. Sýknað af hluta af ákæru eða háttsemi felld undir vægari refsiákvæði eða tilraun. Refsing var ákveðin 18 mánaða fangelsi og var um að ræða hegningarauka við eldri dóm.

Héraðsdómur Austurlands birt 9. júní 2022

S-45/2022

Lögreglustjórinn á Austurlandi (Helgi Jensson aðstoðarsaksóknari) gegn A
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 30. maí 2022

S-3887/2021

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Sakfellt og sýknað af ákæru um sendingu kynferðislegs myndefnis. Einnig sýknað af ákæru vegna meints brots í nánu sambandi, meintrar nauðgunar og meintra brota gegn nálgunarbanni. Miskabætur dæmdur en einkaréttarkröfum að öðru leyti vísað frá dómi.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 15. mars 2022

S-284/2021

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra (Alla Rún Rúnarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Friðrik Smárason)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga gegn nákomnum einstakling og umferðarlagabrot. Ákærði dæmdur til 60 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar og 140 þúsund króna sektar til ríkissjóðs.

Héraðsdómur Reykjaness birt 28. febrúar 2022

S-1547/2021

Málið nr. S-1547/2021 Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ásta Björk Eiríksdóttir lögmaður) (Ásgeir Jónsson réttargæslumenn brotaþola) (Halldóra Aðalsteinsdóttir réttargæslumenn brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði var sakfelldur fyrir heimilisofbeldi gagnvart fyrrum eiginkonu sinni og tveimur börnum á árunum 2017-2019 og dæmdur í tveggja ára fangelsi, auk þess sem honum var gert að greiða þolendum ofbeldisins miskabætur. Eldri sakargiftum á hendur ákærða vegna ofbeldis gagnvart eiginkonunni á árunum 2012-2013 var vísað frá dómi.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 3. febrúar 2022

S-370/2021

Ákæruvaldið (Eyþór Þorbergsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Andrés Már Magnússon lögmaður) (Auður Hörn Freysdóttir réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás á þáverandi eiginkonu sína samkvæmt 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði og brotaþoli voru á umræddum tíma nákomin í skilningi 3. mgr. 70. gr. sömu laga og vóg það til refsiþyngingar. Ákærði dæmdur til 5 mánaða skilorðsbundinnar fangavistar og greiðslu 900.000 króna miskabóta til brotaþola.

Héraðsdómur Reykjaness birt 7. janúar 2022

S-1845/2021

Málið nr. S-1845/2021 Ákæruvaldið (Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Jóhannes Albert Kristbjörnsson lögmaður) og Y (Gunnhildur Pétursdóttir lögmaður) (Ásta Björk Eiríksdóttir réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Foreldrar fjögurra stúlkna voru sakfelld fyrir illa meðferð á dætrum sínum. Vörðuðu brot föður við almenn hegningarlög og var hann dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar og til greiðslu miskabóta. Brot móður vörðuðu við barnaverndarlög og var hún dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2021

S-2299/2021

Ákæruvaldið (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Sakfellt fyrir líkamsárásir og fíkniefna- og umferðarlagabrot. Einnig sakfellt og sýknað að hluta varðandi brot í nánu sambandi.

Héraðsdómur Reykjaness birt 30. júní 2021

S-20/2020

Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður)
Lykilorð: Heimilisofbeldi.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Sakfellt fyrir brot gegn 218. gr. b almennra hegningarlaga.

Héraðsdómur Reykjaness birt 18. júní 2021

S-1236/2020

Ákæruvaldið (Ásmundur Jónsson saksóknarfulltrúi) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður)
Lykilorð: Heimilisofbeldi.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn 218. gr. b almennra hegningarlaga og brot gegn barnaverndarlögum.

Landsréttur birt 16. október 2020

340/2019

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn X (Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærður fyrir heimilisofbeldi og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa á sameiginlegu heimili sínu, móður sinnar, fósturföður og systkina, ráðist að fósturföður sínum, en systir ákærða hafi setið á meðan við hlið föður síns, fósturföður X, og orðið vitni að þeim átökum. Í ákæru var háttsemi X talin varða við 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Í dómi Landsréttar kom fram að ákæra lyti ekki að endurtekinni háttsemi eins og vísað væri til í 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga og lögskýringargögnum með því ákvæði. Þá teldist sú háttsemi sem X væri gefin að sök hvorki alvarleg í skilningi ákvæðisins né þannig að hún yrði heimfærð til 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga eða 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga. Var X sýknaður af kröfum ákæruvaldsins.

Landsréttur birt 17. maí 2019

550/2018

Ákæruvaldið (Óli Ingi Ólason saksóknari) gegn X (Jóhann Pétursson lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa á nánar tilgreindan hátt veist að eiginkonu sinni og dóttur á heimili þeirra. Í málinu hafði X, sem var lögreglumaður, uppi kröfu um að málinu yrði vísað frá dómi þar sem lögreglustjóri hefði verið vanhæf til að fara með rannsókn þess. Í dómi Landsréttar kom fram að lögreglustjórinn gæti hvorki talist aðili máls né hefði hún átt sérstaklegra og verulegra hagsmuna að gæta við rannsókn á meintum brotum X. Þrátt fyrir að rannsókn málsins hafi beinst að starfsmanni lögreglustjórans leiddu þau starfstengsl ekki ein út af fyrir sig til þess að lögreglustjórinn og undirmenn hennar hefðu verið vanhæf til að fara með rannsókn þess á frumstigi en lögreglunni hefði borið að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja rannsóknarhagsmuni. Þá hefði málið ekki verið rannsakað frekar af embættinu eftir ákvörðun lögreglustjórans um að veita ákærða lausn frá embætti heldur verið falið öðru embætti til meðferðar. Var refsing X ákveðin fangelsi í þrjá mánuði en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár.