Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

61 dómar fundust

Lykilorð: Árslaun

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 31. mars 2026 kl. 15:52

E-633/2025

A (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Guðmundur Sæmundsson lögmaður)

Stefnandi lenti í umferðarslysi og varð fyrir varanlegu líkamstjóni. Bótaábyrgð stefnda var óumdeild en ekki var fallist á með stefnanda að meta bæri árslaun hans sérstaklega, sbr. 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Þá voru saknæmiskröfur a-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga ekki taldar uppfylltar svo stefnda bæri að greiða stefnanda miskabætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 19. febrúar 2026

E-5536/2025

A (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Haukur Örn Birgisson lögmaður)

Ágreiningur málsaðila laut að því hvaða árslaunaviðmið lætti að leggja til grundvallar vegna bóta fyrir varanlega örorku. Í málinu var óumdeilt að fyrirsjáanleg námslok uppfylltu skilyrði 2. mgr. 7. gr. laga nr. 50/1993 um að aðstæður væru óvenjulegar í skilningi ákvæðisins. Hins vegar var deilt um hvort námslok stefnanda hefðu verið fyrirsjáanleg á þeim degi sem slysið varð en stefnandi hafði þá lokið 120 af 206 einingum sem svaraði til ríflega 58% af heildarnáminu. Þega horft var til þeirra viðmiða sem lögð hafa verið til grundvallar í dómaframkvæmd var ekki talið að námslok hefðu verið fyrirsjáanleg á slysdegi, Kröfu stefnanda var því hafnað.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. janúar 2026

E-3787/2025

A (Guðbjörg Benjamínsdóttir lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Olgeir Þór Marinósson lögmaður)

Stefnandi lenti í umferðarslysi og varð fyrir varanlegu líkamstjóni. Bótaábyrgð stefnda var óumdeild en ekki var fallist á með stefnanda að meta bæri árslaun hans sérstaklega, sbr. 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, þar sem honum auðnaðist ekki sönnun þess að ætla mætti að annar mælikvarði væri réttari um líklegar framtíðartekjur hans en samkvæmt 3. mgr. ákvæðisins.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. janúar 2026

E-1004/2025

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Helgi Már Ólafsson lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Deilt var um árslaunaviðmið skv. 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Með dómi var fallist á það með stefnanda að réttara væri að miða við atvinnutekjur hans á þriggja ára viðmiðunartímabili skv. 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, uppreiknaðar til 12 mánaða, en tekjur hans á slysárinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. desember 2025

E-4513/2025

A (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) gegn Sólheimum ses (Andri Andrason lögmaður)

Í málinu deildu aðilar um uppgjör bóta vegna varanlegrar örorku húsasmiðs sem veiktist af völdum myglu í störfum fyrir stefnda. Var því sjónarmiði stefnda hafnað að fullnaðaruppgjör hafi farið fram í málinu. Fallist var á með stefnanda að aðstæður hans hefðu verið óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og að tekjur iðnlærðra húsasmiða á árinu 2016 væru réttari mælikvarði á líklegar framtíðartekjur við bótauppgjör en meðaltekjur hans síðustu þrjú ár fyrir slysið. Ekki var fallist á dráttarvaxtakröfu stefnanda. Var stefnda gert að greiða stefnanda skaðabætur auk nánar tilgreindra vaxta í samræmi við aðalkröfu hans.

Landsréttur birt 13. nóvember 2025

904/2024

Vörður tryggingar hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) gegn A (Helgi Birgisson lögmaður)

Í málinu var deilt um hvort miða ætti bætur fyrir varanlega örorku A við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eða hvort árslaun skyldu metin sérstaklega þar sem óvenjulegar aðstæður væru fyrir hendi, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Í dómi Landsréttar var rakið að í dómum Hæstaréttar hafi verið lagt til grundvallar við mat á því hvort námslok teldust fyrirsjáanleg að tjónþoli hafi verið kominn langt á veg í námi sínu svo honum yrðu dæmdar bætur samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Einnig hafi dómaframkvæmdin verið skýr um að námslok teldust ekki fyrirsjáanleg hafi tjónþoli aðeins lokið um það bil helmingi náms. Þá hafi verið litið til náms í heild sinni, bæði bóklegs og verklegs. Var í dómi Landsréttar vísað til þess að þegar A varð fyrir slysinu hafði hún lokið tæplega helmingi þeirra námseininga sem þurfi til að ljúka námi. Þá hafi A stundað verklegt nám á sama misseri er slysið varð og lokið námi rúmlega sjö mánuðum eftir slysið. Með hliðsjón af dómaframkvæmd Hæstaréttar var talið að námslok A hafi ekki verið fyrirsjáanleg á slysdegi og því ekki tilefni til að víkja frá lágmarkslaunum samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Var því fallist á með V að við uppgjör á tjóni A skyldi farið eftir 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga og krafa V um sýknu því tekin til greina.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. október 2025

E-7839/2024

A (Ingibjörg Pálmadóttir lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Þórir Júlíusson lögmaður)

Deilt var um bótauppgjör vegna vinnuslyss á sjó sem stefnandi hafði tekið við með fyrirvörum. Hafnað var öllum málsástæðum stefnanda sem lutu að því að við ákvörðun bóta fyrir varanlega örorku bæri að meta árslaun hans sérstaklega, skv. 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, og leggja til grundvallar tekjur hans af sjómannsstörfum eða, til vara, meðaltekjur verkafólks á slysaárinu. Þá var hafnað málsástæðum sem lutu að því að tekjur hans af sjómannsstörfum, eða til vara meðaltekjur verkafólks, væru réttari mælikvarði á tímabundið atvinnutjón hans eftir vertíðarlok og að kauptrygging skv. 36. gr. sjómannalaga hefði verið ranglega dregin frá bótum vegna þess tjóns. Var hið stefnda tryggingafélag sýknað af öllum dómkröfum stefnanda.

Landsréttur birt 23. júní 2025

494/2024

Vörður tryggingar hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður) gegn A (Ingibjörg Pálmadóttir lögmaður)

A varð fyrir líkamstjóni vegna umferðarslyss árið 2018. Sakarefni málsins varðaði það álitaefni hvort telja skyldi mótframlag vinnuveitanda A í séreignasjóð til árslauna í skilningi 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Einnig ríkti ágreiningur um hvort fyrirvari A við uppgjör bóta vegna varanlegrar örorku hefði verið fullnægjandi svo hann gæti sett fram frekari kröfur um bætur vegna slyssins. Niðurstaða Landsréttar var að uppgjör málsaðila hefði ekki falið í sér fullnaðaruppgjör og gæti A samkvæmt því haft uppi þá viðbótarkröfu sem ágreiningur málsins tók til. Í dómi Landsréttar kom fram að ekki yrði fallist á að nein lagarök stæðu til þess að mótframlag vinnuveitanda í séreignasjóð skyldi ekki telja til atvinnutekna tjónþola og þar með árslauna í skilningi 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Enginn tölulegur ágreiningur ríkti í málinu, yrði fallist á þá málsástæðu A að telja mótframlag vinnuveitanda A í séreignasjóð á viðmiðunartímabilinu til árslauna. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur og V hf. gert að greiða A 302.639 krónur með nánar tilgreindum vöxtum.

Landsréttur birt 15. maí 2025

380/2024

Orka náttúrunnar ohf (Kristín Edwald lögmaður) og Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Fjölnir Ólafsson lögmaður, 4. prófmál) gegn A (Styrmir Gunnarsson lögmaður)

Í málinu greindi aðila á um hvort ákvarða ætti A bætur vegna varanlegar örorku eftir 2. eða 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Einkum var um það deilt hvort A hefði verið komin svo langt í námi sínu við Vélstjórnar- og skipstjórnarskólann að tiltekin námslok hefðu mátt teljast fyrirsjáanleg svo að vikið yrði frá lágmarkslaunaviðmiði samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laganna við mat á framtíðartekjum hennar, sbr. 2. mgr. sömu lagagreinar. Landsréttur lagði til grundvallar að A hefði lokið um 77% af bóklegu námi sínu til að öðlast B-réttindi til vélstjórnar og rúmlega 20 vikna starfsnámi. Taldi Landsréttur því að á slysdegi hefði verið fyrirsjáanlegt að stefnda myndi ljúka námi frá Véltækni- og skipstjórnarskólanum til að öðlast B- réttindi í vélstjórn og var fallist á að meta skyldi árslaun hennar sérstaklega, sbr. 2. mgr. 7. gr. laganna. A miðaði aðalkröfu sína í málinu við meðaltekjur einstaklinga sem falla undir starfsflokkinn „Störf iðn- og landbúnaðarvélvirkja“ hjá Hagstofu Íslands en samkvæmt gögnum málsins hefði hún að loknu námi sínu öðlast réttindi til að gegna störfum í þeim flokki. Var því fallist á að sú tekjuviðmiðun gæfi réttari mynd af framtíðartekjum hennar en sá mælikvarði sem í 3. mgr. 7. gr. laganna greindi. Þá var því hafnað að miða skyldi við miðgildi launa verkafólks eins og áfrýjendur byggðu á með varakröfu sinni. Hinn áfrýjaði dómur var því staðfestur.

Landsréttur birt 3. apríl 2025

230/2024

A (Jónas Þór Jónasson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

A höfðaði mál á hendur S hf. til heimtu skaðabóta fyrir varanlega örorku vegna afleiðinga umferðarslyss sem hún varð fyrir árið 2019. Laut ágreiningur aðila að því hvert árslaunaviðmið við útreikning skaðabóta samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 skyldi vera. Í dómi Landsréttar var rakið að A hefði skipt um starfsvettvang á árinu 2017 þegar hún hóf störf hjá B og lét af störfum hjá D ehf. Hefði A notið tekna frá báðum launagreiðendum fjóra mánuði ársins, auk þess sem hún hefði fengið laun fyrir hlutastarf hjá E stærstan hluta ársins. Ráðið var að hærri tekjur frá B hefðu skýrst af nýju skipulagi á vinnustað og af vandkvæðum við að manna vaktir sem A hefði tekið að sér. Samkvæmt því var talið að aðstæður A hefðu verið óvenjulegar á árinu 2017 og var ekki séð að þær tekjur væru til þess fallnar að gefa rétta mynd af líklegum framtíðartekjum hennar. Hið sama var talið eiga við um tekjur A árið 2016 en þá var hún óvinnufær að hluta, hætti í námi og hóf störf hjá nýjum vinnuveitanda. Loks var ekki talið að A hefði lagt fram gögn sem renndu stoðum undir að önnur viðmið sem kröfugerð hennar tók til gæfu réttari mynd af líklegum framtíðartekjum en launatekjur miðað við starf hennar hjá B árið 2018 sem A hefði hug á að gegna áfram. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu S hf. af kröfum A.

Landsréttur birt 13. mars 2025

46/2024

VÍS tryggingar hf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður) gegn A (Erling Daði Emilsson lögmaður)

Í málinu byggði V hf. á því að A hefði leynt félagið upplýsingum um umferðarslys sem hún hefði orðið fyrir á árinu 2013 þegar hún krafði félagið um bætur vegna annars umferðarslyss á árinu 2018 og þar með glatað rétti til bóta úr hendi V hf. vegna seinna slyssins, sbr. 2. mgr. 120. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga. Hafði A verið metin til örorku og V hf. greitt henni bætur vegna fyrra slyssins. Í sameiginlegri matsbeiðni A og V hf., sem lögmaður A ritaði undir fyrir hennar hönd, hafði staðlaðri spurningu um hvort A hefði áður orðið fyrir líkamstjóni og gengist undir örorkumat verið svarað með því að merkja við reitinn „nei“. Einnig byggði V hf. á því að A hefði veitt matsmönnum rangar upplýsingar um fyrra slysið á matsfundi. Í dómi Landsréttar var talið að A gæti ekki borið hallann af mistökum lögmanns hennar við upplýsingagjöf í sameiginlegri matsbeiðni, en í fylgigögnum með henni komu fram upplýsingar um fyrra slysið og umtalsverðar bætur sem V hf. hafði greitt henni á árinu 2016. Þá naut A ekki aðstoðar túlks á matsfundi, en móðurmál hennar er pólska. Þrátt fyrir að A hefði náð ágætis tökum á íslensku yrði því ekki vísað á bug að hún hefði við streitukenndar aðstæður á matsfundi misskilið spurningar matsmanna. Jafnframt lá fyrir að V hf. var með matsgerð vegna fyrra slysins undir höndum en aðeins voru tvö ár liðin frá bótauppgjöri V hf. vegna þess þegar tjónstilkynning vegna síðara slyssins barst félaginu. Mátti A því gera ráð fyrir því að V hf. byggi yfir öllum upplýsingum um fyrra slysið og þar með þeim upplýsingum og gögnum sem félagið þurfti til að meta ábyrgð sína, sbr. 1. mgr. 120. gr. laga nr. 30/2004. Samkvæmt þessu var ekkert talið styðja það að A hefði vísvitandi veitt V hf. rangar upplýsingar í þeim tilgangi að fá greiddar hærri bætur en hún ætti rétt á, sbr. 2. mgr. 120 gr. sömu laga. Þá var fallist á með A að aðstæður hennar hefðu verið óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og tekjur hennar árið 2017 væru réttari mælikvarði á líklegar framtíðartekjur við bótauppgjör en meðaltekjur hennar síðustu þrjú ár fyrir slysið. Var V hf. því gert að greiða A 5.253.974 krónur í skaðabætur auk nánar tilgreindra vaxta í samræmi við aðalkröfu hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. október 2024

E-5802/2023

A (Helgi Birgisson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Fallist var á kröfu einstaklings um bætur úr hendi vátryggingafélags vegna umferðarslyss. Einkum var deilt um það hvaða viðmiðunarlaun skyldu lögð til grundvallar við útreikning örorkubóta. Var fallist á það með stefnanda að í þeim efnum væri nærtækast að miða við laun í þeirri starfsgrein sem hún hefði menntað sig sérstaklega til og starfaði í reynd við.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. október 2024

E-7152/2023

A (Þormóður Skorri Steingrímsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Viktoría Hilmarsdóttir lögmaður)

Ágreiningur var um árslaunaviðmið við uppgjör bóta vegna líkamstjóns stefnanda. Ekki var fallist á að auk reiknaðs endurgjalds og hagnaðar ætti að taka mið af úttektum stefnanda úr rekstri við útreikning bóta. Var talið að með þegar uppgerðum bótum til stefnanda vegna varanlegrar örorku og tímabundins atvinnutjóns væri líkamstjón hans að fullu bætt og var stefndi sýknaður.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 15. október 2024

E-211/2024

A (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Viktoría Hilmarsdóttir lögmaður)

Stefnandi krafðist hærri skaðabóta en áður höfðu verið greiddar vegna varanlegra afleiðinga umferðarslysa. Stefndi var talinn hafa greitt stefnanda fullar bætur samkvæmt skaðabótalögum og var sýknaður af öllum kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 12. júlí 2024

E-3627/2022

A (Jónas Þór Jónasson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

Stefndi hafði við greiðslu skaðabóta vegna vinnuslyss stefnanda beitt meginreglu skaðabótalaga um árslaun við útreikning bóta fyrir varanlega örorku. Stefnandi taldi annan mælikvarða réttari á líklegar framtíðartekjur sínar og krafðist þess að árslaun yrðu metin sérstaklega á grundvelli 2. mgr. 7. gr. laganna. Dómurinn féllst ekki á það og hafnaði kröfu hans um hærri bætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. júní 2024

E-5155/2023

A (Styrmir Gunnarsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf. og B (Kristín Edwald lögmaður)

Ágreiningur um árslaunaviðmið við útreikning skaðabóta vegna varanlegrar örorku. Fallist var á það með stefnanda að skilyrði 2. mgr 7. gr. skaðabótalaga væru uppfyllt, aðstæður fyrir slys hefðu verið óvenjulegar og líklegar framtíðartekjur aðrar en þær sem reiknaðar höfðu verið samkvæmt 1. mgr. 7. gr laganna.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júní 2024

E-7750/2023

A (Anna Linda Bjarnadóttir lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Anna Dögg Hermannsdóttir lögmaður)

Ágreiningur málsaðila laut að því hvernig reikna ætti út árslaun stefnanda skv. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í fyrra bótauppgjöri frá hafði verið beitt 2. mgr. 7. gr. laganna. Við endurupptöku 2023 miðaði stefndi við 3. mgr. 7. gr. laganna. Ekki var fallist á að stefndi væri bundinn við fyrra uppgjör málsins svo framalega sem hann gæti sýnt fram á að annar mælikvarði væri réttari á líklegar framtíðartekjur. Talið var eðlilegt að miða við 2. mgr. 7. gr. út frá þeim forsendum sem lágu fyrir við uppgjörið 2019 bæði varðandi tekjusögu og líklegar framtíðartekjur. Hins vegar var annar mælikvarði talinn réttari á líklegar framtíðartekjur í ljósi takmarkaðra varanlegra afleiðinga slyssins og atvinnuþátttöku hennar og launatekna eftir slysið þar sem þær forsendur sem lágu til grundvallar fyrra mati varðandi framtíðartekjur höfðu ekki raungerst. Stefnandi gat ekki borið fyrir sig skilyrði 11. gr. laga nr. 50/1993 þar sem ekki var byggt á þeirri málsástæðu í stefnu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. mars 2024

E-5952/2022

A (Stefán Geir Þórisson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Deilt var um úteikning á skaðabótum sem stefnda bar að greiða stefnanda vegna varanlegrar örorku af völdum umferðarslyss. Niðurstaða dómsins var að allt framlag vinnuveitanda til lífeyrissjóðs stefnanda á þremur viðmiðunarárum yrði að telja með árslaunum hans samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 50/1993 við útreikning bótanna. Var stefnda gert að greiða stefnanda það sem á vantaði til þess að hann fengi fullar bætur.

Landsréttur birt 22. mars 2024

781/2022

A (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður)

A höfðaði mál á hendur V hf. til heimtu skaðabóta vegna umferðarslyss sem hún varð fyrir í nóvember 2016. Laut ágreiningur aðila að útreikningi bóta, en A byggði á því að ákvarða ætti árslaun hennar sérstaklega við útreikning bóta, sbr. 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, þar sem aðstæður hennar hefðu verið óvenjulegar í skilningi ákvæðisins. A hafi sumarið fyrir slysið flutt frá Indlandi til Bandaríkjanna, verið búsett þar á slysdegi og staðið hafi til að hún hefði störf þar í samræmi við menntun sína. Því bæri að miða við tekjur á hennar sérsviði í Bandaríkjunum við bótauppgjör í stað tekna A síðustu þrjú ár fyrir slyss, eins og V hf. gerði. Í hinum áfrýjaða dómi, sem Landsréttur staðfesti með vísan til forsendna hans, kom fram að A hefði sagt upp starfi sínu í Indlandi áður en hún fluttist búferlum til Bandaríkjanna, hún hafi einungis verið með dvalarleyfi í Bandaríkjunum en ekki atvinnuleyfi og því ekki verið á vinnumarkaði á slysdegi né haft vilyrði fyrir starfi þar. Búferlaflutningar einir og sér geti ekki leitt til þess að undantekningareglu 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga sé beitt. Um breytingar á atvinnuþátttöku og tekjum þurfi að vera að ræða, ellegar unnt að fullyrða að þær standi fyrir dyrum svo að undantekningareglunni verði beitt. Áform tjónþola um breytingar í fyrirsjáanlegri framtíð nægi ekki í þessu sambandi, hafi tjónþoli ekkert aðhafst til að hrinda áformum sínum í framkvæmd. Á slysdegi voru því ekki slíkar breytingar fyrirséðar á högum A að réttlættu beitingu undanþáguákvæðis 2. mgr. 7. gr. laganna. Það að A hafi hafið störf í Kanada fimm árum eftir slysið var ekki talið geta breytt þessari niðurstöðu. Niðurstaða dómsins var því að skilyrði 2. mgr. 7. gr. laganna um óvenjulegar aðstæður væru ekki uppfyllt og var V hf. sýknað af kröfum A. Jafnframt var rakið í dómnum að sjálfstætt skilyrði 2. mgr. 7. gr. laganna um tilvist annars og réttari mælikvarða um framtíðartekjur A en samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laganna væru ósönnuð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. febrúar 2024

E-3030/2023

A (Styrmir Gunnarsson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Einar Brynjarsson lögmaður)

Málið snýst um útreikning skaðabóta fyrir varanlega örorku, sem stefnandi hlaut af völdum slyss sem stefndi ber bótaábyrgð á. Ágreiningur var um hvaða árslaun bæri að nota sem mælikvarða á líklegar framtíðartekjur stefnanda. Talið var rétt að miða árslaun við upplýsingar Hagstofu Íslands um meðallaun í sambærilegum störfum og stefnandi gegndi þegar slysið varð. Því var fallist var á kröfu stefnanda um að bætur skyldu reiknaðar á grundvelli hámarksárslauna samkvæmt 4. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, en þau eru lægri en þau árslaun sem talið var rétt að miða við.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. janúar 2024

E-125/2023

A (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

Stefndi greiddi stefnanda skaðabætur vegna afleiðinga umferðarslyss sem hann varð fyrir á árinu 2018 og stefndi bar bótaábyrgð á. Í þessu máli krafðist stefnandi hærri skaðabóta úr hendi stefnda en áður höfðu verið greiddar honum, aðallega vegna þess að stefnandi taldi að miða hefði átt uppgjör bóta fyrir varanlega örorku við hærri árslaun en gert hafði verið. Á það var ekki fallist í dóminum og var stefndi sýknaður af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. janúar 2024

E-3372/2023

A (Kristján Ágúst Flygenring lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Olgeir Þór Marinósson lögmaður)

Fallist var á að til grundvallar útreikningi bóta fyrir varanlega örorku bæri að miða við meðallaun stjórnenda krana og lyftitækja skv. framlagðri töflu Hagstofu Íslands, enda hefði stefnandi aflað sér alþjóðlegra réttinda til að stjórna krana og unnið við það fyrir og eftir slysið. Væri þannig lagt til grundvallar að áform stefnanda um framtíðarstarfsvettvang hafi verið mótuð á slysdegi.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 4. janúar 2024

E-3459/2023

A (Kristján Ágúst Flygenring lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Halldór Hrannar Halldórsson lögmaður)

Deilt var um hvernig reikna skyldi út árslaun við ákvörðun skaðabóta vegna varanlegrar örorku. Við ákvörðun bóta til stefnanda hafði stefndi notast við það lágmarksviðmið sem fram kemur í 3. mgr. 7. gr., sbr. 1. mgr. 15. gr., skaðabótalaga nr. 50/1993. Talið var að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að aðstæður væru óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. laganna og annar mælikvarði réttari en sá sem greinir í 1. mgr., sbr. 3. mgr., sömu lagagreinar. Stefndi var því sýknaður af kröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. desember 2023

E-118/2023

A (Erling Daði Emilsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður)

Stefnandi hafði orðið fyrir tveimur umferðarslysum. Áður en hún varð fyrir síðara slysinu hafði hún fengið greiddar bætur frá stefnda vegna fyrra slyssins, m.a. vegna varanlegrar ororku og varanlegs miska. Deilt var um hvort stefnandi hefði í tengslum við mat og bótakröfu vegna síðara slyssins leynt upplýsingum um það fyrra og hefði með því glatað rétti til krafna á hendur stefnda, sbr. 2. mgr. 120. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga. Ekki var fallist að stefnandi hefði glatað þeim rétti. Við úrlausn um hvaða árslaun skyldi miða við þegar bætur fyrir varanlega örorku voru ákvarðaðar voru ekki talin efni til að víkja frá meginreglu 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, þess efnis að miða skuli við meðalatvinnutekjur tjónþola síðustu þrjú almanaksárin fyrir slys.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 23. nóvember 2023

E-4046/2021

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn TM tryggingum hf. (Stefán Björn Stefánsson lögmaður) og íslenska ríkinu til réttargæslu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Því var hafnað að 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 stæðist ekki 72. gr. stjórnarskrárinnar.

Hæstiréttur birt 1. nóvember 2023

17/2023

TM tryggingar hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður) gegn A (Jónas Þór Jónasson lögmaður)

A varð fyrir líkamstjóni í umferðarslysi árið 2014 en hún var þá nýlega orðin 18 ára og barnshafandi. Hún fékk greiddar bætur úr ábyrgðartryggingu ökutækis hjá T hf. og var við útreikning bóta vegna varanlegrar örorku miðað við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Í málinu gerði A kröfu um að meta skyldi árslaun sérstaklega samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að þegar litið væri til fyrra skilyrðis 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga um að fyrir hendi væru óvenjulegar aðstæður yrði að horfa til aðstæðna A á slysdegi. Hæstiréttur vísaði til þess að A hefði þá hafið fulla þátttöku á vinnumarkaði og ekki haft önnur áform um nám en þau sem hún gæti sinnt meðfram starfi. Var því fallist á að aðstæður hennar hefðu verið óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Túlkun síðara skilyrðis 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga um að annar mælikvarði væri réttari á líklegar framtíðartekjur en sá sem fram kemur í 3. mgr. greinarinnar yrði að ráðast af aðstæðum og stöðu A á slysdegi. Hún hefði unnið ýmis störf, fyrst og fremst við þjónustu og verslun, og hefði engin áform um annað en að halda þeim áfram. Var því staðfest sú niðurstaða hins áfrýjaða dóms að við uppgjör bóta til A yrði farið eftir 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga og að meðallaun starfsfólk í afgreiðslu- og sölustörfum gæfu réttari mynd af líklegum framtíðartekjum hennar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. október 2023

E-2489/2023

A (Elfar Elí Schweitz Jakobsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

A slasaðist 16 desember 2019 þegar hann var við störf í starfsstöð X og var varanleg örorka hans vegna slyssins metin 5%. Stefndi viðurkenndi bótaskyldu vegna slyssins en ágreiningur reis um viðmið árslauna við mat á útreikningi bóta vegna varanlegrar örorku. Stefnandi var rétt tæplega átján ára gamall og starfaði hjá X samhliða námi þegar slysið varð. Hann hélt áfram að starfa hjá X eftir slysið eins og fyrirætlanir hans stóðu til sem voru staðfestar af yfirmanni hans og starfsmannastjóra. Þrátt fyrir að hann hefði takmarkaða tekjusögu á vinnumarkaði, voru heildarlaun hans á árinu 2019 talsvert rífleg laun fyrir námsmann í hlutastarfi sem styðja þann framburð að hann hafi sóst eftir starfi hjá félaginu og verði tilbúinn til að leggja talsvert á sig í þeim efnum. Í ljósi þessa og þess sem síðar raungerðist var lagt til grundvallar að stefnandi hefði verið búinn að móta sér starfsvettvang sem verkamaður og í náinni framtíð við störf hjá X. Var því fallist á að aðstæður hans hefðu verið óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. laga nr. 50/1993. Við mat á því hvort annar mælikvarði sé réttari en lágmarkslaun var horft til takmarkaðra varanlegra afleiðinga slyssins, launatekna á árinu 2019 sem voru rétt hærri en lágmarkslaun og launatekjur á árinu 2020 sem voru þó nokkuð hærri en lágmarkslaun en lægri en meðal heildarlaun karlkyns verkafólks enda var stefnandi í menntaskólanámi á þessum tíma. Launatekjur stefnanda voru langt umfram lágmarkslaun á árinu 2021 og 2022 en ekki lágu fyrir gögn um meðaltal heildarlauna karlkyns verkafólks á þessum tíma. Ekki var talið hægt að slá því föstu að meðallaun verkafólks væru réttasti mælikvarðinn á framtíðartekjur stefnanda, hins vegar var með vísan til dómaframkvæmdar talið tækt að líta til eiginlegra árslauna fyrsta heila árið eftir tjónsatburð eins og þrautavarakrafa stefnanda hljóðaði á um, að öðru leyti en því að dráttarvextir voru miðaðir við dómsuppsögu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 21. september 2023

E-1428/2023

A (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Einar Brynjarsson lögmaður)

Tryggingafélag sýknað af kröfu manns sem vildi miða uppgjör varanlegrar örorku við laun sín á slysdegi, fremur en við tekjur undangenginna þriggja ára, eða eftir atvikum lágmarkstekjur samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, eða til vara meðallaun verkafólks árið sem batahvörfum var náð.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. júní 2023

E-5904/2022

A (Hildur Guðrún Þorleifsdóttir lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Heiður Heimisdóttir lögmaður)

Stefnandi rann til í hálku við byggingarvöruverslun þar sem hann átti erindi vegna starfa og slasaðist og gerði kröfu á hendur tryggingafélagi húseigandans vegna afleidds líkamstjóns. Ekki var deilt um bótakyldu heldur um endanlegt uppgjör með hliðsjón af því hvað teldist rétt árslaunaviðmið í tengslum við metna örorku stefnenda, m.t.t. líklegra framtíðartekna, sem og um kostnað hans vegna sjúkraþjálfunar. Var fallist á það með stefnda að réttast hafi verið að miða hér við rauntekjur stefnanda við uppgjörið, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 50/1993, en fallist var á með stefnenda að honum bæri að fá kostnað við sjúkraþjálfun bættan.

Landsréttur birt 26. maí 2023

240/2022

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Guðjón Ármannsson lögmaður) gegn A (Sveinbjörn Claessen lögmaður)

A og S hf. greindi á um uppgjör skaðabóta í kjölfar umferðarslyss sem A varð fyrir. Ekki var ágreiningur um bótaskyldu og voru A og S hf. sammála um að aðstæður A teldust óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga og að líta skyldi til þess þegar árslaun til ákvörðunar bóta væru ákveðin. Þá voru aðilar sammála um að við ákvörðun bóta til A væri rétt að leggja til grundvallar meðallaun félagsmanna í Félagi viðskipta- og hagfræðinga árið 2017, sem lokið hefðu grunnnámi. S hf. byggði hins vegar á því að lækka ætti viðmiðunarlaunin um 10%, vegna þess að A hefði aðeins haft 90% starfsgetu fyrir slysið þar sem A hafði lent í öðru umferðarslysi árið 2009. S hf. vísaði til dóms Hæstaréttar í máli nr. 25/2018 máli sínu til stuðnings. Í dómi Landsréttar kemur fram að í því máli sem til úrlausnar væri kæmi skýrt fram í matsgerð dómkvaddra matsmanna að við mat á varanlegri örorku A vegna síðara slyssins hefði verið horft til þeirrar skerðingar á starfsorku sem hún hefði búið við vegna fyrra slyssins. Atvik í máli þessu væru því með öðrum hætti en í áðurnefndum dómi Hæstaréttar og var því ekki fallist á með S hf. að lækka bæri viðmiðunarlaun A um 10% vegna þeirrar örorku sem hún hlaut í fyrra slysinu. Þegar af þessari ástæðu var niðurstaða hins áfrýjaða dóms staðfest.

Landsréttur birt 10. mars 2023

128/2022

A (Guðbrandur Jóhannesson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf og B (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn V og B og krafðist greiðslu frekari bóta úr lögboðinni ökutækjatryggingu. Byggði A á því að tekjur hans tekjuárin 2015, 2016 og 2017 gæfu ekki rétta mynd af framtíðartekjum og bæri að meta árslaun hans sérstaklega samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Í héraði var því hafnað að A hefði sýnt fram á að aðrar tekjur en lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga væri réttari og voru V og B því sýknuð. Í dómi Landsréttar var rakin tekjusaga A samkvæmt skattframtölum frá árinu 2010 til 2019 og tekið fram að A hefði eingöngu í tvígang náð lágmarkslaunum samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga á því tímabili. Þá hefði atvinnuþátttaka A verið stopul, bæði fyrir og eftir slysið. Talið var að þótt fyrir lægi að atvinnutekjur hans árin 2020 og 2021 hafi verið hærri en lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga yrði í ljósi atvinnuþátttöku hans í heild árin 2010 til 2019 ekki talið að tekjur hans þessi tvö ár renndu fullnægjandi stoðum undir að telja mætti annan mælikvarða en fyrrgreind lágmarkslaun réttari á líklegar framtíðartekjur hans. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.

Landsréttur birt 24. febrúar 2023

404/2021

A (Einar Gautur Steingrímsson lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður)

A og V hf. greindi á um uppgjör skaðabóta fyrir varanlega örorku A, vegna afleiðinga umferðarslyss sem hann varð fyrir. Með dómi Landsréttar var fallist á rétt A til skaðabóta úr hendi V hf. á grundvelli yfirmatsgerðar þar sem miðað væri við 20% varanlega örorku A og því hafnað að krafa hans hefði verið niður fallin sökum fyrningar á grundvelli 99. gr. þágildandi umferðarlaga nr. 50/1987. Þá var ekki fallist á að A hefði sýnt fram á að fullnægt væri skilyrðum 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 til þess að ákveða árslaun sérstaklega og að við útreikning bóta skyldu árslaun hans ákvörðuð á grundvelli 1. mgr., sbr. 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Var niðurstaða héraðsdóms um skyldu V hf. til greiðslu skaðabóta staðfest. Þá var V hf. gert að greiða A kostnað við öflun matsgerðar.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 3. febrúar 2023

E-5004/2021

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

Stefnandi krafði stefnda um bætur vegna umferðarslyss og byggði kröfu sína á niðurstöðum dómkvaddra yfirmatsmanna. Stefndi krafðist aðallega sýknu og taldi sig hafa bætt stefnanda tjón hennar að fullu á grundvelli utanréttarmats sem aðilar höfðu staðið sameiginlega að. Í málinu voru taldir annmarkar á bæði yfirmatinu og utanréttarmatinu og var niðurstaða fyrirliggjandi undirmats dómkvaddra matsmanna því lagt til grundvallar við úrlausn málsins. Þá var fallist á með stefnanda að aðstæður hennar hefðu verið óvenjulegar á viðmiðunarárunum fyrir slysið og fallist á þrautavarakröfu hennar hvað varðar árslaunaviðmið 7. gr. laga nr. 50/1993.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 2. febrúar 2023

E-607/2022

A (Hildur Helga Kristinsdóttir lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)

Aðila greindi á um rétt A til bóta vegna árekstrar við bifreið sem tryggð var lögboðinni ábyrgðartryggingu hjá SA hf. Talið var sýnt fram á orsakatengsl á milli árekstursins og líkamstjóns stefnanda, en SA hf. byggði einkum á því að áreksturinn hefði ekki verið til þess fallinn að valda varanlegu líkamstjóni. Fallist var á aðalkröfu A sem var reist á matsgerð sem hann hafði aflað og tók mið af meðallaunum þeirrar starfstéttar sem A tilheyrði á slysdegi.

Landsréttur birt 27. janúar 2023

706/2021

A (Jónas Þór Jónasson lögmaður) gegn TM tryggingum hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður)

A höfðaði mál á hendur TM hf. til heimtu skaðabóta fyrir varanlega örorku vegna afleiðinga umferðarslyss sem hún varð fyrir árið 2014. Laut deila aðila að því hvort árslaun A samkvæmt 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 skyldu við útreikning skaðabóta ákvörðuð á grundvelli meginreglu 1. mgr., sbr. 3. mgr. greinarinnar, og þannig miðuð við lágmarkslaun, eða hvort beita ætti undantekningarreglu 2. mgr. og ákvarða árslaun A sérstaklega. Byggði A aðallega á því að miða bæri árslaun hennar við meðaltekjur verkafólks, til vara við meðaltal heildarlauna starfsfólks við afgreiðslu og sölustörf en að því frágengnu að árslaun yrðu reiknuð út frá þeim launum sem hún hafði fengið í föstu starfi sem hún hafði gegnt síðustu þrjá mánuði fyrir slysdag. Í dómi Landsréttar kom fram að A hefði ekki gert það nægilega líklegt að hún hefði getað vænst þess að atvinnutekjur hennar til framtíðar hefðu numið meðaltekjum verkafólks. Aftur á móti hafi mátt gera ráð fyrir að ef slysið hefði ekki orðið, hefði hún að minnsta kosti haft jafnháar tekjur í framtíðinni og nema meðaltali heildarlauna starfsfólks við afgreiðslu- og sölustörf. Var því fallist á það með A að ákvarða ætti varanlega örorku hennar á grundvelli 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga en um fjárhæð bótanna sem tildæmdar voru A á þeim grundvelli var ekki ágreiningur.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. desember 2022

E-5528/2021

A (Steingrímur Þormóðsson lögmaður) gegn Sjúkratryggingum Íslands (Erla Svanhvít Árnadóttir lögmaður) og og íslenska ríkinu (Rakel Jensdóttir lögmaður)

Eiginmaður stefnanda lést í kjölfar aðgerðar eftir slys og voru greiddar út bætur samkvæmt lögum nr. 111/2000 en í málinu beindi stefnandi frekari kröfum til skaðabóta að stefndu SÍ og íslenska ríkinu. Var í málinu deilt um rétt bótaviðmið eða útreikningsaðferð, sbr. 13. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og var úr því leyst og stefnanda tildæmdar bætur úr hendi stefnda íslenska ríkinu samkvæmt varakröfu stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. október 2022

E-5935/2021

A (Kári Valtýsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Stefnda tryggingafélag var dæmt til að greiða skaðabætur til stefnanda úr ábyrgðartryggingu vegna afleiðinga vinnuslyss, en ágreiningur var um sönnun á eðli tjónsatviks sem og um árslaunaviðmið.

Landsréttur birt 14. október 2022

498/2021

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður, Kári Valtýsson lögmaður, 3. prófmál) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður)

Í málinu var deilt um hvaða tekjuviðmið bæri að leggja til grundvallar við ákvörðun bóta til A vegna umferðarslyss sem hann varð fyrir árið 2017. Hafði VÍ hf. þegar greitt A bætur fyrir varanlega örorku á grundvelli 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. A reisti kröfu sína á því að ákveða ætti árslaun hans sérstaklega á grundvelli 2. mgr. 7. gr. laga nr. 50/1993. Aðal- og þrautavarakrafa A tók mið af meðallaunum iðnaðarmanna en varakrafa hans var reist á tekjum hans árið 2017. Í dómi Landsréttar kom fram að A hefði ekki lagt fram gögn eða á annan hátt sýnt fram á að atvinnutekjur hans á árunum fyrir slysið hefðu náð lágmarkslaunum samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laga nr. 50/1993. Þá yrði að leggja til grundvallar að A hefði hvorki fyrr né síðar haft atvinnutekjur sem náð hefðu meðallaunum iðnaðarmanna. Kröfum á þeim grunni var því hafnað. Enn fremur var staðfest niðurstaða héraðsdóms um að hafna varakröfu A. Var þá öðrum þræði vísað til þess að hluti framtalinna tekna A árið 2017 hefði verið hagnaður af eigin rekstri sem að einhverju leyti hefði orðið til með aðkeyptri vinnu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 26. september 2022

E-5656/2021

A (Eiríkur Gunnsteinsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Telma Sif Reynisdóttir lögmaður)

Deilt var um hvaða tekjuviðmið skyldi lagt til grundvallar við útreikning á bótum vegna varanlegrar örorku. Stefndi hafði þegar greitt stefnanda bætur á grundvelli árslaunaviðmiðs 3. mgr. 7. gr skaðabótalaga nr. 50/1993. Ekki var fallist á að uppfyllt væru skilyrði til þess að beita undantekningarreglu 2. mgr. 7. gr. laganna og ákveða árslaun sérstaklega. Talið var að tjón stefnanda hefði að fullu verið bætt og var hið stefnda félag því sýknað af kröfum stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 6. júlí 2022

E-5657/2021

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Heiðar Örn Stefánsson lögmaður)

Deilt var um hvaða tekjuviðmið skyldi lagt til grundvallar við útreikning á bótum vegna varanlegrar örorku. Stefndi hafði þegar greitt stefnanda bætur á grundvelli árslaunaviðmiðs 3. mgr. 7. gr skaðabótalaga nr. 50/1993. Ekki var fallist á að uppfyllt væru skilyrði til þess að beita undantekningarreglu 2. mgr. 7. gr. laganna og ákveða árslaun sérstaklega. Talið var að tjón stefnanda hefði að fullu verið bætt og var hið stefnda félag því sýknað af kröfum stefnanda í málinu.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 5. júlí 2022

E-5909/2021

A (Tinna Björk Gunnarsdóttir lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður)

Deilt var um hvaða tekjuviðmið skyldi lagt til grundvallar við útreikning á bótum vegna varanlegrar örorku. Stefndi hafði þegar greitt stefnanda bætur á grundvelli árslaunaviðmiðs 3. mgr. 7. gr skaðabótalaga nr. 50/1993. Ekki var fallist á að uppfyllt væru skilyrði til þess að beita undantekningarreglu 2. mgr. 7. gr. laganna og ákveða árslaun sérstaklega. Talið var að tjón stefnanda hefði að fullu verið bætt og var hið stefnda félag því sýknað af kröfum stefnanda í málinu.

Landsréttur birt 28. janúar 2022

127/2021

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður) gegn B (Andri Andrason lögmaður)

A krafði B um skaðabætur vegna líkamstjóns sem hún kvaðst hafa orðið fyrir í starfi sínu hjá B. Héraðsdómur taldi að A hefði tekist sönnun um að atvik hefðu orðið með þeim hætti sem hún byggði á. B undi við þá niðurstöðu en eftir stóð ágreiningur aðila um bætur fyrir varanlega örorku af völdum slyssins, það er hvort við ákvörðun bóta skyldi miða við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eða hvort meta skyldi árslaun sérstaklega samkvæmt 2. mgr. sömu greinar. Í dómi Landsréttar var rakið að A hafi verið komin í nánast fulla vinnu við almenn störf sem ekki krefðust sérstakrar menntunar þegar tjónsatburðurinn varð. Því yrði litið svo á að A hefði nýtt mestan hluta starfsgetu sinnar á vinnumarkaði þegar hún varð fyrir tjóninu en fyrir þann tíma hafi hún aftur á móti haft takmarkaða atvinnusögu enda ung að árum. Væru aðstæður hennar því óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Þótti rétt að leggja meðalárslaun verkafólks árið 2014 til grundvallar ákvörðun bóta fyrir varanlega örorku A.

Landsréttur birt 10. desember 2021

352/2020

A ehf (Valgeir Kristinsson lögmaður) gegn B (Jónas Þór Jónasson lögmaður)

Í málinu krafðist B skaðabóta úr hendi A ehf. vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir við störf hjá A ehf. Hæstiréttur hafði áður staðfest bótaábyrgð A ehf. að 2/3 hluta en fyrir Landsrétti laut málið að fjárhæð og útreikningi skaðabóta vegna tímabundins atvinnutjóns, þjáninga, miska og varanlegrar örorku. Ágreiningur aðila laut meðal annars að því hvort draga bæri bætur og aðrar greiðslur samkvæmt 2. mgr. 2. gr. og 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 frá tímabundnu atvinnutjóni og varanlegri örorku áður en frádrætti væri beitt vegna sakarskiptingar eða eftir að það hefði verið gert. Í dómi Landsréttar var rakið að rétt væri að beita frádrætti vegna sakarskiptingar eftir að framangreindar greiðslur hefðu verið dregnar frá. Þá greindi aðila jafnframt á um hvaða árslaun bæri að leggja til grundvallar við útreikning varanlegrar örorku B. Í dómi Landsréttar var talið að meta yrði árslaun hans sérstaklega með vísan til 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga og lagt til grundvallar að miða bæri við fyrirliggjandi upplýsingar um meðallaun verkakarla. Með hliðsjón af framangreindu en að öðru leyti með vísan til hins áfrýjaða dóms var A ehf. gert að greiða B 16.785.311 krónur með nánar tilgreindum vöxtum.

Landsréttur birt 29. október 2021

398/2020

A (Sveinbjörn Claessen lögmaður) gegn Verði tryggingum hf (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)

A krafði V hf. um skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í umferðarslysi. V hf. hafði viðurkennt greiðsluskyldu sína. Ágreiningur var með aðilum um bætur fyrir varanlega örorku af völdum slyssins, það er hvort ákvörðun bóta skyldi miða við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eða hvort meta skyldi árslaun sérstaklega samkvæmt 2. mgr. sömu greinar. Í dómi Landsréttar var rakið að þegar litið yrði til langrar atvinnusögu A yrði ekki talið að hann hefði sýnt fram á það með viðhlítandi hætti að þær aðstæður hefðu verið fyrir hendi að ákvarða bæri bætur til hans eftir reglu 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um að sýkna V hf. af öllum kröfum A.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 29. júní 2021

E-7484/2020

A (Haukur Freyr Axelsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Ólafur Lúther Einarsson lögmaður)

A lenti í umferðarslysi í nóvember 2017 og greindi aðila á um hvort ákveða skyldi árslaun við útreikning á bótum vegna varanlegrar örorku á grundvelli meginreglu 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga eða hvort uppfyllt væru skilyrði 2. mgr. greinarinnar til að ákveða árslaun sérstaklega. A hafði þegar fengið greiddar skaðabætur sem tóku mið af lágmarkslaunum samkvæmt 3. mgr. 7. gr. Ekki var talið að upplýsingar um atvinnuþátttöku A fyrir slysið og launatekjur, að því marki sem upplýst hafði verið um þær, renndu stoðum undir að þau viðmið sem kröfur hans byggðu á væru réttari mælikvarði á framtíðartekjur hans en lágmarkslaun. Þar sem talið var að tjón A hefði verið að fullu bætt var V hf. sýknað af kröfu hans.

Hæstiréttur birt 26. júní 2020

5/2020

TM hf (Hjörleifur Kvaran lögmaður) gegn A (Víðir Smári Petersen lögmaður)

A krafði T hf. um skaðabætur vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir við það að veggskápur féll ofan á hana er hún var við vinnu sem tanntæknir á tannlæknastofunni B slf. Hafði A hafið störf hjá B slf. þremur vikum fyrir slysið og var starfshlutfall hennar 70%. Í málinu deildu aðilar um hvort stofnast hefði til skaðabótaábyrgðar vinnuveitanda sem T hf. bæri að bæta úr ábyrgðartryggingu og ef svo væri hvort bætur fyrir varanlega örorku ætti að reikna miðað við árslaun A eftir meginreglunni í 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eða hvort meta ætti árslaunin sérstaklega samkvæmt 2. mgr. sömu greinar. Í dómi Hæstaréttar var vísað til þess að lögmaður T hf. hafði sent lögmanni A fyrirvaralausa yfirlýsingu T hf. um að ákveðið hefði verið að una dómi Landsréttar og hefði með því sakarefni málsins verið ráðstafað og áfrýjun málsins ósamrýmanleg því. Var því kröfum T hf. í aðalsök vísað frá Hæstarétti. Þá var talið að þátttaka A á vinnumarkaði á árunum 2011 til 2013 hefði verið frábrugðin fyrri atvinnuþátttöku hennar. Með hliðsjón af því að A hefði verið í námi og atvinnulaus hluta af umræddu tímabili, auk þess sem hún hefði verið í hlutastarfi og unnið um skeið við annað en hún hafði menntun til, var talið að aðstæður hennar hefðu verið óvenjulegar. Laun hennar á því árabili voru því ekki talin gefa rétta mynd af framtíðartekjum hennar og af þeim sökum var talið að meta yrði árslaun hennar sérstaklega eftir heimild í 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Þá var talið eftir gögnum málsins að ætla mætti að A hefði aukið starfshlutfall sitt þegar börn hennar yrðu eldri auk þess sem gera mætti ráð fyrir að hún hefði nýtt starfsgetu sína við heimilisstörf sem svaraði til skerts starfshlutfalls en þau væru samkvæmt 3. mgr. 1. gr. skaðabótalaga lögð að jöfnu við launatekjur, sbr. 2. mgr. 7. gr. laganna. Var fallist á með A að miða bæri árslaun hennar við þau laun sem hún hafði hjá B slf. miðað við fullt starf.

Hleð fleiri dómum…