Lögregla stöðvaði stefnanda við reglubundið umferðareftirlit skv. umferðarlögum þar eð hann ók á ofsahraða. Fallist var á það að mál á hendur stefnanda hefði verið fellt niður í skilningi 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þegar fíkniefnapróf sýndi að ekki mældust fíkniefni í þvagi hans. Einnig var fallist á að þegar stefnandi fylgdi lögreglunni á lögreglustöð til þess að gefa sýni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna hefði hann verið handtekinn í skilningi 1. mgr. 90. gr. laga nr. 88/2008, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. 363/2024. Það var einnig skilgreint sem líkamsrannsókn í skilningi 77. gr. sömu laga þegar stefnandi gaf lögreglu þvagsýni. Því var hins vegar hafnað að bifreið stefnanda hefði verið haldlögð enda voru ökuréttindi hans runnin út þegar lögregla stöðvaði hann. Stefnanda voru dæmdar miskabætur.
A krafðist bóta vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í umferðarslysi árið 2019 en hún var farþegi í bíl með ölvuðum ökumanni. Ágreiningur í málinu laut að því hvort A hefði sem farþegi í bifreið sýnt af sér háttsemi sem jafna mætti til stórkostlegs gáleysis í skilningi 2. mgr. 88. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987, svo að réttlætanlegt hefði verið að lækka bætur til hennar úr ábyrgðartryggingu bifreiðarinnar hjá S hf. Í dómi Landsréttar var talið að ekkert hefði komið fram í málinu um að A hefði séð ökumanninn neyta áfengis áður en hún tók far sér far með honum. Lagt var til grundvallar að A og ökumaðurinn hefðu eytt skömmum tíma saman um kvöldið og ökumaðurinn greint A frá því að hann væri edrú. Þá lá fyrir framburður vitnisins C sem einnig var farþegi í bifreiðinni um að ekki hefði verið unnt að greina á ökumanninum að hann hefði verið undir áhrifum áfengis. Var því ekki talið sannað að A hefði hlotið að vera ljóst þegar hún tók sér far með ökumanninum að hann væri undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega, en af gögnum málsins mátti ráða að önnur atvik urðu til þess að bifreiðin fór út af veginum. Var krafa A um óskertar bætur úr hendi S hf. því tekin til greina og niðurstaða hins áfrýjaða dóms því staðfest.
A var stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar 15. nóvember 2018. Í lögregluskýrslu kom fram að grunur hefði vaknað um akstur undir áhrifum fíkniefna og var A handtekinn og færður á lögreglustöð. A var gert að sæta blóð- og þvagrannsókn og greindist umbrotsefni THC sem er í kannabis í þvagi hans. Seinna var rannsókn á máli A hætt. Höfðaði A málið til heimtu bóta vegna þvingunaraðgerða sem hann hafði verið beittur, bæði handtöku og líkamsrannsókn. Í dómi Landsréttar var rakið að með hliðsjón af 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar stæðu efnisrök til að beita bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með lögjöfnun um handtöku A og jafnframt stæðu efnisrök til að beita bótareglunni og þá blóð- og þvagrannsókn sem A varð að sæta meðan hann var sviptur frelsi á grundvelli 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Landsréttur vísaði til þess að skilyrðum 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 fyrir bótaábyrgð Í væri fullnægt. Aftur á móti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að A hefði valdið eða stuðlað sjálfur að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfu sína á. Samkvæmt niðurlagi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þótti rétt að fella að öllu leyti niður bætur til A. Var því fallist á kröfu Í um sýknu af kröfu A.
Stefnanda voru dæmdar miskabætur vegna handtöku við rannsókn lögreglu á máli hans, sem síðar var fellt niður.
I var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með brotinu gerðist I í þriðja sinn sekur um akstur undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna. Í dómi Landsréttar kom fram að dómur um sekt og sviptingu ökuréttar fyrir ölvunarakstur sem kveðinn hefði verið upp 20. janúar 2017 hefði ítrekunaráhrif við ákvörðun refsingar fyrir það brot sem hann væri nú sakfelldur fyrir. Var hinn áfrýjaði dómur staðfestur og I gert að sæta 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (
Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hróðmari Vífli Einarssyni (
Sveinn Guðmundsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og honum gert að sæta fangelsi í 30 daga, að greiða 120.000 króna sekt í ríkissjóð. Ákærði sviptur ökurétti ævilangt.
Stefndi íslenska ríkið sýknað af bótakröfum stefnanda vegna lögregluafskipta, þar sem stefnandi lét í té munnvatnssýni, og kröfum stefnanda um ómerkingu ummæla vegna skráningar í gagnagrunn lögreglu.
A var ákærður fyrir ýmis brot í 13 ákæruliðum. Við meðferð málsins í héraði féll ákæruvaldið frá 5 ákæruliðum. Með hinum áfrýjaða dómi var A sakfelldur fyrir þá ákæruliði sem eftir stóðu, að undanskildum ákærulið 11 sem hann var sýknaður af. Fyrir Landsrétti krafðist A sýknu af ákæruliðum 4, 10 og 12 en hann hafði játað brot samkvæmt ákæruliðum 1, 8, 9 og 13. Við úrlausn um ákærulið 4, sem sneri að meintum þjófnaði A úr verslun og umferðarlagabroti, kom fram í dómi Landsréttar að gögn um rannsókn lögreglu væru rýr og ákæruvaldinu hefði ekki tekist að færa sönnur á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefin að sök. Var A því sýknaður af ákærulið 4. Samkvæmt ákærulið 10 var A gefinn að sök nytjastuldur með því að hafa heimildarlaust tekið tilgreinda bifreið og notað hana uns lögregla hafði afskipti af honum sofandi í bifreiðinni. Í dómi Landsréttar var rakið að ekki hefði verið sýnt fram á að A hefði gerst sekur um þá háttsemi sem í ákæruliðnum væri lýst. Var A því sýknaður af kröfum ákæruvaldsins að þessu leyti. Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti var horft á myndupptöku af atburðum sem heyra undir ákærulið 12 og kannaðist A við sig á upptökunni. Með hliðsjón af því, vættum vitna og gögnum málsins að öðru leyti, var hinn áfrýjaði dómur staðfestur um sakfellingu A samkvæmt ákærulið 12. Hinn áfrýjaði dómur var að öðru leyti staðfestur með vísan til forsendna um annað en ákvörðun refsingar, sviptingu ökuréttar og upptöku á tveimur farsímum og spjaldtölvu. Refsing A þótti hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða brotaþola skaðabætur.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Íris Þóra Júlíusdóttir saksóknarfulltrúi) gegn
Gunnlaugi Dan Guðjónssyni
Játningarmál. Ákærði sakfelldur fyrir akstur ökutækis undir áhrifum fíkniefna og fyrir að tala í síma á meðan á akstrinum stóð. Þá hafði ákærði fíkniefni í sínum vörslum. Ákærði var að ítreka í annað skipti akstur ökutækis undir áhrifum og var hann því dæmdur í fangelsi í 30 daga.
Ákæruvaldið (
Marín Ólafsdóttir saksóknari)
gegn
Herluf Ingvari Clausen (
Sigmundur Hannesson lögmaður)
H var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Að virtum sakaferli H og í samræmi við dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt þar sem brot hans taldist ítrekað öðru sinni í skilningi 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
Wiktor Tomasz W. Tómassyni (
Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
W var sakfelldur í héraðsdómi fyrir að hafa árið 2020 ekið tvívegis undir áhrifum fíkniefna og einu sinni án þess að hafa ökuskírteini meðferðis. Játaði hann háttsemi sína skýlaust fyrir héraðsdómi. Var W gert að greiða sekt að fjárhæð 410.000 krónum en sæta ella fangelsi í 24 daga auk þess sem hann var sviptur ökuréttindum í 27 mánuði og honum gert að greiða sakarkostnað. Við ákvörðun refsingar í héraði var með vísan til dóms Landsréttar nr. 689/2019 ekki litið til þess að hann hafði gengist undir lögreglusátt árið 2018 fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987 eftir að tetrahýdrókannabínólsýra greindist í þvagi hans. Rakið var að með umferðarlögum nr. 77/2019, sem tóku gildi eftir að W gekkst undir lögreglusáttina en áður en fyrrgreindur fíkniefnaakstur átti sér stað, teldist ökumaður undir áhrifum ávana- og fíkniefna einnig óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- og fíkniefni fyndust í blóði hans og væri því ekki efni til að líta til sáttarinnar við mat á sakaferli ákærða og ákvörðun refsiviðurlaga. Með dómi Landsréttar var niðurstaða héraðsdóms um sakfellingu W staðfest en við ákvörðun refsingar hans var meðal annars litið til fyrrgreindrar sáttar. Vísað var til þess að með dómi Hæstaréttar nr. 30/2021 hefði fyrrgreindum dómi Landsréttar verið hrundið og breytt á þann veg að því var slegið föstu að taka skyldi mið af sakaferli þeirra sem gerðust sekir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna sem hefðu áður brotið gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a laga nr. 50/1987 sem og vegna þess að ávana- og fíkniefni hefðu einungis mælst í þvagi þeirra. Með hliðsjón af framangreindu var W gert að greiða sekt að fjárhæð 610.000 krónum en sæta ella fangelsi í 32 daga. Ekki var fallist á kröfu ákæruvaldsins um að ökuréttarsvipting W yrði lengd þar sem sú krafa kom fyrst fram í greinargerð fyrir Landsrétti en hefði með réttu átt að koma fram í áfrýjunarstefnu. Var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um ökuréttarsviptingu ákærða.
Með dómi Héraðsdóms Suðurlands 22. maí 2019 var W sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa að ekið bifreið án tilskilinna ökuréttinda og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa fíkniefna. Í ákæru var vísað til þess að tetrahýdrókannabínólsýra hefði mælst í þvagsýni sem W lét í té. Var þessi háttsemi talin varða við 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987. Var W gert að sæta fangelsi í 30 daga og var hann sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja. Þann 1. janúar 2020 tóku gildi ný umferðarlög en með þeim var sú breyting gerð frá eldri lögum að fellt var á brott það ákvæði þeirra að mæling á ávana- og fíkniefnum „í þvagi“ ökumanns gæti, ein og sér, talist viðhlítandi grundvöllur til stofnunar refsiábyrgðar. Með bréfi til Héraðsdóms Suðurlands 1. september 2020 fór varnaraðili þess á leit að þau viðurlög sem honum voru gerð með dóminum yrði felld niður með vísan til 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að fyrir lægi breytt mat löggjafans á refsinæmi verknaðar og skilyrði 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga væru því uppfyllt hvað varðar kröfugerð W er tæki til viðurlaga fyrir þá háttsemi hans sem ekki er lengur refsinæm. Ekki voru talin efni til að líta svo á að hann hafi fyrirgert rétti sínum til að hafa kröfuna uppi né að málsmeðferðarreglur stæðu því í vegi að hún yrði tekin til úrlausnar. Var refsing W samkvæmt fyrrnefndum héraðsdómi fyrir brot gegn 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987 og ákvæði hans um ævilanga ökuréttarsviptingu að því marki sem hún hafði ekki enn komið til framkvæmda því felld niður. Þar sem dómurinn tók jafnframt til brots gegn 1. mgr. 48. gr. sömu laga, sem nú varðar við 1. mgr. 58. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, var refsing samkvæmt henni lækkuð. Var fangelsisrefsing W felld niður í heild og sekt fyrir akstur án tilskilinna ökuréttinda ákveðin 20.000 krónur.
G var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið án þess að hafa ökuskírteini meðferðis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Að virtum sakaferli G og í samræmi við dómvenju var refsing hans ákveðin fangelsi í 30 daga. Þá var hann sviptur ökurétti ævilangt þar sem brot hans taldist ítrekað öðru sinni í skilningi 3. mgr. 99. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
A höfðaði mál til viðurkenningar á bótaskyldu V hf. úr lögbundinni slysatryggingu ökumanns bifhjóls vegna umferðarslyss sem A lenti í. Taldi V hf. að A hefði verið undir áhrifum vímuefna og lyfja þegar umrætt óhapp varð og þannig með stórkostlegu gáleysi valdið slysinu. Hefði bótaábyrgð félagsins því fallið niður á grundvelli ákvæða þágildandi umferðarlaga og laga um vátryggingarsamninga. Nánar tilgreind lyf og vímuefni greindust í blóðsýni A sem var tekið úr honum á slysadeild eftir slysið en A kvaðst hafa tekið lyf og hvítt efni á diski eftir slysið en áður en hann fór á slysadeildina. Fallist var á kröfu A í hinum áfrýjaða dómi þar sem ekki þótti sannað gegn staðhæfingum hans og framburði vitna að hann hefði ekið bifhjólinu undir áhrifum vímuefna og lyfja. Fyrir Landsrétti lagði V hf. fram bréf Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði sem félagði aflaði einhliða án vitneskju A og án þess að A ætti þess kost að gæta hagsmuna sinna og var það talið rýra sönnunargildi skjalsins. Af skjalinu yrði heldur ekki ráðið að staðhæfingar A um ástand hans áður en hann hóf akstur umrætt sinn, sem hann hefði leitast við að færa sönnur á með vætti tveggja vitna í héraði, fengju ekki staðist. Þótti V hf. ekki hafa fært fram næg sönnunargögn til að hnekkja niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um bótaskyldu V hf. og var hún því staðfest.
R var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið í tvö aðgreind skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna og fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum tiltekið magn af marijúana. Við meðferð málsins í héraði játaði R sök en bar því við að umferðarlagabrotin væru fyrnd. Í dómi Landsréttar kom fram að umferðarlagabrotin hefðu ekki verið fyrnd þegar ákæra var gefin út í málinu. Enn fremur var rakið að eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms hefðu tekið gildi ný umferðarlög og að dæma skyldi um háttsemi R eftir þeim lögum. Þá var fjallað um áhrif fyrri brota R við ákvörðun refsingar og rakið að háttsemin sem R hefði verið sakfelldur fyrir með tilgreindum dómi Hæstaréttar væri ekki lengur refsinæm samkvæmt gildandi umferðarlögum. Af lögskýringargögnum með 3. gr. almennra hegningarlaga mætti ráða að horfa skyldi til refsiákvörðunar eldri dóma og viðurlagaákvarðana við mat á ítrekunaráhrifum og ákvörðunar refsingar þrátt fyrir slíkar breytingar. Á hinn bóginn mætti leiða þau grunnsjónarmið af ákvæðum stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu, um bann við afturvirkni refsilaga, og dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu, að sakaður maður ætti að njóta þess ef háttsemi sem áður hefði verið talin refsinæm þætti það ekki lengur. Af þessum sökum kæmi umræddur dómur Hæstaréttar ekki til skoðunar við mat á sakaferli R og ákvörðun refsiviðurlaga. Var refsing R ákveðin 60 daga fangelsi en með hliðsjón af óhóflegum drætti á útgáfu ákæru í málinu var fullnustu refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá voru ákvæði héraðsdóms um upptöku fíkniefna og ökuréttarsviptingu staðfest.
X var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa grýtt glasi í átt að höfði sambýliskonu sinnar A en glasið lenti á vegg við höfuð hennar og brotnaði svo að hún hlaut áverka af. Í dómi Landsréttar kom fram að X hefði hlotið að vera ljóst að A kynni allt eins að hljóta líkamstjón af háttsemi hans sem hefði verið sérstaklega hættuleg í skilningi 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Þá var X sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og 1. og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 með því að hafa ráðist að A, kýlt hana og klipið í síðu hennar, sparkað í mjöðm og hrækt í andlit hennar er hún hélt á B, níu mánaða gömlum syni þeirra, svo að hún hlaut áverka af. Jafnframt var X sakfelldur fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga með því að hafa hótað A, C og D lífláti. Í dómi héraðsdóms voru síðastnefndu tvö brotin talin varða við 1. mgr. 218. gr. b sömu laga gagnvart A en 233. gr. laganna gagnvart C og D. Í dómi Landsréttar kom fram að atvikin hefðu átt sér stað rúmu ári eftir að X framdi fyrstgreinda brotið. Hefði því ekki verið sýnt fram á að X hefði orðið uppvís að háttsemi gagnvart A sem hefði staðið yfir í lengri eða skemmri tíma þannig að viðvarandi ógnarástand hefði skapast svo að yrði talið varða við 1. mgr. 218. gr. b almennra hegningarlaga. Þá hefði háttsemi hans heldur ekki náð því alvarleikastigi sem áskilið væri samkvæmt því ákvæði. Loks var X sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest um sakfellingu fyrir þau brot og heimfærslu þeirra til umferðarlaga nr. 77/2019 sem tóku gildi eftir að brotin voru framin. Með brotum þeim sem X var sakfelldur fyrir rauf hann skilorð eldri dóms þar sem hann var dæmdur til 10 mánaða fangelsisrefsingar, skilorðsbundið til þriggja ára, og var sá dómur tekinn upp og X gerð refsing í einu lagi fyrir öll brotin, sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar var jafnframt litið til ákvæða 1. og 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. sömu laga og til 3. mgr. sömu lagagreinar að því er varðaði þau brot er beindust gegn A og B. Með hliðsjón af framangreindu og sakaferli X var honum gert að sæta fangelsi í 18 mánuði auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð og honum gert að greiða A 1.000.000 króna í miskabætur.
Ákæruvaldið (
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari)
gegn
X (
Björgvin Jónsson lögmaður)
X var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið, sem hafnaði utan vegar í skurði, ófær um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa slævandi lyfja. Í dómi Landsréttar kom fram að niðurstaða fyrirliggjandi matsgerðar væri afdráttarlaus um að X hefði verið undir slíkum áhrifum að hann hefði verið óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega umrætt sinn. Var X gert að greiða 70.000 króna sekt í ríkissjóð en ella sæta fangelsi í sex daga. Þá var hann sviptur ökurétti í fjóra mánuði.
Með úrskurði héraðsdóms var hafnað kröfum X á grundvelli 2. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 um að felld yrði úr gildi refsing og önnur viðurlög sem honum var gert að sæta með dómi, en til vara að refsing samkvæmt dómnum yrði lækkuð. X skaut úrskurði héraðsdóms til Landsréttar með vísan til 4. málsliðar þeirrar málsgreinar en í ákvæðinu segir að áfrýja megi niðurstöðu héraðsdóms um hvort refsing samkvæmt dómi skuli felld niður eða lækkuð á grundvelli 1. málsliðar sömu málsgreinar. Í úrskurði Landsréttar var vísað til þess að heimild til að kæra til Landsréttar úrlausn héraðsdóms yrði ekki leidd af tilvitnuðu ákvæði almennra hegningarlaga sem samkvæmt orðum sínum mæli fyrir um að málskot eigi sér stað með áfrýjun. Kæra yrði ekki heldur reist á 192. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, enda taki það ákvæði ekki til annarra úrskurða en þeirra sem um ræði í þeim lögum. Þá væri heimild til að kæra úrlausnina hvorki að finna í öðrum ákvæðum þeirra laga né öðrum lögum. Því var málinu vísað frá Landsrétti.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Daníel Geir Höskuldssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir m.a. auðgunar og umferðarlagabrot og dæmdur í 12 mánaða fangelsi.
Með dómi héraðsdóms var O sakfelld fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, með því að hafa flutt hingað til lands 0,20 grömm af marijúana, og fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa í þrjú skipti ekið bifreið svipt ökurétti og í tvö skipti jafnframt undir áhrifum ávana- og fíkniefna. O játaði sök og var farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var því eingöngu deilt um ákvörðun viðurlaga fyrir Landsrétti. Við meðferð málsins fyrir Landsrétti var þess krafist af hálfu ákæruvaldsins að O yrði sýknuð af því að hafa brotið gegn lögum um ávana- og fíkniefni þar sem sök hennar hefði verið fyrnd og var hún þegar á grundvelli kröfugerðar ákæruvaldsins sýknuð af þeim sakargiftum. Eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms höfðu tekið gildi ný umferðarlög nr. 77/2019 og með hliðsjón af 1. mgr. 2. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 dæmdi Landsréttur eftir þeim. Í dóminum kom fram að samkvæmt nýjum umferðarlögum teldist nú ökumaður aðeins undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja og óhæfur til að stjórna ökutæki örugglega ef ávana- eða fíkniefni eða lyf fyndust í blóði hans. Með vísan til þess að samkvæmt einum ákærulið hefði umferðarlagabrot ákærðu eingöngu verið staðreynt með mælingu efna í þvagi var hún sýknuð af ákæru fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna í umrætt sinn. Að öðru leyti staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sakfellingu O. Við ákvörðun refsingar var litið til sakaferils O og þess að brot hennar voru öll hegningarauki við eldri dóm, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Samkvæmt því og með hliðsjón af 77. gr. sömu laga og áralangrar dómvenju var refsing hennar ákveðin fangelsi í 30 daga auk þess sem henni var gert að greiða sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæta ella fangelsi í 14 daga. Þá var staðfest niðurstaða héraðsdóms um ævilanga sviptingu ökuréttar O og upptöku fíkniefna.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Ástu Björg Jörundardóttur
Ákærða sakfelld fyrir akstur svipt ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
A var sakfelldur fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, þar á meðal að aka bifreiðum í sjö skipti sviptur ökurétti, í fjórum þeirra tilvika einnig undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í þremur þeirra jafnframt undir áhrifum slævandi lyfja. Auk þess var hann sakfelldur fyrir vörslur fíkniefna. Að sakaferli A virtum var refsing hans ákveðin fangelsi í 15 mánuði og hann sviptur ökurétti ævilangt, auk þess sem hann var dæmdur til að sæta upptöku fíkniefna.
Sakfellt fyrir ofbeldisbrot í nánu sambandi og fleira.
Fallist var á viðurkenningarkröfu stefnda um bótaskyldu hins stefnda tryggingafélags samkvæmt vátryggingasamningi þar sem ekki þótti sannað með framlögðum gögnum af hálfu stefnda gegn framburði stefnanda og vitna í málinu að stefnandi hefði neytt lyfja og fíkniefna fyrir akstur sem greindust í blóðsýni hans á sjúkrahúsi, sbr. matsgerð þar um. En umrædd matsgerð fjallaði ekki um hvenær líklegast væri að stefnandi hefði neytt umræddra efna, né heldur lágu fyrir afgerandi gögn í málinu um möguleg tengsl lyfs sem getið var um í lögregluskýrslu við greiningu á blóðsýni stefnanda í umræddri matsgerð.
A höfðaði mál gegn Í og krafðist skaðabóta í kjölfar aðgerða lögreglu þegar hann var handtekinn og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Í kjölfar sviptingarinnar var A vikið tímabundið úr starfi sínu sem ökumaður hópbifreiða á meðan málið væri til rannsóknar en málið var síðar fellt niður hjá lögreglu og bráðabirgðasviptingin felld úr gildi. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að A hefði starfað við akstur fólksflutningabifreiða í umrætt sinn og fíkniefnapróf sem tekið hefði verið af honum á vettvangi hefði gefið jákvæða niðurstöðu. Því hefði lögreglustjóri haft réttmæta ástæðu til að ætla að skilyrði ökuréttarsviptingar væru fyrir hendi, sbr. 103. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þá var ekki talið að aðgerðir lögreglu hefðu falið í sér ólögmæta meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu A, sem virða bæri honum til miskabóta á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var Í því sýknað af kröfu A.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (Einar Laxness aðstoðarsaksóknari) gegn
Herði Kristgeirssyni
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlaga-, fíkniefnalaga- og vopnalagabrot. Dæmdur til að sætfa fangelsi í fjóra mánuði, en fullnustu eins mánaðar af refsingunni frestað skilorðsbundið. Sviptur ökurétti ævilangt. Skilorðsdómur dæmdur upp.
Ákæruvaldið Rósamunda Jóna Baldursdóttir (Rósamunda Jóna Baldursdóttir ákæruvaldið) gegn
Eyþóri Hlynssyni (mál nr. 316-2019-000144)
Sakfellt fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna, sviptur ökurétti, og vörslur fíkniefna.
Ákæruvaldið (
Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)
gegn
Davíð Samúelssyni (
Jón Egilsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot á hegningarlögum og umferðarlögum vegna umferðarslyss sem hann var valdur að í ársbyrjun 2018, svo og fyrir líkamsárás.
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, í kjölfar handtöku, bitið lögreglumann í lögreglubifreið á leið á lögreglustöð. Dómurinn hafnaði þeim málatilbúnaði ákærða að háttsemi hans hefði verið óviljaverk og helgast af neyðarvörn.
Ákæruvaldið (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jasoni Egilssyni (
Sveinn Guðmundsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir brot á lyfjalögum og fyrir að aka samtals níu sinnum sviptur ökurétti, þar af tvisvar einnig undir áhrifum slævandi lyfja og ávana- og fíkniefna og í eitt skipti undir áhrifum áfengis, slævandi lyfja og ávana- og fíkniefna. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 9 mánuði.
Ákæruvaldið (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Elsu Karen Einarsdóttur (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
<p>Sakfellt fyrir umferðarlagabrot, fíkniefnalagabrot og þjófnað.</p>
Ákæruvaldið (
Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)
gegn
Maciej Zbigniew Jablonski (
Jón Stefán Hjaltalín lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir að aka í sex skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sviptur ökurétti, þar af í fimm skipti einnig undir áhrifum slævandi lyfja. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 16 mánuði.
Ákærða var sakfelld fyrir vörslur fíkniefna og fyrir að aka í þrígang svipt ökurétti, þar af í tvö skipti undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var hún dæmd til að sæta fangelsi í 30 daga.
Ákæruvaldið (
Guðmundur Þórir Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Lofti Karli Magnússyni (
Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)
Ákærði var sakfelldur fyrir fjölmörg umferðarlagabrot, skjalabrot, fíkniefnalagabrot, hylmingu og tilraun til þjófnaðar. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 15 mánuði.
Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Daniel Goracy
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og brot gegn 155. gr. almennra hegningarlaga. Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, og til greiðslu sektar. Ákærði sviptur ökurétti í tvö ár.
Ákæruvaldið (
Sigurður Pétur Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Arnari Freyr Karlssyni (
Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)
Ákærði dæmdur í 14 mánaða fangelsi og ævilöng svipting ökuréttar hans ítrekuð vegna umferðarlagabrota og brota gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Hákoni Má Jósepssyni
Ákærði var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur í 90 daga fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting var áréttuð.
Ákæruvaldið (Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Patrick Kanwischer
Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og var dæmdur í fimm mánaða fangelsi, auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.
Ákæruvaldið (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Jóni Þór Eymundssyni (
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot og dæmdur í 12 mánaða fangelsi auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting ákærða var áréttuð.
A var sakfelld fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið í tvígang undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Að virtum sakaferli A og samkvæmt dómvenju var refsing hennar ákveðin fangelsi í 45 daga. Þá var hún svipt ökurétti ævilangt.
E var sakfelld fyrir brot gegn umferðarlögum með því að hafa í fjögur skipti ekið bifreið svipt ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Með hliðsjón af sakarferli E og í samræmi við dómvenju var refsing E ákveðin fangelsi í þrettán mánuði. Þá var hún svipt ökurétti ævilangt.
Ákæruvaldið (Auðbjörg Lísa Gústafsdóttir aðstoðarsaksóknari) gegn
Jóni Sigurðssyni
Ákærði dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna og í tvígang sviptur ökurétti. Dómurinn var hegningarauki við fyrri dóm.
Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal fulltrúi) gegn
Viljari Má Hafþórssyni I
Sakfellt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sem mældust í þvagi.
Ákæruvaldið (Elimar Hauksson fulltrúi) gegn
Tinnu Hilmarsdóttur
Ákærða var fundinn sek um ítrekaðan fíkniefnaakstur sem og akstur svipt ökurétti. Með broti sínu rauf ákærða skilorð eldri dóms, er dæmdur var upp. Var henni gert að sæta fangelsi í 60 daga, sem var skilorðbundið að hluta. Þá var ákærða svipt ökurétti ævilangt.
D Ó M U R og 25. október 2017 og Mál nr. og S-401/2016: og Ákærandi: og Lögreglustjórinn á Suðurnesjum (
Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr) og
Ákærða: og Elsa Karen Einarsdóttir og Dómari: og Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari (
Stefán Karl Kristjánsson hrl)
gegn
Elsu Karen Einarsdóttur
Ákærða sakfelld fyrir akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna. Fangelsi í 14 mánuði og svipting ökuréttar ævilangt.
Þ var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið undir áhrifum ávana- og fíkniefna og án ökuréttinda. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að meðferð málsins hefði dregist óhæfilega fyrir dómi án þess að Þ yrði um það kennt. Var Þ því ekki gerð sérstök refsing í málinu en hann sviptur ökurétti ævilangt.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu varnaraðila um að sóknaraðila yrði meinað að leggja fram hluta nánar tilgreinds skjals.
Ákæruvaldið (
Daði Kristjánsson saksóknari)
gegn
Böðvari Guðmundssyni (
Sigurður Jónsson hrl)
B var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og fyrir brot gegn 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með því að hafa haldið hníf upp að hálsi A. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að B og A hefðu lengi átt í erjum og að í aðdraganda brotsins hefði A hrópað að B ókvæðisorð sem hefðu verið afar ögrandi í garð B. Þá hefði B með brotum sínum rofið skilorð eldri dóms og var hann því tekinn upp og honum gerð refsing í einu lagi fyrir öll brotin sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing B ákveðin fangelsi í 10 mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár og hann sviptur ökurétti í fjóra mánuði.
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot
Ákærðu sakfelldir fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot.