Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lykilorð: Vinnueftirlit

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. júní 2023

E-3557/2021

Álftavatn ehf (Arnar Vilhjálmur Arnarsson lögmaður) gegn embætti landlæknis og íslenska ríkinu (Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson lögmaður)

Stefnandi, leigusali, höfðaði mál á hendur stefnda, leigutaka, til greiðslu efndabóta þar eð hann taldi að riftun stefnda á húsaleigusamningi við stefnanda hefði ekki verið lögmæt. Dómurinn féllst á að öll skilyrði 3. töluliðar 1. mgr. 60. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 fyrir riftun leigusamnings hefðu verið uppfyllt á riftunardegi. Stefnandi var þó talinn eiga rétt til leigugreiðslna fyrir rúman mánuð sem stefndi átti ógreiddan. Þar eð stefndi var talinn eiga hærri kröfu á stefnanda og öll skilyrði skuldajöfnunar voru uppfyllt hafði leiguskuldin verið gerð upp með yfirlýsingu stefnda um skuldajöfnun. Stefndi var því sýknaður af öllum fjárkröfum stefnanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 20. október 2022

E-5935/2021

A (Kári Valtýsson lögmaður) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Kristín Edwald lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Stefnda tryggingafélag var dæmt til að greiða skaðabætur til stefnanda úr ábyrgðartryggingu vegna afleiðinga vinnuslyss, en ágreiningur var um sönnun á eðli tjónsatviks sem og um árslaunaviðmið.