Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

27 dómar fundust

Lykilorð: Ólögmæt nauðung

Landsréttur birt 12. júní 2026 kl. 22:06

40/2024

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Guðbjarni Eggertsson lögmaður) (Sigurður Freyr Sigurðsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa, án samþykkis og með því að beita ólögmætri nauðung, haft samræði við B, sem þá var 13 ára. Þá var X sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni með því að hafa í nokkur skipti á um sex mánaða tímabili áreitt A kynferðislega með því að þukla að minnsta kosti þrisvar sinnum á brjóstum A innanklæða og reyna í tvígang að færa hönd að kynfærum hennar, rasskellt hana einu sinni og sagt að hún væri með flottan rass. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X hefði gerst sekur um kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum á barnsaldri. Brot hans væru alvarleg og beindust að mikilsverðum hagsmunum. X væri ungur að árum en ætti sér ekki málsbætur að öðru leyti. Var refsing hans ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Þá var X gert að greiða A 1.200.000 króna miskabætur og B 2.000.000 króna. Þar sem upplýst var að þær hefðu þegar fengið þær fjárhæðir að fullu greiddar úr ríkissjóði voru ekki efni til að verða við kröfu þeirra um hærri miskabætur og var X því sýknaður af kröfum um greiðslu hærri miskabóta.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 11. maí 2026 kl. 10:16

S-6970/2025

Héraðssaksóknari (Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir settur saksóknari) gegn Brynjari Leó Hjartarsyni (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður) (Sigurður Freyr Sigurðsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir m.a. nauðgun og sifskaparbrot og dæmdur í þriggja ára fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Reykjaness birt 9. apríl 2026 kl. 15:13

S-1856/2025

Ákæruvaldið (Klara Dögg Thorarensen aðstoðarsaksóknari) gegn Elíasi Georgssyni (Björgvin Jónsson lögmaður) (Ingi Freyr Ágústsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir ólögmæta nauðung, líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum. Ákærði dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu miskabóta.

Hæstiréttur birt 11. júní 2025

2/2025

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn Najeb Mohammad Alhaj Husin (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður) (Saga Ýrr Jónsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa ítrekað haft samræði og önnur kynferðismök við A, sem þá var 14 ára, sbr. 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá var honum gefin að sök kynferðisleg áreitni, samkvæmt 2. mgr. 202. gr. laganna, með því að hafa í tvígang kysst A, og káfað á brjóstum hennar og kynfærum utanklæða. Að endingu var X gefið að sök að hafa haft barnaníðsefni í vörslum sínum, sbr. 1. mgr. 210. gr. a sömu laga. Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur samkvæmt ákæru að því undanskildu að ekki var fallist á heimfærslu háttsemi hans til 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Landsréttur taldi X hafa beitt A ólögmætri nauðung í skilningi 3. málsliðar 1. mgr. 194. gr. sömu laga og var hann því einnig sakfelldur fyrir brot gegn því ákvæði. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu Landsréttar um sakfellingu og heimfærslu brota til 1. mgr. 202. gr. og 1. mgr. 210. gr. a almennra hegningarlaga. Þá var fallist á með Landsrétti að háttsemi X samkvæmt öðrum ákærulið svaraði til hugtaksins „annars konar ólögmæt nauðung“ í skilningi 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga og því teldist samþykki brotaþola, gefið af frjálsum vilja í skilningi málsgreinarinnar, ekki hafa legið fyrir þegar X viðhafði þá háttsemi sem honum var gefin að sök í þeim ákærulið. Niðurstaða Landsréttar um heimfærslu háttseminnar til beggja refsiákvæðanna og um fimm ára fangelsisrefsingu var því staðfest.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. apríl 2025

S-6864/2024

[…]. Í endanlegri mynd er ákæran svohljóðandi „fyrir eftirtalin brot I (Vilhjálmur Reyr Þórhallsson aðstoðarsaksóknari) gegn ákærða X fyrir eftirfarandi brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana-, fíkniefni 1. Fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, með því að hafa föstudaginn 4. júní 2021 (Ingi Freyr Ágústsson lögmaður), sótt (Snorri Sturluson lögmaður) og þann (Gísli Kr. Björnsson lögmaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Í málinu voru ákærðu X og Y sakfelldir fyrir frelsissviptingu og kynferðisbrot gagnvart A. Ákærði Y var einnig sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, brot gegn blygðunarsemi, kynferðislega áreitni og ólögmæta nauðung gagnvart A á meðan á frelsissviptingunni stóð. X var auk þess sakfelldur fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnalagabrots, fíkniefnalagabrot og peningaþvætti. Loks var Z sakfelldur fyrir líkamsárás, hótanir, og kynferðislega áreitni á meðan á framangreindri frelsissviptingu stóð.

Landsréttur birt 20. febrúar 2025

40/2024

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn X (Guðbjarni Eggertsson lögmaður) (Sigurður Freyr Sigurðsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var ákærður annars vegar fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa, án samþykkis og með því að beita ólögmætri nauðung, haft samræði við B, sem þá var 13 ára, ásamt því að láta hana hafa við sig munnmök. Var háttsemi X í ákæru talin varða við 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hins vegar var X ákærður fyrir kynferðislega áreitni með því að hafa í nokkur skipti á um sex mánaða tímabili áreitt A kynferðislega með því að þukla að minnsta kosti fjórum sinnum á brjóstum A innanklæða og reyna tvisvar að færa hönd að kynfærum hennar, rasskellt hana einu sinni og sagt að hún væri með flottan rass. Var háttsemi X í ákæru talin varða við 199. gr. almennra hegningarlaga. Með dómi héraðsdóms var X sakfelldur fyrir þau brot sem honum voru gefin að sök að því undanskildu að hann var sýknaður af þeirri háttsemi að hafa látið B hafa við sig munnmök og jafnframt, þrátt fyrir að talið hefði verið hafið yfir skynsamlegan vafa að X og B hefðu stundað samfarir og X vitað að B hefði verið 13 ára, var X sýknaður af nauðgun samkvæmt 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Í dómi Landsréttar var staðfest með vísan til forsendna sú niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sýknu X af þeirri háttsemi að hafa látið B hafa við sig munnmök. Þá var einnig tekið undir niðurstöðu um að sannað væri að X hefði framið það brot sem honum var gefið að sök gagnvart B í samræmi við þá verknaðarlýsingu sem þar væri að finna, að frátöldum munnmökum. Taldi Landsréttur hins vegar að óhjákvæmilegt væri að leggja til grundvallar að X hefði nýtt sér yfirburðarstöðu gagnvart B vegna aldurs- og þroskamunar og þess að hún hefði verið ein með honum fjarri öðrum. Hafi því verið um ólögmæta nauðung að ræða í skilningi 3. málsliðar 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga og var ákærði sakfelldur samkvæmt því ákvæði en einnig 1. mgr. 202. gr. laganna. Þá staðfesti Landsréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu X fyrir háttsemi sína gegn A en í því sambandi var byggt á þeim fjölda tilvika sem A greindi frá, sem ekki var að öllu leyti í samræmi við ákæru málsins. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að X hefði gerst sekur um kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum á barnsaldri og væru brot hans alvarleg og beindust að mikilsverðum hagsmunum. Var refsing X ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði. Þá var X gert að greiða A 1.200.000 króna í miskabætur og B 2.000.000 króna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. janúar 2025

S-3300/2024

Ákæruvaldið (Þorbjörg Sveinsdóttir saksóknari) gegn Sigurjóni Ólafssyni (Bjarni Hauksson lögmaður) (Ólöf Heiða Guðmundsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Endurtekin kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum

Landsréttur birt 17. október 2024

899/2023

Ákæruvaldið (Margrét Unnur Rögnvaldsdóttir saksóknari) gegn Najeb Mohammad Alhaj Husin (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður) (Júlí Ósk Antonsdóttir réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

N var gefin að sök kynferðisleg áreitni samkvæmt 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa í tvígang kysst A, sem þá var 14 ára, og káfað á brjóstum hennar og kynfærum utanklæða. Þá var N jafnframt gefin að sök nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa ítrekað haft samræði og önnur kynferðismök við A, sbr. 1. mgr. 194. gr. og 1. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga. Að endingu var N gefið að sök að hafa haft barnaníðsefni í vörslum sínum, sbr. 1. mgr. 210. gr. a sömu laga. Var N sakfelldur í héraði samkvæmt ákæru að því undanskildu að ekki var fallist á heimfærslu háttsemi hans til 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Landsréttur taldi N hafa beitt A ólögmætri nauðung í skilningi 3. málsliðar 1. mgr. 194. gr. sömu laga og var hann því einnig sakfelldur fyrir brot gegn því ákvæði. Var refsing N ákveðin fangelsi í fimm ár en til frádráttar refsingunni kom gæsluvarðhald sem hann hafði sætt. Þá var N gert að greiða A miskabætur.

Landsréttur birt 7. júní 2024

133/2023

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari) gegn X (Stefán Þórarinn Ólafsson lögmaður, Stefán Þór Eyjólfsson lögmaður, 4. prófmál) (Guðmundur Ágústsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Kynferðisbrot

X var sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa sumarið 2016 í fellihýsi þuklað á brjóstum A innanklæða og sett fingur í leggöng hennar er hún var 13 ára gömul. Var háttsemin heimfærð til 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 202. gr. sömu laga. Þá var X sakfelldur fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa í júlí 2017 á heimili A, er hún var 14 ára gömul, þuklað á brjóstum hennar innanklæða og sett fingur inn í leggöng hennar. Var háttsemin heimfærð til 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga og 1. mgr. 202. gr. sömu laga. Einnig var X gefin að sök nauðgun með því að hafa í febrúar 2019, með ólögmætri nauðung og án samþykkis, notfært sér að A var sofandi, þuklað á brjóstum hennar innanklæða og sett fingur inn í leggöng hennar en hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga. Í dómi Landsréttar var lagt til grundvallar, að teknu tilliti til endurrits Snapchat samskipta X og A og breytts framburðar A fyrir Landsrétti, að ósannað væri að X hefði sett fingur í leggöng A. Yrði framburður X, sem hefði verið stöðugur og skýr um þetta atvik, lagður til grundvallar, þar með talið um að hann hefði þuklað á brjóstum A utanklæða. Var hann sýknaður af broti gegn 2. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga. Aftur á móti var háttsemin, með vísan til lokamálsliðar 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála heimfærð til 199. gr. almennra hegningarlaga. Enn fremur var X gefin að sök kynferðisleg áreitni gegn barni og kynferðisleg áreitni með því að hafa á árunum 2014 til 2018 eða 2019 í fjöldamörg skipti áreitt A kynferðislega á samskiptamiðlinum Snapchat. Í dómi Landsréttar var með vísan til endurrits Snapchat samskipta X og A, ekki fallist á, gegn staðfastri neitun X, að ákæruvaldinu hefði tekist sönnun á að samskipti af þeim toga sem í ákæru greindi hefðu hafist fyrir júlí 2016. Sannað þótti að X hefði áreitt A kynferðislega frá árinu 2016 til 2019 í fjölmörg skipti á samskiptamiðlinum Snapchat. Var X sakfelldur fyrir brot gegn 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga vegna tímabilsins þar til A varð 15 ára en eftir það var háttsemin heimfærð til 199. gr. almennra hegningarlaga. Loks var X sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni með því að hafa í eitt skipti þuklað á brjóstum A utanklæða og háttsemin heimfærð til 199. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar X var litið til 1., 2. og 6. töluliðar 1. mgr. 70. gr. og 195. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing X ákveðin fangelsi í fimm ár. Þá var X gert að greiða A miskabætur en fjárhæð þeirra þótti hæfilega ákveðin 3.000.000 króna.

Landsréttur birt 16. júní 2023

458/2022

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Ý (Andrés Már Magnússon lögmaður) og Þórði Má Sigurjónssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) (Gísli M. Auðbergsson réttargæslumaður) (Ingvar Þóroddsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Staðfestur var dómur héraðsdóms þar sem Þ var sakfelldur fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og hótanir samkvæmt 1., sbr. 2. mgr. 226. gr., 2. mgr. 218. gr. og 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa í félagi við aðra svipt A frelsi sínu í um fjórar klukkustundir við ógnvekjandi aðstæður, hótað honum og beitt hann alvarlegu ofbeldi. Ý var sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu A, sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga. Jafnframt var Þ sakfelldur fyrir nánar tilgreind brot gegn lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, áfengislagabrot og vopnalagabrot. Þá var Þ sakfelldur fyrir ólögmæta nauðung, frelsissviptingu, tilraun til fjárkúgunar og rán gagnvart B, sbr. 1. mgr. 255. gr., 1. sbr. 2. mgr. 226. gr., 251. gr. sbr. 20. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga, með því að hafa í félagi við annan mann svipt B frelsi sínu í um tvær klukkustundir, hótað honum og beitt hann ofbeldi. Var Þ gert að sæta fangelsi í fjögur ár og greiða A 3.500.000 króna í miskabætur óskipt með Ý ásamt nánar tilgreindum vöxtum og B 1.500.000 króna í miskabætur ásamt nánar tilgreindum vöxtum. Var Ý gert að sæta fangelsi í 12 mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. apríl 2023

S-5277/2022

Ákæruvaldið (Þorbjörg Sveinsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Jóni Valgeiri Stefánssyni (Leó Daðason lögmaður), X (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður) og Y (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður)

Sakfellt vegna líkamsárásar, frelsissviptingar og ólögmætrar nauðungar.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 14. september 2022

S-234/2021

Héraðssaksóknari (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn X og Y (Finnur Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Barnaréttur

Ákærðu sýknuð af ákæru fyrir ólögmæta nauðung og barnaverndarlagabrot, þar sem ósannað þótti að beitt hefði verið nauðung er ákærðu tóku dreng upp í bifreið sína og óku með hann heim til afa síns og ömmu.

Héraðsdómur Reykjaness birt 12. júlí 2022

S-35/2022

2022 á hendur „Otra Gretti Otrasyni, kennitala 000000-0000 […] Aroni Bjarna Stefánssyni, kennitala 000000-0000 […] Sindra Frey Sigurbjartssyni, kennitala 000000-0000 […] og Rakel Jónu Hreiðarsdóttir, (Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari) gegn Otra Gretti Otrasyni (Ólafur Karl Eyjólfsson lögmaður), Aroni Bjarna Stefánssyni (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður), Sindra Frey Sigurbjartssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður) og Rakel Jónu Hreiðarsdóttur (Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður) (Unnsteinn Örn Elvarsson réttargæslumaður)

Ákærðu O, A og S voru sakfelldir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu, rán og hótanir auk greiðslu skaða- og miskabóta til brotaþola. Þeir voru einnig sakfelldir fyrir líkamsárás, frelsissviptingu og ólögmæta nauðung gagnvart C en hann lést fyrir aðalmeðferð málsins. Ákærði O var sakfelldur fyrir nytjastuld og til greiðslu skaðabóta. Ákærða R var sakfelld fyrir hótanir en sýknuð af greiðslu miskabóta.

Héraðsdómur Norðurlands eystra birt 6. apríl 2022

S-448/2020

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir aðstoðarsaksóknari) gegn Elmari Þór Sveinarssyni (Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður), Ara Rúnarssyni, X (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður), Hákoni Geirfinnssyni (Sigmundur Guðmundsson lögmaður), Z (Friðrik Smárason lögmaður), Þórði Má Sigurjónssyni (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) og og Aroni Vigni Erlendssyni (Þorgils Þorgilsson lögmaður) (Gísli M. Auðbergsson réttargæslumaður brotaþola)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu sakfelld fyrir ýmis brot samkvæmt fimm ákærum, þ. á m. tvær frelsissviptingar, stórfellda líkamsárás, rán, hótanir, ólögmæta nauðung, fjársvik, brot á vopnalögum, fíkniefnalögum og áfengislögum. Tvö hinna ákærðu voru sýknuð. Hin sakfelldu voru dæmd til fangelsisvistar frá einu og upp í fjögur ár. Þá var ákærðu gert að greiða brotaþola miskabætur að fjárhæð 3.500.000 krónur og öðrum brotaþola 1.750.000 krónur. Loks var ákærðu gert að greiða þriðja brotaþola 3.716.454 krónur í skaðabætur.

Landsréttur birt 21. janúar 2022

185/2021

Ákæruvaldið gegn X (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, ólögmæta nauðung og brot gegn börnum, með því að hafa veist með ofbeldi að A, fyrrum sambýliskonu unnusta síns, tekið af henni spjaldtölvu og kýlt hana ítrekað í höfuð og líkama, rifið í hár hennar og sparkað og stappað á líkama hennar, allt að börnum A ásjáandi. Talið var sannað að X hefði rifið í líkama A og ýtt við henni með höndum og fótum í því skyni að taka af henni spjaldtölvu og voru brot hennar heimfærð til 1. mgr. 217. gr. og 225. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Með dómi Landsréttar var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að X hefði veist að A með framangreindum hætti. Heimfærsla til barnaverndarlaga var staðfest en ákvæði 225. gr. almennra hegningarlaga var talið tæma sök gagnvart 217. gr. sömu laga. Var refsing X ákveðin fangelsi í 60 daga, skilorðsbundið til tveggja ára, auk þess sem X var gert að greiða A miskabætur að fjárhæð 400.000 krónur.

Héraðsdómur Vesturlands birt 3. febrúar 2021

S-138/2019

Ákæruvaldið (Dröfn Kjærnested aðstoðarsaksóknari) gegn X (Þorgils Þorgilsson lögmaður) og Y (Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærðu Y var gefin að sök sérstaklega hættuleg líkamsárás og ólögmæt nauðung og ákærða X gefið að sök brot í nánu sambandi gegn fyrrum sambýliskonu sinni. Þeim var jafnframt gefið að sök að hafa með háttsemi sinni brotið gegn börnum brotaþola. Voru bæði ákærðu fundin sek um líkamsárás skv. 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og því ekki fallist á það með ákæruvaldinu að árás þeirra yrði felld undir 1., sbr. 2. mgr., 218. gr. b í almennum hegningarlögum, í tilviki ákærða X, eða undir 2. mgr. 218. gr. í sömu lögum. Þá var brot ákærðu Y einnig talið varða við 225. gr. almennra hegningarlaga og brot þeirra beggja að auki við 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga.

Landsréttur birt 30. október 2020

532/2019

Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir settur saksóknari) gegn X (Björgvin Jónsson lögmaður, Gísli Tryggvason lögmaður, 4. prófmál) og Y (Andrés Már Magnússon lögmaður) (Saga Ýrr Jónsdóttir réttargæslumaður)

X var sakfelld fyrir ólögmæta nauðung, sbr. 1. mgr. 225. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og brot gegn 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, með því að hafa veist að A, þá átta ára, með nánar tilgreindum hætti. Þá var Y sakfelld fyrir hlutdeild í framangreindum brotum, sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga. Refsing X var ákveðin fangelsi í þrjá mánuði og refsing Y fangelsi í 30 daga en fullnustu refsinganna var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Jafnframt var X og Y gert að greiða A miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. janúar 2020

S-7062/2019

Héraðssaksóknari (Katrín Hilmarsdóttir saksóknarfulltrúi) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Ákærði sakfelldur fyrir ýmis brot, m.a. stórfellt brot í nánu sambandi, brot á nálgunarbanni, eignaspjöll, líkamsárás og ólögmæta nauðung. Ákærði játaði brot sín skýlaust. Hann var dæmdur í 18 mánaða fangelsi. Til frádráttar refsingu kom gæsluvarðhald ákærða sem hann hafði sætt óslitið fram að uppkvaðningu dóms.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. nóvember 2019

S-391/2019

Héraðssaksóknari (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður), Lukaszi Soliwoda (Gylfi Jens Gylfason lögmaður) og Tomaszi Walkowski
Málaflokkur: Kynferðisbrot

Tveir af þremur ákærðu voru sakfelldir fyrir brot gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa haft samræði við brotaþola með því að beita ólögmætri nauðung. Einn ákærðu var sýknaður.

Landsréttur birt 26. júní 2018

26/2018

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari) gegn X (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður) (Oddgeir Einarsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X var sakfelldur fyrir þrjár líkamsárásir, hótanir, ólögmæta nauðung, nauðgun og stórfelldar ærumeiðingar gagnvart þáverandi sambýliskonu sinni, A. Við ákvörðun refsingar X var litið til þess að brot hans beindust gegn sambýliskonu hans á heimili þeirra. Var refsing ákvörðuð með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Einnig var litið til 1. og 3. töluliðar 1. mgr. og 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Þá var litið til þess að útgáfa ákæru tafðist nokkuð og var hún gefin út um 28 mánuðum eftir að atvik málsins áttu sér stað, en ekki komu fram skýringar á þessum töfum við meðferð málsins. Var refsing X ákveðin fangelsi í þrjú ár. Þá var honum gert að greiða A 2.000.000 króna í miskabætur.

Landsréttur birt 18. maí 2018

9/2018

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn Y (Björgvin Jónsson lögmaður, Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður, 1. prófmál) og X (Jón Magnússon lögmaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

X og Y voru sakfelldir fyrir brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum vopnalaga nr. 16/1998. X var sakfelldur fyrir að hafa skotið af afsagaðri haglabyssu, skáhallt upp í loftið, í átt að hópi manna og stofna með því á ófyrirleitinn hátt lífi eða heilsu þeirra í augljósan háska og Y fyrir að hafa skömmu síðar skotið af sömu haglabyssu á bifreið í um það bil 10 metra fjarlægð, sem A og B voru farþegar í og með því stofnað lífi og heilsu þeirra í stórfelldan háska. X og Y voru einnig sakfelldir fyrir brot gegn 217. gr. almennra hegningarlaga fyrir að hafa í félagi veist að C með því að skvetta vatnsblönduðu ammoníaki í andlit hans og í kjölfarið draga hann út úr bifreið sem hann var farþegi í og veitast að honum með ofbeldi. Þá voru þeir einnig sakfelldir fyrir brot gegn 225. gr. almennra hegningarlaga fyrir að hafa í félagi þvingað D með hótunum um ofbeldi til þess að aka með þá á nánar tilgreindan stað. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess að sú háttsemi ákærðu sem varðaði brot gegn 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga var sérstaklega ófyrirleitin og alvarleg og mikil mildi að ekki hlaust stórfellt líkamstjón eða dauði af. Var refsing Y ákveðin fangelsi í þrjú ár og refsing X tvö ár og sex mánuðir. X og Y játuðu báðir nánar tilgreind umferðarlagabrot sem þeim voru gefin að sök og var Y sviptur ökurétti ævilangt og ævilöng ökuréttarsvipting X áréttuð.

Hæstiréttur birt 20. desember 2011

229/2011

Ákæruvaldið (Kolbrún Benediktsdóttir settur saksóknari) gegn Gesti Hrafnkeli Kristmundssyni (Gunnar Sólnes hrl) (Árni Pálsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

G var ákærður ásamt X fyrir frelsissviptingu, stórfellda líkamsárás, ólögmæta nauðung og tilraun til fjárkúgunar. Í héraði var G dæmdur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 2. mgr. 226. gr. sömu laga fyrir frelsissviptingu og tilraun til fjárkúgunar samkvæmt 251. gr., sbr. 20. gr. laganna. Í ljósi aðferðar og afleiðingar atlögunnar gegn A var G í Hæstarétti sakfelldur fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. laganna. Þá var eins og í málinu hagaði til ekki talið að ákvæði 2. mgr. 226. gr. laganna um frelsissviptingu tæmdi sök gagnvart 225 gr. sömu laga um ólögmæta nauðung. Var G sakfelldur samkvæmt ákæru og refsing hans þyngd. Einnig var hann dæmdur til að greiða A hærri miska- og skaðabætur en í héraði.