A höfðaði mál gegn S og krafðist þess að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 319/2017 yrði felldur úr gildi og S dæmt til að greiða honum skaðabætur vegna líkamstjóns af völdum nýrnabilunar á lokastigi sem hann rakti til lyfjameðferðar. Byggði hann á því að það væri að rekja til sjaldgæfs og þungbærs fylgikvilla meðferðar með lyfinu og þar með bótaskylt á grundvelli 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. S byggði á því að krafa A væri fyrnd og að tjón hans væri að rekja til eiginleika lyfsins og því ekki bótaskylt, sbr. 3. mgr. 3. gr. laganna. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var staðfest að bótakrafa A væri ekki fallin niður fyrir fyrningu. Að teknu tilliti til málatilbúnaðar aðila og niðurstöðu matsgerðar voru ekki talin efni til annars en að leysa úr málinu á þeim grundvelli einvörðungu að áfrýjandi hefði notað lyfið í venjulegum skömmtum. Hæstiréttur vísaði til þess að hvorki í lögum nr. 111/2000 né lögskýringargögnum með þeim væri að finna skilgreiningu eða skýringar á því hvað fælist í hugtakinu eiginleikar lyfs í skilningi 3. mgr. 3. gr. laganna. Hæstiréttur bar saman notkun og skilgreiningu hugtakanna eiginleikar lyfs og aukaverkun í eldri lyfjalögum nr. 93/1994 og núgildandi lyfjalögum nr. 100/2020 svo og reglugerðum settum á grundvelli þeirra. Í öllum reglugerðum væri hugtakið aukaverkun skilgreint sem skaðleg og ótilætluð verkun lyfs sem notað væri í venjulegum skömmtum. Hins vegar væri hugtakið óvænt aukaverkun í öllum reglugerðunum skilgreint sem aukaverkun sem ekki er getið um í samantekt um eiginleika lyfs. Hæstiréttur sló því föstu að hugtakið eiginleikar lyfs í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000 bæri að skýra með þeim hætti að þar væri átt við þá eiginleika sem fram kæmu í viðurkenndri samantekt um eiginleika lyfsins sem birt væri í sérlyfjaskrá og á fylgiseðli þess. Nýrnabilunar væri aðeins getið sem aukaverkunar vegna ofskömmtunar í lýsingu á eiginleikum lyfsins í sérlyfjaskrá og teldist lokastig nýrnabilunar vegna eðlis, alvarleika og afleiðinga vera óvænt aukaverkun sem ekki félli undir eiginleika lyfsins í skilningi 3. mgr. 3. gr. laga nr. 111/2000. Var tjón A talið meira en svo að sanngjarnt væri að hann þyrfti að þola það bótalaust í skilningi 4. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 og voru skilyrði ákvæðisins fyrir greiðslu bóta úr sjúklingatryggingu talin uppfyllt. Var úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 319/2017 því felldur úr gildi og S gert að greiða A bætur.
Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu stefnda vegna meðferðar stefnanda hjá lækni sem keypt hafði hjá stefnda annars vegar sjúklingatryggingu og hins vegar starfsábyrgðartryggingu. Fallist var á kröfuna að því er varðar bótaskyldu vegna sjúklingatryggingar á grundvelli þágildandi laga nr. 111/2000, en viðurkenningarkröfu stefnanda á grundvelli starfsábyrgðartryggingar læknisins var vísað frá dómi vegna vanreifunar.
A höfðaði mál aðallega á hendur SÍ en til vara á hendur Í. Gerði A þær kröfur á hendur SÍ að honum yrði gert að greiða sóknaraðila bætur á grundvelli þágildandi laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna tjóns sem hann varð fyrir vegna afleiðinga læknismeðferðar á Landspítalanum. Þá gerði A þær kröfur á hendur Í, sem varastefnda, að ef SÍ yrði sýknaður af dómkröfu A í héraði yrði hann dæmdur til að greiða A sömu fjárhæð og krafist var úr hendi aðalstefnda SÍ. Varakrafan var gerð svo A gæti sótt skaðabótakröfu á hendur Í að því marki sem A fengi tjón sitt ekki bætt hjá SÍ. Við rekstur málsins nýtti A sér það réttarfarshagræði sem felst í 2. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að stefna SÍ aðallega og Í til vara, enda áttu kröfurnar rætur að rekja til sama atviks. Við meðferð málsins í héraði gerðu A og SÍ með sér dómsátt þar sem SÍ viðurkenndi bóta- og greiðsluskyldu vegna tjóns sem A hafði orðið fyrir. Með þeirri greiðslu, auk greiðslu sem hann hafði áður fengið, hafði SÍ greitt A hámarksbætur samkvæmt þágildandi 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000. Í framhaldinu lagði A fram endanlegar dómkröfur á hendur Í þar sem tekið var mið af þeim greiðslum sem SÍ hafði innt af hendi til A. Með úrskurði héraðsdóms 18. september 2025 var máli A gegn Í vísað frá dómi. Í dómi Landsréttar kom fram að eins og samspil krafna á hendur aðal- og varastefnda var háttað í málinu væri ekki efni til að vísa kröfum á hendur Í frá dómi. Þá væri engin ástæða til að efast um að málatilbúnaður A samkvæmt endanlegri kröfugerð hans samrýmdist þágildandi 7. gr. laga nr. 111/2000. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.
A krafðist viðurkenningar á skaðabótaskyldu Í vegna líkamstjóns sem A taldi sig hafa orðið fyrir á L 14. og 16. september 2016 með því að starfsmönnum á bráðamóttöku hefði yfirsést að greina og veita meðferð við blóðtappa í framhaldi af komu hennar þangað. Í dómi Landsréttar var rakið að við úrlausn málsins yrði ekki byggt á álitsgerð, sem gerð hefði verið að beiðni SÍ vegna umsóknar A um bætur úr sjúklingatryggingu, en þar hefði engin afstaða verið tekin til þess hvort tjón A væri að rekja til saknæmrar háttsemi starfsmanna L. Enn fremur taldi rétturinn, sem skipaður var sérfróðum meðdómanda, að með hliðsjón af umkvörtunarefni og ástæðu komu A á bráðamóttöku L 14. og 16. september 2016, einkennum og reglulegum mælingum á lífsmörkum A síðari daginn og þess að endurtekin ómskoðun á vinstri fótlegg A umrædda daga hefði ekki sýnt ummerki um blóðtappa, hefði ekki verið nægilegt tilefni til að álykta að um blóðtappa í lungum væri að ræða. Því hefði ekki verið ástæða til að láta taka sneiðmynd af lungum A. Meðal annars að framangreindu gættu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms var hann staðfestur. Var Í því sýknað af kröfu A.
A höfðaði mál gegn S vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í skurðaðgerð sem A gekkst undir í júní 2016. A krafðist aðallega viðurkenningar á skaðabótaskyldu S en til vara að felld yrði úr gildi ákvörðun S frá 8. maí 2020, þar sem S komst að þeirri niðurstöðu að ekki lægi fyrir bótaskylt tjón sem að öllum líkindum mætti rekja til þátta sem féllu undir gildissvið sjúklingatryggingar samkvæmt 2. gr. laga um sjúklingatryggingar nr. 111/2000. Með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms, þar sem fram kom að A hefði ekki sýnt fram á að um bótaskylt tjón hefði verið að ræða sem fallið gæti undir gildissvið 2. gr. laga nr. 111/200, staðfesti Landsréttur niðurstöðu héraðsdóms um sýknu S af aðalkröfu A. Þá taldi Landsréttur, að fenginni niðurstöðu um sýknu S af aðalkröfu A, hagsmuni A ekki standa til þess að fá ákvörðun S fellda úr gildi, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Var varakröfu A því vísað frá héraðsdómi.
Aðilar málsins deildu um hvort lög nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu heimiluðu S að greiða A miskabætur á grundvelli a-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Tilefni þess var ágreiningur um hvort læknir á Landspítala sem framkvæmdi kviðarholsspeglun á A þar sem báðir eggjastokkar hennar voru fjarlægðir hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi við framkvæmd aðgerðarinnar. S byggði á því að skilja yrði orðalag 1. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 á þann veg að þar væri eingöngu vísað til I. kafla skaðabótalaga. A byggði aftur á móti á því að samkvæmt orðalagi ákvæðisins væri vísað til reglna skaðabótalaga í heild sinni. Hæstiréttur vísaði til markmiðs og forsögu laga nr. 111/2000 og að þeim hafi verið ætlað að bæta rétt sjúklinga og annarra sem nýti sér heilbrigðisþjónustu meðal annars með því að gera sök ekki að skilyrði greiðslu bóta. Hæstiréttur tók fram að samkvæmt orðum 1. mgr. 5. gr. laganna væri eingöngu vísað til þess að ákvörðun um fjárhæð tjóns færi eftir reglum skaðabótalaga en ekki að bótaréttur ákvarðaðist eftir reglum þeirra laga. Yrði því að skilja málsgreinina þannig að í henni fælust fyrirmæli um ákvörðun fjárhæðar bóta án tillits til sakar samkvæmt nánari fyrirmælum laganna. Þá væri sá bótagrundvöllur sem mælt er fyrir um í 26. gr. skaðabótalaga sérstaks eðlis. Komst Hæstiréttur því að þeirri niðurstöðu að bætur sem ákvarðaðar væru á grundvelli mats á ásetningi eða stórfelldu gáleysi samkvæmt 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga féllu ekki undir að vera ákvörðun bótafjárhæðar í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000. Var S því sýknaður af kröfum A.
A höfðaði mál gegn T hf., S, Í, L og SÍ. Krafðist hann þess að viðurkennt yrði að hann ætti rétt á bótum úr hendi T hf. „á grundvelli 5. gr. laga nr. 111/2000, sbr. lög nr. 176/2000, vegna líkamstjóns sem [hann] varð fyrir vegna meðferðar með lyfinu Cordarone á árunum 2012-2017“ Þá krafðist hann þess til vara að viðurkennt yrði að Í, L, T hf. og S bæru „óskipt skaðabótaábyrgð á líkamstjóni sem [hann] varð fyrir vegna meðferðar með lyfinu Cordarone á árunum 2012-2017“. Loks krafðist hann þess að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála 2. febrúar 2022, þar sem synjun SÍ á umsókn hans um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu var staðfest, yrði felldur úr gildi. Með hinum kærða úrskurði var málinu vísað frá dómi. Í úrskurði Landsréttar kom fram að A hefði ekki aflað matsgerðar í samræmi við reglur IX. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála eða fært önnur haldbær sönnunargögn því til stuðnings að líkur væru á að hann hefði orðið fyrir tjóni sem rekja mætti til inntöku lyfsins. Þá var fallist á með héraðsdómi að það skorti verulega á að fjallað væri með fullnægjandi hætti um ætlaðan bótagrundvöll gagnvart hverjum og einum varnaraðila með vísan til viðeigandi lagaraka, þar með talið vegna kröfu sem sett væri fram til þrautavara gegn SÍ. Var niðurstaða hins kærða úrskurðar því staðfest.
Stefnandi höfðaði mál á hendur tveimur aðalstefndu og að auki tveimur öðrum einnig sem varastefndu til viðurkenningar á bótaskyldu vegna líkamstjóns sem hann telur sig hafa orðið fyrir vegna lyfjameðferðar. Í þrautavarasök sem stefnandi höfðaði á hendur SÍ krafðist stefnandi þess að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála, þar sem synjun SÍ á umsókn stefnanda um bætur var staðfest. Að mati dómsins hafði stefnandi ekki lagt slíkan grunn að málssókn sinni að kröfur 1. mgr. 19. gr. og e- og d- liðar 80. gr. laga um meðferð einkamála væru uppfylltar og var málinu því vísað frá dómi.
Ekki var fallist á kröfu stefnanda um viðurkenningu á skaðabótaskyldu stefnda á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu þar sem skilyrði 2. gr. laganna voru ekki talin uppfyllt. Stefndi var því sýknaður í málinu.
Dómurinn féllst ekki á skaðabótaskyldu stefnda, íslenska ríkisins, vegna líkamstjóns stefnanda.
A höfðaði mál á hendur Í og S og krafðist skaðabóta á grundvelli 13. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna missis framfæranda, en eiginmaður hennar lést eftir meðferð á sjúkrahúsi. S greiddi A hámarksbætur samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Þá viðurkenndi Í bótaskyldu gagnvart A að tiltekinni fjárhæð en að frádreginni þeirri greiðslu sem S hafði innt af hendi. Snerist ágreiningur aðila um það við hvaða vísitölu ætti að miða framreikning skaðabóta samkvæmt 4. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Héraðsdómur féllst á það með Í að miða ætti við lánskjaravísitölu og var Í gert að greiða A þá fjárhæð sem Í hafði viðurkennt. Í dómi Landsréttar var því slegið föstu með vísan til lögskýringargagna og dóms Hæstaréttar í máli nr. 142/2014 að skýra bæri ákvæði 1. mgr. 15. gr. skaðabótalaga sem svo að hámark skaðabóta samkvæmt 4. mgr. 7. gr. laganna tæki breytingum miðað við lánskjaravísitölu frá og með gildistöku laganna. Var niðurstaða hins áfrýjaða dóms því staðfest.
A höfðaði mál til viðurkenningar skaðabótaskyldu Í vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í skurðaðgerð á tilgreindu sjúkrahúsi í nóvember 2017 og við eftirfarandi meðferð á Landspítalanum. Hélt A því fram að starfsmenn, sem Í bæri ábyrgð á, hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi við störf sín sem hefði leitt til þess að skorið var í görn A við skurðaðgerðina. Þá hafi komið gat á ristil A þegar dreni var komið fyrir á Landspítalanum eftir að sýkingar varð vart. Í dómi héraðsdóms, sem staðfestur var í Landsrétti, kom fram að ekki hefði verið sýnt fram á að starfsmenn sem Í bæri ábyrgð á hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi við þá meðferð A sem um ræddi. Þá yrði ekki séð að meðferðin hefði verið í ósamræmi við ákvæði laga nr. 34/2012 um heilbrigðisstarfsmenn, laga nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga eða önnur ákvæði sem A hefði vísað til. Það væri þó eigi að síður ljóst að A hefði fengið alvarlega sýkingu í kjölfar skurðaðgerðarinnar í nóvember 2017 og orðið fyrir líkamstjóni af þeim sökum. Talið var að óhappatilvik hefði valdið þessari sýkingu sem meta yrði til fylgikvilla aðgerðarinnar. Vegna þessa hefði A þegar fengið greiddar hámarksbætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Var Í sýknað af kröfum A.
A höfðaði mál gegn S til heimtu bóta vegna stórkostlegs gáleysis sem læknir hefði sýnt við undirbúning og framkvæmd aðgerðar á A þar sem vinstri eggjastokkur hennar var fjarlægður án hennar samþykkis. Undir rekstri málsins í héraði var gerð sátt um aðrar kröfur A en miskabótakröfu hennar á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Héraðsdómur sýknaði S af þeirri kröfu. Í dómi Landsréttar kom fram að í þeim gögnum sem lægju fyrir um aðdraganda aðgerðar A væri þess hvergi getið að til greina hefði komið að fjarlægja vinstri eggjastokk A við aðgerðina. Í matsgerð dómkvaddra matsmanna hefði því verið slegið föstu að það að fjarlægja vinstri eggjastokk A hefði, eins og á stóð, ekki verið meðferð sem talist gæti bráðnauðsynleg í skilningi 9. gr. laga nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga. Það hvort sá eggjastokkur yrði fjarlægður væri því atriði sem A hefði sjálf átt að fá ráðið samkvæmt meginreglu 3. mgr. 7. gr. sömu laga. Ósannað væri að A hefði samþykkt þá meðferð, sem hefði farið þvert gegn þeim tilgangi með aðgerðinni að undirbúa A undir glasafrjóvgunarmeðferð. Þá lá fyrir að aðgerðin var óafturkræf. Þegar þessa var gætt þótti læknirinn, með því að fjarlægja vinstri eggjastokk A án hennar samþykkis, hafa sýnt af sér slíka háttsemi að telja yrði saknæmisskilyrði 26. gr. skaðabótalaga um stórkostlegt gáleysi uppfyllt í málinu. Af þeim sökum var fallist á með A að hún ætti rétt til greiðslu miskabóta samkvæmt a-lið 1. mgr. 26. gr. laganna úr hendi S vegna hinnar saknæmu háttsemi læknisins á grundvelli 1. mgr. 1. gr., sbr. 5. gr., laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Við mat á miskabótum til handa A var litið til umfjöllunar og niðurstöðu hinna dómkvöddu matsmanna um afleiðingar aðgerðarinnar. Þá var sérstaklega litið til þess að með henni var A, að henni forspurðri, svipt allri von um frekari barneignir. Var S gert að greiða A 1.500.000 krónur í miskabætur.
Fallist á kröfu um skaðabætur vegna sjaldgæfs fylgikvilla lyfs.
Stefnandi krafðist bóta úr hendi stefnda á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu vegna afleiðinga aðgerðar sem stefnandi gekkst undir í kjölfar slyss. Eftir að málið var höfðað greiddi stefndi stefnanda stærstan hluta hinnar upphaflegu dómkröfu og studdist við ákvörðun bótafjárhæðar við matsgerð sem stefnandi aflaði. Eftir stóð þó ágreiningur um þjáningabætur vegna 43 daga. Dómurinn taldi að ætla yrði að þótt ekkert hefði farið úrskeiðis í aðgerðinni hefði stefnandi engu að síður liðið þjáningar í skilningi 1. mgr. 3. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna slyssins á umræddu tímabili. Sjúklingatryggingaratburðurinn var því ekki talinn meginorsök þjáninga stefnanda á tímabilinu. Stefndi var því sýknaður af kröfu stefnanda.
Stefnandi höfðaði mál á hendur íslenska ríkinu vegna tjóns sem hún hefði hlotið af því að bæklunarlækni hefðu orðið á mistök við skurðaðgerð á baki hennar. Fallist var á að saknæm mistök hefðu verið gerð við lok læknisaðgerðarinnar og við eftirmeðferð stefnanda. Með matsgerð dómkvaddra matsmanna var stefnandi talin hafa sýnt fram á tjón sem stæði í orsakatengslum við og væri sennileg afleiðing af saknæmu verklagi starfsmanns sem íslenska ríkið bæri skaðabótaábyrgð.
Eiginmaður stefnanda lést í kjölfar aðgerðar eftir slys og voru greiddar út bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 en í málinu beindi stefnandi frekari kröfum til skaðabóta að stefndu SÍ og íslenska ríkinu. Var í málinu deilt um rétt bótaviðmið eða útreikningsaðferð, sbr. 13. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og var úr því leyst og stefnanda tildæmdar bætur úr hendi stefnda íslenska ríkinu samkvæmt varakröfu stefnanda.
A krafðist viðurkenningar á bótaskyldu íslenska ríkisins vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í skurðaðgerð og síðari meðferð á Landspítalanum. Ekki var talið sýnt fram á að starfsmenn sem stefndi bæri ábyrgð á hefðu sýnt af sér saknæma háttsemi við meðferð A. Tekið var fram að A hefði fengið alvarlega sýkingu í kjölfar skurðaraðgerðar en meta yrði hana sem fylgikvilla aðgerðarinnar. Þá hefði A fengið greiddar hámarksbætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
Sjúkratryggingar Íslands voru sýknaðar af miskabótakröfu einstaklings vegna mistaka læknis, en aðilar höfðu áður gert með sér sátt um greiðslu bóta vegna annars tjóns stefnanda af völdum mistakanna. Var það mat dómsins, sem skipaður var sérfróðum meðdómsmanni, að háttsemi læknisins umrætt sinn hefði falið í sér almennt en ekki stórkostlegt gáleysi. Þegar af þeirri ástæðu teldist skilyrðum fyrir beitingu a-liðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 50/1993 ekki vera fullnægt. Gat því ekki komið til þess að stefnda yrði gert að greiða stefnanda miskabætur til viðbótar við þær bætur sem greiddar voru samkvæmt fyrrgreindri sátt.
Stefnanda og S greindi á um hvort henni hefðu þegar verið greiddar hámarksbætur samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu og hvernig skýra bæri ákvæðið. Fallist var á að hámarksfjárhæð bóta skyldi taka mið af því ári sem hið bótaskylda atvik varð og var S sýknað af kröfunni. Í var jafnframt sýknað af kröfu stefnanda þar sem ekki var talið sýnt fram á að hið bótaskylda atvik hefði valdið henni varanlegri örorku.
Stefndu dæmd til að greiða bætur til stefnenda fyrir missi framfæranda og miskabætur vegna læknamistaka.
Fallist var á bótakyldu stefnda íslenska ríkisins sem dreifingaraðila samkvæmt lögum um skaðsemisábyrgð vegna tjóns sem talið var sannað að stefnandi hefði orðið fyrir vegna galla í bjargráðsleiðslu.
Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu einstaklings vegna tjóns af völdum bólusetningar gegn svokallaðri svínaflensu, en einstaklingurinn hafði áður fengið greiddar bætur samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu.
A höfðaði mál aðallega á hendur SÍ en til vara á hendur Í. Gerði A þær kröfur á hendur SÍ að ákvörðun SÍ 22. janúar 2010 yrði felld úr gildi sem og úrskurður úrskurðarnefndar almannatrygginga 28. janúar 2011 og að SÍ yrði dæmt til þess að greiða A nánar tilgreinda fjárhæð. Þá gerði A þær kröfur á hendur Í, sem varastefnda, að ef SÍ yrði sýknað af síðari dómkröfu A yrði Í dæmt til að greiða A sömu fjárhæð og krafist var úr hendi aðalstefnda SÍ. Kröfur A á hendur SÍ voru meðal annars byggðar á því að A hefði orðið fyrir líkamstjóni vegna bilunar eða galla í bjargráði og að hann ætti rétt á bótum frá SÍ á grundvelli ákvæða laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Kröfu sína á hendur Í byggði A einkum á því að hann ætti rétt til skaðabóta á grundvelli ákvæða laga nr. 25/1991 um skaðsemisábyrgð þar sem A hefði orðið fyrir tjóni af völdum gallaðs bjargráðs sem Landspítalinn hefði flutt inn og dreift. Við rekstur málsins fyrir héraðsdómi var ákveðið að skipta sakarefni þess á þann hátt að fyrst yrði leyst úr kröfu A um að felld yrði úr gildi ákvörðun SÍ 22. janúar 2010 og úrskurður úrskurðarnefndar almannatrygginga 28. janúar 2011. Við upphaf aðalmeðferðar um fyrri dómkröfu A var bókað í þingbók að héraðsdómari hefði kvatt tvo lækna sem sérfróða meðdómsmenn til setu í dóminum. Jafnframt var bókað að lögmaður Í viki úr sal þar sem hlutur Í í málinu hvíldi á meðan leyst væri úr fyrri dómkröfu A. Þá komu vitni fyrir dóminn og gáfu skýrslu. Dómur var kveðinn upp í málinu 28. febrúar 2017 þar sem dómkrafa A var tekin til greina. Í kjölfarið tók SÍ ákvörðun um að greiða Á hámarksbætur samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 og í þinghaldi 16. október 2017 var því lýst yfir af hálfu SÍ að fallist væri á kröfugerð A, þar á meðal um dráttarvexti. Í þinghaldinu var bókað að lögmaður Í teldi að fara þyrfti fram sönnunarfærsla að nýju sambærileg þeirri sem þegar hefði farið fram. Sjónarmið Í voru áréttuð bókun í þinghaldi 23. mars 2018, þar á meðal um nauðsyn þess að dómurinn yrði eins skipaður við meðferð málsins sem fram undan væri. Í bókun dómsformannsins var tekið fram að Í hefði fallist á sakarskiptingu og átt þess kost að láta fyrri hluta málsins til sín taka, auk þess sem dómi í fyrri hluta málsins hefði ekki verið áfrýjað og niðurstaða hans væri því bindandi. Þá væri ekki þörf á sérþekkingu í þeim hluta málsins sem eftir stæði þar sem ágreiningur þar lyti að greiðsluskyldu Í. Bókað var af hálfu Í í þinghaldi 5. júlí 2018 það sjónarmið að vísa ætti málinu frá þar sem ekki reyndi á aðild varastefnda nema aðalstefndi hefði verið sýknaður. Í dómi Landsréttar kom fram að eins og samspili krafna á hendur aðal- og varastefnda var háttað í þessu máli hefði ekki verið skylt að vísa kröfum á hendur Í frá dómi eftir að því hafði verið lýst yfir í þinghaldi að málinu væri lokið að því er varðaði SÍ. Þá sagði að þótt sakarefni málsins hefði verið skipt á grundvelli 1. mgr. 31. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála væri áfram um eitt og sama dómsmálið að ræða. Af ákvæðum 4. gr. og 2. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991 leiddi að hinir sérfróðu meðdómsmenn, sem tekið höfðu sæti með dómsformanni í málinu, hefðu eftir uppkvaðningu dóms um fyrri hluta málsins áfram átt að taka þátt í aðalmeðferð og samningu dóms um þær kröfur sem dómurinn átti þá eftir að taka afstöðu til. Því til viðbótar var tekið fram að sakarefni á hendur Í voru að hluta til önnur en á hendur SÍ og enn væri í málinu deilt um atriði sem sérkunnáttu þyrfti til að leysa úr. Í stað þess að dómurinn yrði áfram fjölskipaður kaus dómsformaður að annast málsmeðferðina einn og kveða einn upp dóm í málinu, að hluta til á grundvelli forsendna fyrri dóms í málinu, þó að Í hefði ekki átt aðild að þeirri málsmeðferð. Með vísan til þessa taldi Landsréttur svo alvarlega annmarka vera á meðferð málsins í héraði að ekki yrði hjá því komist að ómerkja hinn áfrýjaða dóm af sjálfsdáðum og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar á ný.
Árið 2013 fékk A brjóstverk er hann var við störf á fiskiskipi suður af Reykjanesi. Síðar kom í ljós að kransæð hafði lokast og hlaut hann útbreitt hjartadrep sem hefur haft alvarlegar og varanlegar heilsufarslegar afleiðingar. Við meðferð málsins fyrir dómi greindi aðila á um hvort og að hvaða leyti tjón A mætti rekja til rangrar sjúkdómsgreiningar vakthafandi læknis og læknis á bakvakt og eftirfarandi tilhögunar á sjúkraflutningi A. Undir rekstri málsins fyrir Landsrétti aflaði Í matsgerðar dómkvadds matsmanns um hvort ráðgjöf læknanna hefði verið ábótavant. Í dómi Landsréttar var með vísan til matsgerðarinnar meðal annars skírskotað til þess að með réttri sjúkdómsgreiningu og réttum viðbrögðum í kjölfarið, hefði mátt stytta þann tíma sem leið frá því að hjartadrep hófst og þar til hjartaþræðing gat hafist, úr tæplega níu klukkustundum í rúmlega sex og hálfa klukkustund. Jafnframt að stytta hefði mátt þann tíma sem leið frá því að hjartadrep hófst og þar til A hefði fengið magnýl úr rúmlega sjö og hálfri klukkustund í um fjórar klukkustundir. Þá vísaði rétturinn jafnframt til þess að af niðurstöðu matsgerðarinnar yrði sú ályktun á hinn bóginn dregin að þrátt fyrir rétta greiningu og skjót viðbrögð í kjölfarið, þar á meðal ráðgjöf um töku magnýls og að kallað hefði verið á þyrlu, hefði hjartadrep verið orðið svo útbreitt þegar A hefði í fyrsta lagi komist í hjartaþræðingu að hann hefði samt sem áður orðið fyrir verulegum hluta þess líkamstjóns sem hann varð fyrir. Enda þótt hinn dómkvaddi matsmaður hafi beðist undan því að taka afstöðu til þess í hve miklum mæli hlutfallslega Í bæri ábyrgð á tjóni A, yrði ekki talið útilokað, á grundvelli þeirra upplýsinga sem fyrir lægju og kynni að vera hægt að afla síðar, að meta hversu miklu viðbótarheilsutjóni mistök starfsmanna Í hefðu valdið A svo og miska og fjártjón sem af mistökunum hefði hlotist. Með hliðsjón af því hvernig Í axlaði sönnunarbyrði sína þótti ekki unnt að fallast á kröfu A um viðurkenningu á bótaábyrgð Í á öllu því líkamstjóni sem hann varð fyrir af völdum hjartadrepsins. Því var einungis viðurkennd bótaábyrgð Í vegna þess viðbótarheilsutjóns A sem kynni að hafa leitt af mistökum starfsmanna Í.
Fallist var á kröfu stefnanda um bætur úr hendi stefnda vegna líkamstjóns sem stafaði af meðferð sem hann hlaut á heilbrigðisstofnun. Stefndi taldi matsgerð, sem stefnandi aflaði samkvæmt 10. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, vera haldna slíkum göllum að líta yrði framhjá niðurstöðum hennar. Matsgerðin var lögð til grundvallar niðurstöðu í málinu og tekið fram að stefndi hefði hvorki nýtt heimild til að bera matsgerðina undir örorkunefnd né óskað eftir dómkvaðningu matsmanna til að hnekkja henni.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem fyrri og síðari lið aðalkröfu Á á hendur A o.fl. var vísað frá dómi á þeim grundvelli að við þingfestingu málsins í héraði hefði stefna og málatilbúnaður Á ekki fullnægt áskilnaði 1. mgr. 80. gr. og 1. mgr. 95. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þá var síðari lið varakröfu Á, um greiðslu skaðabóta óskipt úr hendi allra stefndu, vísað frá dómi þar sem verulega skorti á að Á hefði gert grein fyrir sameiginlegri aðild málsins til varnar og grundvelli sameiginlegrar ábyrgðar A o.fl.
Íslenska ríkið sýknað af öllum kröfum stefnanda um greiðslu bóta fyrir tímabundið atvinnutjón, miskabóta skv. a. lið 26. gr. skaðabótalaga og bóta fyrir sjúkrakostnað og annað fjártjón.
A krafðist þess að felldur yrði úr gildi sá hluti ákvörðunar S sem laut að því að bætur til hans samkvæmt lögum nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu skertust samkvæmt þeim fyrirmælum 2. mgr. 5. gr. laganna að hámarksbætur væru 5.000.000 króna. Reisti hann þá kröfu á því að fyrrgreint ákvæði bryti gegn jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og stjórnarskrárinnar, auk þess sem í því fælist skerðing eignarréttinda samkvæmt 72. gr. stjórnarskrárinnar. Í dómi héraðsdóms kom meðal annars fram að þar sem lög nr. 111/2000 mæltu fyrir um rétt sem óvíst væri hvort sjúklingar ættu annars en sviptu þá ekki rétti væri ekki um að ræða brot gegn eignaréttarákvæði 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrárinnar. Þá styddist það við málefnaleg sjónarmið að setja þak á fjárhæð bóta eftir lögunum. Loks væri hvorki um að ræða brot gegn jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 né 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var kröfu A því hafnað. Í dómi Hæstaréttar sagði að þar sem ákvörðun S ætti stoð í skýru og ótvíræðu ákvæði 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 væri ekki um að ræða brot á jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga. Um eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar sagði síðan að því hefði verið slegið föstu í dómaframkvæmd að löggjafinn hefði nokkurt svigrúm til að takmarka fjárhæð bóta vegna skerts aflahæfis væru slíkar takmarkanir reistar á efnislegum ástæðum og jafnræðis gætt. Þar sem málefnaleg sjónarmið lægju að baki 2. mgr. 5. gr. laga nr. 111/2000 og reglan tæki jafnt til allra tjónþola samkvæmt lögunum fæli hún ekki í sér brot gegn 1. mgr. 65. gr. stjórnarskrárinnar. Var S því sýknaður af kröfu A.
Ágreiningur aðila laut að því hvort S og Í bæru bótaábyrgð á líkamstjóni sem A taldi að rekja mætti til afleiðinga læknismeðferðar sem hann hlaut árið 2003, annars vegar á Ítalíu þar sem hann var fyrst lagður inn í kjölfar þess að hann varð fyrir heilablóðfalli og hins vegar á Landspítala sem tók við meðferð A eftir komu hans til Íslands um viku síðar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að A hefði sjálfur leitað á umrætt sjúkrahús á Ítalíu án þess að vist hans þar hefði komið til eftir reglum þágildandi 35. gr. laga nr. 117/1993 um almannatryggingar, sbr. nú 1. mgr. 23. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, hvorki að því er varðaði ástæðu fyrir henni né aðdraganda hennar. Af þessum sökum gæti hann ekki krafið S um bætur vegna tjóns, sem rekja mætti til meðferðarinnar þar ytra. Kröfu um bætur fyrir slíkt tjón yrði enn síður beint að Í á grundvelli almennra reglna um sakarábyrgð starfsmanna Landspítala og vinnuveitandaábyrgð Í á þeim. Kom því einungis til skoðunar hvort A ætti rétt til bóta vegna tjóns af þeirri meðferð sem hann fékk á Landspítala á nánar tilgreindu tímabili. Með hliðsjón af niðurstöðum tveggja matsgerða var talið að ýmis mistök hefðu verið gerð við meðferð A frá því að hann var lagður inn á Landspítala, þar á meðal að ekki hefði verið gætt að því að afla upplýsinga frá ítalska sjúkrahúsinu um greiningu á sjúkdómi hans og meðferð þar, ekki hefði verið bætt úr þessu með viðhlítandi rannsóknum og A hefði vegna mistaka þurft að sæta einangrun vegna smithættu lengur en þörf hefði verið. Þá hefði honum verið gefið lyf sem yki hættu á því að hann fengi á ný blóðtappa í heila, sem síðar varð raunin. Var því lagt til grundvallar að uppfyllt væru skilyrði 1. töluliðar 2. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu til að A öðlaðist rétt til bóta úr sjúklingatryggingu. Í samræmi við niðurstöðu yfirmatsgerðar var jafnframt lagt til grundvallar að tjón A af völdum meðferðarinnar á Landspítala á umræddu tímabili svaraði til fjórðungs af heildartjóni hans. Loks var ekki fallist á með S að krafa A hefði verið fallin niður fyrir fyrningu samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 111/2000. Samkvæmt framansögðu var S gert að greiða A tilgreinda fjárhæð.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli a. liðar 1. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Frávísun.
Kærumál. Afhending gagna. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. Felldur var úr gildi úrskurður héraðsdóms, þar sem vísað var frá dómi máli á hendur A, meðal annars með skírskotun til þess að krafa sóknaraðila hafi verið nægjanlega skýr og afmörkuð til þess að héraðsdómara hafi verið unnt að taka afstöðu til hennar.
Bótakröfum vísað frá dómi.
Skaðabótamál. Mistök við greiningu og meðferð áverka á hendi.
Æ höfðaði mál gegn Í þar sem hann krafðist viðurkenningar á bótaskyldu Í vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir af völdum rangrar greiningar og seinkunar meðferðar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þegar hann leitaði þangað á slysadeild í kjölfar höfuðáverka sem hann hlaut í slysi 2009. Í hinum kærða úrskurði var máli Æ vísað frá dómi þar sem hann hefði átt að beina kröfunni að S, sbr. 7. gr. laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu. Í dómi Hæstaréttar var rakið að S hefði hafnað erindi Æ um bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 á þeim grundvelli að tilvikið félli utan bótasviðs laganna. Að fenginni niðurstöðu S hefði Æ átt þess kost að láta reyna á það fyrir dómi hvort synjun stofnunarinnar við erindi hans hefði átt sér lagastoð. Æ hefði kosið að gera það ekki heldur höfðað mál þetta með fyrrgreindri viðurkenningarkröfu. Taldi Hæstiréttur að ákvæði 7. gr. laga nr. 111/2000 stæðu slíkri málshöfðun ekki í vegi en af málatilbúnaði Æ leiddi að hann nyti við málsóknina ekki þess hagræðis sem hann ella nyti hefði hann rekið mál sitt áfram á grundvelli framangreindra laga. Var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.
B krafðist skaðabóta, aðallega úr hendi S en til vara Í, vegna líkamstjóns sem hann kvaðst hafa orðið fyrir vegna mistaka í læknismeðferð sem hann sætti í framhaldi af slysi sem hann hefði orðið fyrir. Var málinu vísað frá héraðsdómi sökum vanreifunar, en í niðurstöðu Hæstaréttar var m.a. vísað til þess að verulegur misbrestur hefði verið á því af hálfu B að hann tilgreindi til fullnaðar frá dómkröfu sinni í héraðsdómsstefnu, auk þess sem í málsástaæðum hans hefði ekki verið tekin bein afstaða til þess hvort einstakir liðir ættu að koma kröfunni til frádráttar.
Skaðabótamál. Málinu vísað frá dómi.
Frávísun án kröfu.
Skaðabótamál
A krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda Í vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í kjölfar læknismeðferðar á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Héraðsdómur sýknaði Í með vísan til þess að þótt standa hefði mátt betur að málum en gert var umrætt sinn væri ekki unnt að fullyrða að hvaða leyti draga hefði mátt úr heilsutjóni A með markvissari aðgerðum. Hæstiréttur vísaði til þess að A hefði verið nauðsynlegt að afla matsgerðar þegar á frumstigum málatilbúnaðar síns, en A fékk dómkvadda tvo matsmenn eftir áfrýjun héraðsdóms. Hefðu matsmennirnir ekki staðið saman að rökstuddri matsgerð svo sem þeim hefði borið samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála heldur hefðu þeir skilað tveimur ólíkum og innbyrðis misvísandi álitsgerðum, sem ekki gætu haft það sönnunargildi sem stefnt hefði verið að með dómkvaðningu matsmanna. Þá hefðu matsgerðirnar verið svo seint fram komnar að Í hefði hvorki gefist færi til andmæla fyrr en við munnlegan flutning málsins né hefði hann getað leitast við að fá þeim hnekkt. Þótt aðilum einkamáls væri almennt heimilt að afla nýrra sönnunargagna undir áfrýjun héraðsdóms hefði málatilbúnaður A hvað þetta varðaði farið verulega úrskeiðis. Með vísan til þessa taldi Hæstiréttur að málið væri svo vanreifað af hálfu A að ekki væri hægt að leggja dóm á það og því óhjákvæmilegt að vísa því frá héraðsdómi.
Fallist var á greiðslu lögmannskostnaðar vegna kröfu stefnanda um bætur á grundvelli laga nr. 111/2000 um sjúklingatryggingu.
Felldur var úr gildi úrskurður úrskurðarnefndar almannatrygginga frá 24. október 2007 og stefnda gert að greiða stefnanda bætur vegna miska og örorku á grundvelli laga um sjúklingatryggingu nr. 111/2000.
Stefnandi krafðist viðurkenningar á bótaskyldu vegna tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir eftir meðferð á fótaaðgerðarstofu. Krafan var viðurkennd að hluta á hendur fótaaðgerðarfræðingnum, sem meðhöndlaði stefnanda, og á hendur stofunni. Framkvæmdastjóri fótaaðgerðarstofunnar var sýknaður og vátryggingafélagið þar sem framkvæmdastjórinn hafði sjúklingatryggingu.
Stefnandi krefur um viðurkenningu á bótaskyldu íslenska ríkisins án þess að þurfa að leita bóta samkv. lögum um sjúkratryggingu fyrst.